Innlent
Baugur stofnar styrktarsjóð Baugur Group hefur ákveðið að verja 300 milljónum króna til að stofna sérstakan styrktarsjóð. Gert er ráð fyrir að framlög úr sjóðnum verði 40 til 60 milljónir króna á ári og verður það til að styðja margvísleg líknar- og velferðarmál barna auk menningar og listar. Innlent 13.10.2005 19:22
Nýtt síldarævintýri í uppsiglingu? Munum við aftur upplifa síldarævintýri eins og í gamla daga þar sem ungar stúlkur og piltar flykktust þúsundum saman til Norður- og Austurlands til að vinna í síld? Endurkoma norsk-íslensku síldarinnar inn í íslenska lögsögu vekur slíkar spurningar. Innlent 13.10.2005 19:22
Þungur rekstur skóla og sendiráða Ráðuneyti utanríkismála og landbúnaðarmála fóru um og yfir tíu prósent fram úr fjárheimildum á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðayfirliti fjármálaráðuneytisins, samtals um 550 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:22
Hæstiréttur ómerkti dóm héraðsdóms Máli þriggja pólskra verkamanna sem handteknir voru í mars vegna gruns um að þeir störfuðu hér á landi án atvinnuleyfa var vísað aftur til héraðsdóms fyrir Hæstarétti í gær. Höfðu mennirnir verið dæmdir hver um sig til mánaðar fangelsisvistar skilorðsbundið fyrir Héraðsdómi Suðurlands en niðurstaða Hæstaréttar var að sá dómur yrði ómerktur gerður. Innlent 13.10.2005 19:22
Frekari aðgerðir gegn handrukkurum Ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra þrjátíu sem grunaðir eru um handrukkun eða tengsl við handrukkara verði ákærðir. Talið er að hópurinn sem ná þarf til sé mun stærri og eru frekari aðgerðir í undirbúningi. Innlent 13.10.2005 19:22
Ómálefnalegur dómur segir lögmaður Tveir erlendir starfsmenn ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo við Kárahnjúka voru dæmdir í gær í Héraðsdómi Austurlands til greiðslu 50 þúsund króna sektar auk sakarkostnaðar hvor fyrir að hafa starfað hér að löggiltri iðngrein án viðurkenningar á starfsréttindum. Annar var verkstjóri smíðaverkstæðis og hinn verkstjóri í rafmagnsdeild. Innlent 13.10.2005 19:22
Tekinn með fíkniefni í bíl Lögreglan í Kópavogi tók mann með fíkniefni nú undir morgun. Fíkniefnin fundust við reglubundið umferðareftirlit en maðurinn var farþegi í bíl sem lögreglan stöðvaði. Skýrsla var tekin af manninum og telst málið upplýst. Í ljós kom við þetta tækifæri að ökumaður bifreiðarinnar var með útrunnin ökuréttindi. Innlent 13.10.2005 19:22
Þrjátíu handteknir Höfð voru afskipti af 30 manns á aðfararnótt laugardags í aðgerðum lögreglu gegn handrukkurum. Enginn þeirra er enn í haldi lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:22
Holræsagjald ekki lagt niður Dælustöðin í Gufunesi er tilbúin og þar með lýkur hreinsun strandlengju borgarinnar af skólpi. Holræsagjaldið verður samt ekki fellt niður, en því var ætlað að standa straum af þessum framkvæmdum. Innlent 13.10.2005 19:22
Rætt við ríkisendurskoðanda Fjárlaganefnd Alþingis kemur saman nú í hádeginu til að ræða skýrslu Ríkisendurskoðanda um hæfi forsætisráðherra til að fjalla um sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi verður kallaður fyrir nefndina. Stjórnarandstaðan telur ýmislegt orka tvímælis í úttekt hans á hæfi forsætisráðherra og ætlar að ákveða næstu skref í málinu eftir fundinn í dag. Innlent 13.10.2005 19:22
