Innlent
Úthlutað úr minningarsjóði 61 milljón króna hefur verið úthlutað úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur til 178 verkefna. Féð fór til menningarmála, forvarna, heilbrigðismála, íþrótta, menntamála og námsstyrkja. Sjóðnum bárust samtals umsóknir. Björgólfur Guðmundsson er formaður sjóðsstjórnar. Markmið sjóðsins er að auka almannaheill og bæta mannlíf á Íslandi. Innlent 13.10.2005 19:24
Bruni í rafmagnstöflu í Fnjóskadal Slökkvilið Akureyrar og Þingeyjarsveitar voru kölluð út síðdegis í gær vegna bruna í skúr utan um rafstöð við bæinn Hróarsstaði í Fnjóskadal. Tjón af völdum brunans varð ekki mikið og gekk að sögn lögreglu á Húsavík greiðlega að slökkva eldinn, sem átti upptök sín í rafmagnstöflu. Innlent 13.10.2005 19:24
Fái að kvikmynda við Krýsuvík Flest bendir til að Clint Eastwood og Steven Spielberg verði leyft að kvikmynda í Arnarfelli við Krýsuvík þrátt fyrir að umhverfisnefnd Hafnarfjarðar leggist gegn því. Byggingar- og skipulagsráð Hafnarfjarðar leggst ekki gegn kvikmyndagerðinni og það ræður. Innlent 13.10.2005 19:24
Tólf sækja um Tólf sækja um stöðu talsmanns neytenda, sem viðskiptaráðherra skipar í. Meðal umsækjenda eru Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sem og Drífa Sigfúsdóttir, fyrrverandi formaður samtakanna. Innlent 13.10.2005 19:24
Sunny Jane enn í Hollandi Flutningaskipið Sunny Jane er ennþá í Hollandi með fullar lestir af fiski af Reykjaneshrygg. Skipið tók við afla af svokölluðum sjóræningjaskipum en var neitað um löndun í Hollandi, samkvæmt fjölþjóðlegum samningum. Landhelgisgæslan taldi sig hafa upplýsingar um að skipið væri farið frá Hollandi til Kaliningrad. Innlent 13.10.2005 19:23
Boðið í stofnfé í SPH Einhverjir stofnfjáreigendur sem ekki studdu núverandi stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar hafa fengið tilboð í stofnfjárbréf sín. Talið er að núverandi stjórn sé að tryggja það að gamla stjórnin muni ekki ná völdum á ný. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
MIsjafnar skoðanir um Pólverjana Tólf pólskir verkamenn hafa leitað á náðir Alþýðusambands Íslands þar sem þeir telja að kjör og aðbúnaður í húsnæði sem þeim hefur verið úthlutað til að búa í hér á landi séu með öllu óviðunandi. Verkamennirnir komu hingað til lands í apríl síðastliðnum til starfa í byggingageiranum. Innlent 13.10.2005 19:24
Framsal auðveldað Dómsmálaráðherrar Norðurlandanna náðu samkomulagi um ný samningsdrög um framsal sakamanna. Gert er ráð fyrir að málsmeðferð um framsal sakamanna milli Norðurlandanna verði stytt og einfölduð Innlent 13.10.2005 19:24
Þjónustusamningur í endurskoðun Þjónustusamningur heilbrigðisráðuneytis og Reykjalundar er nú til endurskoðunar, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. Innlent 13.10.2005 19:24
Vegið að starfsheiðri "Guðjón Arnar Kristjánsson hefur ekki áttað sig á því að árið 2003 breyttum við aðferðafræði við útreikning á hrygningarstofninum og hann er því að bera saman epli og appelsínur," segir Björn Ævarr Steinarsson, forstöðumaður veiðiráðgjafasviðs Hafrannsóknastofnunarinnar. Innlent 13.10.2005 19:24
Reynt að koma Pólverjum úr landi Alþýðusamband Íslands vinnur nú í því að tryggja stöðu tólf Pólverja sem búið hafa við slæmar aðstæður og unnið hér á landi á ósæmandi kjörum. ASÍ telur að fyrirtækið sem flutti Pólverjana hingað til lands hafi reynt að koma þeim úr landi svo þeir gætu ekki borið vitni. Innlent 13.10.2005 19:23
