Upp­gjör: Ís­land - Portúgal 62-60 | Frá­bær sigur Ís­lands

Árni Jóhannsson skrifar
Danielle Rodriguez var frábær ásamt fleirum.
Danielle Rodriguez var frábær ásamt fleirum. Vísir / Diego

Ísland lagði Portúgal í síðasta leik sínum í undankeppni Eurobasket 2027. Lokastaðan í leknum var 62-60 og var það frábær varnarleikur sem skóp sigurinn. Dani Rodriguez dró vagnin sóknarlega með 20 stig og sex stoðsendingar.

Ísland - Portugal Körfu kvenna Vetur 2026. Ísland stóð vel saman í kvöld.Vísir / Diego

Saga leiksins er sú að brösulega gekk að skora. Hjá báðum liðum. Portúgal skoraði fyrstu körfu leiksins, Íslands aðra og svo kom smá tappi hjá íslenska liðinu. Portúgal komst í 2-8 en þá voru þrjár mínútur liðnar en íslenska liðið átti næst högg. Þær náðu upp góðum varnarleik en voru ekki verðalaunaðar með körfum sem gestirnir náðu í með meiri takt og voru alltaf skrefi framar. Fyrsta leikhluta lauk í stöðunni 14-19 þar sem vörnin var góð en sóknin ekki. Ísland hafði hitt úr 23,5% skota sinna.

Isabella Ósk að hleypa af skoti.Vísir / Diego

Í öðrum leikhluta var enn leikinn frábær varnarleikur ásamt því að sókn okkar kvenna batnaði svo um munaði. Ísland fór líka að ná í sóknarfráköst sem skiluðu sér aftur í körfuna og Ísland náði að draga þær portúgölsku alltaf nær sér án þess að ná þeim og komast yfir. Þegar þrjár mínútur rúmar voru eftir af fyrri hálfleik voru gestirnir með fimm stiga forskot, 22-27, en Ísland átti næstu aðgerðir og náði að jafna í 27-27. Dani Rodriguez sem fór fyrir okkar konum eins og oft áður setti þá niður þrist og fékk víti að auki og kom Íslandi yfir í fyrsta sinn en Portúgal minnkaði muninn en Íslands leiddi í hálfleik með einu stigi. Staðan 31-30 og varnarleikurinn í fyrirrúmi.

Þóra Kristín Jónsdóttir átti fínan leik.Vísir / Diego

Ísland tók frumkvæðið í upphafi þriðja leikhluta. Efitr að hafa skipst á körfum sprettu okkar konur fram úr og skoruðu níu stig gegn engu frá Portúgal sem gerði það að verkum að Ísland komst í 10 stiga forystu 46-36. Það vakti þær portúgölsku en náðu ekki að saxa niður forskotið fyrr en í lok leikhlutans. Ísland vann leikhlutann og leiddi með fimm stigum fyrir loka leikhlutann 52-47.

Rebekka að spila vörnina sem skilaði sigrinum í kvöld.Vísir / Diego

Ef manni fannst stigaskorið vera hægt þegar hér var komið við sögu þá var það ekkert miðað við hverni fjórði leikhluti gekk. Portúgal gekk betur og náði að komast yfir 54-55 þegar um sjö mínútur voru eftir. Varnarleikur beggja liða var góður en taugarnar virtust þandar sóknarlega. Ekkert gekk að skora og lið fjórar míntúr á milli 54. stigs Íslands og 56. Hjá Portúgal kom ekki karfa í þrjár mínútur og allt í lás. Lavinia da Silva, sem spilaði með Njarðvík, boraði þá niður þrist þegar um þrjár mínútur lifðu af leiknum og spennan í algleymingi.