Fengu hákarl á línuveiðum Áhöfnin á Bensa Egils frá Hólmavík fékk óvæntan afla fyrr í vikunni þegar hún var að línuveiðum í Húnaflóa. Þetta kemur fram í <em>Bæjarins besta</em>. Þegar línan var dregin fannst áhöfninni eins og síðasti fiskurinn væri óvenju stór og þungur enda reyndist þar vera á ferðinni hákarl sem var 4,3 metrar á lengd. Innlent 13.10.2005 19:22
Eignin 34 en ekki 25 prósent Ríkisendurskoðandi gat ekki veitt fullnægjandi svör um eignarhald venslamanna forsætisráðherra í Ketillaugu ehf. og eign félagsins í Skinney Þinganesi á fundi fjárlaganefndar í gær. Innlent 13.10.2005 19:22
Mótmæla mismunun við ráðuneyti Boðað hefur verið til mótmælastöðu við dómsmálaráðuneytið klukkan tvö vegna Englendingsins sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald eftir mótmælaaðgerðirnar á Nordica-hóteli. Í fundarboði segir að enginn skilji hvers vegna maðurinn fái aðra meðferð en hin tvö sem einnig voru handtekinn eftir að hafa slett grænum vökva á fundargesti álráðstefnunnar sem haldin var á hótelinu. Innlent 13.10.2005 19:22
Ummæli Jóns Baldvins ómerkt Ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra sem hann viðhafði í Dagblaðinu um fyrrum tengdason sinn Marco Brancaccia, yfirmann ítölsku fréttaþjónustunnar ANSA í Mið-Ameríku, voru á miðvikudag ómerkt í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:22
Gengið frá sölu Pennans Gengið hefur verið frá samningum um sölu Pennans hf. til hóps fjárfesta undir forystu Kristins Vilbergssonar. Tekur Kristinn við starfi forstjóra Pennans í dag af Gunnari B. Dungal sem stjórnað hefur fyrirtækinu í 36 ár. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22
Brutu lögin í góðri trú Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í gær Humarvinnsluna í Þorlákshöfn fyrir brot á lögum um stjórn fiskveiða. Framkvæmdastjórinn sagðist hafa brotið lögin fyrir mistök, en hann hefði verið nýbyrjaður í útgerð. Átti brotið sér stað sumarið 2003. Innlent 13.10.2005 19:22
Sat fastur undir Höfðabakkabrú Vörubifreið með tengivagn festist undir Höfðabakkabrú yfir Vesturlandsveg um klukkan tuttugu mínútur fyrir 12 í gærdag. Ökumaður bifreiðarinnar hafði ekki gætt að því að farmur tengivagnsins var hærri en svo að hann kæmist undir brúnna og því fór sem fór. Innlent 13.10.2005 19:22
Ók inn í malarhrúgu Malarhrúga varð á vegi ökumanns í Njarðvík í gærkvöldi. Hrúgan stóð við vegarbrúnina og ók maðurinn inn í hana. Hann gaf þá skýringu að hann hefði ekki séð hrúguna en hún hafði ekki dulist fjölda ökumanna enda hafði hún staðið þarna allan daginn án þess að ekið væri á hana. Einhverjar skemmdir urðu á bíl mannsins en hann var þó ökufær á eftir. Innlent 13.10.2005 19:22
Mikil vatnsnotkun í Reykjavík Meðalvatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið gríðarlega að undanförnu vegna þurrka, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Hefur hún farið upp í 85.630 þúsund tonn á sólarhring en er í eðlilegu árferði 47.520 þúsund tonn á sólarhring. Innlent 13.10.2005 19:22
Fáir mótmæltu varðhaldi yfir Gill Fáir sinntu því kalli að mótmæla gæsluvarðahaldi yfir Paul Gill við dómsmálaráðuneytið í dag. Gill er einn þremenninganna sem skvettu grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli og sá eini sem situr í gæsluvarðhaldi vegna verknaðarins. Innlent 13.10.2005 19:22
