Innlent

Fréttamynd

Olís og Esso borguðu ekki

Olíufélögin áttu að greiða Ríkissjóði einn og hálfan milljarð króna í sekt í dag fyrir ólöglegt verðsamráð. Skeljungur greiddi sinn hluta en hin félögin draga lappirnar. Félögin óskuðu öll eftir því að reiða fram bankatryggingu fram að úrskurði dómstóla í málinu en fjármálaráðuneytið hefur hafnað því.

Innlent
Fréttamynd

Tæplega 40 hafa óskað eftir gögnum

Hátt í fjörutíu aðilar hafa óskað eftir því við einkavæðingarnefnd að fá trúnaðargögn um Símann þar sem þeir séu áhugasamir um kaup á fyrirtækinu. Mjög sterkir innlendir og erlendir aðilar eru í þeim hópi. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sendiráðið í Hollandi flutt

Bandaríkjamenn hyggjast flytja sendiráð sitt í Haag í Hollandi út í úthverfi þar sem öryggisráðstafanir angra ekki nágrannana eins og nú er. Það eru því greinilega fleiri Laufásvegir í heiminum en nágrannar bandaríska sendiráðsins í Reykjavík hafa einmitt kvartað undan auknum öryggisráðstöfunum sem hafa áhrif á íbúa við götuna.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskar jeppasveitir á förum

Þegar síðustu starfsmenn íslensku friðargæslunnar fara frá alþjóðaflugvellinum í Kabúl eftir rúman mánuð hefst þátttaka Íslendinga í endurreisnarstarfi í norður- og vesturhluta Afganistans. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi að gert væri ráð fyrir að á hvorum staðnum yrðu tveir sérútbúnir jeppar og átta til níu manna lið.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskukennsla skert um 33%?

Samtök móðurmálskennara mótmæla harðlega fyrirhugaðri skerðingu íslenskunáms í framhaldsskólum. Þau segja að ef áformin um styttingu námstíma til stúdentsprófs nái fram að ganga hafi kennsla í íslensku verið skert um 33% á innan við tíu árum.

Innlent
Fréttamynd

Þrettán ára í forsvari

Lögreglan á Selfossi gerði húsleit í Hveragerði um síðustu helgi vegna gruns um að fíkniefnaneysla væri þar viðhöfð og reyndist sú raunin. Eigandi hússins var þó hvergi sjáanlegur en í hans stað hafði 13 ára drengur lyklavöldin og umboð húseigandans meðan hann hafði brugðið sér til mánaðar vinnudvalar.

Innlent
Fréttamynd

Óskar H. Þorvaldsson fréttastjóri DV

Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn fréttastjóri á DV.  Óskar Hrafn hefur stýrt íþróttadeild 365 prentmiðla í tæpt eitt og hálft ár. Henry Birgir Gunnarsson tekur við starfi Óskars Hrafns á íþróttadeild 365 prentmiðla.

Lífið
Fréttamynd

Vilja ríkisstofnanir til Akureyrar

KEA er tilbúið að greiða hundruð milljóna króna vegna flutnings opinberra starfa frá höfuðborgarsvæðinu til Akureyrar. Fiskistofa, Hafrannsóknastofnunin, Íslenskar orkurannsóknir og Hagstofan eru stofnanir sem Akureyringar renna hýru auga til.

Innlent
Fréttamynd

Hjólað í vinnuna

Hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna hófst formlega í gær með morgunverði í Húsdýragarðinum. Þar fluttu Ellert B. Schram forseti ÍSÍ, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri ávörp ásamt fleirum.

Innlent
Fréttamynd

Orkustofnun í dekri hjá ríkinu

Umhverfisstofnun gagnrýnir frumvarp iðnaðarráðherra til vatnalaga. Óánægja er meðal starfsmanna stofnunarinnar með lítið vægi sem hún virðist hafa gagnvart öðrum stofnunum. Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslyndra segir Orkustofnun í dekri ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Uppgreiðsla erlendra lána aukin

Fjármálaráðherra hefur ákveðið, í ljósi bættrar greiðslustöðu ríkissjóðs, að auka uppgreiðslu erlendra lána ríkissjóðs á árinu frá því sem áður var ákveðið. Nú í maí verða því greiddar 100 milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar rúmlega sex milljörðum íslenskra króna, af skammtímalánum, umfram það sem áður hafði verið tilkynnt um.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Á móti frumvarpi um ný vatnalög

Umhverfisstofnun leggst gegn frumvarpi Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um ný vatnalög. Iðnaðarnefnd afgreiddi frumvarpið úr nefnd fyrir helgina og er önnur umræða um það fyrirhuguð á Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Prófessorsstaða kennd við Jónas

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, hafa undirrritað viljayfirlýsingu um að stofnuð verði staða prófessors í samvinnufræðum við skólann sem kennd verði við Jónas frá Hriflu. Hundrað og tuttugu ár eru nú liðin frá fæðingu Jónasar.

Innlent
Fréttamynd

Níundubekkingar í MA

Menntamálaráðuneytið hefur veitt Menntaskólanum á Akureyri heimild til að taka við takmörkuðum fjölda afburðanemenda sem ljúka 9. bekk í vor og þeir nemendur þurfa því ekki að fara í 10. bekk að hausti. Um er að ræða fjögurra ára tilraunaverkefni.

