Fótbolti
Modric segir að stjórnarformaður Tottenham hafi beitt hótunum Króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric heldur því fram að David Levy stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham hafi haft í hótunum við sig. Modric hefur lýst því yfir að hann vilji komast frá Tottenham. Levy er allt annað en ánægður með þá ákvörðun leikmannsins. Modric segir að Levy hafi hótað því að hann fengi ekkert að spila með félaginu ef hann sætti sig ekki við þá ákvörðun félagsins að setja hann ekki á sölulista. Enski boltinn 11.7.2011 14:00
Umfjöllun: Tilþrifalítið jafntefli í Laugardal Framarar og Grindvíkingar skildu jöfn í stressleik í Laugardalnum í kvöld. Lokatölur 1-1 í leik þar sem lítið var um góð tilþrif. Íslenski boltinn 11.7.2011 13:57
HM kvenna: Bestu myndir helgarinnar frá AFP Undanúrslitaleikirnir á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta fara fram á miðvikudaginn en keppnin fer fram í Þýskalandi. Japan og Svíþjóð eigast við í öðrum undanúrslitaleiknum en Bandaríkin og Frakklands eigast við í hinum undanúrslitaleiknum. Úrslitaleikurinn fer fram sunnudaginn 17. júlí en í myndasyrpunni eru bestu myndirnar frá AFP úr leikjunum í átta liða úrslitum keppninnar. Fótbolti 11.7.2011 13:30
John Arne Riise í læknisskoðun hjá Fulham John Arne Riise fyrrverandi leikmaður Liverpool sem leikið hefur með Roma á Ítalíu undanfarin ár er í læknisskoðun hjá Fulham þessa stundina. Samkvæmt frétt á vef norska ríkisútvarpsins verður Riise kynntur sem nýr leikmaður félagsins síðar í dag. Enski boltinn 11.7.2011 12:30
Eiður Smári með tilboð frá West Ham Eiður Smári Guðjohnsen hefur í höndunum tilboð frá West Ham, þetta staðfesti Arnór Guðjohnsen faðir og umboðsmaður Eiðs við íþróttadeild Stöðvar 2 í morgun. Nýliðar Swansea í ensku úrvalsdeildinni hafa einnig boðið Eiði Smára samning og segir Arnór að fleiri möguleikar séu einnig í boði en Eiður sé þessa dagana að gera upp hug sinn. Enski boltinn 11.7.2011 12:00
Fallslagur í Laugardalnum og Valur gæti komist á toppinn Þrír leikir fara fram í kvöld í Pepsi-deild karla þegar 10. umferð lýkur. Valur og Stjarnan eigast við á Vodafonevellinum en Valsmenn geta með sigri náð efsta sætinu af KR-ingum sem eiga reyndar einn leik til góða á Val. Leikurinn hefst kl. 20.00 og verðu hann í beinni útsendingu á Stöð2 sport. Farið verður yfir öll helstu atvikin og mörkin úr 10. umferð í Pepsimörkunum kl. 22.00 á Stöð 2 sport. Íslenski boltinn 11.7.2011 11:30
Wenger er vongóður um að halda Fabregas og Nasri Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er vongóður um að Cesc Fabregas og Samir Nasri verði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð. Fabregas, sem er fyrirliði Arsenal, er efstur á óskalistanum hjá Barcelona á Spáni og félögin hafa rætt um hugsanleg vistaskipti hans en kaupverðið hefur staðið í vegi fyrir því að félögin hafi komist að samkomulagi. Manchester City og Manchester United hafa bæði áhuga á að fá Nasri í sínar raðir. Franski landsliðsmaðurinn á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning. Enski boltinn 11.7.2011 11:00
