Erlent

Nasdaq OMX dregur sig í hlé

Kauphallarsamstæðan Nasdaq OMX og evrópski hrávörumarkaðurinn Intercontinental drógu í gær til baka óvinveitt tilboð sitt í keppinautinn NYSE Euronext.

Erlent

Dóttirin fékk nafnið Like

Nýbökuðu ísraelsku foreldrarnir fóru heldur óhefðbundnar leiðir þegar þau létu skíra dóttur sína á dögunum. Þau þurftu ekki að leita langt, í raun fóru þau bara í heimilistölvuna og skráðu sig inn á samskiptasíðuna Facebook. Þar fundu þau nafnið á litlu stúlkuna; Like.

Erlent

Fjórir fluttir á spítala eftir skinkurifrildi

Ástæðurnar fyrir því að fólk fer að rífast eru margar hverjar óvenjulegar og sumar eru óskiljanlegar. Frekar óvenjulegt atvik kom upp í stórverslun í bænum Livorno á Ítalíu á dögunum þegar fjórir voru fluttir á spítala eftir rifrildi um skinku.

Erlent

Ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna

Viðskiptajöfurinn Donald Trump tilkynnti í dag að hann ætli ekki að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna í forsetakosningunum á næsta ári. Orðrómur hefur verið uppi síðustu mánuði um að hann ætlaði að bjóða sig fram sem forsetaefni Repúblikaflokksins.

Erlent

Óvenju róstusamt á landamærum Ísraels á afmælisdaginn

Fréttaskýrandi BBC í Líbanon veltir fyrir sér hvort mótmæli á landamærum Ísraels, Sýrlands og Líbanons um helgina hafi að einvherju leyti verið að undirlagi stjórnvalda í Sýrlandi og Hizbolla í Líbanon. Stofnunar Ísraelsríkis árið 1948 var minnst hinn 14. þessa mánaðar.

Erlent

Ótti um yfirvofandi sprengjuárás í London

Óttast var að sprengjuárás væri yfirvofandi í miðborg Lundúna í morgun. Lögregluyfirvöld staðfesta þetta en nokkrum götum á svæðinu var lokað. Talið er að hótun hafi borist frá írskum aðskilnaðarsinnum þótt það hafi ekki fengist staðfest. Heimildir BBC herma að hótunin hafi borist í gærkvöldi. Engin sprengja hefur þó fundist og er almenningur hvattur til að halda áfram sínu daglega amstri, en að vera á varðbergi.

Erlent

Bein útsending frá síðasta geimskoti Endeavour

Geimskutlan Endeavour fer í sína síðustu geimför núna klukkan eitt. Geimskutlur NASA eru núna að ljúka þjónustu sinni og nú er komið að Endeavour að fara í sína hinstu för. Leiðangursstjóri í ferðinni er Mark Kelly, en hann er eiginmaður Gabrielle Giffords, bandarísku þingkonunnar sem skotið var í höfuðið í Arizona í janúar.

Erlent

Vilja handtaka Gaddafí og draga fyrir rétt

Saksóknari við Alþjóðlega glæpadómstóllinn í Haag vill gefa út handtökuskipun á einræðisherra Líbíu, Múammar Gaddafí og nánustu samverkamenn hans. Saksóknarinn, Luis Moreno-Ocampo, vill koma böndum á Gaddafí og einnig son hans Seif al-Islam og Abdullah al-Sanusi yfirmann leyniþjónustunnar.

Erlent

Dýragarður aflar fjár með sölu á fílataði

Forráðamenn dýragarðsins í Prag í Tékklandi hafa fundið nýstárlega aðferð til fjáröflunnar. Þeir selja dósir með fílataði og seljast þær eins og heitar lummur að því er segir í fréttaskeyti frá AP fréttastofunni.

Erlent

Lipsky stýrir AGS

John Lipsky er starfandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Eins og fram hefur komið var framkvæmdastjórinn, Dominique Strauss Kahn, handtekinn í gærkvöld og ákærður fyrir kynferðisbrot gegn hótelþernu í New York.

