
Streymisveitur

Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar
Í dag sameinast vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð2+ og Stöð 2 Sport undir merki Sýnar.

Boða komu HBO Max til landsins á ný
Streymisveitan HBO Max verður aðgengileg landsmönnum í júlí, að því er segir í tilkynningu frá eiganda veitunnar. Koma HBO Max til landsins hefur þegar verið boðuð tvisvar en hún átti upphaflega að fara í loftið fyrir þremur árum.

Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur
Streymisveitan Max, sem hét áður HBO Max, hefur fengið nýtt nafn. Hún heitir nú aftur HBO Max. Upprunalega hét streymisveitan HBO Now. Þegar Warner Bros. Discovery varð til árið 2020 fékk hún nafnið HBO Max en árið 2023 var sú ákvörðun tekin að breyta nafninu í Max.

Sveik 1,3 milljarða úr streymisveitum með gervispilunum
Karlmaður í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir stórfelld fjársvik sem fólust í því að framleiða urmul laga með hjálp gervigreindar og nýta vélmenni til að falsa spilanir á streymisveitum. Með þessum hætti fékk hann greidd höfundalaun sem námu hátt í 1,3 milljörðum króna.

Segja sjónvarpsáskrift koma í veg fyrir lögsókn vegna dauðsfalls
Afþreyingarrisinn Disney heldur því fram að ekkill konu sem lést eftir heimsókn í skemmtigarð fyrirtækisins geti ekki stefnt því vegna ókeypis tilraunaáskriftar að streymisveitunni Disney+ sem hann fékk sér. Lögmenn ekkilsins segja rök Disney fráleit.

Dani hafi grætt milljónir á streymissvindli
Réttað verður yfir 53 ára gömlum dönskum karlmanni í Árósum í dag en honum er gefið að sök að hafa stolið 689 lögum eða hluta úr lögum og dreift þeim undir eigin nafni á streymisveitum líkt og Spotify og Apple Music.

Samþykktu endurskipulagningu Viaplay
Hluthafar sænska streymisfyrirtækisins Viaplay Group hafa samþykkt endurskipulagningu á félaginu sem leiðir til þess að franski fjölmiðla- og fjarskiptarisinn Canal+ Group og tékkneska fjárfestingafélagið PPF hafa eignast hvor um sig 29,3 prósenta hlut í fyrirtækinu.