Erlent

Regnbogaindíáninn kemur til Íslands -myndband

Regnbogaindíáninn svokallaði er á leið til Íslands en hann hefur tekið að sér að vera verndari nemendafélags menntaskólans Hraðbrautar. Paul „Svangi Björn" Vasquez varð heimsfrægur eftir að hann setti á netið myndir sem hann tók af tvöföldum regnboga sem hann sá í einni af fjallaferðum sínum.

Erlent

Rifist um björgunarhylkið Fönix

Tveir bæir í Chile takast nú á um hvor þeirra eigi meiri rétt á því að geyma björgunarhylkið sem var notað til þess að bjarga námumönnunum 33 úr prísund sinni.

Erlent

Eva Joly fær nýjan keppinaut í Frakklandi

Leikkonan Brigitte Bardot hefur verið beðin um að bjóða sig fram í forsetakosningunum sem haldnar verða í Frakklandi árið 2012. Það er flokkur umhverfissinna sem vilja fá hana í framboð.

Erlent

Osama hefur það ágætt, takk

Háttsettur embættismaður NATO segir við fréttastofuna CNN að Osama bin Laden leiðtogi Al Kaida haldi sig í norðvesturhluta Pakistans og lifi þar þægilegu lífi.

Erlent

Ummæli Merkel vekja deilur

BERLÍN, AP Þau ummæli Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, að tilraunir til að skapa fjölmenningarsamfélag innan landsins hafi mistekist hrapallega hafa orðið kveikjan að miklum umræðum um stefnu Þjóðverja í innflytjendamálum.

Erlent

Skipta um trú í mótmælaskyni

Bretland, AP Biskup og prestur innan ensku þjóðkirkjunnar tilkynntu nýverið að þeir ætli að gerast meðlimir rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Ástæðuna segja þeir vera óánægju með þau áform þjóðkirkjunnar að leyfa kvenkyns prestum að gegna stöðu biskups.

Erlent

Gat ekki valið á milli kvenna

Pakistanskur maður að nafni Azhar Haidri ætlar að kvænast tvemur konum á innan við sólarhring. Hann gat ekki ákveðið hvort hann ætti að heiðra fjölskyldu sína og kvænast konunni sem hann hefur verið trúlofaður frá barnsaldri eða hvort hann ætti að leyfa hjartanu að ráða og kvænast ástinni sinni. Haidri ákvað því að besta lausnin væri að kvænast báðum konunum.

Erlent

Frakkar bensínlausir í verkfallsaðgerðum

PARÍS, AP Enn var þeim áformum ríkisstjórnar Nikolas Sarkozy, forseta Frakklands, að hækka eftirlaunaaldur úr sextíu árum í 62 ár mótmælt í gær þegar hundruð þúsunda streymdu út á götur í helstu borgum landsins. Einnig var mótmælt á laugardag og stendur til að halda mótmælum áfram á morgun, sem þá verða sjöttu stóru mótmælin á innan við mánuði í landinu.

Erlent

Nóg af eldsneyti á flugvöllunum

Dominique Bussereau, samgönguráðherra Frakklands, segir að verkfall starfsmanna 12 olíuhreinsunarstöðva og annarra starfstétta í landinu muni ekki hafa áhrif flugsamgöngur. Áhrif aðgerðanna gætti strax í fyrradag þegar flæði á eldsneyti til flugvalla í París minnkaði til muna. Talið var að Orly flugvöllur fengi eldsneyti út vikuna en að eldsneyti gæti gengið til þurrðar á Charles de Gaulle og Roissy flugvelli undir loka helgarinnar. Komið var í veg fyrir það.

Erlent

Námuverkamennirnir fögnuðu

Tólf að námuverkamönnunum 33 sem bjargað var úr námugöngunum í Chile í vikunni komu saman í dag í búðunum við koparnámnuna til að fagna björgun þeirra. Í frétt á BBC er haft eftir læknum að námuverkamennarnir séu ótrúlega vel á sig komnir. Einungis einn þeirra dvelur enn á sjúkrahúsi.

