Sport
Button hafnar fingri Vettels Formúla 1 19.3.2012 17:59 Suarez vill skrifa undir nýja samning Luis Suarez framherji enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool hefur ekki alltaf átt rólega daga á Englandi frá því hann kom til liðsins frá Ajax í Hollandi. Landsliðsmaðurinn frá Úrúgvæ hefur verið orðaður við mörg lið og töldu margir að hann myndi ekki ná sér á strik í ensku knattspyrnunni á ný eftir 8 leikja keppnisbann sem margfrægt er orðið. Suarez ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir mótlætið og hefur hann ekki hug á því að yfirgefa Liverpool. Enski boltinn 19.3.2012 17:15 Muamba sýnir framfarir | berst enn fyrir lífi sínu Fabrice Muamba, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, er enn í lífshættu eftir að hjarta hans stöðvaðist í leik gegn Tottenham á laugardaginn. Bolton sendi hinsvegar frá sér tilkynningu nú síðdegis þar sem kemur fram að hinn 23 ára gamli Muamba hafi sýnt framfarir á undanförnum klukkustundum. Enski boltinn 19.3.2012 16:30 Umfjöllun og viðtöl: Valur - Afturelding 24-20 Valsmenn unnu í kvöld fjögurra marka heimasigur, 24-20 á Aftureldingu í N1 deildinni. Leikurinn var lítið fyrir augað og virkuðu bæði lið frekar áhugalaus í leiknum. Sigurinn er þó kærkominn Valsmönnum enda eygja þeir ennþá litla von á sæti í úrslitakeppninni. Þeir þurfa þó að klára síðustu tvo leiki sína í deildinni ásamt því að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Handbolti 19.3.2012 16:25 Umfjöllun og viðtöl: HK - Haukar 20-26 Haukar unnu öruggan sigur,26-20, á HK í Digranesinu í kvöld og eru því komnir í efsta sæti deildarinnar. Sigur gestanna var aldrei í hættu og voru þeir einfaldleika mikið betri aðilinn í leiknum. Heimir Óli Heimisson skoraði sex mörk fyrir Hauka og Aron Rafn Eðvarðsson varði 18 skot í markinu. Handbolti 19.3.2012 16:23 Di Matteo: Ég vann ekki á bak við tjöldin gegn Villas-Boas Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að hann hafi ekki unnið að því á bak við tjöldin að koma Andre Villas-Boas frá félaginu. Di Matteo tók við enska úrvalsdeildarliðinu eftir að Villas-Boas var rekinn og töldu margir að Di Matteo hafi átt sinn þátt í því að Portúgalinn var rekinn. Enski boltinn 19.3.2012 15:45 Heil umferð í N1 deild karla í kvöld | spennan magnast Heil umferð er í N1 deild karla í kvöld og hefjast allir leikirnir kl. 19.30, nema leikur Akureyrar og Íslandsmeistaraliðs FH sem hefst kl. 19.00. Það styttist í að úrslitakeppnin hefjist en aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Næst síðasta umferðin fer fram á fimmtudag og lokaumferðin fer fram 29. mars. Þrír leikir verða í beinni textalýsingu á Boltavaktinni á Vísi. Handbolti 19.3.2012 14:15 Ferguson vill fá meiri hraða í lið Man Utd | umboðsmaður Berbatov tjáir sig Hinn 31 árs gamli framherji Dimitar Berbatov skoraði 20 mörk á síðasta tímabili fyrir Englandsmeistaralið Manchester United. Búlgarinn hefur þrátt fyrir það ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Man Utd og er hann á förum frá liðinu í sumar. Umboðsmaður Berbatov segir að Sir Alex Ferguson ætli sér að breyta um leikstíl hjá Man Utd á næstu árum og Berbatov hafi ekki passað inn í þau plön. Enski boltinn 19.3.2012 13:30 Feðgar dæma saman í fyrsta sinn í úrvalsdeild Kristinn Óskarsson og sonur hans Ísak Ernir Kristinsson dæma saman leik í kvöld í Iceland Express deild karla í körfuknattleik. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist á Íslandi. Leikurinn sem þeir feðgar dæma er viðureign Þórs úr Þórlákshöfn og Vals. Körfubolti 19.3.2012 12:45 « ‹ ›
