Matur

Eldað af ást: Matmikið andasalat sem er létt í maga

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eldað af ást eru nýir þættir sem aðgengilegir eru á Vísi, Stöð 2 Vísi og Stöð 2+.
Eldað af ást eru nýir þættir sem aðgengilegir eru á Vísi, Stöð 2 Vísi og Stöð 2+. Vísir

Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk og önnur uppskriftin sem hún sýnir er andasalat sem er fullkomið eftir þungar hátíðarmáltíðir síðustu daga. 

Kristín Björk heldur úti skemmtilegri Instagram síðu en þættirnir hennar munu birtast vikulega hér á Vísi. Fyrstu tveir þættirnir verða sýndir í desember en hægt er að horfa á fyrsta þáttinn HÉR á Vísi. 

„Í dag ætlum við að gera saman andasalat sem er matmikið en líka ofsalega létt í maga og það elska það allir.“ 

Þáttinn má sjá í spilaranum en uppskriftina má svo finna neðar í fréttinni. 

Klippa: Eldað af ást - Andasalat

Andasalat 

  • Spínat 1 poki
  • Ruccola 1 poki
  • Baunaspírur 1 bakki
  • Mynta tvær lúkur
  • Ferskur rauður chilli hálfur
  • Granatepli 1 stk
  • Gúrka 1 stk
  • Perur 3 stk
  • Mozarella kúlur litlar 1 box
  • Olía
  • Salt
  • Pipar
  • Sætar kartöflur 2 stôrar
  • Andar Confit 1 dós
  • Glass noodles 1/3 pk
  • Öndinni velt upp ur teriaki mandarin
Andasalatið úr öðrum þætti af Eldað af ást.Eldað af ást

Sósan

  • Teriaki Marinade 2/3
  • Ólífuolía örlítið
  • Sýróp 1/3

Aðferðina má finna í þættinum í spilaranum hér fyrir ofan. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×