Erlent

Sjö látnir eftir skartgriparán

Sjö létu þegar að skotbardagi braust út í miðborg Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag þegar þrjár skartgripaverslanir voru rændar. Meðal hinna látnu eru þrír starfsmenn verslananna og tveir lögreglumenn. Nokkrir almennir borgarar særðust.

Erlent

Chavez til fundar við Ahmadinejad

Hugo Chavez, forseti Venesúela, er á leið til Írans þar sem hann hyggst funda með vini sínum Mahmoud Ahmadinejad, forseta landsins. Venesúela og Íran hafa styrkt mjög samband sitt á undanförnum árum og hafa forsetarnir verið duglegir að heimsækja hvern annan. Hugsunin með fundi þeirra er að styrkja samband ríkjanna ennfrekar.

Erlent

Prinsessa í sjokki eftir bílslys

Beatrice prinsessa, dóttir Andrews prins af Englandi, slapp með skrekkinn eftir bílslys skammt frá Buckingham höll í morgun. Prinsessan var í BMW bíl sínum ásamt lífverði í sex akreina hringtorgi skammt frá höllinni þegar hún bíllinn kramdist milli tveggja hæða strætisvagns og rútu. Bíllinn er mikið skemmdur en prinsessan og lífvörðurinn sluppu ómeidd. Hún er þó sögð hafa verið í sjokki eftir óhappið.

Erlent

Ættingjar bíða í ofvæni

Ættingjar ellefu námuverkamanna sem eru fastir í kolanámu í Kína, eru komnir að námunni og bíða í ofvæni eftir fréttum af björgunarstörfum. Sprenging varð í námu sem er um 650 kílómetra suður af Peking. 26 námumenn fórust í sprengingunni.

Erlent

Milljarðamæringur hefur ekki gefið sig fram

Breskur lottóspilari sem fékk ríflega 20 milljarða króna í vinning þegar stóri potturinn í Evrópulottóinu kom á einn miða fyrir níu dögum hefur ekki gefið sig fram. Það eina sem liggur fyrir er að miðinn var keyptur í Coventry.

Erlent

Fótboltastjarna keypti bassagítar bítils

Bassagítar sem áður var í eigu bítilsins Paul McCartney var seldur á uppboði í Buenos Aires höfuðborg Argentínu á föstudag fyrir 4,2 milljónir króna. Fótboltastjarnan Javier Zanetti keypti gripinn. Bassinn var hluti af bítlaminjagripum úr safni Raul Blisniuk, sem sagður er mikilvægasti bítlasafnari í Suður-Ameríku.

Erlent

Sex teknir í dýrlingatölu

Tugir þúsunda manna komu saman á Péturstorginu í Róm í morgun í messu þar sem sex einstaklingar verða teknir í dýrlingatölu. Dýrlingarinir nýju eru frá Ástralíu, Kanada, Póllandi, Ítalíu og Spáni. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar nafn Mary MacKillop nítjándu aldar nunnu frá Ástralíu var nefnt, en hún var um tíma bannfærð af kaþólsku kirkjunni eftir að hún greindi frá barnaníðingi í hópi presta. Hún er fyrsti Ástralinn til að vera tekin í dýrlingatölu. Fáni Qubecs héraðs í Kanada var áberandi á Péturstorginu. Andre Bessette, munkur sem fæddist í Montréal, var einnig tekinn í dýrlingatölu en hann er sagður hafa læknað marga sjúka með bænum sínum.

Erlent

Bandaríkin geta gert betur

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin þurfa að gera mun meira til að aðstoða mexíkósk yfirvöld í baráttu þeirra gegn skipulögðum glæpasamtökum. Hún líkir samtökunum við starfsemi hryðjuverkamanna og bendir máli sínu til stuðnings á að glæpasamtökin beiti nú óspart bílsprengjum.

Erlent

Tólf drukknuðu í flóðum

Að minnsta kosti 12 drukknuðu í flóðum í suðurhluta Rússlands í gær en þar hefur verið úrhellisrigning undanfarna daga. Þriggja er saknað. Nokkur hundruð íbúar á flóðasvæðunum hafa verið fluttir burt frá heimilum sínum og þá hafa hermenn verið sendir til að aðstoða við fólksflutninga.

Erlent