Tiger í góðum gír | meiðslin úr sögunni og klár fyrir Mastersmótið Tiger Woods virðist vera klár í slaginn fyrir fyrsta stórmót ársins, Mastersmótið, sem hefst þann 5. apríl á Augusta vellinum í Georgíu. Bandaríski kylfingurinn lék á góðgerðamóti í gær þar sem hann lék betri bolta með Englendingnum Justin Rose. Þeir léku samtals á 9 höggum undir pari eða 63 höggum. Golf 20.3.2012 15:45
Mancini vill betra og nákvæmara eftirlit Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City segir að gera þurfi breytingar á eftirliti með heilsufari leikmanna hjá enskum félagsliðum. Mancini var sjálfur undrandi á þeim aðferðum sem notaðar voru á Englandi þegar hann kom til Man City fyrir tveimur árum. Ítalinn er á þeirri skoðun að leikmenn eigi að fara í tvær ítarlegar heilsufarsskoðanir á hverju ári. Enski boltinn 20.3.2012 14:15
Hvað er um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld? Þýski handboltinn, Spánarspark og enski boltinn eru í boði á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld. Þrjár beinar útsendingar eru á dagskrá. Íslendingaliðið Füchse Berlin tekur á móti Gummersbach í þýska handboltanum og Argentínumaðurinn Lionel Messi gæti jafnað og bætt markametið hjá Barcelona á Spáni. Fótbolti 20.3.2012 13:30
Antoine Walker seldi meistarahringinn | skuldar samt um 1,5 milljarða kr. Antoine Walker, sem á sínum tíma var eitt af stóru nöfnunum í NBA deildinni í körfubolta, er það miklum peningavandræðum að hann hefur nú selt verðlaunagripinn sem hann fékk þegar hann varð NBA meistari með Miami Heat árið 2006. Allir leikmenn sem vinna NBA deildina fá glæsilega meistarhring og seldi Walker hringinn fyrir um 2,5 milljónir kr. Körfubolti 20.3.2012 12:45
Jürgen Klopp þjálfari Dortmund orðaður við Chelsea Jürgen Klopp, þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dortmund, er í dag nefndur til sögunnar sem einn af þeim sem koma til greina sem næsti knattspyrnustjóri enska stórliðsins Chelsea. Hinn 44 ára gamli Þjóðverji er samkvæmt heimildum Sportsmail ofarlega á óskalistanum hjá Roman Abramovich eiganda Chelsea. Fótbolti 20.3.2012 12:00
Bætir Messi markametið hjá Barcelona? | bein útsending í kvöld Lionel Messi er í þeirri aðstöðu að geta jafnað og bætt markametið hjá spænska stórliðinu Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Granada í deildarkeppninni. Argentínumaðurinn hefur skorað 231 mark fyrir félagið en félagsmetið er í eigu Cesar Rodriguez sem skoraði 232 mörk á sínum ferli. Leikur Barcelona og Granada verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og hefst leikurinn kl. 20.00. Fótbolti 20.3.2012 11:30
Rúrik Gíslason í viðtali í Boltanum á X977 Íslenski landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason, sem leikur með OB í Danmörku, verður í viðtali í Boltanum á X-inu 977 á milli 11-12 í dag. Valtýr Björn Valtýsson stýrir þættinum í dag en fjallað er um íþróttir alla virka daga á X-inu 977 á þessum tíma. Sigurðu Enoksson formaður Arsenal-klúbbsins á Íslandi verður einnig í spjalli. Fótbolti 20.3.2012 10:30
2 vikur í opnun! Nú eru aðeins rétt rúmar tvær vikur í opnun margra vinsælla veiðivatna og má sjá lista yfir þau hér fyrir neðan. Með hækkandi sól eykst spenningurinn hjá veiðimönnum og margir langt komnir með að hnýta flugur fyrir sumarið. Vinsælustu vorveiðivötnin hafa verið Vífilsstaðavatn og Meðalfellsvatn. Veiði 20.3.2012 10:19
Opna fyrir veiði í ósasvæði Laxá í Ásum Félagið Salmon tails, sem er leigutaki Laxár á Ásum og Mýrarkvíslar er að kynna ansi spennandi nýjung, eða ósasvæði Laxár á Ásum sem liggur að hluta andspænis hinu rómaða silungasvæði Vatnsdalsár. Veiði 20.3.2012 10:17
