
Heimsmeistararnir með fullt hús eftir tvær umferðir
Heimsmeistarar Spánar eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir undankeppni EM kvenna í knattspyrnu. Þá er England í góðum málum eftir fínan sigur á Írlandi.
Evrópumót kvenna í fótbolta fer fram í Sviss dagana 2. til 27. júlí 2025.
Heimsmeistarar Spánar eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir undankeppni EM kvenna í knattspyrnu. Þá er England í góðum málum eftir fínan sigur á Írlandi.
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta upplifir blendnar tilfinningar í kjölfar 3-1 taps gegn Þýskalandi í undankeppni EM 2025 í kvöld.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta er heilt fyrir sáttur með frammistöðu liðsins í fyrri hálfleik í 3-1 tapi gegn Þýskalandi í undankeppni EM 2025 í Aachen í kvöld. Sveindís Jane fór meidd af velli eftir fólskulegt brot og segir Þorsteinn að beðið sé eftir niðurstöðu um það hversu alvarleg meiðslin séu í raun og veru.
„Frammistaðan var fín, við gáfum allt í leikinn,“ sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir um frammistöðu Íslands í 3-1 tapinu gegn Þýskalandi ytra í undankeppni EM 2025.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði 3-1 fyrir Þýskalandi ytra í annarri umferð undankeppni EM 2025 sem fram fer í Sviss. Þýska stálið reyndist of sterkt að þessu sinni en íslenska liðið spilaði vel á köflum.
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, er á leið í myndatöku á sjúkrahúsi í Þýskalandi eftir 3-1 tap Íslands ytra í undankeppni EM 2025.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 3-1 tap er liðið heimsótti ógnarsterkt lið Þjóðverja í undankeppni EM 2025.
Austurríki lagði Pólland 3-1 í undankeppni EM 2025 kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Sviss. Liðin eru í riðli 4 í A-deild ásamt Íslandi og Þýskalandi. Sigur Austurríkis ýtir Íslandi niður í 3. sætið en íslensku stelpurnar töpuðu 3-1 í Þýskalandi í dag.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 3-1 tap er liðið heimsótti sigursælasta lið EM frá upphafi, Þýskaland, í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2025.
Hlín Eiríksdóttir kemur aftur inn í byrjunarlið íslenska kvennalandsliðsins í dag eftir eins leiks fjarveru.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsiðsins í fótbolta, segir sitt lið þurfa að þora að spila á sínum gildum í kvöld gegn Þýskalandi í undankeppni EM 2025. Sýna hugrekki. Þýska liðið sé mjög gott en það sé íslenska liðið líka. Hann segir íslenska liðið ætla að fórna öllu í leik kvöldsins og sjá hverju það skilar.
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður þýska liðsins Bayern Munchen, mun í kvöld mæta nokkrum af liðsfélögum sínum þegar að Þýskaland og Ísland mætast í undankeppni EM 2025 í fótbolta í Aachen í Þýskalandi. Tvær af þeim, sóknarleikmennirnir Lea Schuller og Klara Buhl, búa yfir gæðum sem koma þeim á lista yfir bestu leikmenn í heimi að mati Glódísar.
Saga íslensku landsliðskonunnar í fótbolta, Hildar Antonsdóttur, er ansi sérstök hvað íslenska landsliðið varðar. Á seinni helmingi síns ferils er Hildur, sem leikur með hollenska liðinu Fortuna Sittard, á síðasta árinu búin að festa sig í sessi fastamaður í íslenska landsliðinu.
Einn leikur gegn Þýskalandi, frá árinu 2017, lifir fersku minni í huga íslenska landsliðsfyrirliðans í fótbolta Glódísi Perlu Viggósdóttur. Sögulegur leikur í stóra samhenginu.
Á dögunum var opinberuð ný landsliðstreyja íslensku landsliðanna okkar í fótbolta. Stelpurnar okkar í íslenska kvennalandsliðinu frumsýndu aðaltreyjuna í leik gegn Póllandi í undankeppni EM 2025 á Kópavogsvelli. Hvað finnst leikmönnum liðsins um nýju treyjuna?
