Fréttir
Bein útsending: Ráðstefna um áfengi og lýðheilsu Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við embætti landlæknis stendur fyrir norrænni ráðstefnu um áfengi og lýðheilsu í dag. Innlent 19.9.2023 08:48
Engar tilkynningar um skriðuföll en áfram mikil rigning Engar fréttir hafa borist af skriðuföllum á Seyðisfirði þar sem hættustig Almannavarna er í gildi. Þó er vel fylgst með gangi mála þar sem áfram er búist við mikilli rigningu. Rýmingum verður ekki aflétt í dag. Innlent 19.9.2023 08:44
Hefur sent lögreglustjóra formlega kvörtun Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðarins B, hefur sent Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu formlega kvörtun vegna framgöngu lögregluþjóns sem handtók hann á skemmtistaðnum á laugardag. Innlent 19.9.2023 08:30
YouTube lokar á auglýsingar hjá Russell Brand YouTube hefur brugðist við þeim ásökunum um kynferðisofbeldi sem nú beinast að breska grínistanum, leikaranum og heilsugúrúnum Russell Brand með því að loka á auglýsingar á reikningum hans á YouTube. Erlent 19.9.2023 07:36
Herþotan sem týndist er fundin Brak úr F-35 herþotunni, sem landgöngulið Bandaríkjanna týndi um helgina, fannst í sveit í Suður-Karólínu í gær. Herinn hafði óskað eftir hjálp borgaranna við leit að vélinni en gat þó ekki staðfest að hún hefði brotlent. Erlent 19.9.2023 07:20
Áfram hvassviðri eða stormur en dregur úr vindi og úrkomu í kvöld Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan hvassviðri eða stormi í dag þar sem einna hvassast verður á Vestfjörðum og austast á landinu. Að sama skapi má búast við vindhviðum yfir 40 metra á sekúndu við fjöll. Veður 19.9.2023 07:19
Skemmtistaðnum B lokað og eigandinn leiddur út í járnum Skemmtistaðnum B við Bankastræti 5 í Reykjavík var lokað á laugardagskvöld vegna þess að of margir gestir voru á staðnum og einhverjir gestir reyndust undir lögaldri. Sverrir Einar Eiríksson, eigandi staðarins, var handtekinn og leiddur út af staðnum í járnum. Innlent 19.9.2023 06:37
Hús sprakk í óveðri á Siglufirði Mikill vindur og gríðalegir vindstrengir hafa verið á Siglufirði í gær og nótt og viðbúið er að svo verði áfram, fram eftir degi og til kvölds. Í gærkvöldi reif vindhviða þak af húsi við Aðalgötu. Innlent 19.9.2023 06:12
„Maður getur rétt ímyndað sér hvernig það er að upplifa þetta aftur“ Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri hjá almannavörnum, telur óhætt að segja að það sé óvenjulegt að það þurfi að rýma hús vegna náttúruvár á Íslandi um miðjan september. Ákveðið hefur að rýma á fjórða tug húsa á Seyðisfirði vegna svakalegrar úrkomuspár. Innlent 18.9.2023 23:23
Kanadamenn gruna indversk stjórnvöld um græsku Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir trúverðugar heimildir benda til tengsla milli stjórnvalda í Indlandi og morðs á kanadískum ríkisborgara. Indverskum diplómata í Kanada hefur verið vísað frá landi vegna málsins. Erlent 18.9.2023 23:18
„Fráleitur“ eltingaleikur bílstjórans Sláandi dæmi um hraðakstur á breyttum rafhlaupahjólum hafa ratað inn á borð lögreglu síðustu misseri. Í einu tilviki ók foreldri á áttatíu kílómetra hraða með barn í fanginu. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir þó fráleitt og stórhættulegt að bílstjórar brjóti lög til að ná slíkum brotum á myndband, eins og gerðist fyrir helgi. Innlent 18.9.2023 22:11
Vísbendingar um ofbeldi innan Sinfóníuhljómsveitarinnar Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar um starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er að finna vísbendingar um einelti og ofbeldi innan sveitarinnar. Innlent 18.9.2023 21:46
Áfangar að nást í krefjandi vegagerð á Dynjandisheiði Vegagerð um hæsta hluta Dynjandisheiðar er einhver sú erfiðasta hérlendis um þessar mundir. Verkinu miðar þó vel og er hugsanlegt að umferð verði hleypt á hluta nýja vegarins fyrir veturinn. Innlent 18.9.2023 21:41
Útskýrir hvað gerist þegar Íslendingur týnist erlendis Það eru ekki margir Íslendingar sem týnast á erlendri grundu, en þó koma upp nokkur slík mál á ári hverju, að sögn Karls Steinars Valssonar yfirlögregluþjónar hjá Ríkislögreglustjóra. Hann ræddi um mannshvörf Íslendinga erlendis í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Innlent 18.9.2023 21:30