Volvo stólar á Jeremy Lin Jeremy Lin, leikstjórnandi NBA liðsins New York Knicks, var óþekkt nafn í heiminum fyrir aðeins nokkrum vikum. Það hefur heldur betur breyst eftir að nýliðinn kom inn í NBA deildina með þvílíkum látum sem varaskeifa hjá New York Knicks. Lin er sjóðheitt "vörumerki“ og hann hefur nú landað risaauglýsingasamningi hjá bifreiðaframleiðandanum Volvo. Körfubolti 20.3.2012 10:15
Kynning á leyndardómum Þingvallavatns Þann 22 mars verður fræðslunefndin í samstarfi við Guttorm P. Einarsson með kynningu á Þingvallavatni. Guttormur er veiðimaður til tugi ára hefur ódrepandi áhuga á fluguveiði í vötnum og á lífríkinu í kringum vötnin. Kynningin verður í sal SVFR og hefst kl.20:00 Veiði 20.3.2012 10:14
Muamba spurði um son sinn | er á batavegi en ástandið er alvarlegt Fabrice Muamba, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, er á hægum batavegi eftir að hjarta hans stöðvaðist í leik gegn Tottenham s.l. laugardag. Hinn 23 ára gamli Muamba er enn í lífshættu en hann hefur m.a. rætt við fjölskyldu sína á gjörgæsludeildinni og hann spurði um son sinn skömmu eftir að hann fékk meðvitund á ný. Enski boltinn 20.3.2012 09:45
Chicago rúllaði yfir Orlando á útivelli | Boston lagði Atlanta Ray Allen skoraði tvær þriggja stiga körfur í fjórða leikhluta í 79-76 sigri Boston á útivelli gegn Atlanta í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Allen skoraði 19 stig alls í leiknum. Joe Johnson skoraði 25 stig fyrir Atlanta. Carlos Boozer skoraði 24 stig fyrir Chicago í 85-59 sigri liðsins gegn Orlando á útivelli. Körfubolti 20.3.2012 09:00
Haukar unnu í Digranesi - myndir Haukar komust aftur á topp N1-deildar karla í gærkvöld er liðið lagði HK í Digranesi. Á sama tíma tapaði FH á Akureyri og missti þar með toppsætið í hendur nágranna sinna. Handbolti 20.3.2012 06:00
Red Bulls hefur meiri áhuga á Ireland en Ballack Þýski knattspyrnumaðurinn Michael Ballack hefur ákveðið að spila í Bandaríkjunum í sumar og skrifa þar lokakaflann í glæsta knattspyrnusögu sína. Ballack sjálfur hefur mestan áhuga á því að ganga í raðir NY Red Bulls, sem Guðlaugur Victor Pálsson og Thierry Henry spila með, en félagið virðist aftur á móti ekki hafa mikinn áhuga á Þjóðverjanum. Fótbolti 19.3.2012 23:30
Derek Fisher laus allra mála hjá Houston | hvaða lið vill fá hann? Derek Fisher mun ekki leika með Houston Rockets í NBA deildinni en hann var sendur til liðsins á dögunum í leikmannaskiptum. Hinn 37 ára gamli bakvörður var í herbúðum LA Lakers í 13 ár en hann hefur nú komist að samkomulagi við Houston að kaupa upp samning sinn við félagið og getur hann samið við hvaða lið sem er. Körfubolti 19.3.2012 23:00
Leik Tottenham og Stoke verður ekki frestað Leikur Tottenham og Stoke í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu mun fara fram á miðvikudaginn eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Margir af leikmönnum Tottenham voru mjög miður sín eftir leik liðsins gegn Bolton í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar á laugardaginn þar sem að Fabrice Muamba leikmaður Bolton fékk hjartaáfall. Enski boltinn 19.3.2012 22:30
Fram lagði botnlið Gróttu Eftir dapran fyrri hálfleik rifu Framarar sig upp í þeim síðari og lögðu botnlið Gróttu af velli með þriggja marka mun, 23-26. Handbolti 19.3.2012 21:58
Úrslit kvöldsins í Iceland Express-deild karla Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. Þar unnu Grindavík, Keflavík og Þór Þorlákshöfn öll sigra. Körfubolti 19.3.2012 21:04
Maldonado: Stóru liðin ekki langt undan Pastor Maldonado segir liðs sitt ekki vera langt á eftir stóru liðunum. Árangur og hraði Maldonado í Williams-Renault bílnum kom mjög á óvart. Formúla 1 19.3.2012 20:00
