Innlent
Lögin ná yfir öll hugverk Það verður að fara varlega í að breyta löggjöf um einkaleyfi og ríkisvaldið ætti að leita allra leiða til að semja við einkaleyfishafann áður en það tekur sér það vald að afnema einkaleyfið. Þetta segir formaður Samtaka framleiðenda frumlyfja, en hann fagnar jafnframt því framtaki stjórnvalda að undirbúa aðgerðir til varnar hugsanlegum heimsfaraldri. Innlent 10.11.2005 19:50
Betur fór en á horfðist Flutningabílstjóri á Austurlandi má þakka fyrir að hafa lent ofan í skurði þegar hátt í fimmtíu tonna bíll hans valt. Hjólabarðar bílsins voru ekki í samræmi við aðstæður, en skyndilega myndaðist hálka á veginum. Innlent 10.11.2005 19:45
Vill nýjan sæstreng Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, segir að tíðar truflanir á netsambandi við umheiminn séu óþolandi. Hann ætlar að beita sér fyrir því að nýr sæstrengur verði lagður. Innlent 10.11.2005 19:41
Spáir verðhjöðnun Forsætisráðherra segir að tölur Hagstofunnar í dag, um að vísitala neysluverðs hafi lækkað á milli mánaða, séu vendipunktur og fram undan sé verðhjöðnun. Innlent 10.11.2005 19:35
Hætt við að Kárahnjúkavirkjun standist ekki tímaáætlun Mjög tæpt er orðið að Kárahnjúkavirkjun standist tímaáætlun og má ekkert út af bera í jarðgangagreftri. Landsvirkjunarmenn halda þó enn í vonina um að virkjunin skili orku á tilsettum tíma. Innlent 10.11.2005 19:26
Hlutverk sveitarfélaga að bæta kjör leikskólakennara Fjögur hundruð lærðir leikskólakennarar hafa valið sér annan starfsvettvang vegna lágra launa í faginu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að það sé alfarið hlutverk sveitarfélaganna að bæta úr því. Innlent 10.11.2005 19:15
Skuldabréf gefin út fyrir þrjá milljarða í dag Þýskur banki gaf í dag út skuldabréf upp á þrjá milljaðra íslenskra króna. Bréfin eru gefin út til tæplega tveggja ára eða fram í september árið 2007. Innlent 10.11.2005 17:58
Afsláttakortakerfi vegna læknishjálpar óréttlátt Afsláttarkortakerfi vegna læknishjálpar er mjög óréttlátt eins og það er í dag að mati Margrétar Frímannsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, og bitnar það verst á þeim sem eru með langvarandi sjúkdóma. Innlent 10.11.2005 17:28
Fékk 18 mánuði fyrir þjófnaði og tilraun til fjársvika Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir ýmis brot, þar á meðal þjófnaði og tilraun til fjársvika. Maðurinn var meðal annars dæmdur fyrir að hafa stolið skjávarpa af skrifstofu Sjóvá-Almennra og tilraun til að svíkja út vörur í verslun 10-11 í Kópavogi með stolnu debetkorti. Innlent 10.11.2005 17:06
Aðkoma íslenskra lyfjafyrirtækja að baráttunni gegn alnæmi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ræddi við bandaríska þingmenn í gær og í fyrradag um hvernig efla megi baráttuna gegn alnæmi í veröldinni, einkum í Afríku, og hvernig Íslendingar, og þá fyrst og fremst íslensk lyfjafyrirtæki, gætu orðið þar að liði. Innlent 10.11.2005 16:39
Enn talsverð mannekla á leikskólum og tómstundaheimilum Enn vantar starfsfólk í tæp 135 stöðugildi hjá Leikskólum Reykjavíkur og frístundaheimilum borgarinnar, en erfitt hefur reynst að manna þær í sumar og haust vegna þenslu á vinnumarkaði. Ástandið virðist þó vera að skána og umsóknum um störfin fer fjölgandi. Innlent 10.11.2005 15:30