Sara Rún Hinriksdóttir var mjög mikilvæg þegar á þurfti að halda.Vísir / Diego

Sara Rún Hinriksdóttir jafnaði þá metin og allt ætlaði um koll að keyra.  Góður varnarleikur Íslands hélt áfram og Dani Rodriguez setti tvö stig á töfluna þannig að staðan var 61-59 þegar 1:15 var eftir. Gestirnir náðu í eitt stig í viðbót eins og íslenska liðið og þegar á hólminn var komið reyndi Portúgal ekki að vinna leikinn. Þær eru komnar áfram en Ísland vann leikinn 62-60 og ljúka leik í þessari undankeppni á góðu nótunum.

Kristrún Ríkey í baráttunni.Vísir / Diego

Atvik leiksins

Íslandi gekk vel í varnarleiknum sínum, stálu 11 boltum og neyddu Portúgal í 19 tapaða bolta. Það eitt og sér var gífurlega mikilvægt en einn af fimm stolnu boltunum frá Sigrúnu Björg Ólafsdóttur getur verið atvik leiksins.

Danielle Rodriguez að berjast í gegnum vörn gestanna.Vísir / Diego

Stjörnur og skúrkar

Engir skúrkar í kvöld. Þó að körfuboltinn hafi ekki verið áferðarfallegur þá var hann spennandi og Ísland lagði hart að sér til að vinna leikinn. Danielle Rodriguez dró vagninn sóknarlega. Endaði með 20 stig og sex stoðsendignar. Hún fékk fína aðstoð frá Söru Rún Hinriksdóttur sem skoraði 16 stig og gaf þrjár stoðsendingar og síðar var það Sigrú Björg sem var best varnarlega en það voru allar að spila frábæra vörn í kvöld.

Umgjörð og stemmning

Fínasta umgjörð í Ólafssal og vel mætt. Áhorfendur létu vel í sér heyra þegar mest á reyndi og sköpuðu flotta stemmningu.

Dómarar

Það er lítið út á tríóið að setja og dæmdu þau vel í kvöld. Eina kannski var það hve auðvelt virtist vera að dæma á unglinginn Rebekku Rut Steingrímsdóttur sem reyndi að vera áköf en var refsað fyrir.

Rebekka Rut í baráttunni.Vísir / Diego

Pekka: Við þurfum fleiri leiki

Pekka gat verið himinlifandi með sínar stelpur í kvöld.Vísir / Diego

Þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, Pekka Salminen, var mjög ánægður með margt í leiks síns liðs í kvöld. Hvað voru þær að gera rétt?

„Við vorum með gott skipulag sem við settum upp og þær framkvæmdu það. Við breyttum smá varnarlega milli leikja og þær spiluðu mjög hart allan leikinn. Við vorum í smá brasi með að stíga út en annars spiluðu stelpurnar frábæran leik varnarlega. Í mínum heimi þá vinnur maður leiki ef maður spilar góða vörn. Við skutum líka boltanum ágætlega í lokin. Sigrún er frábær varnarmaður, þvílíkur leikmaður. Ég er svo ánægður.“

Ísland hefur átt í veseni með að spila heilan leik. Hvað var breytt frá síðasta leik?

„Við vorum ekki í villuvandræðum til dæmis. Svo náðum við að rúlla stóru mönnunum okkar þannig að þær urðu ekki þreyttar. Það var hluti af skipulaginu sem gekk vel.“

Hvað segir þessi leikur þjálfaranum um liðið og jafnvel framtíðina?

„Við erum með góða leikmenn, sem geta skotið og sem geta brotist í gegn. Okkur vantar stærð en okkur hefur kannski vantað að trúa á okkur. Nú höfum við sýnt aðdáendum okkar og kannski sem mestu máli skiptir okkur sjálfum að við getum spilað. Það er það mikilvægasta.“

Hvaða markmið hefur Pekka fyrir framtíðina með þetta lið?

„Ég veit ekki hvernig næstu keppnir líta út en okkur vantar að spila fleiri leiki. Það er mikilvægast. Við erum vonandi að fara að fá einhverjar æfingaleiki í sumar en ég og sambandið erum byrjuð að skipuleggja það. Við þurfum fleiri leiki á móti liðum sem eru í kringum okkur og líka lið sem eru betri en við. Þannig komumst við upp á næsta stig.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira