Innlent
Selma heillar alla Það er alveg ljóst að Selma Björnsdóttir átti daginn í blaðamannaherberginu í Kænugarði þar sem hún fór hreinlega á kostum. Þar tók hún lagið auk þess sem geislandi framkoma hennar bræddi alla viðstadda. Hún tók þrjú lög þar á meðal söng hún All out of luck, þar sem hún tók viðlagið á þýsku og þá söng hún gamalt króatískt eurovisionlag. Innlent 13.10.2005 19:13
Vegi lokað vegna alvarlegs slyss Mjög alvarlegt umferðarslys varð skammt fyrir sunnan bæinn Syðri-Bægisá í Hörgárbyggð um klukkan hálfsex í dag. Tveir bílar lentu í harkalegum árekstri en þrjár manneskjur voru í bílunum. Lögregla lokaði hringveginum í Öxnadal og má búast við að hann verði lokaður í um klukkustund í viðbót. Innlent 13.10.2005 19:12
Ekki sáttur við niðurstöðu nefndar Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, Björgólfur Jóhannsson, er ekki sáttur við þá niðurstöðu svokallaðrar hágengisnefndar um að ekki sé ástæða til að grípa til sértækra aðgerða vegna hás gengis krónunnar. Hágengisnefnd viðurkennir í skýrslu, sem kynnt var í gær, að afkoma og rekstrarskilyrði sjávarútvegsins séu óviðunandi en samkvæmt niðurstöðum megi sjá merki um jákvæða þróun mitt í öllum erfiðleikunum. Innlent 13.10.2005 19:12
Fjölmenni á Hvannadalshnjúki Um tvöhundruð manna hópur fjallgöngugarpa var væntanlegur á Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands, nú á þriðja tímanum. Langflestir eru vegum Ferðafélags Íslands, um eitt hundrað manns, undir fararstjórn Haraldar Arnar Ólafssonar en smærri hópar ganga á Öræfajökul á vegum Íslenskra fjallaleiðsögumanna, Útivistar og Öræfaferða. Innlent 13.10.2005 19:12
Erill hjá lögreglunni í Reykjavík Erilsamt var hjá Lögreglunni í Reykjavík í nótt en alls voru átta ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur og fengu þrír þeirra að gista í fangageymslum lögreglunnar í nótt. Skýrsla af þeim verður tekin nú í morgunsárið. Samkvæmt lögreglunni í Reykjavík var ölvun talsverð í miðbæ Reykjavíkur í nótt en lögreglan segir þó að nóttin hafi gengið stórslysalaust fyrir sig. Innlent 13.10.2005 19:12
Listahátíð hefst í dag Listahátíð í Reykjavík hefst í dag og stendur hún í þrjár vikur. Þótt hátíðin sé kennd við höfuðborgina fer hún fram á tíu öðrum stöðum á landinu: Kópavogi, Hafnarfirði, Ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði, Eiðum, Vestmannaeyjum, Skálholti, Hveragerði og undir Eyjafjöllum. Hátíðin í ár er helguð alþjóðlegri samtímamyndlist. Innlent 13.10.2005 19:12
Gunnar fær engan stuðning eigin varaþingmanns Sigurlín Margrét Sigurðardóttir 1. varaþingmaður á lista Frjálslynda flokksins í Suðvestur kjördæmis Gunnars Örlygssonar ætlar ekki að fylgja honum í Sjálfstæðisflokkinn. Gunnar náði kjöri í þessu kjördæmi sem uppbótarþingmaður Frjálslynda flokksins í Alþingiskosningunum þann 10. maí árið 2003. F-listinn fékk 6,75% prósent gildra atkvæða þar. Innlent 13.10.2005 19:12
Stöðvaði slagsmál með táragasi Lögreglan í Hafnarfirði þurfti í gærkvöld að beita táragasi til þess að stöðva slagsmál við Löngumýri í Garðabæ. Tilkynnt var um ólæti við götuna um miðnætti og greint frá því að tíu til fimmtán piltar væru að slást þar auk þess sem bílum hefði verið ekið óvarlega í götunni. Þegar lögrega kom á staðinn var talsverður í æsingur í þeim sem þar voru og flugust menn á. Innlent 13.10.2005 19:12
Stefna áfram að eigin vatnsveitu Formaður bæjarráðs Kópavogs fagnar vilja Orkuveitu Reykjavíkur til lækkunar á vatnsverði til Kópavogsbæjar. Hann segir bæinn engu að síður stefna að eigin vatnsveitu á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:12
Mega hafa opið á morgun Matvöruverslunum með verslunarrými undir 600 fermetrum er nú heimilt að hafa opið alla helgidaga nema jóladag og mega þær því hafa opið á morgun, hvítasunnudag, og annan í hvítasunnu. Emil B. Karlsson, hjá Samtökum verslunar og þjónustu, segir ástæður fyrir breytingunum vera kröfur neytenda um rýmri afgreiðslutíma. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Meiddist illa í hlaupahjólsslysi Þrettán ára strákur slasaðist alvarlega þegar hann féll á hlaupahjóli sínu í fyrradag á Hátúni í Keflavík. Drengurinn fékk stýrið í kviðinn með þeim afleiðingum að miltað sprakk. Samkvæmt fréttavef <em>Víkurfrétta</em> var hann fluttur á bráðamóttöku Landspítalans og var þaðan á gjörgæsludeild. Eftir aðhlynningu lækna var hann síðan fluttur á Barnaspítala Hringsins. Innlent 13.10.2005 19:12
Vill byggja álver í Helguvík Norðurál hyggst reisa allt að 250 þúsund tonna álver á iðnaðarsvæði Helguvíkur í Reykjanesbæ. Skrifað var undir viljayfirlýsingu þess efnis í gærkvöldi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Viðrar vel á fjallgöngugarpa Fjallgöngugarpar á leið á Öræfajökul fá hið besta veður á leið sinni upp á hæsta tind landsins. Um tvö hundruð manna hópur lagði af stað um fjögurleytið í nótt og er væntalega kominn á Hvannadalshnjúk. Hið besta veður er nú í Öræfasveit. Þar var 14 stiga hiti og bjartviðri og höfðu menn sýn á tindinn úr Freysnesi í morgun. Innlent 13.10.2005 19:12
Sýknað af kröfum tóbaksfyrirtækja Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfu British American Tobacco Nordic í Finnlandi og British American Investment í Bretlandi en stefnendur kröfðust viðurkenningar dómstóla á því að takmarkanir í tóbaksvarnarlögum frá árinu 2001 um sýnileika brytu í bága við eignarréttarákvæði, tjáningarfrelsisákvæði og atvinnufrelsisákvæði. Héraðsdómur var þó ósammála stefnendum og sýknaði ríkið. Innlent 13.10.2005 19:12
Vildi bara styðja Ingibjörgu Helga Jónsdóttir, borgarritari og fyrrverandi aðstoðarkona Steingríms Hermannssonar, gekk eingöngu í Samfylkinguna til þess að styðja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í formannskjöri flokksins. Nafn Helgu átti hvergi að koma fram en það komst í hendur stuðningsmanna Össurar Skarphéðinssonar og í kjölfarið var starfsmanni á skrifstofu flokksins sagt upp störfum. Innlent 13.10.2005 19:12
Sameinast undir Icelandic USA Fyrrverandi dótturfélag SÍF, Samband of Iceland, í Bandaríkjunum er að sameinast dótturfélagi SH, Icelandic USA, í Bandaríkjunum og verða báðar verksmiðjurnar undir nafni Icelandic USA. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Skarst frá nefi í munn 22 ára gamall maður var á fimmtudag dæmdur í hálfsársfangelsi fyrir að slá annan mann, 25 ára að aldri, með glerflösku í andlitið þannig að hún brotnaði og sá hlaut djúpan 5 sentímetra langan skurð frá nefi og niður að vör. Innlent 13.10.2005 19:12
Sauðburður á fullt í Laugardalnum Sauðburður er hafinn í Húsdýragarðinum í Laugardal og hafa þrjár ær af níu þegar borið. Ærin Söðulkolla var fyrst til að bera þetta vorið þegar hún bara tveimur lambhrútum aðfaranótt 30. apríl. Fréttir af því voru ekki sendar út strax að burði loknum þar sem Söðulkolla afneitaði öðru lambinu en hún hefur nú tekið það í sátt. Innlent 13.10.2005 19:12
Deilt um nýstofnað fyrirtæki Mál fjórmenninganna sem hættu skyndilega hjá Iceland Seafood og stofnuðu fyrirtæki í beinni samkeppni, verður flutt í héraðsdómi í dag. Fjórmenningarnir hættu störfum hjá Iceland Seafood í desemberlok og stofnuðu í kjölfarið Seafood Union, sem er í beinni samkeppni við Iceland Seafood. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Viðgerðin kostar 60 milljónir Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers, segir að áætlanir geri ráð fyrir að það kosti 60-70 milljónir króna að gera við Þórshamarshúsið á Seyðisfirði. Ekki hafi tekist að finna því hlutverk og því hafi ekki verið tekin ákvörðun um viðgerðir. Innlent 13.10.2005 19:12
Sjávarútvegurinn skiptir ekki máli "Það er ástæða fyrir því að Síldavinnslan hefur ákveðið að hætta vinnslu á þorski í landi," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað. Innlent 13.10.2005 19:12
Atvinnuleysi minnkar enn Atvinnuleysi í apríl var 2,3 prósent samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar og hefur ekki mælst jafnlítið í þessum mánuði síðan árið 2001, en þá mældist það 1,6 prósent. Alls voru skráðir rúmlega 74.200 atvinnuleysisdagar á landinu öllu í síðasta mánuði sem jafngildir því að 3.542 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Innlent 13.10.2005 19:12
Kennitöluflakk skaðar sjö af tíu Sjö af hverjum tíu fyrirtækjum hafa borið fjárhagslegan skaða af kennitöluflakki samkvæmt könnun nemenda í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:12
Árekstur á gatnamótum Þrír voru fluttir með sjúkrabíl til skoðunar hjá lækni eftir allharðan árekstur fólksbíls og jeppa við bæinn Tjörn, um 20 kílómetra sunnan við Húsavík, síðdegis á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 19:12
Guðjón hættur hjá Keflavík Guðjón Þórðarson, þjálfari Keflvíkinga í knattspyrnu, tilkynnti forsvarsmönnum félagsins fyrir stundu að hann hefði rift samningi sínum. Ástæðan sem hann gaf upp eru vanefndir á samningi. Rætt verður við Guðjón í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Innlent 13.10.2005 19:12
Héngu aftan í strætó á línuskautum Tveir ungir drengir héngu hjálmlausir á línuskautum aftan í strætisvagni í Skerjafirði í gær. Eigendur verslunarinnar Skerjavers urðu þessa varir og létu skólayfirvöld í Melaskóla vita. Innlent 13.10.2005 19:12
Tekinn á 173 í Ártúnsbrekku Lögreglan í Reykjavík stöðvaði 18 ára ökumann á 173 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku klukkan að ganga tólf í gærkvöldi. Í brekkunni er hámarkshraði 80 kílómetrar á klukkustund. Innlent 13.10.2005 19:12
Íslendingum fækkar ekki á næstunni Fæðingar á Íslandi eru orðnar það fáar að þær duga ekki til að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Frjósemin hér er samt sú næstmesta í Evrópu og því nokkuð í að okkur fari að fækka. Innlent 13.10.2005 19:12
Leikskólabörn í sorpfræðslu Undanfarna viku hefur Umhverfisvika Gámaþjónustu Vestfjarða og leikskólabarna á Ísafirði staðið yfir á Ísafirði og í Bolungarvík. Alls hafa sextíu börn úr sjö leikskólum tekið þátt í verkefninu. Innlent 13.10.2005 19:12
Góð veðurspá fyrir helgina Prýðis ferða- og útvistarveður verður um hvítasunnuhelgina sem er fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins. Fullvíst má telja að tugir þúsunda verði á faraldsfæti. Lögreglan á Selfossi býst við mikilli umferð um sitt umdæmi enda mikil sumarbústaðabyggð þar auk þess sem margir eiga væntanlega leið í gegnum umdæmið. Innlent 13.10.2005 19:12