Þýska pressan sem og leikmenn þýska landsliðsins eru vel meðvitaðir um getu Sveindísar Jane Jónsdóttur innan vallar fyrir leik Þýskalands og Íslands í undankeppni EM 2025 í Aachen á morgun. Liðsfélagar Sveindísar Jane hjá Wolfsburg, hrósa henni hástert í aðdraganda leiksins en eru um leið vel meðvitaðir um styrkleika hennar og reyna að gera liðsfélögum sínum ljóst hvað sé í vændum.
Guðrún Arnardóttir, varnarmaður íslenska landsliðsins er bjartsýn á gott gengi liðsins í stórleik gegn Þjóðverjum í undankeppni EM á Tivoli leikvanginum í Aachen á morgun. Guðrún hefur þurft að aðlaga sig að nýju hlutverki innan íslenska liðsins en segist myndi spila hvaða stöðu sem er fyrir Ísland.
Hver hefði trúað því að eitt saklaust einvígi við lið FH árið 2004 hefði haft svo gríðarmikla þýðingu að heimabær félagsins, Hafnarfjörður, er nú stór hluti af starfi eins af rótgrónu knattspyrnufélögum Þýskalands? Svarið er líklegast fáir en staðreyndin er hins vegar sú að hér í Aachen, borg í vesturhluta Þýskalands, má finna Hafnarfjörð.
„Við ætluðum okkur að byrja sterkt og hafa þetta í okkar höndum. 3-0 og hreint lak, það er varla hægt að biðja um meira“ sagði Sædís Rún Heiðarsdóttir, bakvörður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, eftir öruggan 3-0 sigur gegn Pólverjum í kvöld.
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, segir að liðið hafi haft góð völd á leiknum er Ísland vann 3-0 sigur gegn Pólverjum í fyrsta leik undankeppni EM 2025.
Þýskaland slapp heldur betur með skrekkinn gegn nágrönnum sínum í Austurríki í fyrstu umferð undankeppni EM kvenna í fótbolta í kvöld. Liðin eru með Íslandi í riðli og er óhætt að segja að Þjóðverjarnir hafi lent í kröppum dansi í kvöld en höfðu þó á endanum 3-2 sigur. Þýskaland og Ísland mætast svo á þriðjudaginn kemur í uppgjöri efstu liða riðilsins.
Sveindís jane Jónsdóttir átti frábæran leik fyrir íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er liðið vann 3-0 sigur gegn Pólverjum í fyrsta leik undankeppni EM á Kópavogsvelli í kvöld.
Fanney Inga Birkisdóttir átti frábæran leik í marki Íslands í 3-0 sigri gegn Póllandi.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands, var hreykinn og sáttur eftir 3-0 sigur gegn Póllandi í fyrsta leik undankeppni Evrópumótsins.
Ísland vann Pólland 3-0 á Kópavogsvelli í fyrsta leik undankeppni Evrópumótsins sem fer fram í Sviss 2025.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann afar öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti því pólska á Kópavogsvelli í dag. Ferðalagið á fimmta Evrópumót stelpnanna hófst því á á virkilega jákvæðan hátt.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði íslenska liðsins fyrir fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025.
Landsliðsframherjinn Hlín Eiríksdóttir hefur verið í miklu stuði á undirbúningstímabilinu með Kristianstad í Svíþjóð en í dag verður hún í eldlínunni með íslenska landsliðinu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025.
„Þetta er ekki leiktíminn sem ég myndi velja mér,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta sem mætir Póllandi á Kópavogsvelli í dag, í fyrsta leik í undankeppni EM.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta byrjar nýja undankeppni fyrir EM á Kópavogsvelli í dag, með leik við Pólland. Í pólska liðinu er markadrottningin Ewa Pajor langþekktasta nafnið.