Nektarmyndir af stúlkubörnum Meðal þess sem lögreglan fann í tölvu reykvísks manns sem sætir nú rannsókn vegna gruns um kynferðisofbeldi gegn fjórum stúlkubörnum, voru nektarmyndir af þeim. Innlent 13.10.2005 19:22
Safnaðarformaður veldur usla Þetta er í sjálfu sér ekkert fréttnæmt því þetta er bara eins og gengur og gerist," segir Matthías G. Pétursson, formaður hestamannafélagsins Andvara í Garðabæ en tveir stjórnarmenn af fimm hafa sagt sig úr stjórninni á þessu ári og neita báðir að tjá sig um hvort ósætti við formanninn sé ástæða úrsagnarinnar. Innlent 13.10.2005 19:22
Miklar framkvæmdir í Leifsstöð Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að undanförnu og í dag var opnuð ný komuverslun Fríhafnarinnar. Innlent 13.10.2005 19:22
Ríkisendurskoðandi lauk rannsókn Ríkisendurskoðandi lauk nú undir kvöld endurskoðun sinni á hæfi forsætisráðherra varðandi sölu ríkisbankanna eftir að hafa fengið enn eitt atriðið til úrlausnar í dag. Nýjar upplýsingar, sem lagðar voru fram á fundi fjárlaganefndar Alþingis, bentu til að eignarhlutur Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans í fyrirtækjum, sem tengdust bankasölunni, væri stærri en gert var ráð fyrir í fyrri könnun Ríkisendurskoðanda. Innlent 13.10.2005 19:22
Samherji styrkir Stöðvarfjörð Samherji hefur ákveðið að leggja tuttugu milljónir í uppbyggingu smærri fyrirtækja á Stöðvarfirði. Fyrsta september næstkomandi munu 32 Stöðfirðingar missa vinnu sína hjá Samherja þegar fyrirtækið lokar frystihúsi sínu á staðnum. Innlent 13.10.2005 19:22
Vilja breska mótmælandann lausan Efnt var til mótmæla fyrir framan Dómsmálaráðuneytið vegna gæsluvarðhaldsúrskurðarins sem Bretinn Paul Gill fékk. Paul var einn þremenninganna sem tók þátt í slettumótmælunum í Nordica-hóteli fyrr í vikunni. Íslendingunum tveimur var sleppt, en Paul var á miðvikudaginn dæmdur í sex daga gæsluvarðhald á Litla-Hrauni. Innlent 13.10.2005 19:22
Fé í uppbyggingu smáfyrirtækja Samherji hefur ákveðið að leggja 20 milljónir í uppbyggingu smærri fyrirtækja á Stöðvarfirði. Er það liður í atvinnuþróunarverkefni sem félagið hefur unnið að ásamt Austurbyggð og Þróunarstofu Austurlands í kjölfar þess að Samherji ákvað að hætta landvinnslu á Stöðvarfirði í haust. Innlent 13.10.2005 19:22
Vilja að Gill verði látinn laus Íslendingarnir tveir sem tóku þátt í mótmælaaðgerðunum á Nordica-hótelinu ásamt Englendingnum Paul Gill telja gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir Gill óskiljanlegan og ranglátan. Meðferðinni á Gill verður mótmælt við dómsmálaráðuneytið klukkan tvö í dag. Innlent 13.10.2005 19:22
Bíll fastur undir Höfðabakkabrú Umferðartafir hafa orðið á Vestulandsvegi undir Höfðabakkabrúnni í vestur en þar er flutningabíll fastur. Bíllinn, sem er frá fyrirtækinu BM-Vallá, var með mikið járnvirki á pallinum, þar af stóð járnsúla hátt upp í loftið og hún rakst undir brúna með þeim afleiðingum að bíllinn er fastur. Innlent 13.10.2005 19:22
Geymdi þýfi fyrir litla bróður Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við og geyma þýfi fyrir sex árum yngri bróður sinn. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár. Innlent 13.10.2005 19:22