Fótbolti
Um 2000 manns tóku á móti Eiði Smára Það er óhætt að segja að Eiður Smári hafi fengið rosalegar móttökur við komuna til Aþenu í dag. Um 2000 eldheitir stuðningsmenn AEK börðu á trommur og öskruðu honum til heiðurs þegar Eiður Smári ók frá flugvellinum fyrir stundu. Fótbolti 18.7.2011 16:26
Fólkið öskrar: Guðjohnsen Gudjohnsen Það er allt að verða vitlaust á flugvellinum í Aþenu þar sem stuðningsmenn AEK bíða eftir því að bera Eið Smára Guðjohnsen augum. Stuðninsmenn öskra og berja á trommur í reykmekki. Fólkið öskrar „Guðjohnsen, Guðjohnsen,...“ Fótbolti 18.7.2011 16:15
Vidic: Við hræðumst ekki Barcelona Nemanja Vidic, fyrirliði Man. Utd, segir að leikmenn Man. Utd óttist ekki Barcelona þó svo United hafi í tvígang tapað fyrir spænska liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Enski boltinn 18.7.2011 16:15
Harpa og Edda María komnar aftur heim Topplið Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna hefur fengið góðan liðstyrk fyrir seinni umferðina því liðið hefur endurheimt tvo fyrrum liðsmenn sína, Hörpu Þorsteinsdóttur frá Breiðabliki og Eddu Maríu Birgisdóttur frá ÍBV. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net. Íslenski boltinn 18.7.2011 15:45
1500 manns bíða eftir Eiði Smára á flugvellinum Það er óhætt að segja að Grikkir bíði spenntir eftir komu Eiðs Smára Guðjohnsen til Aþenu. Gríska fréttasíðan www.aek365.gr er með beina lýsingu frá flugvellinum og eru yfir eitt þúsund stuðningsmenn mættir á flugvöllinn að þeirra sögn. Stuðningsmönnum fjölgar með hverri mínútunni. Fótbolti 18.7.2011 15:33
Ray Anthony: Það heimskulegasta sem ég hef gert Bakvörðurinn Ray Anthony Jónsson var hinn hressasti þegar undirritaður heyrði í honum hljóðið í dag. Grindavík vann dýrmætan 2-0 sigur á ÍBV í gær og situr í 9. sæti Pepsi-deildarinnar með níu stig. Íslenski boltinn 18.7.2011 15:00
Umfjöllun: Lennon tryggði Frömurum sinn fyrsta sigur Framarar unnu langþráðan sigur í Víkinni í kvöld en Framliðinu hafði ekki tekist að vinna í fyrstu tíu leikjum sínum í deildinni. Skotinn Steven Lennon tryggði Fram 1-0 sigur í lok fyrri hálfleiks í sínum fyrsta leik í Frambúningnum. Íslenski boltinn 18.7.2011 12:48
Aguero tekur ákvörðun í vikunni Argentínumaðurinn Sergio Aguero mun taka ákvörðun um framtíð sína í vikunni. Aguero hefur verið upptekinn með Argentínu á Copa America en þar sem Argentína er úr leik getur leikmaðurinn farið að vinna í sínum málum. Fótbolti 18.7.2011 12:45
Grikkirnir bíða spenntir eftir Eiði Það er fastlega búist við því að þúsundir manna muni taka á móti Eiði Smára Guðjohnsen þegar hann kemur til Aþenu í kvöld. Þar mun hann skrifa undir samning við AEK Aþena. Fótbolti 18.7.2011 12:00
Torres ætlar að sanna sig hjá Chelsea í vetur Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Chelsea bíður spenntur eftir komandi tímabili en hann er staðráðinn í að sanna sig hjá félaginu eftir slaka frammistöðu síðasta vetur. Enski boltinn 18.7.2011 10:30
Wenger vill binda enda á framhaldssöguna um Fabregas Arsene Wenger, stjóri Arsenal, virðist vera álíka þreyttur á sögusögnum um framtíð Cesc Fabregas og allir aðrir. Hann vill binda enda á þær fyrr frekar en síðar. Enski boltinn 18.7.2011 09:44
Man. City nær samkomulagi við Corinthians Roberto Mancini, stjóri Man. City, hefur staðfest að félagið sé búið að ná samkomulagi við Corinthians um sölu á Carlos Tevez. Enski boltinn 18.7.2011 09:03
Enn spenna í toppbaráttunni - myndir KR og Valur gerðu 1-1 jafntefli í toppslagnum í Pepsi-deild karla í gærkvöldi en Valsmenn tryggðu sér jafntefli á lokamínútu leiksins eftir að hafa orðið fyrir því óhappi að skora sjálfsmark nokkrum mínútum fyrr. Íslenski boltinn 18.7.2011 07:00
Hrakfarir FH-inga halda áfram - myndir FH-ingar urðu að sætta sig við 2-2 jafntefli á móti Fylki í Pepsi-deild karla í gærkvöldi þrátt fyrir að vera komnir 2-0 yfir eftir 17 mínútna leik. Fylkismenn unnu sig inn í leikinn í seinni hálfleik og tókst að jafna leikinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Íslenski boltinn 18.7.2011 00:01
FC Köbenhavn hefur titilvörn sína með sigri gegn SönderjyskE FC Köbenhavn sigraði SönderjyskE, 2-0, í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær en leikurinn fór fram á heimavelli SönderjyskE. Fótbolti 17.7.2011 23:17
