Lög og regla

Fréttamynd

Ungur maður lífshættulega slasaður

Ungur maður er lífshættulega slasaður eftir alvarlegt umferðarslys í Þrastarskógi síðdegis þegar tveir fólksbílar, sem komu úr gagnstæðum áttum, skullu saman. Í hinum bílnum voru kona og eins árs barn og eru þau minna slösuð að sögn lögreglunnar á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Enn einn handtekinn

Einn enn hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál síðustu ára. Maðurinn sem er um þrítugt var handtekinn í fyrradag og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald síðar sama dag.

Innlent
Fréttamynd

Leysti frá skjóðunni

Einn höfuðpauranna í höfundarréttarstuldinum, sem lögregla hóf víðtæka rannsókn á í fyrrakvöld, ákvað í gærkvöldi að leysa frá skjóðunni til að komast hjá því að verða úrskurðaður í gæsluvarðhald. Var hann þá kominn ásamt lögreglumönnum í húsakynni Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fjalla átti um kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurðaður í gæsluvarðhald

Karlmaður um þrítugt var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni, amfetamíni og LSD. Þar með sitja sjö í gæsluvarðhaldi vegna málsins, fimm hér á landi og tveir í Hollandi.

Innlent
Fréttamynd

80% drengja hala ólöglega niður

Um áttatíu prósent drengja í tíunda bekk sækja kvikmyndir og tónlist á Netið með samskonar forriti og nú er til rannsóknar hjá lögreglunni vegna meints höfundarréttarstuldar. Einn höfuðpauranna í því máli ákvað að leysa frá skjóðunni til þess að komast hjá gæsluvarðhaldi.

Innlent
Fréttamynd

Haldið sofandi í öndunarvél

Átján ára piltur slasaðist alvarlega þegar bifreið sem hann ók skall framan á annarri bifreið Biskupstungnabraut um miðjan dag í gær.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglan lýsir eftir dreng

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Albert Þór Benediktssyni, 14 ára, sem síðast sást til í Faxafeni sunnudaginn 26. september síðastliðinn klukkan 17:50. Þeir sem hafa orðið hans varir, eða vita hvar hann er nú, eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma við 444 1102.

Innlent
Fréttamynd

Íkveikja á Blönduósi

Kveikt var í atvinnuhúsinu sem brann á Blönduósi aðfaranótt þriðjudags. Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík rannsakaði brunarústirnar og komst að þessari niðurstöðu. Enginn er grunaður um verkið að svo stöddu og er rannsókn málsins á frumstigi.

Innlent
Fréttamynd

Þarf að greiða milljóna sekt

Fyrrum stjórnarformaður og framkvæmdarstjóri einkahlutafélags var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbunið fangelsi fyrir brot á virðisaukaskattslögum.

Innlent
Fréttamynd

Leit vegna ólöglegrar dreifingar

Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega til annarra, kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Nokkrir voru handteknir.

Innlent
Fréttamynd

Einn handtekinn í viðbót

Einn maður til viðbótar var handtekinn í morgun vegna rannsóknar á umfangsmiklu smygli á fíkniefnum til landsins. Hann hefur lítið komið við sögu fíkniefnamála áður. Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins hér á landi og tveir til viðbótar eru í haldi lögreglu í Hollandi.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur gekk fulllangt

Lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson stóðu að mati Hæstaréttar öðrum umsækjendum töluvert framar að hæfni, en ráðherra segir dóminn hafa gengið fulllangt í mati sínu.

Innlent
Fréttamynd

Fartölvum stolið

Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í fyrrinótt og gærmorgun. Fartölvum var stolið úr tveimur bílanna, sem voru í Þingholtunum.

Innlent
Fréttamynd

Ákvörðun ráðherra kom ekki á óvart

Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og annar af hæfustu umsækjendum um stöðu dómara við Hæstarétt að mati dómara réttarins, segir að skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar komi honum ekki á óvart. Jón Steinar hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra verið skipaður hæstaréttardómari frá og með 15. október næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Ráðuneytið staðfestir skipunina

Dómsmálaráðuneytið hefur staðfest að Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor og hæstaréttarlögmaður, hafi verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 15. október næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Grunur um íkveikju á Blönduósi

Talið er víst að rekja megi eldsvoðann á Blönduósi í fyrrakvöld til íkveikju. Þá brann fjögur þúsund fermetra iðnaðarhús við Efstubraut til grunna. Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Blönduósi segir að rannsókn tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík á vettvangi eldsvoðans hafi leitt í ljós rökstuddan grun um um íkveikju.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdarvargarnir ófundnir

Lögreglan á Höfn í Hornafirði hefur enn ekki haft upp á skemmdarvarginum eða -vörgunum sem fóru hamförum um Byggðasafn Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Hún segist vera að vinna úr vísbendingum sem borist hafa og kortleggja ferðir einstakra manna.

