

Seinni bylgjan tók sérstaklega fyrir samskipti tveggja leikmanna í leik ÍBV og KA í síðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta. Leikmennirnir eru Einar Rafn Eiðsson hjá KA og Dagur Arnarsson hjá ÍBV.
Rúnar Kárason, leikmaður ÍBV í Olís-deild karla í handbolta, var eðlilega ánægður með sigur liðsins gegn KA. Liðið hefur nú unnið alla þrjá leiki sína í upphafi tímabils.
ÍBV lyfti sér á topp Olís-deildarinnar með góðum fjögurra marka sigri gegn KA í dag, 35-31.
Annar nýliðanna í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta er að taka þátt í tveimur landsliðsverkefnum á sama tíma.
Hermann Hreiðarsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍBV sem mun leika í Pepsi Max deild karla í fótbolta næsta sumarið. Hann skrifar undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið.
„Það er alltaf skemmtilegt og gott að ná að sigra,“ sagði Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV eftir nauman sigur sinna manna á FH í Olís-deild karla í dag.
ÍBV vann í dag nauman sigur á FH í Olís-deild karla í handbolta. Eyjamenn reyndust sterkari aðilinn á lokakaflanum og lönduðu að lokum eins marks sigri, 26-25.
Næsta sumar verða ellefu Íslandsmeistarafélög í fyrsta sinn í sögu efstu deildar karla en þetta var ljós eftir úrslit helgarinnar.
Talið er að Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson sé líklegastur til að taka við ÍBV en liðið mun leika í Pepsi Max deild karla í fótbolta sumarið 2022.
ÍBV vann 15 marka sigur á Aftureldingu er liðin mættust í Olís-deild kvenna í handbolta, lokatölur 35-20. Bæði lið höfðu tapað í fyrstu umferð og því var þetta fyrsti sigur ÍBV á tímabilinu.
Ian Jeffs er hættur sem þjálfari hjá ÍBV. Hann var aðstoðarþjálfari karlaliðsins, ásamt því að stýra kvennaliðinu seinni part sumars eftir að Andri Ólafsson hætti með liðið.
Grótta tók á móti ÍBV í lokaumferð Lengjudeildar karla í dag. Sigurður Arnar Magnússon tryggði Eyjamönnum 3-2 sigur þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka eftir að liðið hafði lent 2-1 undir.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að til standi að veita Þjóðhátíðar í Eyjum ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV en hátíðinni hefur verið frestað nú í tvö ár.
Íslandsmeistarar KA/Þór hófu titilvörn sína á tveggja marka sigri gegn ÍBV í KA heimilinu á Akureyri í dag. Lokatölur 26-24 í jöfnum og spennandi leik sem setti tóninn fyrir komandi tímabil. Þetta var fyrsti leikur tímabilisins í Olís deild kvenna og olli svo sannarlega ekki vonbrigðum.
Rúnar Kárason lék sinn fyrsta deildarleik fyrir íslenskt lið í rúm tólf ár þegar ÍBV vann Víking, 27-30, í 1. umferð Olís-deildarinnar í gær.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild kvenna en keppni í deildinni hefst með þremur leikjum á morgun, laugardaginn 18. september.
ÍBV vann sigur á Víkingum í 1.umferð Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld en leikurinn fór fram í Víkinni. Lokatölur 30-27 eftir að Víkingar höfðu leitt lengst af í leiknum.
„Þessi leikur á eftir að verða dýrmætur fyrir okkur til að læra af, við fengum eiginlega bara einn á kjaftinn. Það er einkunnin, einn á kjaftinn,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson línumaður ÍBV eftir 30-27 sigur Eyjamanna á Víkingum í Olís-deildinni í kvöld.
„Þetta er algjörlega að mínu frumkvæði. Oftar en ekki er þetta í hina áttina og þess vegna er þetta kannski svolítið skrýtið. En ég færist með þessu nær fjölskyldunni og það er það sem skiptir mig mestu máli,“ segir Helgi Sigurðsson, fráfarandi þjálfari karlaliðs ÍBV í fótbolta.
Helgi Sigurðsson mun ekki stýra karlaliði ÍBV í Pepsi Max deild karla í fótbolta næsta sumar en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum á morgun, fimmtudaginn 16. september.
„Ég fann strax hvað hafði gerst og það fóru alls konar hugsanir í gegnum hausinn,“ segir Birna Berg Haraldsdóttir, landsliðskona í handbolta, sem sleit krossband í hné í þriðja sinn á ferlinum.
Það fór fram heil umferð í Lengjudeild karla í dag. ÍBV er öruggt upp, Framarar eygja enn von um að klára tímabilið án tapleiks en það er sorg í Laugardalnum því Þróttarar eru fallnir.
ÍBV hafði þegar bjargað sér frá falli á meðan Fylkir mun spila í Lengjudeildinni sumarið 2022. Það var því lítið annað en stoltið undir í leik kvöldsins.
Tvö mörk í síðari hálfleik hjá Michael Bakare frestuðu fögnuði Eyjamanna um nokkra daga hið minnsta.
Þróttur hafði betur gegn ÍBV í Pepsi Max deild kvenna í dag en lokatölur voru 3-2 eftir hörkuleik. Þrátt fyrir tapið er ÍBV þó búið að tryggja sér sæti í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili.
Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, var bæði ósáttur og sáttur í leikslok eftir naumt 3-2 tap gegn Þrótti í Pepsi Max deild kvenna í dag.
ÍBV vann 4-1 sigur á Selfossi í Suðurlandsslag kvöldsins í Lengjudeild karla í fótbolta. ÍBV treystir stöðu sína í öðru sæti deildarinnar.
ÍBV vann í dag mikilvægan 1-0 sigur þegar að liðið heimsótti Þór frá Akureyri í Lengjudeild karla í knattspyrnu í dag. Eyjamenn eru enn í harðri baráttu um sæti í efstu deild á næsta tímabili, en Þórsarar eru ekki enn búnir að hrista falldrauginn af sér.
ÍBV og Keflavík unnu afar mikilvæga sigra í botnbaráttu Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í gær. Staða Tindastóls er hins vegar orðin afar erfið.