ÍA 86-115 Tinda­stóll | Skag­firðingar ekki í vand­ræðum á Skaganum

Sverrir Mar Smárason skrifar
ÍR - Tindastóll Bónus Deild Karla Haust 2025
ÍR - Tindastóll Bónus Deild Karla Haust 2025 vísir/Diego

Tindastóll tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld með stórsigri á ÍA á Akranesi, 86-115.

Leikurinn var fyrirfram mjög mikilvægur fyrir bæði lið. Tindastóll gat með sigri tryggt sér heimavallarrétt í fyrstu umferð í úrslitakeppni á sama tíma og Skagamenn voru einir á botni deildarinnar eftir að Ármann vann Þór Þ. í sömu umferð.

Ivan Gavrilovic skoraði fyrstu körfu leiksins fyrir ÍA gegn sínum gömlu félögum en eftir það tóku gestirnir öll völd. Staðan var 6-19 þegar heimamenn loksins vöknuðu og bitu frá sér. Staðan eftir kaflaskiptan fyrsta leikhluta jöfn, 23-23.

2. leikhluti var algjörlega eign gestanna í Tindastóli. Taiwo Badmus og Dedrick Basile sýndu þar afhverju þeir eru í umræðunni þegar bestu leikmenn deildarinnar eru ræddir. Heimamenn sáu aldrei ljósið í leikhlutanum og staðan í hálfleik ekki góð fyrir botnbaráttuliðið, 42-60 Tindastóli í vil.

Það var í þriðja leikhluta sem Tindastóll gekk frá leiknum. Gestirnir héldu sínu forskoti framan af en þegar heimamenn fóru að hreyfa bekkinn voru það gestirnir sem gengu á lagið. Munurinn á liðunum eftir þriðja leikhluta 28 stig, 59-87.

Fjórði og síðasti leikhlutinn einkenndist af því að munurinn væri mikill og vonin lítil fyrir ÍA. Heimamenn fóru að gera mörg mistök og gestirnir nýttu sér það. Tindastóll stóð að lokum uppi sem sigurvegari og tryggði sér um leið heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, lokatölur 86-115.

Atvik leiksins

Framan af var það viðsnúningurinn hjá ÍA í fyrsta leikhluta eftir að Óskar Þór tók leikhlé en eftir að leiknum lauk eins og honum lauk þá er það í raun leikhléið á milli 1. og 2. leikhluta sem er atvik leiksins. Það kældi heimamenn algjörlega og gestinir riðu á vaðið eftir það.

Stjörnur og skúrkar

Taiwo Badmus og Dedrick Basile voru í algjörum sérflokki í kvöld.

Badmus með 31-6-6 og 39 framlagsstig en Basile með 32-9-10 og 49 framlagsstig.

Enn og aftur nefni ég það hér að Skagamenn fá alltof lítið frá Ilja Dokovic. 10-3-6 á 34 mínútum og hittir ekki nema fjórum skotum af tólf.

Dómararnir

Það vottaði af virðingu við stóra liðið hér í kvöld en það var ekki það sem skóp þennan sigur hjá Tindastóli. Einfaldlega miklu betra körfuboltalið.

Umgjörð og stemning

Vel mætt á leikinn og sérstaklega af Króknum. Heilt yfir fín stemning en dró af heimamönnum þegar leið á leikinn.

Arnar Guðjónsson: Þetta var mjög fagmannleg frammistaða 

Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastólsvísir/Anton

Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var virkilega sáttur með leik sinna mann í dag. 

„Já ég er sáttur. Mér fannst við gera vel og þetta var mjög fagmannleg frammistaða. Við skiptum svolítið hratt alltaf og viljum halda uppi ákefð en fórnarkostnaðurinn er oft takturinn. Ég tók taktinn úr liðinu en eins og ég sagði fyrir leik þá tel ég okkur vera með fleiri góða leikmenn og þegar líður á þá yfirleitt borgar það sig,“ sagði Arnar. 

Arnar nefndi það í viðtali fyrir leikinn að það yrði hraðinn sem myndi vinna með Tindastóli í leiknum í kvöld. Það kom heldur betur í ljós þegar leið á. Hann sagði liðið svo vilja verða aðeins betra áður en úrslitakeppnin hefst. 

„Þeir eru skemmtilegt lið, með stóra gaura inni í teig og það er erfiðara fyrir þá að hlaupa fram og til baka. Við gerum bara eins og allir eru að gera núna, að verða aðeins betri áður en úrslitakeppnin byrjar,“ sagði Arnar að lokum.

Óskar Þór: Þetta var bara uppgjöf

Óskar Þór Þorsteinsson þjálfari ÍA til vinstriÍA

Óskar Þór, þjálfari ÍA, var mjög svekktur með sitt lið eftir tap kvöldins. Tapið þýðir það að ÍA eru svo gott sem fallnir um deild ef þeim tekst ekki að framkvæma einhverskonar kraftaverk gegn Stjörnunni á útivelli í næstu umferð.

„Þetta var bara uppgjöf. Tindastólsliðið spilar svona run and gun bolta. Um leið og þeir detta í gang og einn þristur dettur þá er næsti á leiðinni. Mér fannst við bara mæta því ótrúlega illa í dag. Fljótir, sérstaklega atvinnumennirnir okkar, að brotna. Ég hefði kannski átt að skipta þeim útaf fyrr en við erum ekki með mikla dýpt svo það er erfið staða,“ sagði Óskar Þór.

Líkt og Óskar nefnir er dýptin ekki mikil hjá ÍA. Fyrstu stigin inn af bekknum komu ekki fyrr en undir lok þriðja leikhluta þrátt fyrir mikla róteringu. Úrslit leiksins voru ljós snemma og það er áhyggjuefni fyrir ÍA.

„Já auðvitað áhyggjuefni. Tindastóll er hörkulið og allt í lagi að tapa en auðvitað er ég bara ótrúlega ósáttur með það hvernig við töpum. Bragurinn á liðinu í dag var bara ekki nógu góður og það er bara eitthvað sem við þurfum að laga fyrir næsta leik. Nú erum við bara að spila fyrir stoltið, bæta upp fyrir það sem við sýndum hérna í kvöld. Það er alveg þörf á því,“ sagði þjálfari Skagamanna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira