
Bókmenntir

Vinnan sé seld langt undir kostnaðarverði
Formaður Rithöfundasambands Íslands segir hvorki rithöfunda né útgefendur græða á samningum við Storytel. Vinna þeirra væri seld langt undir kostnaðarverði. Rithöfundasambandið leitar til lögfræðinga vegna mikillar óánægju innan starfsstéttarinnar.

Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu
Á menningarvefnum Lestrarklefinn er nú fjallað um hinar ýmsu bækur sem komið hafa út á árinu. Sæunn Gísladóttir fjallar hér um bókina Hittu mig í Hellisgerði eftir Ásu Marin.

„Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“
Barnabókahöfundur birti uppgjör sitt fyrir bóksölu síðasta árs. Mikill munur er á greiðslum fyrir bóksölu og spilun á streymisveitunni Storytel. Hún segir rithöfunda verða að reiða sig á listamannalaun en þau séu alls ekki nóg.

Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“
Ritdómum rignir nú inn á menningarvefinn Lestrarklefinn. Hér fjallar Sjöfn Asare um bók Tómasar Ólafssonar, Breiðþotur.

Siðlaus maður étur skít og öðlast samkennd
Bragi Páll var að senda frá sér sína fjórðu bók; Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen. Þrándur Þórarinsson málar myndina á kápuna en þar má sjá söguhetjunni eftir að nokkur umskipti hafa átt sér stað. Hann étur skít og öðlast samkennd.

Dó í 33 mínútur og 3 sekúndur
Það eru ekki margir sem státa af þeirri reynslu að hafa dáið og komið aftur til lífs. Og það eru líklega enn færri sem geta sagt að þeir gangi bókstaflega fyrir rafhlöðum. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason er einn af þeim.

Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar
Friðsemd, fyrsta skáldsaga Brynju Hjálmsdóttur er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn en þar er skrifað um hverskonar bækur og menningartengt efni. Hér fjallar Rebekka Sif Stefánsdóttir um bók Brynju.

Sveppi og Karen Björg skrifa leikna þætti um Orra óstöðvandi
Orri óstöðvandi, bókaflokkurinn um vinina Orra og Möggu, er íslenskum krökkum afar vel kunnugur. Nú á að gera leikna sjónvarpsþætti um Orra og vini hans.

Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans
Á menningarvefnum Lestrarklefinn er fjallað um allskonar bækur allt frá fræðibókum til fagurbókmennta. Jana Hjörvar fjallar hér um skáldsögu Nönnu Rögnvaldardóttur, Þegar sannleikurinn sefur.

Rithöfundar sjaldan verið í eins harðri samkeppni um athygli og nú
Þrátt fyrir að það hafi komið í ljós í könnun Maskínu á dögunum að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna sé ánægður með stjórnarslit þá eru rithöfundar uggandi vegna kosninganna og þeirri fyrirferð sem óhjákvæmilega fylgir þeim. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir að það sé smá skellur að fá kosningar ofan í þann tíma sem skipti langmestu máli fyrir bóksölu á Íslandi.

Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin
Nýjasta skáldsaga Elísabetar Jökulsdóttur er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn en þar er fjölbreytt flóra bóka tekin fyrir og haldið úti líflegri umræðu um bókmenntir á Íslandi. Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar hér um Límonaði frá Díafani:

Arnhildur hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs að þessu sinni fyrir þverfaglega nálgun og áherslu á minnkaða kolefnislosun og endurnýtingu byggingarefnis.

Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Suður kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið. Verk eftir hana hefur komið út á íslensku, en hún hefur einnig komið hingað til lands.

Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels?
Sænska akademían tilkynnir í dag hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels.

Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu
Nýjasta skáldaga Halldórs Armands, Mikilvægt rusl, kemur út fimmtudaginn 10. október. Bókin fjallar um sorphirðumenn í Hruninu og er gefin út af nýstofnaðri útgáfu Halldórs sem heitir Flatkakan útgáfa.

Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur
Rithöfundahjónin Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson hafa sameinað krafta sína og skapað fjórar nýjar hrollvekjandi sögur fyrir bókaflokkinn Hrekkjavökur hjá Storytel.

Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“
Bókabúðin Skálda opnar í dag á Vesturgötu 10a. Einar Björn Magnússon, bóksalinn tilvonandi, telur vera eftirspurn eftir bókabúð sem leggur raunverulega áherslu á bækur og hyggst hann gera Skáldu að miðpunkti bókmenntalífs borgarinnar.

Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar
Svalbarðsstrandarhreppur í austanverðum Eyjafirði hefur ákveðið að loka almenningbókasafninu í þorpinu en efla jafnframt skólabókasafnið. Þá verða teknar upp viðræður við Akureyrarbæ um sérstakan þjónustusamning fyrir íbúa.

Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness
Bresk-bandaríski rithöfundurinn Salman Rushdie hlýtur í ár Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Hann mun veita þeim viðtöku frá forsætisráðherra Íslands í Háskólabíó í athöfn sem hefst kl. 17:30 og hægt er að sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur
Ævar Þór Benediktsson, leikari og rithöfundur, hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í dag fyrir handritið Skólastjórann. Verðlaunin voru veitt í fimmta sinn en alls bárust 41 handrit undir dulnefni í ár.

„Mann- og listfjandsamleg þvæla“
Einar Kárason gagnrýnir úthlutunarkerfi fyrir starfslaun listamanna og segir alla áherslu á sjálfa umsóknina frekar en listamanninn sem sækir um. Hann biðlar til Rithöfundarsambandsins að vinda ofan af „þessari mann- og listfjandsamlegu þvælu“.

Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness
Bresk-bandaríski rithöfundurinn Salman Rushdie hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 en Rushdie mun veita verðlaununum viðtöku í Háskólabíói föstudaginn 13. september næstkomandi.

Kynnti „einhverjar mestu breytingar á námsgagnaútgáfu í áratugi“
Námsgögn verða gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema að átján ára aldri og fjárframlag til námsgagnagerðar mun tvöfaldast nái frumvarp barnamálaráðherra fram að ganga. Útgefandi fagnar því að stjórnvöld séu farin að átta sig á umfangi vandans, úrelt námsgögn séu alvarlegt samfélagsmein.

Yndislestur og fyrirmyndir
Það eru 10 ár síðan sem ég fékk þá frábæru hugmynd frá fjölskyldumeðlimi að setja mér reglulegt bóklesturs-markmið. Til dæmis lesa 1-2 bækur á mánuði. Ég stökk á vagninn og held nú upp á 10 ára afmæli reglulegs yndislestrar.

Kári vandar um við heimsfrægan rithöfundinn
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er ekki hrifinn af kenningum Matt Ridleys, blaðamanns og rithöfundar, sem hefur verið hér á landi við veiðar og notaði tækifærið og viðraði kenningar sínar.

Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól
Áhugavert er að sjá hvernig viðburðir og árstíðir breyta hegðun okkar og neysluvenjum í bókalestri. Þegar sólin hækkar og daginn fer að lengja virðist fólk fara að lesa sögur sem létta sálina og greinilegt er að sumarið kveikir í ástarglóðum en hjá hlustendum Storytel má sjá aukningu í vinsældum ljúflestrarbóka á þessum árstíma.

Var áfram með eiginmanninum þrátt fyrir brot hans gegn dótturinni
Yngsta dóttir rithöfundarins og Nóbelsverðlaunahafans Alice Munro hefur stigið fram og greint frá því að hafa verið beitt kynferðisofbeldi af stjúpföður sínum. Hún segir móður sína hafa vitað af ofbeldinu en ákveðið að vera áfram með manninum.

Eins söguleg og skáldsaga getur orðið
„Þetta einvígi lifir með þjóðinni og mun gera það áfram,“ segir Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalif og rithöfundur.

Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi
Neil Gaiman, heimsfrægur höfundur bóka á borð við The Sandman og Good Omens, hefur verið sakaður um kynferðisofbeldi af tveimur konum. Konurnar tvær segja hann hafa beitt þær ofbeldi þegar þær voru 20 og 21 árs og í sambandi með honum. Gaiman þvertekur fyrir að hafa nokkuð gert af sér.

Hundruð freista þess að gera góð kaup í Nexus
Hundruð manna hafa gert sér ferð í sérvöruverslunina Nexus í morgun þar sem blásið var til hinnar árlegu sumarútsölu verslunarinnar. Myndarleg röð var við inngang verslunarinnar í Glæsibæ þegar hún var opnuð klukkan tíu og yfir tvö hundruð manns komu í verslunina á innan við tuttugu mínútum til að gera góð kaup.