Hæstiréttur Bandaríkjanna
1 2 3 4 5 … 5 ›
Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna þykja líklegir til að hafna kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um algera friðhelgi frá lögsókn vegna atvika sem áttu sér stað þegar hann sat í embætti forseta. Líklegt þykir þó að meirihluti dómaranna muni úrskurða á veg sem Trump muni hagnast á. Erlent 25.4.2024 22:30
Vill herja á Trump vegna þungunarrofs Miklar deilur mynduðust á þingi Arizona í Bandaríkjunum í gær þegar Repúblikanar komu í veg fyrir umræðu um að fella úr gildi 160 ára gömul lög um bann við þungunarrofi sem voru nýverið endurvakin af hæstarétti ríkisins. „Skömm, Skömm!“ var kallað í þingsalnum þegar umræðan var stöðvuð. Erlent 11.4.2024 16:17
Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virðast hafa verulegar efasemdir um málflutning samtaka sem vilja að dómstóllinn felli úr gildi ákvarðanir Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna um að heimila notkun mifepristone. Erlent 27.3.2024 08:09
Dómarinn í skjalamálinu harðlega gagnrýndur Lögmenn og fyrrverandi dómarar hafa lýst yfir mikilli furðu á skipun sem dómarinn í skjalamáli Trumps svokölluðu gaf út í vikunni. Telja þeir aðgerðir dómarans gefa til kynna að réttarhöldin gegn Trump fyrir að taka með sér opinber og leynileg skjöl þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og neita að afhenda þau, muni ekki fara fram í bráð. Erlent 21.3.2024 10:44
Ströng innflytjendalög í Texas samþykkt af hæstarétti Hæstiréttur Bandaríkjanna samþykkti í dag gildistöku laga sem heimila lögregluyfirvöldum í Texas-ríki að handtaka fólk sem grunað er um að hafa farið ólöglega yfir landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna. Erlent 20.3.2024 00:08
Ríkjum ekki heimilt að útiloka Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna segir einstök ríki ekki geta meinað Donald Trump, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda, að vera á kjörseðlum þar á grundvelli fjórtánda ákvæðis stjórnarskrár ríkisins. Ákvörðunin mun hafa áhrif í Colorado, Maine og Illinois, þar sem Trump hafði verið bannað að bjóða sig fram. Erlent 4.3.2024 15:41
Úrskurða líklega Trump í vil degi fyrir „ofurþriðudag“ Dómarar hæstaréttar Bandaríkjanna gáfu til kynna í gær að von sé á úrskurði um það hvort ráðamönnum Colorado sé heimilt að meina Donald Trump að vera á kjörseðlum í ríkinu. Forval í báðum flokkum fer fram í ríkinu, og fimmtán öðrum, á morgun en dagurinn er iðurlega kallaður „ofurþriðjudagur“. Erlent 4.3.2024 10:42
Hæstiréttur skoðar kröfu Trumps um friðhelgi Dómarar við hæstarétt Bandaríkjanna hafa samþykkt að taka fyrir kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda, um að vísa eigi frá dómsmálinu gegn honum vegna tilrauna hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Það vill Trump að verði gert á grunni þess að hann njóti friðhelgi. Erlent 28.2.2024 23:18
Smith biður hæstarétt um að tefja ekki réttarhöldin Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur farið fram á það við dómara hæstaréttar að þeir heimili það að réttarhöldin gegn Donald Trump vegna viðleitni hans til að halda völdum eftir að hann tapaði forsetakosningunum 2020 geti hafist sem fyrst. Það er eftir að Trump bað dómarana um að tefja réttarhöldin þar til fram yfir næstu forsetakosningar, sem fara fram í nóvember. Erlent 15.2.2024 10:36