Þjálfari enska landsliðsins gagnrýnir eldri leikmenn liðsins Hope Powell, þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, gagnrýndi eldri og reyndari leikmenn liðsins fyrir „heigulskap" þegar liðið tapaði í vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Frökkum. Powell segir að hún hafi átt í mestum vandræðum með að finna leikmenn sem vildu taka þeirri áskorun sem fylgir því að fara í vítaspyrnukeppni. Ungur og lítt reyndur bakvörður, Claire Rafferty, sem komið hafði inn á sem varamaður á 80. mínútu , náði ekki að skora úr fjórðu vítaspyrnunni og Fay White fyrirliði enska liðsins klúðraði fimmtu vítaspyrnunni. Fótbolti 11.7.2011 10:30
Batista setur Tévez á bekkinn hjá Argentínu fyrir leik kvöldsins Mikil spenna er fyrir leik Argentínu gegn Kosta-Ríku í kvöld á Copa America, Suður-Ameríkukeppninni í fótbolta. Argentínumenn verða að vinna til þess að komast áfram úr riðlakeppninni og hefur þjálfari liðsins, Sergio Batista, ákveðið að gera fjórar breytingar á liðinu og setur hann m.a. Carlos Tévez og Ezequiel Lavezzi út úr byrjunarliðinu. Gonzalo Higuaín og Sergio Agüero koma inn í byrjunarliðið í þeirra stað. Fótbolti 11.7.2011 09:30
Enn ein stjarnan til Katar Brasilíski knattspyrnumaðurinn Ze Roberto hefur ákveðið að ljúka ferli sínum með Al Gharafa í Katar. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið en hann var samningslaus. Fótbolti 11.7.2011 09:00
Hearts snýr baki við dæmdum kynferðisbrotamanni Vladimir Romanov, eigandi skoska knattspyrnuliðsins Hearts, hefur sagt Craig Thomson að hann muni ekki spila framar fyrir félagið. Thomson var dæmdur fyrir ósæmilega hegðun gagnvart táningsstúlkum í júní síðastliðnum. Fótbolti 11.7.2011 08:30
Uppljóstrarinn í Katar dregur ásakanir um mútugreiðslur tilbaka Uppljóstrarinn í Katar, sem ásakaði þrjá fulltrúa í framkvæmdaráði FIFA um að hafa þegið mútugreiðslur vegna framoðs Katar til heimsmeistarakeppninnar 2022, hefur dregið sögu sína tilbaka. Fótbolti 11.7.2011 08:00
Tryggvi nálgast met Inga Björns, 120 mörk Eyjamaðurinn, Tryggvi Guðmundsson, nálgast markametið í efstu deild karla óðum, en Tryggvi hefur nú skorað 120 mörk í efstu deild. Ingi Björn Albertsson skoraði 126 mörk í efstu deild og því vantar Tryggva aðeins sjö mörk til að bæta metið. Íslenski boltinn 11.7.2011 07:00
Beckham mætir Manchester United David Beckham og stjörnulið MSL-deildarinnar mæta fyrrum félögum Beckham í Manchester United í æfingaleik þann 27. júlí næstkomandi. Auk Beckham verða Landon Donovan, Thierry Henry og Kasey Keller í byrjunarliðinu. Enski boltinn 11.7.2011 00:06
Rúnar: Lékum gríðarlega vel í fyrri hálfleiknum "Menn léku gríðarlega vel í fyrri hálfleik og voru vel á tánum,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir stórsigur KR-inga á Fylki 3-0 þar sem öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum. Íslenski boltinn 10.7.2011 23:11
Grétar: Ætlum okkur langt í öllum keppnum „Við skoruðum þrjú glæsileg mörk og ég er stoltur af liðinu að hafa spilað sig svona vel í gegnum gott lið Fylkis,“ sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld. Íslenski boltinn 10.7.2011 22:58
Ásgeir: Við drulluðum á okkur „Þetta er bara gjörsamlega til skammar og ég á ekki til orð yfir spilamennsku okkar í leiknum,“ sagði Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis, eftir tapið í kvöld. Íslenski boltinn 10.7.2011 22:52
Rosenborg og Stabæk í viðræðum um kaupverð á Veigari Páli Norska sjónvarpsstöðin TV 2 greinir frá því að norsku meistararnir í knattspyrnu Rosenborg séu í viðræðum við Stabæk um kaup á Veigari Páli Gunnarssyni. Fótbolti 10.7.2011 22:48
