EM 2025 í Sviss

Byrjunarlið Íslands: Fjórar breytingar frá sigrinum mikilvæga
Þorsteinn Halldórsson hefur valið þá ellefu leikmenn sem munu hefja leik er íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir því pólska ytra í lokaleik sínum í undankeppni EM 2025.

Uppgjör: Pólland - Ísland 0-1 | Glæsimark Sveindísar dugði til sigurs
Ísland kláraði riðlakeppni undankeppni EM 2025 með glæsibrag með því að leggja Pólland af velli á útivelli í dag. Sveindís Janes skoraði eina mark leiksins og var það af dýrari gerðinni.

Sveindís Jane sú eina með tvennt af hvoru
Sveindís Jane Jónsdóttir í sérflokki þegar kemur að því að bæði skora og leggja upp mörk í undankeppni EM í Sviss.

Stelpurnar á Símamótinu fengu þakkarkveðju frá landsliðskonunum
Ísland vann 3-0 sigur á stórliði Þýskalands í undankeppni EM á föstudaginn og það fór ekki fram hjá neinum að stelpurnar á Símamóti Breiðabliks fjölmenntu í Laugardalinn.

„Þessar stelpur eru stríðsmenn“
Stelpurnar okkar fögnuðu einum stærsta sigri sem unnist hefur hjá íslensku fótboltaliði er þær lögðu Þýskaland 3-0 í gær. Fyrrum landsliðskona segist springa úr stolti yfir þeim miklu fyrirmyndum sem finna má í íslenska liðinu.

Sjáðu mörkin sem tryggðu íslensku stelpunum sæti á EM
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann einn stærsta sigur sinn í sögunni þegar Þjóðverjum var skellt 3-0 á Laugardalsvellinum í gær.

Ísland varð aðeins fjórða þjóðin til að tryggja sig inn á EM 2025
Íslensku stelpurnar tryggðu sér sæti á Evrópumótinu í Sviss næsta sumar með glæsilegum 3-0 sigri á Þjóðverjum á Laugardalsvellinum í gær. Aðeins þrjár þjóðir höfðu þá náð að tryggja sér sæti í lokakeppninni af þeim sextán sem taka þátt.

Heimsmeistararnir töpuðu óvænt gegn Tékklandi
Ríkjandi heimsmeistarar í kvennafótbolta, Spánn, töpuðu mjög svo óvænt gegn Tékklandi í dag. Þetta var fyrsta tap Spánverjanna og fyrsta sigur Tékkanna í undankeppni Evrópumótsins.

„Svona leikur er ástæðan fyrir því af hverju maður er í fótbolta“
Glódís Perla Viggósdóttir var afar ánægð eftir ævintýralegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli. Með sigri tryggði íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sér þátttökurétt á EM í fimmta skipti í röð.

„Langþráð mark sem kom á frábærum tíma“
Ingibjörg Sigurðardóttir, varnarmaðurinn öflugi, valdi aldeilis tímann til þess að skora sitt fyrsta landsliðsmark. Ingibjörg kom íslenska liðinu á bragðið í sögulegum sigri gegn Þýskalandi. Sigurinn fleytti liðinu í lokaeppni EM sem haldið verður í Sviss árið 2025.

„Voru farnar að skamma mig fyrir að tefja leikinn“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði sitt af mörkum og rúmlega það þegar íslenska kvennalandsliðið í fótbolta kvenna tryggði sér sæti í lokakeppni EM 2025 sem fram fer í Sviss með mögnuðum 3-0 sigri gegn Þýskalandi í undankeppni mótsins á Laugardalsvelli í kvöld.

„Fann það fyrir leik að það væri eitthvað klikkað að fara að gerast“
Ísland vann ótrúlegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi. Ísland hefur því tryggt sér inn á EM 2025 í Sviss. Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Íslands, fór á kostum og kom að öllum mörkum leiksins.

„Hefðum klárlega getað skorað fleiri mörk“
Alexandra Jóhannsdóttir skoraði eitt marka íslenska sem vann frækinn sigur gegn Þjóðverjum í undankeppni EM 2025 í fótbolta kvenna í Laugardalnum í kvöld. Alexandra er á leið með Íslandi á Evrópumótið en liðið er að fara þangað í fimmta skiptið í röð.

Þorsteinn: Mér finnst reyndar margir þeirra sem tjá sig ekki hafa hundsvit á kvennafótbolta
Á fundi með blaðamönnum var farið yfir víðan völl um sigurleik Íslands á Þjóðverjum með Þorsteini Halldórssyni þjálfara liðsins. Umræðan fór út í ferlið á liðinu og gagnrýni á það sem Þorsteinn taldi hafa verið skrýtna á köflum.

