Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Lovísa Arnardóttir skrifar 17. desember 2025 21:32 Warner Bros. var sett á sölu í október. Vísir/EPA Warner Bros Discovery hefur sagt hluthöfum sínum að hafna 108,4 milljarða dala yfirtökutilboði Paramount Skydance. Stjórn Warner Bros samþykkti einróma að hafna tilboðinu og að samningur við Netflix væri meira í þágu fyrirtækisins.
Forsvarsmenn Paramount Skydance hófu 8. desember fjandsamlega yfirtökutilraun á Warner Bros. Discovery. Það er eftir að stjórn síðarnefnda félagsins neitaði að selja það til Paramount og samþykktu frekar 72 milljarða dala tilboð frá Netflix. Warner Bros var sett á sölu í október og greindi frá því þann 5. desember að þau hefðu samþykkt tilboð frá Netflix. Fjallað er um málið á vef BBC og vísað í lagaleg grein frá Warner Bros þar sem kemur fram að tilboðið frá Paramount feli í sér fjölmargar og verulegar áhættur. Stjórnin hafnar þar harðlega þeirri hugmynd að Ellison-fjölskyldan, ein sú ríkasta í Bandaríkjunum, styðji tilboðið fjárhagslega. Fjölskyldan hefur samkvæmt frétt BBC náin tengsl við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Stjórn Warner Bros segir tilboðið frá Netflix vel fjármagnað og bjóði hluthöfum betri kjör til langs tíma. Í bréfi til hluthafa Warner Bros ítrekaði Netflix afstöðu sína um að tilboð sitt í Warner Bros feli í sér skýrar stoðir fjármögnunar og minni eftirlitsáhættu. Í fréttinni segir að Paramount geti enn komið með annað tilboð. Það er talsverður munur á tilboðum Netflix og Paramount samkvæmt fréttinni. Netflix vill, til dæmis, kaupa kvikmyndaver Warner Bros og HBO streymisþjónustu þess, sem myndi einnig veita því aðgang að safni Warner Bros og tryggja áskrifendum aðgang að öllum kvikmyndum og þáttum. Netflix vill ekkert með sjónvarpsstöðvar Warner Bros hafa sem þýðir að Warner Bros myndi þurfa að finna annan kaupanda fyrir sjónvarpsstöðvarnar, sem eru til dæmis CNN og TNT, áður en Netflix tekur yfir fyrirtækið. Paramount vill aftur á móti kaupa Warner Bros í heild sinni, sem myndi þýða að eignast sjónvarpsstöðvar sem þau eru í samkeppni við í dag, CBS, MTV og Showtime. Nýr eigandi Warner Bros myndi fá verulegt forskot á markaði með því að fá aðgang að risastóru kvikmynda- og sjónvarpsþáttasafni Warner Bros. Í safninu sé til dæmis að finna Harry Potter, MonsterVerse, Friends og HBO Max-streymisþjónustuna. Í frétt BBC segir að samruninn geti vakið spurningar um minna val fyrir neytendur í afþreyingu. Búist er við að yfirtaka á Warner Bros verði rannsökuð af samkeppniseftirlitum í Bandaríkjunum og Evrópu. Ýmsir í kvikmyndaiðnaðnum hafa gagnrýnt áform Warner Bros um samrunann. Rithöfundasamband Bandaríkjanna krafðist þess til dæmis að samruninn yrði stöðvaður og vísaði til þess að hann myndi leiða til lægri launa og fækkunar starfa.
Netflix Hollywood Bíó og sjónvarp Streymisveitur Bandaríkin Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira