Innlent

Fréttamynd

Ekkert ferðaveður á Snæfellsnesi

Ekkert ferðaveður er nú á Snæfellsnesi og í Borgarfirði og eru allir vegir ófærir. Mjög blint er í Borgarfirðinum og hvasst undir Hafnarfjalli. Lögreglan á Snæfellsnesi og í Borgarnesi varar fólk við að vera á ferðinni.

Innlent
Fréttamynd

Úthafskarfakvóti skertur um 37%

Úthafskarfakvóti Íslendinga verður skorinn niður um tæp 20 þúsund tonn á þessu ári, samkvæmt tilkynningu sjávarútvegsráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar nota hótelin meira

Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 2,5 prósent milli ára vegna Íslendinga sem í meira mæli gista á hótelunum. Gistinóttum þeirra fjölgaði um rúm fimmtán prósent en erlendra gesta um 2,4 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Búið að ákveða kaupendur?

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir þrálátan orðróm í viðskiptalífinu um að búið sé að ákveða fyrirfram hverjir kaupi Landssímann og að fráleit skilyrði til kaupenda virðist heimatilbúin til að koma verðmætum til vildarvina.

Innlent
Fréttamynd

Útlægur og landlaus í fimm ár

Þrítugur pólitískur flóttamaður er algjörlega vegalaus og hefur dvalið í húsnæði Geðhjálpar undanfarna mánuði. Hann er ríkisfangslaus og á hvergi heima. Hann hefur barist í fimm ár fyrir því að fá dvalarleyfi hér, en hefur verið synjað. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Árni Þór til starfa hjá 365

Árni Þór Vigfússon hefur verið ráðinn til starfa hjá 365. Mun Árni Þór, í samstarfi við fyrirtæki hans 3 Sagas Entertaintment, stýra sókn 365 í fjölmiðlun ætlaðri ungu fólki og byggja upp öflugt samfélag ungs fólks innan fyrirtækisins.

Lífið
Fréttamynd

Sjö manns á slysadeild

Sjö manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans laust fyrir klukkan tíu í morgun vegna reykeitrunar, brunasára eða annarra meiðsla eftir að íbúð í sambýlishúsi að Rósarima í Grafarvogi varð alelda á svipstundu þegar gaskútur í eldhúsi íbúðarinnar sprakk. Hann tættist í sundur og þeyttust út úr húsinu.

Innlent
Fréttamynd

Ætla að kæfa niður Atlantsolíu

"Sú verðstefna sem samkeppnisaðilar okkar stunda núna hefur þann eina tilgang að kæfa niður Atlantsolíu," segir Hugi Hreiðarsson markaðsstjóri Atlantsolíu. Hann heldur því fram að hin olíufélögin greiði með hverjum bensínlítra.

Innlent
Fréttamynd

Segir söluferli Símans gagnsætt

Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir unnið að því að skilgreina vægi hvers þáttar sem horft verður til þegar tilboð fjárfesta í Símann verða metin. Það verði kynnt um leið og verklagsreglurnar liggi fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutinn óstarfhæfur

Meirihluti sveitarstjórnar Skagafjarðar er óstarfhæfur eftir að Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir að upp væri kominn trúnaðarbrestur milli sín og forseta sveitarstjórnar, Gísla Gunnarssonar Sjálfstæðisflokki.

Innlent
Fréttamynd

Síminn: Tveir fjárfestar augljósir

Greiningardeild Íslandsbanka telur sölufyrirkomulagið á Símanum minnka líkur á að erlend símafyrirtæki geri tilboð. Tveir fjárfestahópar séu hins vegar augljósir: hópur í kringum Burðarás, Landsbankann og eigendur Samsonar annars vegar, og hópur í kringum Meið, VÍS og KB banka hins vegar - en fleiri muni væntanlega gera tilboð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Veiðieftirlit Fiskistofu út á land

Ný útibú Fiskistofu verða stofnuð á fjórum stöðum á landsbyggðinni á næstu árum. Starfsmönnum veiðieftirlits á höfuðborgarsvæðinu verður fækkað en fjölgað að sama skapi úti á landi.

Innlent
Fréttamynd

Reykjanesbrautin breikkuð

Ljúka skal við að breikka Reykjanesbrautina frá Fífuhvammsvegi í Kópavogi að Kaplakrika í Hafnarfirði í ár og næsta ár samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem lögð hefur verið fram.

Innlent
Fréttamynd

Aflýsir fundi með Davíð

Robert B. Zoellick, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, aflýsti fundi með Davíð Oddssyni utanríkisráðherra, sem fram átti að fara í gær. </font />

Innlent
Fréttamynd

Uppfyllir ekki skyldur sínar

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja telur landbúnaðarráðuneytið ekki uppfylla skyldur sínar um frágang á gamalli laxeldisstöð á Stað í Grindavík. Það er því sjálft farið að rífa mannvirkin og ætlar að senda ráðherra reikninginn.

Innlent
Fréttamynd

Miltisbrandssvæðið loks girt af

Nú er loks byrjað að girða í kringum staðinn þar sem miltisbrandssýking kom upp við bæinn Sjónarhól á Vatnsleysuströnd í desember í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Skerða framlög ganganna

Samkvæmt nýkynntri samgönguáætlun fara 85 milljarðar króna til samgöngumála næstu fjögur árin en af því fara 60 milljarðar í vegakerfið. Verkefni í grunneti, en svo kallast allir stofn-, tengi- og landsvegir í vegakerfinu, skiptast þannig að tæpar tíu milljarðar króna fara til verkefna á landsbyggðinni en 6,3 milljarðar til verkefna á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutasamstarfið í hættu

Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingarinnar - græns Framboðs í sveitarstjórn Skagafjarðar er í hættu. Þar er komin upp pattstaða eftir að einn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hætti þátttöku í meirihlutasamstarfinu.

Innlent
Fréttamynd

Meðalhitinn lægri en í fyrra

Þrátt fyrir að meðalhitinn í mars bæði í Reykjavík og á Akureyri hafi verið ríflega yfir meðallagi var meðalhitinn á báðum stöðum heldur lægri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Síminn: Annarlegir hagsmunir?

Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, telur að fyrirkomulagið við sölu á hlut ríkisins í Landssímanum sé ógegnsætt og ekki líklegt til að skila ríkissjóði sem mestum hagnaði. Það ýti einnig undir sögusagnir um að annarlegir hagsmunir ráði ferðinni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

7-10% sjúklinga fá lyf hjá læknum

Fíkniefnaneytendur sem fá lyf ávísuð af læknum eru um 7-10 prósent af sjúklingafjölda meðferðarstofnunarinnar á Vogi. Frá árinu 1995 hafa 769 ópíumfíklar komið til meðferðar á stofnuninni. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, hélt í dag.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur í Kollafirði

Tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri innst í Kollafirði rétt fyrir klukkan ellefu og eru þar umferðartafir vegna þess. Fullorðin hjón voru í öðrum bílnum og ung hjón með lítið barn í hinum. 

Innlent
Fréttamynd

Ökumenn veðurtepptir í Hyrnunni

Töluvert af fólki var veðurteppt í Borgarnesi í gær að sögn Hildar Hallkelsdóttur vaktstjóra í Hyrnunni. Fullt var út að dyrum hjá þeim yfir daginn en fækkað hafi með kvöldinu þegar fólk leitaði sér gistingar í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Matvælaverksmiðjur stórskemmdust

Tvær af þremur matvælaverksmiðjum Geest í Barton á Bretlandi, sem Bakkavör er að kaupa, stórskemmdust í eldi í fyrrakvöld. Þar var framleitt pasta og brauð og verður hluti þeirrar framleiðslu að líkindum fluttur yfir í svipaða verksmiðju félagsins annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Meirihluti á móti stóriðju

Talsverður meirihluti Skagfirðinga er á móti stóriðju í Skagafirði samkvæmt skoðanakönnun sem iðnaðarráðuneytið lét gera og iðnaðarráðherra kynnti á Sauðárkróki í gærkvöldi. Lítill stóriðjuáhugi í Skagafirði og í Eyjafirði kemur mörgum á óvart.

Innlent
Fréttamynd

Bannað frá 1970

Jónas Helgason, formaður Æðarræktarfélags Íslands, segir að útflutningur á óhreinsuðum æðardún hafi ekki verið heimill frá 1970 og því sé ekki verið að banna hann í nýju frumvarpi um mat á æðardún.

Innlent
Fréttamynd

Lá við stórslysi

Litlu munaði að illa færi að mati lögreglunnar þegar stór þungaflutningabíll lenti aftan á kyrrstæðum lögreglubíl í Kömbunum á Hellisheiði í gærmorgun. Var lögreglan þar við skýrslutöku af ökumönnum þriggja bíla sem aður höfðu lent í árekstri.

Innlent
Fréttamynd

Sex mánaða fangelsisdómur

Maður var dæmdur til sex mánaða fangelsis fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir alvarlegar líkamsárásir á tvo menn á veitingastað í miðbænum sumarið 2003.

Innlent
Fréttamynd

Forseta þykir kókforstjóri ógnandi

Forsetaembættið leggur mikla áherslu á að ekki verði af byggingu fyrirhugaðrar bílageymslu kókforstjórans Þorsteins M. Jónssonar á Laufásvegi. Embættið segir bílageymsluna mundu ógna öryggi gesta sinna og raska ró og virðingu hússins. Forsetaembættið hefur þegar tapað einu bílskúrsstríði á Laufásvegi eftir ákvörðun borgaryfirvalda.

Innlent