Guðjón: Verð að vera ánægður með mína fyrstu þrennu „Ég hefði getað skorað fleiri mörk í kvöld en maður getur ekki verið ósáttur með fyrstu þrennuna í úrvalsdeild,“ sagði Guðjón Baldvinsson, markaskorari KR, eftir leikinn í kvöld. Íslenski boltinn 10.7.2011 22:47
Kólumbíumenn unnu Bóllivíu og tryggðu sér sigur í riðlinum Landslið Kólumbíu í knattspyrnu vann 2-0 sigur á Bólivíu í A-riðli Suður-Ameríkukeppninnar í knattspyrnu í Argentínu í kvöld. Kólumbía hefur tryggt sér efsta sætið í riðlinum og er komið í 8-liða úrslit. Fótbolti 10.7.2011 21:45
Sigursteinn látinn fara - Miljkovic tekur við Zoran Miljkovic verður næsti þjálfari Leiknis í fyrstu deild. Fótbolti.net greinir frá því að Sigursteini Gíslasyni og Garðari Gunnari Ásgeirssyni hafi verið sagt upp störfum. Íslenski boltinn 10.7.2011 21:15
Heimir Guðjóns: Þeir voru betri á öllum sviðum Heimir Guðjónsson þjálfari FH var ekki ánægður með 3–1 tap á Hásteinsvellinum. Hann vildi kenna viljaleysi sinna manna um hvernig fór en leikur FH-inga var einstaklega slappur í dag. Íslenski boltinn 10.7.2011 20:53
Tryggvi: Vissum alveg hvað við ætluðum að gera Maður leiksins, Tryggvi Guðmundsson, var að vonum ánægður í leikslok. Tryggvi sem er fyrrum FH-ingur skoraði eitt og lagði upp annað í 3–1 sigri Eyjamanna og FH-ingunum. Íslenski boltinn 10.7.2011 20:50
Given er tilbúinn að taka á sig launalækkun Shay Given, varamarkvörður Man. City, hefur gefið það út að hann sé tilbúinn að taka á sig 25.000 punda launalækkun á viku svo hann komist til Aston Villa, en Villa leitar nú óðum að markverði þar sem Brad Friedel fór frá liðinu á dögunum. Enski boltinn 10.7.2011 19:00
Bandaríkin sló Brasilíu út í dramatískum leik eftir vítakeppni Það verða Bandaríkin sem mæta Frökkum í undanúrslitum á HM kvenna á miðvikudag. Bandaríkin lagði Brasilíu í risaslag í 8-liða úrslitum í dag eftir vítaspyrnukeppni sem lauk 5-3. Fótbolti 10.7.2011 18:25
Þór/KA lagði KR í Vesturbænum Þór/KA gerði góða ferð í Vesturbæ Reykjavíkur í dag og lagði KR með tveimur mörkum gegn einu. Slóveninn Mateja Zver var á skotskónum í dag en hún skoraði bæði mörk Akureyringa. Íslenski boltinn 10.7.2011 18:07
Scholes: Enskir landsliðsmenn hugsa aðeins um sjálfan sig Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United, segir í ítarlegu viðtali við enska fjölmiðla að ástæðan fyrir því að hann hafi lagt landsliðskónna á hilluna árið 2004 hafi verið að leikmenn liðsins hafi ávallt haft sína eigin hagsmuni að leiðarljósi, því hafi aldrei skapast góð liðsheild. Enski boltinn 10.7.2011 17:30
Formaður BÍ/Bolungarvíkur biður Ólsara afsökunar "Ég bið Ólafsvíkinga afsökunar á þessu," sagði Samúel Samúelsson formaður BÍ/Bolungarvíkur í viðtali við vefsíðuna Fótbolta.net í dag. Íslenski boltinn 10.7.2011 16:45
Myndaveisla af Kópavogsvelli Breiðablik lagði Þór 4-1 í blíðskaparveðri í Kópavogi í gær. Sigurinn var gott veganesti fyrir Blika sem mæta Rosenborg í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á miðvikudag. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á vellinum. Íslenski boltinn 10.7.2011 16:15
Kevin Phillips skrifaði undir hjá Blackpool Enska 1. deildarliðið, Blackpool, hefur fengið til sín reynsluboltann Kevin Phillips sem skrifaði undir eins árs samning við félagið. Enski boltinn 10.7.2011 15:30