Óttast ekki að fleiri fái óverðskuldaðar gráður Nýtt fyrirkomulag við fjármögnun háskólanna var kynnt í dag. Gert er ráð fyrir að það skili auknum gæðum í íslensku háskólanámi. Forseti landssamtaka íslenskra stúdenta óttast að það verði til þess að færri komist í háskóla en fyrir breytingu. Innlent 18.9.2023 19:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Á fjórða tug húsa á Seyðisfirði hafa verið rýmd vegna úrkomuspár og hættustig almannavarna hefur tekið gildi. Við verðum í beinni frá björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við fulltrúa almannavarna. Innlent 18.9.2023 18:09
Minni háttar slys olli mikilli umferð Slys var í Ártúnsbrekkunni síðdegis í dag sem olli miklum töfum á umferð. Innlent 18.9.2023 17:59
Rússar segja sig úr Barentsráðinu Yfirvöld í Rússlandi hafa ákveðið að segja sig úr Barentsráðinu og saka nágranna sína um að hafa gert ráðið óstarfhæft. Rússar segja Finna ekki hafa viljað afhenda þeim forsæti ráðsins. Erlent 18.9.2023 16:57
Russell Brand kærður til lögreglu Lögreglunni í Lundúnum hefur borist kæra gegn Russel Brand, breskum grínista. Kona kærði hann fyrir kynferðisbrot sem á að hafa átt sér stað í borginni árið 2003. Breskir fjölmiðlar birtu um helgina sögu fjögurra kvenna sem sökuðu hann um nauðgun, kynferðislega áreitni og andlegt ofbeldi yfir sjö ára tímabil, eða frá 2006 til 2013. Erlent 18.9.2023 16:14
Fjölgar í nýrri stjórn SÍF Embla Möller, nemandi við Kvennaskólann í Reykjavík, hefur verið kosin forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF). Kosning fór fram á aðalþingi sambandsins í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn. Þangað voru komnir saman um sextíu fulltrúar frá nemendafélögum framhaldsskólanna víðs vegar af landinu. Innlent 18.9.2023 16:04
Grípa til rýminga á Seyðisfirði Ákveðið hefur að rýma á fjórða tug húsa á Seyðisfirði vegna svakalegrar úrkomuspár næstu tvo sólarhringa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Að stærstum hluta er um atvinnuhúsnæði að ræða. Innlent 18.9.2023 15:53
Umdeildum fangaskiptum lokið Umdeild fangaskipti milli Bandaríkjamanna og Írana hafa átt sér stað. Fimm manns sem voru í fangelsi í Íran hefur verið sleppt í Katar. Yfirvöld í Íran hafa ítrekað verið sökuð um að handsama fólk af Vesturlöndum og nota það sem vogarafl í samskiptum við erlenda ráðamenn. Erlent 18.9.2023 15:27
Ætla sér að finna nýjan stað fyrir Lillaróló Til stendur að reisa íbúðabyggingu á lóðinni við Höfðatún á Hólmavík þar sem hinn svokallaði Lillaróló hefur staðið um árabil og er ljóst að finna þarf nýjan stað undir leikvöllinn. Tveir staðir hafa helst verið nefndir til sögunnar sem mögulegar framtíðarstaðsetningar fyrir Lillaróló. Innlent 18.9.2023 15:19
Heimilisofbeldi ekki talið brot í nánu sambandi Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir líkamsárásir í garð þáverandi sambýliskonu sinnar. Dómari taldi háttsemi hans ekki falla undir nýlegt lagaákvæði um brot í nánu sambandi. Innlent 18.9.2023 14:55
Kreml tekur yfir stjórn Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu Ráðamenn í Mið-Afríkulýðveldinu segja ríkisstjórn Rússlands hafa tekið yfir stjórn rúmlega þúsund málaliða Wagner group þar í landi. Málaliðarnir hafa haft viðveru í Mið-Afríkulýðveldinu í um fimm ár en lengst af voru þeir undir stjórn rússneska auðjöfursins Jevgení Prígósjín. Erlent 18.9.2023 14:43
Hvetja til opinnar umræðu án fordóma Hinseginfélag FG vill í ljósi umræðunnar um bloggskrif Páls Vilhjálmssonar árétta að það að vera hinsegin, trans eða eitthvað annað fellur undir sjálfsögð og eðlileg mannréttindi. Rétturinn til tjáningar á kynvitund, kynhlutverkum og kynhneigð fellur einnig undir sömu réttindi. Innlent 18.9.2023 14:01
Lýsa yfir óvissustigi og síðar hættustigi vegna mikilla rigninga Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna mikilla rigninga á Austfjörðum. Farið verður yfir á hættustig klukkan 18. Innlent 18.9.2023 13:13
„Kerfið hefur leitt til ákveðinnar sóunar“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag gagngera kerfisbreytingu á fjármögnun háskólanna sem hún segir forsendu þess að íslenskir háskólar geti náð enn betri árangri. Gagnsæi hins nýja fyrirkomulags tryggi það að skólarnir sjái að meiri og betri árangur skili þeim auknu fjármagni. Innlent 18.9.2023 12:51
Repúblikanar herða tökin í mikilvægum ríkjum Repúblikanar í Wisconsin og Norður-Karólínu í Bandaríkjunum vilja breyta því hvernig kosningum er stjórnað í ríkjunum. Bæði ríkin eru svokölluð sveifluríki og þykja því gífurlega mikilvæg þegar kemur að forsetakosningunum á næsta ári. Erlent 18.9.2023 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt um ástandið á Austfjörðum þar sem úrhellisrigningu er spáð í dag og á morgun. Innlent 18.9.2023 11:33