Íslendingar erlendis

„Úkraínumönnum gengur mjög vel þegar þeir fá að vera í friði“
Margeir Pétursson, hluthafi í úkraínska bankanum Bank Lviv til sextán ára, segir að Úkraínu gangi vel þegar landið er laust við ytri áföll. Töluverður árangur, einkum vegna aðhalds frá alþjóðastofnunum, hefur náðst í því að draga úr spillingu, sem er að hans sögn stærsta efnahagslega vandamál Úkraínu.

Lífið þarf að vera spennandi áskorun
„Maður þarf náttúrlega að hafa einhvern tilgang í lífinu en það þarf að vera eitthvað sem er spennandi, sem er áskorun eða áhætta til að þetta verði ekki alltaf sami hversdagurinn,“ svaraði Egill Þorri Steingrímsson þegar hann var spurður um hvað veitti honum hamingju.

Alexander tekinn inn í frægðarhöll Löwen og treyjan upp í rjáfur
Rhein Neckar-Löwen heiðraði Alexander Petersson fyrir leik liðsins gegn Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.

Íslenskir dýralæknanemar hafa safnað milljónum króna fyrir flóttafólk
Íslenskir dýralæknanemar í Slóvakíu standa fyrir söfnun fyrir úkraínskt flóttafólk í landinu og á landamærum úkraínu og Slóvakíu. Þegar hafa safnast ríflega fimm milljónir króna sem nemarnir hafa varið í ýmsar nauðsynjavörur, til að mynda hráefni í heimagerðar samlokur.

Stökkið: Embla Wigum getur breytt sér í álfa og avatar með 1,6 milljónir fylgjenda á Tik Tok
Embla Wigum er hæfileikabúnt en efnið sem hún gefur frá sér er uppfullt af sköpunargáfu og er mikill metnaður lagður í framleiðsluna. Hún er búsett í London sem hún féll fyrir þegar hún bjó þar í hálft ár aðeins fimmtán ára gömul.

Líður öruggari með hverjum deginum sem líður: „Ég veit ekki hvað ég taldi margar hríðskotabyssur“
Íslendingur sem búsettur er í Kænugarði óttast ekki að Rússar séu að undirbúa áhlaup á borgina. Hann segir tilraunir Rússa til að ná úkraínskum borgum á sitt vald hafa misheppnast hrapalega. Næstu tveir dagar komi til með að segja mikið um framhald stríðsins.

Lokaður inni í átta fermetra gámi í viku
Eftir þrotlausa vinnu, undirbúning og æfingar mátti skíðakappinn Sturla Snær Snorrason sætta sig við að verja meirihluta tíma síns á Ólympíuleikunum lokaður inni í átta fermetra gluggalausum gámi eftir að hafa greinst með covid smit á versta mögulega tíma.

„Hryllingur að þetta sé að gerast 2022“
Mikið mæðir á sjálfboðaliðum við landamæri Póllands og Úkraínu sem taka á hverjum degi á móti þúsundum flóttafólks.

Rússneskur almenningur finnur fyrir refsiaðgerðum
Refsiaðgerðir gegn Rússum eru farnar að hafa áhrif á almenna borgara þar í landi. Sendiherra Íslands í Rússlandi segir fólk finna fyrir því að verðlag hafi hækkað á skömmum tíma og að vöruskortur sé byrjaður að myndast.

Axel, Kitta og Ylfa búa í átján fermetra húsi í Portúgal sem kostaði 2,5 milljónir
Axel, Kitta og dóttir þeirra Ylfa Lotta voru búin að fá nóg af kuldanum og asanum í stórborginni Berlín þegar þau ákváðu að kaupa sér jörð með húsarúst á portúgölsku fjalli árið 2017.

Hlín Björnsdóttir og Gigi Hadid saman á tískupöllunum
Fyrirsætan Hlín Björnsdóttir gekk tískupallana hjá Andreas Kronthaler fyrir Vivienne Westwood um helgina. Hún var umvafin stórskotaliði tískuheimsins en ásamt henni sýndu meðal annars Gigi Hadid, Bella Hadid og Lindsey Wixson.

Þurfum ekki að vera föst í hlekkjum fasteignalána og endalausum veðurviðvörunum
„Það var náttúrlega ekki alveg einfalt að vera sjónvarpsþáttaframleiðandi í miðjum heimsfaraldri,“ segir Lóa Pind, sem fer í kvöld aftur af stað með þætti sína Hvar er best að búa?

Stökkið: „Við höfum búið saman í Vín, Aþenu, Malmö og nú Boston“
Andrea Röfn Jónasdóttir hefur verið búsett í Vínarborg, Aþenu og Malmö en á síðasta ári flutti fjölskyldan til Boston þar sem eiginmaður hennar Arnór Ingvi Traustason spilar fótbolta í MLS deildinni.

Húsið hristist eftir öflugar sprengingar í miðborg Kænugarðs
Óskar Hallgrímsson, íslenskur ljósmyndari sem búsettur er í Kænugarði, segir að borgin minni á draugaborg. Fregnir af gríðarlangri hergagnalest Rússa sem sögð er stefna í átt að borginni vekur ugg.

Íslendingur í Kænugarði segir ýmis vandamál virðast plaga Rússa
Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem búsettur er í Kænugarði, segir síðasta sólahring hafa verið nokkuð rólegan í borginni, fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar.