Þær japönsku komu öllum á óvart - Myndir Japan varð heimsmeistari í knattspyrnu kvenna eftir að hafa sigrað Bandaríkin í úrslitaleik mótsins. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 1-1 og grípa þurfti til framlengingar. Í framlengingunni skoruðu liðin sitt markið hvort og liðin þurftu því að fara í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 17.7.2011 23:07
Bjarni: Spiluðum ekki nógu vel Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, segir að sínir menn hafi alls ekki náð sínu besta fram gegn Valsmönnum í kvöld. Liðin skildu jöfn, 1-1. Íslenski boltinn 17.7.2011 22:45
Guðjón: Svekkjandi en enginn heimsendir Guðjón Baldvinsson, sóknarmaður KR, segir að það hafi verið svekkjandi að fá á sig jöfnunarmark gegn Val á síðustu mínútum leik liðanna í kvöld. Íslenski boltinn 17.7.2011 22:41
Matthías: Ég er sturlaður Matthías Guðmundsson kom inn á sem varamaður hjá Val í kvöld en liðið gerði þá jafntefli við KR í Frostaskjólinu, 1-1. Hann var ósáttur við að hafa ekki fengið víti þegar virtist brotið á honum í teig KR-inga. Íslenski boltinn 17.7.2011 22:39
Ólafur: Svekktur að hafa ekki tekið öll stigin Ólafur Þórðarson var í svekktur að hafa ekki náð að krækja í öll 3 stigin gegn FH-ingum núna í kvöld en að sama skapi ánægður með þá baráttu sem sínir menn sýndu í síðari hálfleiknum þegar þeir unnu upp tveggja marka forskot bikarmeistaranna. Íslenski boltinn 17.7.2011 22:19
Paragvæ í undanúrslit eftir sigur gegn Brasilíu í vítaspyrnukeppni Paragvæ gerði sér lítið fyrir og sló út Brasilíu í Suður-Ameríku bikarnum í kvöld. Jafnt var á með liðunum eftir venjulegan leiktíma 0-0 og framlengja þurfti leikinn. Fótbolti 17.7.2011 22:08
Japan heimsmeistari í fyrsta skipti Japan varð í kvöld heimsmeistari í knattspyrnu kvenna eftir að hafa sigrað Bandaríkin í úrslitaleik mótsins. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 1-1 og grípa þurfti til framlengingar. Í framlengingunni skoruðu liðin sitt markið hvort og liðin þurftu því að fara í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 17.7.2011 21:32
Heimir: Það var erfitt að fá eitthvað út úr þessum leik „Það er kannski ekkert óeðlilegt að hafa tapað leiknum svona miðað við hvernig hann spilaðist,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, eftir ósigurinn gegn Grindavík í dag. Íslenski boltinn 17.7.2011 20:48
Jóhann: Frábært að klára fyrri umferðina á þremur stigum „Þetta voru gríðarlega mikilvæg stig fyrir okkur,“ sagði Jóhann Helgason, leikmaður Grindavíkur, eftir sigurinn á Eyjamönnum í dag. Íslenski boltinn 17.7.2011 20:42
Ólafur: Hefðum átt að refsa þeim meira „Við erum að sjálfsögðu rosalega ánægðir að hafa unnið þennan leik,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur, eftir sigurinn gegn ÍBV í dag. Íslenski boltinn 17.7.2011 20:29
Tryggvi: Rauða spjaldið breytti leiknum „Þetta er gríðarlega svekkjandi, atvik geta breytt leikjum og það gerðist í dag,“sagði Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, eftir tapið gegn Grindvíkingum, 2-0, í dag. Íslenski boltinn 17.7.2011 20:14
Umfjöllun: Dramatískt jöfnunarmark hélt spennu í toppbaráttunni Valsmenn enduðu tíu leikja sigurgöngu KR-inga í öllum keppnum með því að ná 1-1 jafntefli á KR-vellinum í kvöld í leik liðanna í 11. umferð Pepsi-deildar karla. Það munar því áfram aðeins einu stigi á tveimur efstu liðum deildarinnar, en KR á að vísu leik til góða. Íslenski boltinn 17.7.2011 19:02
Marwijk: Sneijder ætti að fara til Man. Utd. Bert van Marwijk, landsliðsþjálfari Hollands, telur að Wesley Sneijder myndi smellpassa inn í skipulagið hjá Manchester United. Enski boltinn 17.7.2011 19:00
Umfjöllun: FH missti niður 2-0 forystu í jafntefli á móti Fylki FH-ingar tóku á móti Fylkismönnum í elleftu umferð Pepsí deildar karla í gærkvöldi . Fyrir fram var búist við jöfnum og spennandi leik þar sem aðeins 1 stig skildi liðin að í töflunni. Spennan var svo sannarlega til staðar og þegar upp var staðið sættust liðin á skiptan hlut í 2-2 jafntefli. Leikurinn var ótrúlega kaflaskiptur og má segja að sá fyrri hafi verið eign heimamanna en í þeim síðari tóku gestirnir völdin. Íslenski boltinn 17.7.2011 18:30
Veigar Páll góður í 2-1 sigri Stabæk gegn Rosenborg Ole Gunnar Solskjær og lærisveinar hans í Molde halda sínu striki í norsku úrvalsdeildinni í fóbolta. Molde er á toppi deildarinnar eftir 3-1 sigur í dag gegn Haugesund. Veigar Páll Gunnarsson var atkvæðamikill í 2-1 sigri Stabæk gegn meistaraliði Rosenborg en Veigar hefur verið sterklega orðaður við Rosenborg að undanförnu. Stabæk er í sjötta sæti með 23 stig en Molde er með 32 stig eftir 16 umferðir. Fótbolti 17.7.2011 18:28