Töfðust í borginni Alþjóðlegar mótmælabúðir við Kárahnjúka risu ekki í gær eins og fyrirhugað var. Birgitta Jónsdóttir, einn talsmanna mótmælenda, segir að hópurinn hafi tafist í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:24
Alþjóðadagur MND-félaga í dag Lækning hefur ekki enn fundist við MND-sjúkdómnum sem þrír til fimm einstaklingar greinast með á Íslandi á hverju ári. Formaður MND-félagsins vill að rannsóknir á sjúkdómnum verði hafnar af fullum krafti hér á landi. Í dag er alþjóðadagur MND-félaga um allan heim. Innlent 13.10.2005 19:23
Fylgst náið með barnaníðingum Dómsmálaráðherrar iðnveldanna skera á alþjóðlegt tengslanet barnaníðinga með því að setja á laggirnar sameiginlegan gagnagrunn með upplýsingum um þá og framleiðendur barnakláms. Lögreglan á Íslandi fagnar þessu framtaki og telur að það muni auðvelda rannsókn slíkra mála hér á landi. Innlent 13.10.2005 19:24
Ekki viðrað til róðurs Kjartan Hauksson ræðari er nú úti fyrir miðju Norðurlandi. Hann tók land á Höfðaströnd á Tröllaskaga á laugardag og hefur þurft að halda þar kyrru fyrir vegna veðurs. Innlent 13.10.2005 19:23
Þrjú svæði rannsökuð Fulltrúar Fjárfestingarstofu, Alcoa, Skagafjarðar, Húsavíkurbæjar og Akureyrar, ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, hafa komist að samkomulagi um að ákvörðun um staðsetningu hugsanlegs álvers á Norðurlandi liggi fyrir eigi síðar en 1. mars á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:24
SMÁÍS fær verðlaun fyrir baráttu Alheimssamtök Kvikmyndaframleiðenda veitti Samtökum myndrétthafa á Íslandi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í baráttunni gegn ólöglegri dreifingu á síðasta ári. Verðlaunin voru veitt framkvæmdastjóra SMÁÍS við formlega athöfn á í Flórens á Ítalíu í síðustu viku. Verðlaun sem þessi eru veitt þeim löndum sem sýna framúrskarandi árangur gegn ólöglegri dreifingu myndefnis og er þetta í fyrsta sinn sem eitt af norrænu ríkjunum hlýtur þessi verðlaun. Innlent 13.10.2005 19:23
Íslenskt félag flutti inn Pólverja Í ljós hefur komið að íslenskt fyrirtæki hefur flutt tólf Pólverja hingað til lands á fölskum forsendum, einungis í þeim tilgangi að leigja þá út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Laun og kjör mannanna voru langt undir lámarkskjörum sem kjarasamningar og íslensk lög kveða á um. Í samningi sem fyrirtækið gerði við Pólverjana sagði að þeir hefðu 480 krónur á tíma í jafnaðarkaup og að þeir þyrftu að vinna 250 vinnustundir á mánuði. Innlent 13.10.2005 19:23
Furðulegar ásakanir og ósannindi "Það er alveg sjálfsagt og eðlilegt að taka undir ýmislegt sem kemur fram í máli ASÍ en mér finnst málatilbúnaður sambandsins í heild sinni mjög furðulegur og því til skammar," segir Eiríkur Elís Þorláksson, lögmaður fyrirtækisins Geymis ehf. Innlent 13.10.2005 19:24
Alfreð forseti Alfreð Þorsteinsson var kjörinn forseti borgarstjórnar í gær. Tekur hann við forsetastarfinu af Árna Þór Sigurðssyni sem gegnt hefur starfinu frá árinu 2002 en í leyfi hans að undanförnu hefur Stefán Jón Hafstein gegnt starfi forseta borgarstjórnar. Innlent 13.10.2005 19:24
10 milljarða tjón í Reykjavík Samkvæmt útreikningum Sjóvár var heildarkostnaður vegna slysa í umferðinni í Reykjavík ekki undir 10 milljörðum króna á síðasta ári. Gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar eru orðin tjónahæstu gatnamótin og taka við þeim vafasama titli af gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem hafa verið tjónahæst í mörg ár. Innlent 13.10.2005 19:23