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - FH 30-26 Akureyri vann góðan og sannfærandi sigur á FH í N1-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 30-26 sem var síst of stórt. Handbolti 19.3.2012 18:30
Suarez vill skrifa undir nýja samning Luis Suarez framherji enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool hefur ekki alltaf átt rólega daga á Englandi frá því hann kom til liðsins frá Ajax í Hollandi. Landsliðsmaðurinn frá Úrúgvæ hefur verið orðaður við mörg lið og töldu margir að hann myndi ekki ná sér á strik í ensku knattspyrnunni á ný eftir 8 leikja keppnisbann sem margfrægt er orðið. Suarez ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir mótlætið og hefur hann ekki hug á því að yfirgefa Liverpool. Enski boltinn 19.3.2012 17:15
Muamba sýnir framfarir | berst enn fyrir lífi sínu Fabrice Muamba, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, er enn í lífshættu eftir að hjarta hans stöðvaðist í leik gegn Tottenham á laugardaginn. Bolton sendi hinsvegar frá sér tilkynningu nú síðdegis þar sem kemur fram að hinn 23 ára gamli Muamba hafi sýnt framfarir á undanförnum klukkustundum. Enski boltinn 19.3.2012 16:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Afturelding 24-20 Valsmenn unnu í kvöld fjögurra marka heimasigur, 24-20 á Aftureldingu í N1 deildinni. Leikurinn var lítið fyrir augað og virkuðu bæði lið frekar áhugalaus í leiknum. Sigurinn er þó kærkominn Valsmönnum enda eygja þeir ennþá litla von á sæti í úrslitakeppninni. Þeir þurfa þó að klára síðustu tvo leiki sína í deildinni ásamt því að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Handbolti 19.3.2012 16:25
Umfjöllun og viðtöl: HK - Haukar 20-26 Haukar unnu öruggan sigur,26-20, á HK í Digranesinu í kvöld og eru því komnir í efsta sæti deildarinnar. Sigur gestanna var aldrei í hættu og voru þeir einfaldleika mikið betri aðilinn í leiknum. Heimir Óli Heimisson skoraði sex mörk fyrir Hauka og Aron Rafn Eðvarðsson varði 18 skot í markinu. Handbolti 19.3.2012 16:23
Di Matteo: Ég vann ekki á bak við tjöldin gegn Villas-Boas Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að hann hafi ekki unnið að því á bak við tjöldin að koma Andre Villas-Boas frá félaginu. Di Matteo tók við enska úrvalsdeildarliðinu eftir að Villas-Boas var rekinn og töldu margir að Di Matteo hafi átt sinn þátt í því að Portúgalinn var rekinn. Enski boltinn 19.3.2012 15:45
Heil umferð í N1 deild karla í kvöld | spennan magnast Heil umferð er í N1 deild karla í kvöld og hefjast allir leikirnir kl. 19.30, nema leikur Akureyrar og Íslandsmeistaraliðs FH sem hefst kl. 19.00. Það styttist í að úrslitakeppnin hefjist en aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Næst síðasta umferðin fer fram á fimmtudag og lokaumferðin fer fram 29. mars. Þrír leikir verða í beinni textalýsingu á Boltavaktinni á Vísi. Handbolti 19.3.2012 14:15
Ferguson vill fá meiri hraða í lið Man Utd | umboðsmaður Berbatov tjáir sig Hinn 31 árs gamli framherji Dimitar Berbatov skoraði 20 mörk á síðasta tímabili fyrir Englandsmeistaralið Manchester United. Búlgarinn hefur þrátt fyrir það ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Man Utd og er hann á förum frá liðinu í sumar. Umboðsmaður Berbatov segir að Sir Alex Ferguson ætli sér að breyta um leikstíl hjá Man Utd á næstu árum og Berbatov hafi ekki passað inn í þau plön. Enski boltinn 19.3.2012 13:30
Feðgar dæma saman í fyrsta sinn í úrvalsdeild Kristinn Óskarsson og sonur hans Ísak Ernir Kristinsson dæma saman leik í kvöld í Iceland Express deild karla í körfuknattleik. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist á Íslandi. Leikurinn sem þeir feðgar dæma er viðureign Þórs úr Þórlákshöfn og Vals. Körfubolti 19.3.2012 12:45