„Kvöld sem ég mun rifja upp með barnabörnunum“
Sandra María Jessen stóð sig af stakri prýði þegar Ísland gerði sér lítið fyrir og lagði Þýskaland að velli í undankeppni EM 2025 í fótbolta kvenna á Laugardalsvellinum. Sandra María sagði íslenska liðið hafa haft fulla trú á verkefninu fyrir leikinn og það hafi sýnt sig þegar út í leikinn var komið.

Blaðamannafundur Þorsteins: Erum ein af topp átta þjóðum í Evrópu
Þorsteinn Halldórsson þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu kom sigurreifur á blaðamannafund eftir frækinn sigur Íslands á Þýskalandi 3-0. Sigurinn tryggir Íslandi farseðilinn á EM 2025 í Sviss sem eitt af átta þjóðum sem fara beint á mótið.

Myndasyrpa úr sögulegum sigri Íslands gegn Þýskalandi
Ísland vann hreint ótrúlegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli og tryggði sér sæti á fimmta Evrópumótinu í röð, sem fer fram í Sviss á næsta ári.

Tjá sig á Twitter um sigur Íslands: „Ein bestu úrslit í íslensku fótboltasögunni“
Ísland malaði Þýskaland 3-0 á Laugardalsvelli og tryggði sér sæti á fimmta Evrópumótinu í röð. Netverjar leituðu á samfélagsmiðilinn Twitter, sem gengur nú undir nafninu X, til að tjá sig um leikinn.

Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 3-0 | Stelpurnar rúlluðu yfir Þýskaland og eru á leiðinni á EM
Ísland vann ævintýralegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli. Frammistaða liðsins var stórkostleg og íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er á leiðinni á EM 2025. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Einkunnir íslenska liðsins | Miðvarðarparið og Sveindís Jane fremstar á meðal annarra flottra frammistaðna
Leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta léku á als oddi þegar liðið vann stórkostlegan sigur gegn Þýskalandi í undankeppni EM 2025 á Laugardalsvelli í dag. Spilamennskan fleytti íslenska liðinu á Evrópumótið og sýndu íslensku leikmennirnir það klárlega í þessum leik að þar á liðið svo sannarlega heima.

Austurríki með sigur sem skilar þeim engu öðru en ánægju
Austurríki vann 3-1 gegn Póllandi í undankeppni Evrópumótsins. Þjóðirnar tvær eru með Íslandi og Þýskalandi í riðli en eiga hvorugar möguleika á að komast upp úr riðlinum.

Natasha í byrjunarliðinu en bæði Guðrún og Hlín á bekknum
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn á móti Þýskalandi í dag en leikurinn er sá næstsíðasti hjá íslenska liðinu í undankeppni EM 2025.

Hafa aldrei skorað hjá Þjóðverjum á Laugardalsvellinum
Íslenska kvennalandsliðið tekur í dag á móti Þýskalandi í undankeppni EM en leikurinn er spilaður á Laugardalsvellinum og hefst klukkan 16.15. Þar hafa þær þýsku kunnað vel við sig í gegnum tíðina.

„Fyrst og fremst ánægð ef ég fæ að vera inni á vellinum“
„Við verðum að vera rosalega sterkar varnarlega og sterkar inni í teignum líka. Þær munu koma með mikið af fyrirgjöfum inn í teig. Svo verðum við að þora að halda í boltann til þess að freista þess að skora,“ segir Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í knattspyrnu, fyrir æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í gær.

„Appelsínugula hjartað mitt brotnaði“
Karina Wiegman, hollenskur þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, var á báðum áttum eftir sigur Englands á Hollandi í undanúrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í gær.

Svona var blaðamannafundurinn fyrir Þýskalandsleikinn
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik Íslands og Þýskalands í undankeppni EM á morgun.

Alexandra vill sjá stelpurnar á Símamótinu fjölmenna
Alexandra Jóhannsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta eru einum sigri frá því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu á næsta ári.

„Ég elska þegar fólk mætir í stúkuna“
Hlín Eiríksdóttir er í hópi þeirra leikmanna íslenska kvennalandsliðsins sem eru á miðju tímabili. Sumar í hópnum eru hins vegar að byrja nýtt tímabil í þessum landsliðsglugga þar sem íslenska liðið spilar lokaleiki sína í undankeppni EM 2025.

Selma Sól hættir með Nürnberg: „Kemur í ljós á næstu dögum hvert ég fer“
„Þessi leikur leggst vel í okkur. Við þekkjum þær ágætlega og búnar að spila svolítið oft við þær síðastliðið árið. Við erum bara spenntar fyrir föstudeginum,“ segir landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir fyrir æfingu landsliðsins á Laugardalsvellinum í dag.

„Þetta tók á ég get alveg verið hreinskilin með það“
Ingibjörg er einn reynslumesti leikmaður íslenska landsliðsins og eftir stutta dvöl í Þýskalandi hjá Duisburg er hún nú í leit að næsta ævintýri á atvinnumannaferlinum og viðurkennir að undanfarnir mánuðir hafi reynst sér erfiðir innan sem utan vallar.