Kjörgengi Trumps rætt í Hæstarétti Málflutningur um það hvort ríki Bandaríkjanna hafi rétt til að meina Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að vera á kjörseðlum þar í forsetakosningunum sem haldnar verða í nóvember, stendur nú yfir fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Erlent 8.2.2024 16:12
Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29.12.2023 16:00
Hæstiréttur neitar að flýta máli Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur neitað beiðni Jack Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, um flýtimeðferð varðandi það hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti, njóti enn þeirrar friðhelgi frá lögsóknum sem fylgir forsetaembættinu. Um sigur fyrir Trump er að ræða. Erlent 23.12.2023 14:01
Krefjast þess að Thomas komi ekki að máli Trumps Sífellt fleiri þingmenn Demókrataflokksins krefjast þess að hæstaréttardómarinn Clarence Thomas komi ekki að úrskurði Hæstaréttar varðandi mögulega friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Er það vegna þess að eiginkona Thomas tók þátt í tilraunum Trumps til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Erlent 18.12.2023 16:50
Saksóknari hótar heilbrigðisstarfsmönnum þvert á úrskurð dómara Dómari í Texas í Bandaríkjunum hefur heimilað konu að gangast undir þungunarrof, jafnvel þótt lög ríkisins heimili það ekki. Talið er að um sé að ræða fyrsta þungunarrofið sem dómstóll leggur blessun sína eftir að Roe gegn Wade var snúið af Hæstarétti. Erlent 8.12.2023 12:10
Veruleg fjölgun þeirra sem þurfa að sækja þungunarrof í öðru ríki Konum sem ferðast milli ríkja í Bandaríkjunum til að gangast undir þungunarrof hefur fjölgað verulega frá því að Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade. Erlent 7.12.2023 07:32
Fyrsti kvenkyns hæstaréttardómari Bandaríkjanna látinn Sandra Day O'Connor, sem varð fyrsti kvenkyns dómarinn við hæstarétt Bandaríkjanna árið 1981, er látin. Hún varð 93 ára. Innlent 1.12.2023 15:24
Hæstiréttur Bandaríkjanna setur sér siðareglur í fyrsta sinn Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur sett sér siðareglur í fyrsta sinn en nokkrir dómarar við dómstólinn hafa sætt harðri gagnrýni síðustu misseri fyrir að þiggja alls konar gjafir. Erlent 14.11.2023 08:33
Sótti fjáröflunarráðstefnur með auðjöfrum Clarence Thomas, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, tók að minnsta kosti tvisvar sinnum þátt í fjáröflunarráðstefnum auðugra bandarískra íhaldsmanna. Ráðstefnurnar voru haldnar af Koch-bræðrunum en Thomas hefur aldrei sagt frá þessu á hagsmunaskrám, eins og öðrum umdeildum lúxusferðum og viðskiptaflækjum sem hann hefur átt í gegnum árin. Erlent 22.9.2023 16:21
Biden sagður undir þrýstingi að gera breytingar á Hæstarétti Joe Biden Bandaríkjaforseti er nú sagður sæta auknum þrýstingi innan Demókrataflokksins um að ráðast í breytingar á Hæstarétti. Forsetinn hefur hingað til neitað að taka það til skoðunar. Erlent 5.7.2023 08:37
Kannast ekki við beiðni sem leiddi til tímamótadóms um mismunun Maður sem var nefndur í máli sem kristinn vefsíðuhönnuður sem vildi ekki þurfa að vinna fyrir samkynhneigt fólk höfðaði fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna segist aldrei hafa óskað eftir þjónustu hönnuðarins. Dómurinn leyfði fyrirtækjum að meina samkynhneigðum um þjónustu. Erlent 3.7.2023 14:44