Forréttindi opinberra starfsmanna verði felld niður Stefna á að því að fella niður lögbundin forréttindi opinberra starfsmanna. Þetta sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag. Innlent 10.11.2005 15:22
Konan laus Árásarkona sem gerði tilraun til að ræna leigubílstjóra í gær með loftbyssu var látin laus eftir yfirheyrslur. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort hún verður ákærð. Innlent 10.11.2005 15:05
Alcan á Íslandi hf. hlýtur íslensku gæðaverðlaunin Alcan á Íslandi hf. hlýtur íslensku gæðaverðlaunin í ár . Halldór Ásgrímsson afhenti Rannveigu Rist, forstjóra Alcan, verðlaunin við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í dag. Alcan á Íslandi hf. rekur álverið í Straumsvík. Innlent 10.11.2005 14:59
Aukna þjónustu til sveitarfélaga Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra lýsti yfir vonbrigðum sínum með nýafstaðnar sameiningarkosningar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í morgun. Hann sagði ríkisvaldið hafa staðið við sitt með því að leggja fram tvo og hálfan milljarð en sú hvatning hafi greinilega ekki skilað sér. Innlent 10.11.2005 14:43
Búist við sviptingum í íbúaþróun á þessu ári Búist er við að íbúum á Íslandi fjölgi tölvert á þessu ári umfram það sem verið hefur allmörg undanfarin ár. Þá flytja fleiri frá höfuðborgarsvæðinu en til þess í fyrsta sinn nærri 20 ár. Innlent 10.11.2005 13:57
Búist við 67 milljóna rekstarafgangi á næsta ári Búist er við að rekstarafgangur Mosfellsbæjar verði jákvæður um 67 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem lögð var fram í bæjarráði í dag. Í tilkynningu frá Mosfellsbæ segir að gert sé ráð fyrir að heildartekjur verði 2,9 milljarðar en launakostnaður 1,5 milljarður, þar af renna 1,2 milljarður til fræðslu-, íþrótta- og tómstundamála. Innlent 10.11.2005 13:27
Kona sem ógnaði leigubílstjóra enn í haldi Rúmlega þrítug kona er enn í haldi lögreglu, eftir að hún var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi þegar hún ógnaði leigubílstjóra með eftirlíkingu af skambyssu. Hún hafði boðið bílstjóranum blíðu sína en þegar hann þáði ekki boðið dró hún upp byssuna. Innlent 10.11.2005 12:13
Krónan lækkaði áfram í morgun Gengisvísitala krónunnar veiktist um eitt prósent í gær og fór í 102,8 stig. Hún hélt áfram að lækka í morgun, en aðeins lítils háttar. Eiríkur Guðnason, bankastjóri Seðlabanka Íslands, segir að lækkunin eigi ekki að koma neinum á óvart. Um litla breytingu sé að ræða en krónan hafi verið mjög sterk undanfarið. Innlent 10.11.2005 12:06
Vill banna landeigendum að selja skotveiðiheimild Fuglavinurinn, sjálfstæðismaðurinn og þingmaðurinn Halldór Blöndal vill gera þær breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum, að landeigendum verði bannað að selja skotveiðimönnum heimild til að skjóta fugla á landareignum sínum. Innlent 10.11.2005 10:19
Verðbólga lækkar í fyrsta sinn í fimm mánuði Vísitala neysluverðs í nóvember 2005 lækkaði um 0,16 prósent frá fyrra mánuði og mælist nú 248 stig. Ef ekki er tekið tillit til húsnæðis er vísitalan 231,5 stig og lækkaði hún um 0,43 prósent milli mánaða. Verðbólga síðustu tólf mánaða mælist því nú 4,2 prósent og lækkaði um 0,4 prósentustig á milli mánaða, en fimm mánuðir eru síðan verðbólga hér á landi lækkaði síðast. Innlent 10.11.2005 10:48
