Úrskurðar- og kærunefndir

Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum
Vegagerðin hefur hafnað tveimur lægstu tilboðum sem bárust í eitt af stærstu útboðsverkum ársins, smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Þess í stað hefur Vegagerðin ákveðið að ganga til samninga við norskan verktaka, sem átti þriðja lægsta boð. Ákvörðunin hefur verið kærð til Úrskurðarnefndar útboðsmála.

Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts
Neytendastofa hefur sektað Hemmett ehf, rekstraraðila Hugur Studio, um 100 þúsund krónur vegna rangra fullyrðinga félagsins um virkni sveppadropa og sveppadufts sem það hafði til sölu.

Ósk um að heita Óskir hafnað
Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um að taka kvenmannsnafnið Óskir á mannanafnaskrá. Aftur á móti má nú heita Lýðgerður Míkah.

Tveggja ára skjár fæst ekki bættur vegna „dauðs depils“
Kaupandi sem keypti 129 þúsund króna tölvuskjá sem hann áleit gallaðan tveimur árum eftir kaupin vegna dauðs depils á skjánum, fær ekki nýjan tölvuskjá afhentan. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp á dögunum.

Lét öllum illum látum og fær engar bætur
Bandarískur ferðamaður sem fékk ekki að fara um borð í flugvél Icelandair fær engar bætur úr hendi félagsins. Icelandair segir manninum hafa verið neitað um byrðingu af öryggisástæðum, eftir að hann lét öllum illum látum í Leifsstöð. Hann hafi til að mynda kallað starfsmenn brjálæðinga og tekið af þeim myndir.

Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars
Úrskurðarnefnd lögmanna lagði í fyrra til við sýslumann að Ómar R. Valdimarsson yrði sviptur lögmannssréttindum tímabundið. Af sjö áminningum sem nefndin veitti í fyrra hlaut Ómar fimm.

Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Landsnet og Sveitarfélagið Voga af öllum kröfum landeigenda í Vogum, sem kröfðust þess að framkvæmdarleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 yrði ógilt.

Hafi ógnað öryggi flugsins en fær samt bætur
Play hefur verið gert að greiða konu, sem neitað var um far með flugi félagsins, tæplega sextíu þúsund krónur og endurgreiða henni fargjaldið. Að sögn félagsins sýndi konan af sér hegðun sem ógnaði öryggi flugsins.