Innlent
Fréttamynd

Stór fiskur í lítilli tjörn

Breska verslanakeðjan Mosaic Fashions undirbýr nú skráningu í Kauphöll Íslands, fyrst erlendra fyrirtækja. Valið stóð á milli íslenska markaðarins og þess breska og fannst stjórnendum betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn en lítill fiskur í stórri tjörn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eiður fyrirmynd erlendra leikmanna

Eiður Smári Guðjohnsen hefur sýnt öðrum erlendum leikmönnum hvernig þeir eiga að laga sig að ensku knattspyrnunni, segir breska blaðið <em>The Sun</em> í umfjöllun um lið hans, Chelsea, sem varð enskur meistari um helgina. Blaðið gefur Eiði 9 í einkunn fyrir keppnistímabilið.

Innlent
Fréttamynd

Tugmilljónir í laxarannsóknir

Veiðimálastofnun ætlar að afhjúpa leyndardóminn um verustað laxa í úthöfunum. Tækjavæddum gönguseiðum verður sleppt í vor. Rannsóknin kostar 70 til 80 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Fjórtán ára stúlka ók útaf vegi

Lögreglan í Kópavogi fékk aðfaranótt sunnudags upplýsingar um bifreið sem hafði verið ekið út af í Álfabakka. Ökumaðurinn reyndist vera fjórtán ára gömul stúlka og hafði hún stolið bifreiðinni frá heimili sínu.

Innlent
Fréttamynd

Líklega ekki um morð að ræða

Líkið af manninum sem fannst á skeri út frá Stokkseyri um klukkan fimm í gærdag var af brasilíumanninum Ricardo Correra Dantas en hans hafði verið saknað síðan 2. apríl síðastliðinn. Ricardo Correra Dantes sást síðast ganga út af heimili þar sem hann dvaldi á Stokkseyri á þessum örlagaríka degi. Lögreglan á Selfossi segir málið vera í rannsókn en að svo stöddu bendi ekkert til að um morð hafi verið að ræða en lík hans verður krufið á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Kynnir þjónustuþörfina

Fundaröð Alcoa-Fjarðaáls til að kynna þjónustuþörf fyrirtækisins fyrir almenningi og verktökum er að hefjast í dag og verður fyrsti fundurinn á Hótel Bjargi á Fáskrúðsfirði í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Segir samráð haft við íbúa

Þétting byggðar í Reykjavík veldur víða óánægju þar sem íbúar vilja yfirleitt fremur útsýni og græn svæði en að það sé þrengt að húsum þeirra. Formaður skipulagsnefndar borgarinnar segir unnið að málum í samráði við íbúa.

Innlent
Fréttamynd

Sótti slasaðan pilt á Snæfellsnes

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti nú síðdegis pilt á sextánda ári sem fótbrotnaði illa á björgunarsveitaræfingu við innsiglinguna í Ólafsvík. Eftir því sem næst verður komist varð pilturinn á milli innsiglingarbauju og báts á flotæfingu sveitarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja einn rétt og ekkert svindl

Einn réttur - ekkert svindl er yfirskrift 1. maí í Reykjavík. Þar er vísað til ólöglegs innflutts vinnuafls og réttinda sem tryggð eiga vera í samningum.

Innlent
Fréttamynd

Efast um að nefnd vilji fá tilboð

Talsmenn félagsins Almennings, sem stefnir að kaupum á Landssímanum, fengu engin svör á stuttum fundi í dag með starfsmönnum einkavæðingarnefndar ríkisstjórnarinnar. Agnes Bragadóttir, talsmaður félagsins, stórefast um að einkavæðingarnefnd vilji fá tilboð frá félaginu.

Innlent
Fréttamynd

Þorgerður Katrín vinsælust

Minni ánægja ríkir meðal landsmanna með störf allra ráðherra Framsóknarflokksins nú en síðasta haust, samkvæmt nýrri könnun frá Þjóðarpúlsi Gallups.

Innlent
Fréttamynd

Smáhundar á Íslandi á 12. öld

Bein frá 12. öld af smáhundum hafa fundist við fornleifauppgröft að Kolkuósi. Þetta er elsta dæmi um smáhunda á Íslandi og telur fornleifafræðingur að Hólabiskupar hafi haft hundana sem stöðutákn, en einnig sem eins konar hitapoka til að verma upp rúm.

Innlent
Fréttamynd

Lík brasilíumannsins fundið

Lík Brasilíumannsins Ricardo Correia Dantas fannst á laugardag í fjörunni á Stokkseyri. Tilkynnt var um hvarf Dantas 2. apríl síðastliðinn og leituðu björgunarsveitir lengi án árangurs.

Innlent
Fréttamynd

Hrikalega óréttlátur skattur

Pétur Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, ætlar að ná samstöðu meðal þingflokka um að frumvarp Margrét Frímannsdóttur um afnám stimpilgjalds við endurfjármögnun lána verði lögfest fyrir sumarfrí Alþingis, eins og sagt var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

Innlent
Fréttamynd

Dæmt gegn virkum lífeyrisréttindum

Skerðing á lífeyri fyrrverandi starfsmanns Seðlabankans fer fyrir Hæstarétt á næstunni. Í lögfræðiáliti um eftirlaun ráðherra, þingmanna og dómara er varað við skerðingu á eftirlaunaréttindum þeirra sem þegar þiggja þau.

Innlent
Fréttamynd

Bresk tískukeðja í Kauphöllina

Breska tískuvörurkeðjan Mosaic hyggur á hlutafjárútboð til fagfjárfesta og almennings og skráningar í Kauphöll Íslands. Mosaic yrði meðal tíu stærstu fyrirtækjanna í Kauphöll Íslands.

Viðskipti innlent