Icelandair Cargo fjölgar ferðum verulega Icelandair Cargo fjölgar verulega ferðum með fraktflugvélum til og frá Íslandi í vetur. Alls fjölgar fraktflugi úr átta í ellefu til Liege í Belgíu en Liege er orðin helsti innflutningsflugvöllur fyrir Ísland í Evrópu. Innlent 10.11.2005 07:57
Líklega prófkjör hjá VG á Akureyri Akureyrarfélag Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mun að öllum líkindum efna til prófkjörs til að raða í fjögur efstu sæti framboðslista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Tillaga þess efnis verður rædd á fundi í félaginu næsta mánudag og er talið líklegt að hún verði samþykkt. Innlent 10.11.2005 07:45
Lögbannskrafa Jónínu tekin fyrir í morgun Lögbannskrafa Jónínu Benediktsdóttur á fréttaflutning Fréttablaðsins af tölvupóstsendingum tengdum Baugsmálinu var tekin fyrir í Héraðsdómi í morgun. Ákveðið var að aðalmeðferð í málinu verði 29. nóvember næstkomandi. Innlent 10.11.2005 10:17
Sakar stjórnvöld um skilningsleysi Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, gagnrýnir stjórnvöld harkalega fyrir skilningsleysi á stöðu útflutningsgreina og segir hátt gengi íslensku krónunnar hafa smám saman verið að draga tennurnar úr útflutningsgreinunum og ferðaþjónustunni án þess að nokkuð sé gert. Þetta segir hann í Morgunblaðinu í dag. Innlent 10.11.2005 07:51
Jóna Hrönn nýr prestur í Garðasókn Séra Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur verður nýr prestur í Garðaprestakalli. Að þessu komst valnefnd í prestakallinu á fundi Í gærkvöld. Sjö umsækjendur voru um embættið, þar á meðal séra Hans Markús Hafsteinsson, fyrrverandi prestur í Garðasókn, sem færður var til í starfi eftir deilur innan safnaðarins. Innlent 10.11.2005 09:58
Ráðherra taki þátt í málefnalegri umræðu um stúdentspróf Ungliðar í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði á Akureyri eru andvígir styttingu náms til stúdentsprófs og skora á menntamálaráðherra að taka þátt í málefnalegri og samfélagslegri umræðu um skerðingu náms til stúdentsprófs og samræmd stúdentspróf í stað þess að hunsa nemendur og koma sér undan umræðu líkt og gerst hafi í Menntaskólanum á Akureyri á þriðjudaginn. Innlent 10.11.2005 07:43
Ekkert þokast í máli Arons Pálma Ekkert hefur þokast í máli Arons Pálma Ágústssonar frá því náðunarbeiðni hans var hafnað í byrjun október. Utanríkisráðuneytið kveðst ekki sjá sér fært að aðhafast í málinu en það segja forsvarsmenn RJF-hópsins vonbrigði enda hefði fyrir löngu átt að vera búið að gera málið pólitískt. Aron gefst þó ekki upp. Innlent 10.11.2005 07:39
Tvær rúður á bílaleigu sprengdar Tvær rúður í afgreiðsluhúsi Bílaleigu Flugleiða við Akureyrarflugvöll voru sprengdar með heimatilbúnum sprengjum í nótt. Sprengjurnar virðast hafa verið límdar á rúðurnar og síðan sprengdar. Ekkert bendir til þess að sprengjuvargarnir hafi stolið neinu og eru þeir ófundnir. Innlent 10.11.2005 07:34
Ráðherra svaraði ekki kærunum Íbúar í Grafarvogi eru afar ósáttir við úrskurð umhverfisráðherra varðandi mat á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga Sundabrautar og landfyllingu við Gufunes. Fjórar kærur voru lagðar fram í málinu og segir fulltrúi íbúa að ráðherra hafi engan veginn svarað kærunum. Innlent 10.11.2005 00:10