Erlent

Hver er þessi Dominique Strauss-Kahn?

Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, mun neita því að hafa framið kynferðisbrot gegn hótelþernu þegar að hann verður færður fyrir dómara í dag. Þetta segja verjendur hans í samtali við CNN. Hann var handtekinn í gær vegna meints brots og ákærður í morgun.

Erlent

Níu ára tekinn fyrir ölvunarakstur

Níu ára gamall drengur í Cumbria á Englandi hefur verið handtekinn fyrir ölvunarakstur, samkvæmt lögregluskýrslum sem breska blaðið Sunday Telegraph vísar til. Blaðið segir að drengurinn hafi ekki verið nafngreindur vegna barnaverndalaga. Öndunarsýni hafi verið tekin af honum og honum hafi verið haldið um stund í gæslu lögreglunnar.

Erlent

Átök á Gasaströndinni

Ísraelskar hersveitir hófu skothríð á hóp Palestínumanna á Gasaströndinni í morgun. Fimmtán særðust í skotárásinni, samkvæmt frásögn fréttastofu BBC af atburðarrásinni. Þá hófu Ísraelar einnig skotárásir á hópa við landamæri Sýrlands og á Gólanhæðum. Þar særðust líka nokkrir. Þá hefur líka skorist í brýnu milli Ísraelsmanna og Palestínumanna í borginni Ramallah á Vesturbakkanum. Adham Abu Salmiya, heilbrigðisráðherra Palestínumanna, sagði í samtali við Associated Press fréttastofuna að allir þeir sem hefðu orðið fyrir árás á Gasaströndinni væru undir átján ára aldri.

Erlent

Verjandi Strauss-Kahn varar við fjölmiðlasirkus

Verjandi Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, varar fólk við því að dæma skjólstæðing sinn of fljótt. Strauss-Kahn var handtekinn í gær. Hann er sakaður um að hafa nauðgað hótelþernu í New York í gær og hefur verið ákærður vegna málsins.

Erlent

AGS tjáir sig ekki um mál framkvæmdastjórans

Caroline Atkinson, framkvæmdastjóri ytri samskipta hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni ekkert tjá sig um mál framkvæmdastjóra sjóðsins, sem var handtekinn í gær.

Erlent

Vill auka loftárásir á Líbíu

Æðsti yfirmaður breska hersins segir Atlantshafsbandalagið verða að auka herstyrk sinn í Líbíu með því að aflétta hömlum sem sett hafa verið á skotmörk í loftárásum.

Erlent

Framkvæmdastjóri AGS ákærður fyrir nauðgun

Dominique Strauss-Kahn framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS, var handtekinn í New York í Bandaríkjunum í gærkvöld, sakaður um að hafa reynt að nauðga herbergisþernu á hóteli í borginni.

Erlent

Danir stefna á sigur í Eurovision

Frændur vorir, Danir, taka Eurovision söngvakeppninni ekki af neinni léttúð þetta árið. Þeir stefna á sigur í keppninni. Fréttavefur Jyllands Posten segir að í ellefu daga hafi danska grúppan, sem heitir A Friend In London, verið í Dusseldorf, æft og talað við fjölmiðla.

Erlent

Dylan sakaður um að svíkja málstaðinn

Söngvarinn Bob Dylan hafnar því með öllu að stjórnvöld í Kína hafi ritskoðað tónlist sem hann flutti á tónleikum þar í landi. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir það að hafa látið yfirvöld í landinu í té lista yfir þau lög sem hann flutti áður en tónleikarnir hófust. Með þessu var Dylan sakaður um að hafa svikið hippamálstaðinn sem hann varð frægur fyrir þegar byrjaði að flytja tónlist á sjöunda áratug síðustu aldar. Dylan segist ekkert hafa vitað um neina ritskoðun og hann hafi flutt alla þá tónlist sem hann hafi í upphafi ætlað sér að flytja.

Erlent