Ferðaþjónusta

Vill vita hvort Mountaineers of Iceland fór eftir eigin öryggisáætlun
Ráðherra vill fá svar við því hvort Mountaineers of Iceland hafi fylgt sinni öryggisáætlun áður en skoðað verður hvort gera þurfi ríkari kröfur á öryggismál ferðaþjónustufyrirtækja.

Missti 32 kíló eftir að hafa séð mynd af sér í Bláa lóninu
Amy Hodgson kemur til greina til að verða krýnd Slimming World's Miss Slinky 2020 en þar kemur aðeins fólk til greina sem hefur lést mikið og tekið upp nýjan og betri lífstíl.

Meyers segir allt „súper dýrt“ á Íslandi
Grínistinn Seth Meyers, sem stýrir þættinum Late Night með Seth Meyers, nefndi Ísland í þætti sínum í gærkvöldi.

Starfsfólk Mountaineers of Iceland harmar atburðinn og biðst velvirðingar
Starfsfólk ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers of Iceland harmar það sem gerðist við Langjökul í gær er 39 ferðamenn auk tíu leiðsögumanna fyrirtækisins urðu veðurtepptir vegna ófærðar og óveðurs.

Ferðamenn munu krefjast bóta frá Mountaineers of Iceland
Lögreglan hefur ákveðið að rannsaka ferð Mountaineers of Iceland á Langjökul þar sem 39 ferðamönnum var stefnt í háska.

Mountaineers of Iceland viðurkennir afdrifarík mistök
Haukur Herbertsson, rekstrarstjóri hjá Mountaineers of Iceland, segir að sleðaferðum fyrirtækisins í gær hafi verið aflýst fyrir utan þá sem tíu leiðsögumenn fóru með 39 manns á Langjökul í gær. Undir eðlilegum kringumstæðum hefði ferðin ekki átt að taka lengri tíma en klukkutíma og korter.

Störukeppni í vonskuveðri uppi á Langjökli
Reyndur leiðsögumaður segir það vekja mann til umhugsunar hve tregar ferðaskrifstofur séu til að hætta við ferðir þrátt fyrir slæmt veður og aðstæður.

Ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að átta sig á ábyrgð sinni
Það vekur mann til umhugsunar hvað ferðaskrifstofur eru tregar til að hætta við ferðir, ef veður og aðrar aðstæður eru slæmar.

Ólína segir börnin hafa óttast um líf sitt þessa skelfingarnótt
Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingkona og fræðimaður, var á meðal björgunarsveitarfólks sem sinnti þeim 39 sem komust í háska undir Langjökli í gær og nótt. Sárast finni hún til með börnunum sem sannarlega hafi óttast um líf sitt enda rík ástæða til.

Tveggja barna móðir öskureið og skilur ekki að svona geti gerst á Íslandi
Virginia Galvai frá Brasilíu segist reið úr í forsvarmenn Mountaineers of Iceland eftir að hafa ásamt ungum drengjum sínum tveimur lent í háska á Langjökli í vélsleðaferð.

Undrandi á ákvörðun Mountaineers of Iceland
Björgunarsveitarmaður sem var hluti af fjölmennu útkalli á Langjökul í nótt þar sem 39 ferðamenn lentu í háska í vélsleðaferð á vegum Mountaineers Iceland undrast að farið hafi verið í ferðina í ljósi slæmrar veðurspár. Aðstæður hafi verið mjög krefjandi enda veðrið alveg snarbrjálað.

Ferðamálastofa krefst skýringa frá Mountaineers of Iceland
Ferðamálastjóri segir að haft hafi verið samband við fyrirtækið í morgun og óskað eftir afriti af öryggisáætlun fyrirtækisins og skýringum á því að lagt var af stað í þessa ferð.

Rob hafði ekki hugmynd um slæma veðurspá á leiðinni á Langjökul
Breskur ferðamaður sem var á meðal þeirra 39 sem bjargað var af Langjökli seint í nótt eftir vélsleðaferð í vondu veðri með Mountaineers of Iceland er fullur af þakklæti til þeirra sem komu að björgunaraðgerðum. Hann segir enga hugmynd hafa haft af slæmri veðurspá þegar lagt var á jökulinn.

Krefjast þess að fyrirtæki tryggi öryggi ferðamanna
Ástæða er til að lögrega rannsaki aðdraganda þess að farið var með hóp ferðamanna á Langjökul þrátt fyrir að veðurviðvaranir hafi verið í gildi, að sögn lögreglufulltrúa hjá almannavörnum. Samtök ferðaþjónustunnar krefjast þess að fyrirtæki tryggi ávallt öryggi viðskiptavina.

