Efnahagsmál

Fréttamynd

Í­búar funda aftur um stöðu Kaffi­stofunnar

Hópur íbúa í hverfi 108 hefur boðað til opins íbúafundur í kvöld til að ræða stöðu Kaffistofu Samhjálpar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði nýlega kröfur þeirra um að stöðva framkvæmdir á meðan nefndin fjallar um stjórnsýslukæru íbúanna. Til stendur að opna Kaffistofuna í húsnæði við Grensásveg 46. 

Innlent
Fréttamynd

Rekstur borgarinnar nei­kvæður um 5,3 milljarða í fyrra

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta ársreiknings Reykjavíkurborgar er jákvæð um átta milljarða króna en niðurstaðan af rekstri A-hluta var neikvæð um ríflega fimm milljarða. Helsta skýring neikvæðrar niðurstöðu er sögð mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga auk þess sem mikil verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiddu til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Beitir sér ekki sér­stak­lega fyrir því að spurningunni verði breytt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni Alþingis og hún treysti því. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga. 

Innlent
Fréttamynd

Heimilin óttast við­varandi háa verð­bólgu og flykkjast í fasta óverð­tryggða vexti

Á allra síðustu mánuðum hafa orðið talsvert umskipti á lánamarkaði en samhliða því að væntingar í efnahagslífinu hafa breyst til hins verra, með auknum líkum á þrálátri verðbólgu og háum stýrivöxtum, hafa heimilin brugðist við með því að færa sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum. Hrein ný lántaka heimila á slíku lánaformi hefur aldrei mælst meiri en í liðnum mánuði.

Innherji
Fréttamynd

Spá Ís­landi á­fram í topp tíu í lands­fram­leiðslu

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að Ísland falli um eitt sæti landa í Evrópu með mestu landsframleiðsluna árið 2025 að teknu tilliti til kaupmáttajöfnuðar, úr sjöunda sæti í áttunda sæti árið 2030. Landið helst í fjórða sæti yfir lönd með mestu landsframleiðslu á mann að nafnvirði og er efst Norðurlanda á þann mælikvarða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stórir draumar eru mikil­vægir en ekki nóg

Smæðin hefur sjaldan fengið að vera afsökun á Íslandi. Við höfum frekar hagað okkur eins og hún sé áskorun sem beri að yfirstíga. Það er ekki sjálfgefið. Margar litlar þjóðir læra að laga væntingar sínar að stærðinni. Við höfum oftar gert hið gagnstæða og hagað okkur eins og stærðin segi ekki alla söguna.

Umræðan
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin má ekki bíða lengur

Við getum ekki lengur rætt þróun verðbólgu eins og hún sé tímabundið leiðindamál sem leysist af sjálfu sér. Ný hagspá Landsbankans er í því ljósi alvarleg viðvörun. Þar er gert ráð fyrir miklum verðbólguþrýstingi út árið, 4,8 prósenta meðalverðbólgu á árinu og jafnvel 8,25 prósenta stýrivöxtum.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­sókn kynnti til­lögu að þjóðar­sátt

Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar kynnti í dag efnahagsaðgerðir flokksins ásamt tillögu að nýrri þjóðarsátt um efnahagsmál. Aðgerðunum er ætlað að létta undir með heimilum landsins en í tilkynningu frá flokknum segir að breyta þurfi verklagi í hagstjórn landsins.

Innlent
Fréttamynd

Spá aukinni verð­bólgu í apríl

Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga muni hækka úr 5,4 prósentum í 5,5 prósent í apríl. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafi þar mest áhrif á hækkun milli mánaða samkvæmt spánni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir það skjóta skökku við að á sama tíma og ríkisstjórnin biður fólk að halda að sér höndum vegna verðbólgu eyði hún fjármunum í tækifærisgjafir til handa ríkisstarfsmönnum. Starfsmenn dómsmálaráðuneytisins fengu á dögunum hönnunarbolla í vorgjöf.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að skatta­hvatar fyrir tækni- og hug­verka­iðnað verði festir í sessi

Samtök iðnaðarins, SI, segja mikilvægt að íslenskt menntakerfi verði eflt og sömuleiðis aðgengi að erlendum sérfræðimenntuðum mannauði. Samtökin hvetja í nýrri greiningu stjórnvöld einnig til að festa í sessi skattahvata vegna rannsókna og þróunar í tækni- og hugverkaiðnaði. Iðnaðurinn sé einn sá stærsti og hlutfall fjárfestinga hafi aldrei verið hærra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hafi á­hrif á vísi­töluna en vonandi væntingar líka

Nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa ekki vakið hrifningu innan bankanna eða verkalýðshreyfingarinnar. Innt eftir viðbrögðum segir Kristrún Frostadóttir útspilið sem kynnt var í gær væri framlag ríkisstjórnarinnar til þess að „breyta umræðunni og breyta því skjóli sem felst í því að við tölum okkur upp í verðhækkanir“.

