
Salat

Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa
Matgæðingurinn Berglind Hreiðarsdóttir hjá Gotterí og gersemar útbjó nýverið litríkt og ljúffengt sumarsalat sem er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Rétturinn er einfaldur í undirbúningi og tilvalinn á heitum dögum þegar maður langar í eitthvað létt, ferskt og bragðgott.

Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar
Sumarið kallar á létta og litríka rétti sem kæta bragðlaukana. Matgæðingurinn Hildur Rut Ingimarsdóttir deilir hér ljúffengu og matarmiklu barbecue kjúklingasalati sem hentar einstaklega vel á heitum sumardegi.

Sumarleg og saðsöm salöt
Þrátt fyrir að sólin sé ekki mikið fyrir það að láta sjá sig þessa dagana er sumar í lofti og gróðurinn sjaldan verið grænni. Þá er upplagt að bjóða í sumarlegt matarboð en heilsumarkþjálfinn Anna Guðný Torfadóttir deilir hér girnilegum salat uppskriftum þar sem hollustan er í fyrirrúmi.

Sesarsalat takkó sem þú verður að prófa
Svokallað Sesarsalat takkó hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlunum TikTok og Instagram undanfarið. Rétturinn er bæði einfaldur í bígerð og einstaklega bragðgóður.

Gulrótasalat sem rífur í bragðlaukana
Heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir, jafnan þekkt sem Jana, er dugleg að deila ýmsum uppskriftum í heilsusamlegri kantinum með fylgjendum sínum á Instagram. Nýlega deildi hún uppskrift að auðveldu gulrótarsalati sem hún segir rífa aðeins í.

Gúrkan hækkað um þúsund krónur
Hrefna Rósa Sætran, matreiðslumeistari og veitingahúseigandi, segir vöruverð á gúrku hafa hækkað um þúsund krónur frá því í lok júní. Ástæðuna telur hún augljóslega mega rekja til óvæntra vinsælda gúrkunnar í sannkallaðri gúrkutíð á samfélagsmiðlinum TikTok.

Fullkominn forréttur sem þið verðið að prófa
Matgæðingurinn Berglind Hreiðarsdóttir, hjá Gotterí og gersemar, útbjó nýverið ljúffengri uppskrift af grillosti með pestói og klettasalati. Rétturinn er tilvalinn sem léttur forréttur eða sem meðlæti með grillmatnum.

Ómótstæðilegt risarækju hrásalat að hætti Lindu Ben
Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir deildi litríkri og bragðgóðri uppskrift að risarækju hrásalati með mexíkósku ívafi með fylgjendum sínum á Instagram á dögunum. Það tekur aðeins fimmtán mínútur að framkvæma uppskriftina sem er stútfull af hollustu.

Eftirlætis kjúklingasalat Lindu Ben
Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir deildi girnilegri uppskrift að kjúklingasalati með sætum kartöflum, döðlum og sinnepsdressingu með fylgjendum sínum á Instagram. Hún segir réttinn bragðgóðan og vera í miklu uppáhaldi hjá henni og fjölskyldunni.

Sumarlegir réttir að hætti Jönu
Heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir, eða Jana, deildi sumarlegum og einföldum uppskriftum með fylgjendum á Instagram. Réttirnir eru bragðgóðir og henta vel sem meðlæti eða sem léttur aðalréttur.

Girnilegar og litríkar salatskálar að hætti Jönu
Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur deildi myndum af girnilegum og litríkum salötum með fylgjendum sínum á Instagram. Hún segir góðan undirbúning lykilatriðið þegar kemur að því að töfra fram nærandi og bragóðar skálar á aðeins nokkrum mínútum.

Stútfyllt svínalund með sætkartöflusalati
Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega. Í þetta skiptið er það stútfyllt svínalund með sveppakremi og sætkartöflu- og döðlusalati sem snertir alla bragðlaukana.