Biden má ekki afskrifa námslán fyrir 400 milljarða dala Hæstiréttur Bandaríkjana kvað í dag upp dóm þess efnis að áform Joes Biden Bandaríkjaforseta, um að afskrifa námslán allt að 43 milljóna Bandaríkjamanna, væru ólögmæt. Erlent 30.6.2023 23:25
Dæmdu vefsíðuhönnuði sem vildi ekki vinna fyrir hinsegin hjón í hag Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í dag að þeirri niðurstöðu að kristinn grafískur hönnuður sem vill hanna brúðkaupsvefsíður mætti neita því að vinna fyrir hinsegin hjón. Dómurinn er talinn mikið bakslag fyrir hinsegin réttindi og hann gefi fyrirtækjum leyfi til að mismuna fólki á grundvelli trúarbragða. Erlent 30.6.2023 16:06
Banna jákvæða mismunun kynþátta Hæstiréttur Bandaríkjanna bannaði tveimur af helstu háskólum landsins að taka tillit til kynþáttar við innritun nemenda í dag. Svokallaðri jákvæðri mismunun hefur verið beitt um áratugaskeið til þess að vega upp á móti afleiðingum aldalangrar mismununar kynþátta í Bandaríkjunum. Erlent 29.6.2023 14:36
Taldi brotið á tjáningarfrelsi eltihrellis sem sendi konu þúsundir skilaboða Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi sakfellingu eltihrellis sem sendi tónlistarkonu þúsundir skilaboða á þeim forsendum að saksóknarar hefðu ekki sýnt fram á að skilaboðin gengu lengra en almennt tjáningarfrelsi leyfði. Konan segist hafa óttast um líf sitt vegna skilaboðanna. Erlent 27.6.2023 15:34
Mótmælt á dánardægri Roe gegn Wade Boðað var til fjöldafunda víða um Bandaríkin um helgina en í dag var ár liðið frá því að Hæstiréttur landsins felldi úr gildi eigin úrskurð í Roe gegn Wade, sem hafði í marga áratugi tryggt rétt kvenna til þungunarrofs. Fréttir 24.6.2023 22:06
Fékk ókeypis far í veiðiferð með íhaldssömum auðjöfri Bandaríski hæstaréttardómarinn Samuel Alito, þáði ferð til Alaska í einkaflugvél hægri sinnaðs auðjöfurs sem hefur síðan þá tengst fjölmörgum málum sem farið hafa fyrir Hæstarétt. Alito hefur þó aldrei sagt sig frá þeim málum, þó siðferðissérfræðingar segja að hann hefði átt að gera það. Erlent 21.6.2023 08:50
Herða lög um þungunarrof í enn einu ríkinu Öldungadeildarþingmenn í ríkisþingi Suður-Karólínu samþykktu í gær að banna þungunarrof eftir sex vikna meðgöngu. Fæstar konur vita að þær eru þungaðar innan sex vikna og er í raun verið að alfarið banna þungungarof í ríkinu en Repúblikanar hafa gripið til sambærilegra aðgerða víða um Bandaríkin. Erlent 24.5.2023 14:42
Hertu lög um þungunarrof með auknum meirihluta Repúblikanar á ríkisþingi Norður-Karólínu í Bandaríkjunum tóku í gær stórt skref í því að banna þungunarrof í flestum tilfellum eftir tólf vikna meðgöngu. Þingmennirnir flokksins nýttu aukinn meirihluta sinn til að ógilda neitunarvald ríkisstjóra ríkisins. Erlent 17.5.2023 10:55
Íslandsferð hæstaréttardómara sögð siðferðislega vafasöm Íslandsferð Neil Gorsuch, hæstaréttardómara í Bandaríkjunum, árið 2021 er sögð siðferðislega ámælisverð. Ferðin var greidd af íhaldssamri lagadeild rannsóknarháskóla. Innlent 5.5.2023 19:10
Lét leyna greiðslum til eiginkonu hæstaréttardómara Forsvarsmaður íhaldssamtaka gætti þess sérstaklega að fela tug þúsund dollara greiðslur til eiginkonu íhaldssams hæstaréttardómara fyrir ráðgjafarstörf. Nýlega hefur komið fram að sami dómari hafi þegið ýmis konar sporslur frá bakhjarli Repúblikanaflokksins án þess að greina frá þeim. Erlent 5.5.2023 10:24