Morðið á Shinzo Abe

Ákæra gefin út vegna morðsins á Shinzo Abe
Embætti ríkissaksóknara í Japan hafa gefið út ákæru á hendur 41 árs manni vegna morðsins á Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins.

Mótmæli við opinbera útför Shinzo Abe
Opinber útför Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, fer fram í höfuðborginni Tókýó í dag. Þúsundir hafa safnast sérstaklega saman til að mótmæla því að verið sé að nýta almannafé til útfararinnar og segja það geta nýst betur í önnur verkefni, en opinberar útfarir í japan eru vanalega einungis haldnar þegar meðlimir japönsku keisarafjölskyldunnar falla frá.

Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe
Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna.

Ríkislögreglustjórinn hættir í kjölfar morðsins á Shinzo Abe
Ríkislögreglustjóri Japans, Itaru Nakamura, hefur ákveðið að láta í störfum og þannig axla ábyrgð á því að lögreglu hafi ekki tekist að koma í veg fyrir að forsætisráðherrann Shinzo Abe hafi verið ráðinn af dögum í júlí síðastliðinn.

Þúsundir safnast saman í Tókýó til að fylgjast með útför Abe
Þúsundir syrgjenda eru nú samankomnir í Tókýó til að fylgjast með útför Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, sem skotinn var til bana á dögunum.

„Hann var viðkunnanlegur maður og vel þekktur fyrir stjórnvisku sína“
Sendiherra Japans á Íslandi segir að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans sem var myrtur fyrir helgi, hafi verið einstaklega góður maður og segist í áfalli vegna voðaverksins.

Ranglega bendlaður við morðið á Abe og íhugar málaferli
Tölvuleikjaframleiðandinn Hideo Kojima hefur hótað málaferlum eftir að falsfréttir sem sýndu myndir af honum í tengslum við fréttir af morðinu á Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, fóru á flug. Myndir af Kojima voru sagðar sýna manninn sem banaði Abe.

Kallar eftir samstöðu og vill ná markmiðum Abe
Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, kallaði í morgun eftir samstöðu og pólitískum stöðugleika í kjölfar kosninga og morðs Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra. Frjálslyndir Demókratar (LDP), flokkur Kishida og Abe báru sigur úr bítum í kosningunum sem haldnar voru í Japan í gær.

Útgönguspár benda til stórsigurs flokks Abe
Japanir ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til þings. Flokkunum tveimur sem fara saman með stjórn Japans er spáð 69 til 83 sætum af þeim 125 sem eru í efri deild japanska þingsins. Frjálslyndir demókratar, flokkur fyrrverandi forsætisráðherrans Shinzo Abe, sem var myrtur á dögunum, gæti staðið uppi með hreinan meirihluta.

Taldi að Abe tengdist trúarhópi sem keyrði móður hans í gjaldþrot
Maðurinn sem skaut fyrrverandi forsætisráðherra Japans til bana á aðfaranótt föstudags er sagður hafa sagt lögreglu að hann hefði skipulagt árásina í marga mánuði vegna þess að hann teldi að forsætisráðherran tengdist trúarhópi, sem hann segir hafa keyrt móður hans í gjaldþrot.

Játar að vankantar hafi verið á öryggisgæslu Abe
Yfirmaður lögreglunnar í Nara í Japan segir að óneitanlega hafi verið brestir í öryggismálum þegar Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins var myrtur í gær.

Telur morðið geta haft áhrif á úrslit kosninga
Japanska þjóðin er slegin eftir að Shinzo Abe fyrrverandi forsætisráðherra landsins var myrtur á útifundi í dag. Toshiki Toma prestur innflytjenda segir skotárásir sjaldgæfar í Japan og telur morðið geta haft áhrif á úrslit þingkosninga í landinu á sunnudag.

Játar að hafa myrt Abe
Tetsuya Yamagami hefur játað að hafa myrt Shinzo Abe, fyrrum forsætisráðherra Japan. Yamagami skaut Abe með haglabyssu í nótt þegar hann var að flytja stuðningsræðu fyrir frambjóðanda í borginni Nara.

Skotárásin í Japan: „Það eru allir í sjokki“
Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, lést af sárum sínum eftir að hann var skotinn í bakið í nótt. Íbúi í Japan segir japönsku þjóðina í áfalli enda skotárásir mjög fátíðar í landinu.

Fundu mögulegar sprengjur heima hjá banamanni Abe
Mögulegt sprengjuefni fannst við leit lögreglunnar í íbúð hins 41 árs gamla Tetsuya Yamagami sem skaut Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, til bana í nótt. Abe var fluttur á sjúkrahús í kjölfar árásarinnar en lést af sárum sínum nokkrum tímum síðar.

Shinzo Abe skotinn til bana
Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japan, hefur látist af sárum sínum eftir að hann var skotinn í bakið í nótt. Abe var að flytja ræðu í Nara í vestur Japan í nótt þegar skotmaður skaut hann með haglabyssu og hæfði hann í bakið. Abe var fluttur á spítala í kjölfar árásinnar en nú hefur japanka ríkisútvarpið NHK staðfest að hann sé látinn.