Búa til bensínsprengjur og smyrja brauð
Íslendingur í Kænugarði segir það hafa verið magnað að fylgjast með samstöðu Úkraínumanna á síðustu dögum. Hann heimsótti sjálfboðaliða í borginni í gær sem elda mat ofan úkraínska hermenn í fremstu víglínu.

Íslendingur tekur við stjórnartaumum útgerðarrisa í Bandaríkjunum
Bandaríski útgerðarrisinn American Seafood Group, sem er eitt stærsta fyrirtækið á heimsvísu í veiðum á Alaskaufsa og Kyrrahafslýsingi, hefur ráðið Íslendinginn Einar Gústafsson sem forstjóra.

„Úkraínska þjóðin minnir mig stundum á Íslendinga“
Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari sem búsettur er í Kænugarði í Úkraínu, segir nóttina í úkraínsku höfuðborginni hafa verið nokkuð rólega. „Maður er samt orðinn pínu ruglaður af öllu þessu stressi. Ég svaf sjálfur ekkert vel en það var ekki mikið um sprengingar og læti í nótt.“

„Enn þá meiri uggur í mér“
Íslendingur sem býr í Kænugarði segist lítið hafa sofið í nótt fyrir sprengingum. Útgöngubann tók gildi þar klukkan þrjú í dag og stendur til átta í fyrramálið. Hann segir óþægilegt að hafa fylgst með starfsfólk Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu flýja úr borginni í morgun.

„Ég vaknaði nokkrum sinnum við sprengingar og byssuhvelli“
Miklir bardagar voru í Kænugarði í nótt og heyra mátti sprengingar og byssuhvelli. Borgarstjóri Kænugarðs sagði í tilkynningu í morgun að 35 almennir borgarar hafi særst í átökunum í nótt, þar af tvö börn.

Stökkið: „Áður en ég kom hingað hafði ég búið í Argentínu, Hondúras, Austurríki og á Spáni“
Sunneva Sverrisdóttir er búsett í Danmörku með unnustanum sínum Oliver B. Pedersen sem hún kynntist á Grikklandi sumarið áður en hún flutti til Danmerkur. Hún flutti út fyrir tæpum sex árum síðan til þess að hefja nám við einn besta viðskiptaháskóli í Evrópu, CBS. Hún hefur verið dugleg að ferðast og skoða heiminn í gegnum tíðina og vill helst vera þar sem sólin er.

Íbúar Kænugarðs leita skjóls í neðanjarðarlestarstöðvum
Fólk hefur hópast niður í neðanjarðarlestarstöðvarnar í Kænugarði frá því loftvarnaflautur fóru að hljóma í gær.

Halda ró sinni en tilbúin með vegabréfið ef allt fer á versta veg
Fólk er ekki bara óttaslegið í Úkraínu. Í Slóvakíu og Ungverjalandi búa um 200 íslenskir læknanemar sem hafa áhyggjur af næstu skrefum. Læknanemar á báðum stöðum halda ró sinni en eru tilbúnir með vegabréfin ef að allt fer á versta veg.

Hvetjum ungt fólk til að ná sér í reynslu erlendis
Mig grunar að flestir Íslendingar telji að við búum í landi sem uppfyllir flestar okkar þarfir, hér er friður og farsæld og fjölbreytt mannlíf. Þó er okkur alltaf hollt að hleypa heimdraganum og kynnast nýjum tækifærum, sérstaklega ungu fólki.

Heldur til í sprengjuskýli: Bardagar allt í kring um borgina
Íbúar í Kænugarði, sem hafa ekki flúið borgina, eru nú margir í sprengjuskýlum vegna árása Rússa í morgun. Rússar hófu árásir af fullum krafti um klukkan fjögur í nótt en tvær íbúðabyggingar í Kænugarði urðu fyrir rússneskri þotu sem var skotin niður og eru nú rústir einar.

Var viku að forða eignum fyrirtækisins úr landi
Aron Arngrímsson, íslenskur kafari og atvinnurekandi sem hefur stundað rekstur í Úkraínu undanfarin ár, vann sleitulaust að því undanfarna viku að færa allar eignir fyrirtækis síns úr landi og í bandarískan banka.

Matvöruverslanir og hraðbankar tæmdir í Kænugarði
Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og íbúi í Kænugarði í Úkraínu var nokkuð rólegur þegar fréttastofa náði af honum tali á tólfta tímanum. Hann segir íbúa borgarinnar þó mjög kvíðna fyrir komandi dögum og mikil óvissa ríki meðal landsmanna um framhaldið.

Sextán íslenskir ríkisborgarar enn í Úkraínu
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins fylgist grannt með stöðu 28 einstaklinga sem staddir eru í Úkraínu. Sextán þeirra eru íslenskir ríkisborgarar og hinir tólf hafa náin tengsl við Ísland, eru annað hvort makar eða börn íslenskra ríkisborgara.

Elísabet og Steinar Bragi tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Rithöfundarnir Elísabet Jökulsdóttir og Steinar Bragi eru í hópi þeirra fjórtán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Verðlaunin verða hafhent í Helsinki í Finnlandi 1. nóvember. Elísabet er tilnefnd fyrir Aprílsólarkulda og Steinar Bragi fyrir Truflunina.

Sigur Rós í upptökum í Abbey Road og tilkynnir fyrsta tónleikaferðalagið í fimm ár
Hljómsveitin Sigur Rós mun í vor og sumar fara á tónleikaferðalag. Munu þeir meðal annars koma fram í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Miðasalan hefst formlega á morgun.