Skutluðu ferðamönnunum á Malarhöfða
Hluti af ferðamannahópnum, sem lenti í ógöngum í vélsleðaferð á Langjökli í gærkvöldi, komu í húsnæði Hjálparsveitar skáta á Malarhöfða í Reykjavík nú á tólfta tímanum.

Eðlilegt að lögregla rannsaki hvers vegna farið var af stað
Veðurfræðingur leggur áherslu á að strax hafi verið ljóst í gærmorgun að veður yrði slæmt á svæðinu en hópurinn lagði af stað eftir hádegi í gær.

Eyjan Traustholtshólmi bjargaði Hákoni frá alkóhólisma
Hákon Kjalar Hjördísarson og hundur hans Skuggi búa einir á eyjunni Traustholtshólma sem er rétt fyrir ofan mynni Þjórsár eða í 30 mínútna ökufæri frá Selfossi og bjóða þar ferðamönnum upp á ævintýralega upplifun á einum friðsælasta stað landsins.

Boðar flugtak hins nýja WOW air á næstu vikum
Ef marka má stöðuuppfærslu Michelle Ballarin á LinkedIn er von á því að WOW air hefji flug á nýjan leik á næstu vikum.

Ferðamennirnir í rútum á leið til Reykjavíkur
Aðgerðum í fjöldahjálparstöð sem stofnuð var í Gullfosskaffi verður því senn lokið.

Ferðamennirnir enn á leið til byggða
Færð og veður hefur tafið ferðalagið niður af jöklinum.

Ferðamennirnir kaldir og skelkaðir: „Ekkert launungarmál að þetta eru mjög erfiðar aðstæður“
Upp úr klukkan hálfeitt í nótt komu fyrstu björgunarsveitarmenn að fólkinu sem er fast upp við Langjökul.

Sex ára barn í hópi ferðamannanna við Langjökul
Lögreglan metur ástandið við Langjökul alvarlegt. Þar eru 39 ferðamenn strandaglópar ásamt tíu leiðsögumönnum frá ferðaþjónustufyrirtækinu Mountaineers of Iceland.

Þrjú ár síðan sama fyrirtæki lagði í afdrifaríka ferð í vonskuveðri við Langjökul
Ferðamennirnir 39 sem hundruð björgunarsveitarmanna voru kölluð út í kvöld til að koma til aðstoðar á Langjökli í kvöld voru samkvæmt heimildum Vísis í ferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers of Iceland.

Nýr sautján hæða hótelturn kallast á við Hallgrímskirkju
Sautján hæða hótelturn verður ein svipmesta bygging miðborgar Reykjavíkur en framkvæmdir eru hafnar á horni Skúlagötu og Vitastígs.

Nauðungarsala á Hlemmi Square
Ríkisskattstjóri hefur farið fram á að húsnæði félagsins Hostel LV 105 ehf. sem rekur hostelið Hlemm Square á Laugavegi 105 verði boðið upp. Tilkynning þess efnis birtist í Lögbirtingablaðinu í gær.

Farþegum Icelandair til Íslands fjölgaði um fjórðung
Farþegum Icelandair sem félagið flutti til Íslands fjölgaði um 25 prósent á árinu 2019 sé miðað við fyrra ár, 2018, eða um 1,9 milljónir farþega.

Telur að ferðaþjónustan geti ekki leitt hagvöxt til lengdar
Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri segir að bankinn hafi gripið til aðgerða eftir fall WOW air og lækkað vexti. Þeir séu nú í sögulegu lágmarki hér á landi en muni lækka meira ef þörf sé á.

Ísland á lista yfir tíu spennandi áfangastaði fyrir árið 2020
Nú þegar nýtt ár er hafið eru margir Íslendingar farnir að velta því fyrir sér hvaða áfangastaður verði fyrir valinu sumarið 2020 eða jafnvel um næstu páska.

Gisting á hóteli í Reykjavík 16 prósentum ódýrari en í fyrra
Verðlækkun rakin fyrst og fremst til lægri herbergjanýtingar.

Áratugir ferðaþjónustunnar?
Það má með sanni segja að liðinn áratugur hafi verið áratugur ferðaþjónustunnar. Atvinnugreinin sleit barnsskónum, hljóp hratt öll unglingsárin og er nú einn af grunnatvinnuvegum landsins.