Erlent

Þora ekki í sturtu í skólanum

Nemendur í nokkrum sveitarfélögum í Svíþjóð eru svo hræddir um að teknar verði myndir af þeim þegar þeir eru í sturtu í skólanum að þeir eru farnir að hætta að þvo sér eftir íþróttatíma.

Erlent

Áfengi heilsubót fyrir aðeins 15 prósent

Aðeins um 15 prósent manna hafa gagn af því að drekka eitt glas af rauðvíni á dag sér til heilsubótar. Þetta eru niðurstöður rannsóknar norskra og sænskra vísindamanna sem gerð var við háskólann í Gautaborg í Svíþjóð.

Erlent

Harper segir að öfgamenn muni ekki hræða Kanadamenn

Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, segir að landsmenn muni aldrei láta öfgamenn hræða sig en á síðustu dögum hafa tvær árásir verið gerðar á kanadíska hermenn. Í gær var hermaður skotinn til bana fyrir utan þinghús landsins og fór árásarmaðurinn síðan rakleitt inn í þinghúsið þar sem hann var felldur af lögreglu.

Erlent

Bandarísk vopn í höndum IS

Bandaríkjamenn sendu vopnapakka til Kúrda sem kastað var úr flugvélum en einn pakkinn virðist hafa komist í hendur íslamskra vígamanna.

Erlent

Lá á gólfinu í tvær klukkustundir og mátti ekki hreyfa sig

„Við erum enn föst inni á skrifstofunni,“ segir Jean Francois Tessier, íslenskur ríkisborgari og aðstoðarmaður kanadíska þingmannsins Alexandrine Latendresse. Hann segir að enginn hafi fengið að yfirgefa kanadíska þinghúsið síðustu átta klukkustundir.

Erlent

Kafbáturinn enn ófundinn

Sænski herinn leitar enn að mögulegum kafbát í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm en nú eru sex dagar liðnir frá því leitin hófst.

Erlent

Aðeins sex eftir í heiminum

Aðeins sex hvítir nashyrningar frá norðurhluta Afríku eru eftir í heiminum eftir að Suni, 34 ára karldýr í Kenía, drapst í vikunni.

Erlent