Innlent
Fréttamynd

Felur í sér „veru­lega á­hættu“ fyrir efna­hags­stöðug­leika og magnar hag­sveiflur

Fjármálaráð fer hörðum orðum um ákvörðun stjórnvalda að vísitölutengja bætur almannatrygginga, þar sem verið sé að bregðast við „ofmetnum“ vanda, og segir afleiðingarnar vera „veruleg áhætta“ fyrir stöðugleika í efnahagslífinu með því auka sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magna hagsveiflur og minnka getu ríkisins til að beita mótvægisaðgerðum. Í ljósi reynslu annarra þjóða þá „sætir það furðu“, að mati ráðsins, að slíkt kerfi sé tekið upp, einkum þegar litið er til þess að tekjur öryrkja hafa vaxið hraðar en vinnandi fólks undanfarin áratug.

Innherji
Fréttamynd

Spá enn vaxta­hækkun í maí

Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar virðist vera sérsniðnar utan um forsenduákvæði kjarasamninga. Þó að bensínverð geti lækkað um tíu prósent tímabundið eru enn líkur á því að Seðlabankinn hækki vexti í maí.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Ný atvinnustefna Ís­lands markar tíma­mót“

Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja atvinnustefnu Íslands. Þessi fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands er 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífi og samfélagi að verðmætasköpun í landinu. Atvinnustefnunni fylgir einnig aðgerðaáætlun sem nær til áranna 2026 – 2027 þar sem settar eru fram 35 aðgerðir til að stuðla að markvissri innleiðingu stefnunnar. Forsætisráðherra segir um tímamót að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Vara við lausafjárvanda verk­taka þegar bankarnir setja þeim stólinn fyrir dyrnar

Vegna fordæmalausrar sölutregðu á nýbyggingum þá er einungis tímaspursmál hvenær bankarnir fara að setja fjármagnsþörf áframhaldandi birgðasöfnunar á nýjum íbúðum „stólinn fyrir dyrnar,“ samkvæmt nýrri greiningu um fasteignamarkaðinn, sem mun þá birtast í lausafjárvanda byggingarverktaka. Sögulega mikið ójafnvægi á milli fasteignaverðs og getu heimila til íbúðakaupa, ásamt horfum á aðhaldssamri peningastefnu, ætti að styðja við að verðið gefi enn eftir á komandi mánuðum og spurningin er aðeins hversu hröð sú aðlögun verður.

Innherji
Fréttamynd

Kynna að­gerðir gegn verð­bólgu á morgun

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðar aðgerðir í efnahagsmálum til að vinna gegn verðbólgu sem kynntar verða á blaðamannafundi á morgun. Ríkisstjórnin hefur samþykkt tíu ára vaxtaplan sem hluta af fyrstu atvinnustefnu Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gerir ráð fyrir á­fram­haldandi hækkun bensínverðs

Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði.

Innlent
Fréttamynd

Má lækka skatta?

Í vikunni kynnti Sjálfstæðisflokkurinn tillögur sínar að umbótum í efnahagsmálum, sem innihélt hugmyndir flokksins um víðtækar skattalækkanir, hagræðingar og takmörkun á umsvifum hins opinbera.

Skoðun
Fréttamynd

Ráð­herra vissi af gabbi um kíló­metra­gjald fyrir fram

Aprílgabb sem birtist í Morgunblaðinu og mbl.is í morgun um meinta niðurfellingu á kílómetragjaldi var með vitund fjármálaráðherra. Skattstjóri segir blekkingar af þessu tagi ekki heppilegar. Ráðherra segist sennilega ekki hafa gefið grænt ljós á gabbið hefði hann vitað hvernig það yrði útfært.

Innlent
Fréttamynd

Skatta­lækkanir vinni bein­línis gegn Seðla­bankanum

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að margt komi til greina til að draga úr verðbólgu, en ekki skattalækkanir; þær „vinni beinlínis gegn Seðlabankanum“. Hann telur að ríkið geti ekki eitt og sér lækkað verðbólgu í landinu. „Þjóðarsátt væri góð,“ segir hann.

Neytendur
Fréttamynd

Vilja 140 milljarða skatta­lækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða

Sjálfstæðisflokkurinn boðar 140 milljarða króna skattalækkanir, 160 milljarða króna hagræðingu í ríkisrekstri og sölu ríkiseigna fyrir meira en 680 milljarða króna samkvæmt efnahagstillögum sem flokkurinn kynnti í dag. Tillögunum er ætlað að auka ráðstöfunartekjur heimilanna, bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins og lækka skuldir ríkisins.

Innlent
Fréttamynd

Engin þjóðar­sátt án skýrra að­gerða

Forseti ASÍ segir brýnt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins komi sér saman um aðgerðir til að ná tökum á neikvæðri þróun í efnahagslífinu. Ekki sé hægt að ræða um þjóðarsátt fyrr en þær komi fram. Ríkisstjórnin þurfi að hafa frumkvæði að því að kalla fólk saman. Fyrri fundir hafi þó reynst árangurslausir.

Innlent
Fréttamynd

„Fólk er bara að vinna minna“

Hagfræðingur segir þá þróun eiga sér stað í hagkerfinu að hagvöxtur standi í stað milli ára og það eigi erfitt með að vaxa. Hann bendir á samdrátt í útflutningsgreinum á Íslandi undanfarin ár. Lektor við viðskiptafræðideild HÍ segir skorta á traust í samfélaginu til aðgerða til að ná tökum á verðbólgu.

Innlent