Heilsugæslan neydd á brott Hafinn er undirbúningur að flutningi Heilsugæslunnar úr gömlu Heilsuverndarstöðinnni við Barónsstíg. Þá þarf að flytja miðstöð heimahjúkrunar við Grensásveg. Það er leiguhúsnæði sem nú hefur verið selt og verður tekið til annarra nota Innlent 13.10.2005 19:24
Vilja nágrannavörslu í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og frjálslyndra og óháðra lögðu til við borgarstjórn Reykjavíkur á fundi fyrir stundu að að óskað yrði eftir samstarfi við lögregluna í Reykjavík. Vilja þeir að það verði gert til að efla innbrotsvarnir í þágu almennings og koma á fót skipulagðri nágrannavörslu í öllum hverfum Reykjavíkur, en árlega verða þúsundir Reykvíkinga fyrir fjárhagslegu og tilfinningalegu tjóni af völdum innbrota í hús og bifreiðar. Innlent 13.10.2005 19:23
Segja málflutning ASÍ rangan Dularfullt, íslenskt fyrirtæki fékk erlenda verkamenn hingað til lands á fölskum forsendum og braut á þeim lög og kjarasamninga, að mati ASÍ. Þeir nutu engra réttinda og voru látnir búa við aðstæður sem uppfylla engan veginn íslenskar kröfur. Rangur og villandi málflutningur, segja talsmenn fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 19:24
Athuga staðarval vegna álvers Fulltrúar Fjárfestingarstofu, Alcoa, sveitarfélaga Skagafjarðar, Húsavíkurbæjar og Akureyrarkaupstaðar ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga undirrituðu í gær samkomulag um áætlun um staðarvalsathuganir vegna hugsanlegs álvers á Norðurlandi. Innlent 13.10.2005 19:23
Ungur maður ók á kind sem drapst 25 ára gamall maður ók um klukkan níu í gærmorgun fólksbíl sínum á kind þannig að hún drapst og bíllinn skemmdist. Áreksturinn varð í Holtsmúlasundi, miðja vegu milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Innlent 13.10.2005 19:24
Kosið um sameiningu Ölfuss og Flóa Hafin er vinna að undirbúningi um sameiningu Ölfuss og Flóa en kosið verður um sameiningu í byrjun október. Farið verður í kosningarnar í framhaldi af samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytisins um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Kosið verður um sameiningu Árborgar, Hraungerðishrepps, Hveragerði, Gaulverjabæjarhrepps, Villingaholtshrepps og Ölfuss. Innlent 13.10.2005 19:23
Falsaði undirskrift á skuldabréfi Fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Þrír mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn hefur játað að hafa greitt starfsmönnum bílaumboðs með skuldabréfi með falsaðri undirskrift. Skuldabréfið hljóðaði upp á rúma 1,3 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:23
Níu sækja um Níu sóttu um starf forstjóra Neytendastofu, átta karlar og ein kona. Þau eru Egill Heiðar Gíslason, Ingibjörg Björgvinsdóttir, Ingólfur Oddgeir Georgsson, Jóhannes Þorsteinsson, Jón Egill Unndórsson, Jón Magnússon, Leo J.W. Ingason, Páll Haraldsson og Tryggvi Axelsson. Innlent 13.10.2005 19:24
Gott að ránum hafi ekki fjölgað Afbrotafræðingur hjá Ríkislögreglustjóranum segir ánægjulegt að úttekt sýni að ránum hafi ekki fjölgað þrátt fyrir breytta samfélagsmynd. 36 rán eru framin á Íslandi á ári samkvæmt athugun félagsfræðinema við Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2005 19:23