Kosningar í Ungverjalandi
Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Sextán ára valdatíð Viktors Orban í Ungverjalandi lauk um helgina þegar Tisza-flokkurinn með Péter Magyar í broddi fylkingar vann stórsigur í kosningum í landinu. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórmálafræði og sérfræðingur í þróun þjóðernishyggju og pópúlisma í Evrópu segir að sigur Magyars hafi á endanum orðið enn stærri en búist hafði verið við og að um mikil tímamót sé að ræða. Erlent 13.4.2026 14:31
Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, var innanbúðarmaður í flokki Viktors Orbán þar til fyrir örfáum árum. Hann er sagður umdeildur, jafnvel á meðal eigin kjósenda. Magyar þykir metorðagjarn, hrokafullur og jafnvel andstyggilegur. Erlent 13.4.2026 11:06
Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér „Ungverjar sögðu já við Evrópu í dag,“ sagði Péter Magyar, formaður Tisza-flokksins sem vann stórsigur ungversku þingkosningunum í kvöld. „Þeir sögði já við frjálst Ungverjaland,“ hélt hann áfram í ræðu á kosningavöku flokksins. Hann bað forseta Ungverjalands um að veita flokknum stjórnarmyndunarumboð og segja svo strax af sér. „Ég bið allar strengjabrúðurnar sem hafa verið við völd síðustu sextán ár um að gera slík hið sama,“ bætti hann við. Erlent 13.4.2026 00:05
Orbán játar sig sigraðan Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur. Erlent 12.4.2026 19:28
Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Stjórnarandstöðuflokkur Péters Magyar vinnur þingkosningarnar í Ungverjalandi með 55,5 prósent atkvæða samkvæmt síðustu skoðanakönnunum sem gefnar hafa verið út eftir lokun kjörstaða. Forsætisráðherrann Viktor Orbán horfir þar upp á fylgistap þar sem Fidesz-flokknum er spáð 37,9 prósentum atkvæða. Erlent 12.4.2026 18:01
Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Heiftúðugri baráttu lýkur í dag þegar milljónir Ungverja kjósa til þings. Raðir eru víða á kjörstöðum sem verður lokað klukkan fimm síðdegis að íslensku tíma. Evrópa öll fylgist með öndina í hálsinum með þegar fyrstu tölur detta inn enda benda skoðanakannanir til þess að sextán ára valdatíð Viktors Orbán forsætisráðherra gæti lokið í kvöld. Erlent 12.4.2026 13:23
Komið að ögurstundu Leiðtogar stærstu stjórnmálaflokka Ungverjalands héldu sína síðustu kosningafundi á laugardagskvöld á lokametrum langrar baráttu sem endar með kosningum á sunnudag. Viktor Orbán hefur setið á forsætisráðherrastóli í sextán ár og stendur nú frammi fyrir sinni stærstu pólitísku prófraun til þessa þegar mið-hægriflokkurinn Tisza mælist með tveggja stafa forskot í flestum óháðum skoðanakönnunum. Erlent 12.4.2026 00:06
Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu. Erlent 10.4.2026 13:08
Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar. Erlent 8.4.2026 15:37
Bauð Pútín að vera „músin“ hans Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín. Erlent 8.4.2026 10:10
JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, er væntanlegur í opinbera heimsókn til Ungverjalands í dag, til að sýna stuðning sinn við forsætisráðherrann Victor Orban fyrir kosningar í landinu á sunnudag. Flestar skoðanakannanir sýna Orban tapa kosningunum. Erlent 7.4.2026 07:12
Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir. Erlent 25.3.2026 11:44
Sakar Orbán og félaga um landráð Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði. Erlent 23.3.2026 19:10