Erlent

Vilja banna nektarskanna

„Ef við megum ekki taka nektarmyndir af fólki, hvers vegna leyfum við þá stjórnvöldum að gera það?“ spurði bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ron Paul, einn helsti talsmaður þeirra repúblikana sem hvað ákafast vilja draga úr umsvifum ríkisins.

Erlent

Hugsanleg árás Al Kaída

Glerhvelfingunni yfir þinghúsinu í Berlín hefur verið lokað um óákveðinn tíma af öryggisástæðum. Hvelfingin er vinsæll ferðamannastaður enda er þaðan frábært útsýni yfir borgina til allra átta.

Erlent

Olli upphlaupi á Torgi hins himneska friðar

Þrettán ára amerískur strákur olli upphlaupi á Torgi hins himneska friðar í Peking í dag þegar hann breiddi út borða þar sem þess var krafist að hlutlausa svæðið á landamærum Norður- og Suður-Kóreu yrði gert að friðargarði.

Erlent

Tæplega 340 manns létust í troðningi

Að minnsta kosti 339 manns létust í troðningi á brú í höfuðborg Kambódíu, Phnom Penh, í dag. Milljónir manna voru á götum borgarinnar að fagna vatnahátíð, sem er árlegur viðburður í borginni.

Erlent

Litla Hafmeyjan komin heim

Litla Hafmeyjan er komin heim á steininn sinn í Kaupmannahöfn. Undanfarin misseri hefur hún verið í Sjanghæ þar sem hún skreytti danska skálann á heimssýningunni.

Erlent

Vongóðir um námumenn

Forsætisráðherra Nýja Sjálands segir góðar líkur á því að námumennirnir 29 sem lokuðust niðri í námu sinni á föstudag, séu enn á lífi.

Erlent

Um 120 þúsund flýja Írland

Reiknað er með því að um 120 þúsund Írar muni flýja heimaland sitt í ár og freista gæfunnar í öðrum ríkjum, eftir því sem fram kemur í New York Times.

Erlent

Vilja Vilhjálm prins í konungssætið

Um 64% Breta vilja að Vilhjálmur prins taki við krúnunni eftir að amma hans, Elísabet II, sest í helgan stein. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem gerð var fyrir breska slúðurblaðið News of the World.

Erlent

Kate er engin óbreytt almúgakona

Vilhjálmur prins og Kate Middleton tilkynntu í liðinni viku að þau hyggðust ganga í hjónaband. Sérfræðingum í bresku kóngalífi þykir merkilegt að Vilhjálmur prins hafi ákveðið að kvænast óbreyttri almúgakonu, eins og þeir orða það.

Erlent

Páfinn tekur smokka í sátt

Benedikt XVI páfi segir að notkun smokka sé í sumum tilfellum réttlætanleg, einkum ef tilgangurinn er að draga úr líkum á HIV smiti. Þetta kemur fram í nýrri bók um páfan sem norska blaðið Aftenposten vísar til.

Erlent

Vilja að Afganar gæti eigin öryggis

Leiðtogar ríkja Atlantshafsbandalagsins ræða í dag áætlun sem felur í sér að yfirvöld í Afganistan byrji að taka að sér öryggisgæslu í landinu á næsta ári. Áætlunin felur í sér að Afganistar hafi tekið öryggisgæsluna að fullu yfir árið 2014. Hingað til hafa hersveitir á vegum Atlantshafsbandalagsins gætt öryggis í landinu.

Erlent

Wesley Snipes hefur afplánun hið fyrsta

Dómari hefur fyrirskipað að Hollywood leikarinn Wesley Snipes skuli gefa sig fram við yfirvöld og hefja afplánun á þriggja ára fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir skattalagabrot. Dómari í Flórída hafnaði í gær beiðni lögmanna Snipes um að mál hans yrði tekið fyrir að nýju. Árið 2008 var Snipes fundinn sekur um að hafa sleppt því að skila inn skattaskýrslum á árunum 1999-2001.

Erlent

Stokka upp í landbúnaði

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í vikunni hugmyndir um breytingar á sameiginlegu landbúnaðarstefnunni, sem stefnt er að á næstu árum.

Erlent

Fundu 31 árs gamalt svarthol

Stjarnvísindamenn telja sig hafa fundið yngsta svarthol sem vitað er um í námunda við vetrar­brautina okkar. Til þess notuðu þeir Chandra-röntgengeimsjónauka NASA. Svartholið varð til þegar stjarna sprakk árið 1979 og er því 31 árs gamalt.

Erlent

Vilja yfirgefa Afganistan 2014

Miklar væntingar eru bundnar við leiðtogafund Atlants­hafsbandalagsins, NATO, sem hófst í Lissabon í gær, en þar verður meðal annars reynt að ná samstöðu um að draga herlið út úr Afganistan fyrir árið 2014.

Erlent

Björgun gæti tekið marga daga

Vonir eru bundnar við að 27 námumenn sem saknað er eftir gríðarlega sprengingu í kolanámu á Nýja Sjálandi í nótt séu á lífi. Marga daga gæti tekið að bjarga mönnunum út.

Erlent