Innlent
Fréttamynd

Jón Steinar ráðinn

Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að gengið verði frá ráðningu Jóns Steinars Gunnlaugssonar í embætti Hæstaréttardómara síðar í dag. Það mun koma í hlut fjármálaráðherra, sem er settur dómsmálaráðherra í málinu, að skipa í embættið.

Innlent
Fréttamynd

2 mánuðir og 17 milljónir

Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og til greiðslu rúmlega 17 milljóna króna fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda á árunum 2001 og 2002.

Innlent
Fréttamynd

Höfuðpaurar 100 manna hóps

Tólf menn, sem grunaðir eru um stórfellda ólöglega dreifingu á kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum á Netinu, voru handteknir í gær eftir umfangsmikla húsleit Ríkislögreglustjóra og lögreglu víða um land. Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir einum þeirra. Hald var lagt á búnað í fórum mannanna en talið er að þeir séu höfuðpaurar í hundrað manna lokuðum hópi. 

Innlent
Fréttamynd

ADSL notkun hrundi

Notkun á ADSL-neti Símans dróst saman um 50 til 60 prósent eftir að menn frá ríkislögreglustjóra lögðu hald á tölvur og tölvubúnað tólf einstaklinga í húsleitum í fimm lögregluumdæmum á þriðjudag.

Innlent
Fréttamynd

Ákærður fyrir sex líkamsárásir

Hálfþrítugur þekktur ofbeldismaður í Hafnarfirði tók sér frest til að tjá sig um sex líkamsárásir og vopnalagabrot sem hann er ákærður fyrir þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Ákæra á hendur manninum, fyrir að hafa slegið mann í höfuðið með öxi á veitingastaðnum A.Hansen í Hafnarfirði síðasta dag ágústmánaðar, er í undirbúningi.

Innlent
Fréttamynd

Það versta sem ég hef lent í

"Maður bara brotnar niður þegar maður horfir á fyrirtækið sitt brenna," segir Vilhjálmur Stefánsson, sem er einn þriggja eigenda Bílaþjónustunnar sem var með starfsemi í Votmúla á Blönduósi.

Innlent
Fréttamynd

Horfði á eigið fyrirtæki brenna

Varaslökkviliðsstjórinn á Blönduósi var í þeirri sérstöku aðstöðu í fyrrinótt að vera að reyna að slökkva eld í sínu eigin fyrirtæki.

Innlent
Fréttamynd

Kýldi lögreglumann

Maður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en hann er sakaður um að hafa kýlt lögreglumann með krepptum hnefa í andlitið í maí í fyrra. Maðurinn mætti ekki í Héraðsdóm Reykjaness þegar átti að þingfesta málið í gær.

Innlent
Fréttamynd

Kúgaðir í fangelsum

Kynferðisglæpamenn hafa löngum verið fyrirlitnir af samföngum sínum, sem gjarnan ráðast á þá með fúkyrðum og jafnvel ofbeldi, að sögn Ara Björns Thorarensen, formanns Fangavarðafélags Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert lát á straumi fíkniefna

Mörg stór fíkniefnamál hafa komið upp síðustu ár. Tólf ára fangelsisdómur yfir Austurríkismanni var mildaður í níu ár í Hæstarétti. Tryggvi Rúnar Guðjónsson situr nú af sér tíu ára fangelsisdóm sem er þyngsti fíkniefnadómur Hæstaréttar. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Karlmaður nefbraut stúlku í nótt

Stúlka nefbrotnaði er hún var slegin í andlitið fyrir utan veitingastað við Hafnargötu í Keflavík í nótt samkvæmt Víkurfréttum. Árásaraðilinn er karlmaður og var hann yfirheyrður af lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Ók á hliðstólpa

Maður ók á hliðstólpa skammt frá Bíldudal um fimmleytið á sunnudagsmorguninn. Stólpinn gekk í gegnum framrúðuna á bílnum og í höfuð ökumannsins sem hlaut af því töluverða áverka. Ökumaðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF, á Borgarspítalann.

Innlent
Fréttamynd

Þyrlan send vegna umferðarslyss

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð vestur á Bíldudal klukkan sex í morgun vegna umferðarslyss sem átti sér stað klukkustund áður. Þá ók fólksbifreið í gegnum handrið á rimlahliði í útjaðri bæjarins. Tveir menn á þrítugsaldri voru í bílnum og flaug farþeginn í gegnum framrúðuna og lenti á viðardrumbi í hliðinu.

Innlent