Uppáhalds kjúklinga-sellerísalat Tobbu Marínós
„Ég trúi nú ekki svona töfrasögum og ætlaði ekki að verða einhver forsprakki í grænbrúsksértrúasöfnuði,” segir Tobba Marínós í samtali við Vísi. Hún lýsir því hvernig sellerí varð hluti af hennar lífi en í dag byrjar hún alla daga með sellerísafa í hönd.

Helvítis kokkurinn: Grilluð lúða með leynisósu og rauðrófusalati
Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Eldað af ást: Matmikið andasalat sem er létt í maga
Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk og önnur uppskriftin sem hún sýnir er andasalat sem er fullkomið eftir þungar hátíðarmáltíðir síðustu daga.

Veit fátt betra en rétt eldað andaconfit salat
Matreiðslumaðurinn, kráareigandinn, dýravinurinn, kraftlyftingakonan, jógakennarinn og fjallagarpurinn Hrefna Rósa Sætran er farin af stað við að undirbúa hátíðirnar heima fyrir og í vinnunni.

Lítið mál að bjóða upp á ketó jólasalat
Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin.

Kemst hjá verðhækkun á salati með nýjum tækjabúnaði
Í nýrri gróðrastöð Lambhaga í Mosfellsdal er allri ræktun stjórnað úr einni tölvu. Með nýjum tækjabúnaði segist eigandinn geta haldið kostnaði niðri við framleiðslu og þar með komist fyrirtækið hjá verðhækkun á salati til neytenda.

Aðventumolar Árna í Árdal: Sjávarréttasalat Maggíar
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.

„Rosaleg áskorun fyrir mig sem leikkonu að fara yfir heila mannsævi á einu kvöldi“
Katrín Halldóra Sigurðardóttir er 29 ára gömul og ætlaði sér alltaf að verða leikkona og tók Katrínu þrjár tilraunir að fá inngöngu í Leiklistarskóla Íslands en hún hefur svo sannarlega slegið í gegn í gegn í hlutverki sínu sem Ellý Vilhjálms.

Appelsínusalat með lárperu og granatepli
Æðislegt salat sem hægt er að borða eitt og sér eða hafa með kjúklingi. Uppskriftin miðast við fjóra.

Fagurrautt og rússneskt vinaigrette-salat á jólaborðið
Nathalía Druzin Halldórsdóttir söngkona á rætur að rekja til Rússlands. Hún útbýr meðlætið með hangikjötinu á jóladag eftir þarlendri uppskrift.

Einfalt með Evu: Súkkalaðikaka með blautri miðju
Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Einfalt með Evu: Carpaccio, hægeldaðir lambaskankar, mozzarella salat og Tarte tatin
Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 í síðustu viku en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Ofnbökuð bleikja með Teryaki sósu og hrásalati
Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 í kvöld en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Vatnsmelónusalat með mojito
Þetta er ótrúlegt frísklegt salat fyrir fullorðna. Gera þarf vinaigrette með bragð af mintu, rommi og límónu. Salatið fer einstaklega vel með grilluðum kjúklingabringum. Uppskriftin miðast við fjóra.

Eggja- og lárperusalat með kalkúni
Í þessa uppskrift er notuð tortilla-kaka úr heilhveiti. Þægilegur réttur sem hægt er að borða úti í náttúrunni. Fínasti hádegisverður fyrir fjóra eða nesti í ferðalagið.

Sumarlegt kjúklingasalat með mexíkó-ostasósu og Doritos
Æðislegt kjúklingasalat með bragðmiklum kjúkling, lárperu, mexíkó-ostasósu og Doritos

Salat með mexíkóskum blæ að hætti Evu Laufeyjar
Steikið kjúklinginn upp úr olíu, kryddið skinnhliðina og steikið á þeirri hlið í tíu mínútur. Kryddið hina hliðina með salti, pipar, kumminkryddi og Bezt á allt-kryddblöndunni. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er gott að setja hann inn í heitan ofn á meðan salatið er útbúið.

Hátíðlegt kjúklingasalat
Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum. Í gær töfraði hann fram þriggja rétta matseðil sem kjörinn er á aðfangadag.