Erlent
Olmert falið að mynda stjórn Moshe Katsav, forseti Ísraels, hefur falið Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra, að mynda næstu ríkisstjórn landsins. Kadima-flokkur Olmerts hlaut flest þingsæti í kosningum í Ísrael í síðustu viku. Erlent 6.4.2006 10:09
Merck gert að greiða skaðabætur Kviðdómur í Bandaríkjunum hefur dæmt lyfjafyrirtækið Merck til að greiða manni jafnvirði tæplega 330 milljóna króna í skaðabætur fyrir að hafa leynt aukaverkunum verkalyfsins Vioxx. Erlent 6.4.2006 09:57
Olíuverð fór yfir 67 dollara Olíuverð fór yfir 67 Bandaríkjadali á tunnu á helstu mörkuðum í dag eftir að ríkisstjórn Bandaríkjanna greindi frá því að eldsneytisbirgðir í landinu hefðu minnkað. Viðskipti erlent 6.4.2006 10:19
Sprengjuárás á helgidóm sjía í Najaf Óttast er að fjölmargir hafi farist þegar bílsprengja sprakk nálægt helgidómi sjía-múslima í borginni Najaf í Írak í morgun. Erlent 6.4.2006 10:02
Fuglaflensa dregur 3 til dauða í Egyptalandi Staðfest var í dag að 16 ára stelpa í Egyptalandi lést af völdum fuglaflensu og hefur þá flensan dregið þrjár manneskjur til dauða þar í landi. Erlent 6.4.2006 09:28
Visa og FIFA sögð í samningaviðræðum Líkur er sagðar á að greiðslukortafyrirtækið Visa verði styrktaraðili heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu frá og með næsta ári. Styrktarsamningur Visa er sagður hljóða upp á 150 til 200 milljónir punda, jafnvirði 19 til rúmlega 25 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 6.4.2006 09:23
Kennari særðist í áhlaupi Að minnsta kosti 7 Palestínumenn voru handteknir og 2 særðust þegar Ísraelsher gerði áhlaup á hús í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun. Annar þeirra sem særðust er kennara sem var á leið til vinnu sinnar þegar áhlaupið var gert. Erlent 6.4.2006 08:53
Jesú gekk á ísfleka Prófessor við ríkisháskóla Flórída í Bandaríkjunum telur sig vera búinn að afsanna að Jesús hafi gengið á vatni, eins og greint er frá í bíblíunni. Erlent 6.4.2006 07:20
Um 30.000 farþegar bíða flugs í Noregi Flugfreyjur og flugþjónar hjá SAS Braatens flugfélaginu í Noregi hófu verkfall í morgun og hefur félagið fellt niður 400 flug og komast 28.000 farþegar ekki leiðar sinnar. Þar af eru margir á leið í langt páskafrí og eiga 33.000 manns pantað með félaginu á morgun. Talsmenn félagsins segja þetta mikið áfall þar sem í hönd fari mikill annatími. Erlent 6.4.2006 08:02
Íbúar skjálftasvæðanna farnir að snúa heim á ný Íbúar á þeim svæðum sem verst urðu úti í jarðskjálftunum í Pakistan í fyrra eru nú farnir að halda til síns heima. Nærri sex mánuðir eru síðan að skjálftarnir riðu yfir í Pakistan en sá stærsti var 7,6 á richter. Yfir áttatíu þúsund manns létu lífið í skjálftunum og yfir þrjár milljónir manna misstu heimili sín. Erlent 6.4.2006 07:16
Fyrsti dökki þingmaðurinn á Ítalíu? Hörundsdökkur þingmaður gæti í fyrsta sinn náð þingsæti á Ítalíu og það sem meira er, þingmannsefnið er líka kona. Auglýsingar Aminötu Fofana stinga nokkuð í stúf í öllu auglýsingafarganinu sem fylgir síðustu dögunum fyrir þingkosningarnar. Hún er konungborin og fæddist í Gíneu í Afríku. Erlent 5.4.2006 18:18
Bjuggu til fyrirtæki Bandaríska leyniþjónustan hefur kerfisbundið notfært sér tilbúin fyrirtæki sem ekkert er á bakvið til að halda leynd yfir fangaflugi. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum rannsókna Amnesty International á fangafluginu. Erlent 5.4.2006 18:15
Prestur grunaður um misnotkun á 20 börnum Lögreglan á Ítalíu handtók í dag prest sem grunaður er um að hafa, í um áratug, misnotað yfir tuttugu börn úr sókninni hans. Saksóknarar hafa safnað vitnisburði um eitthundrað tilfelli frá um tuttugu drengjum. Þeir halda því fram að presturinn hafi misnotað þá kynferðislega á árunum 1993 - 2004. Verði presturinn, sem er 43 ára, fundinn sekur má hann búast við allt að 10 ára fangelsi. Erlent 5.4.2006 17:06
Nálgast metverð á laxi Verð á laxi á alþjóðlegum fiskmörkuðum hefur hækkað verulega upp á síðkastið og nálgast nú sögulegt hámark. Kíló af laxi er komið í 40 norskar krónur, jafnvirði rúmra 400 íslenskra króna og hefur það ekki verið hærra í sex ár. Verð á laxi getur umtalsverð áhrif á afkomu Alfesca. Viðskipti erlent 5.4.2006 16:56
NTL kaupir Virgin Mobile Stjórn breska fjárfestingafyrirtækisins Virgin Group hefur samþykkt yfirtökutilboð breska kapalfyrirtækisins NTL á farsímasviði fyrirtækisins, Virgin Mobile. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 962,4 milljónir punda, jafnvirði rúmlega 122 milljarða íslenskra króna. Eftir kaupin verður til fyrsta fyrirtækið á Bretlandseyjum sem býður jafn kapalsjónvarpsstöðvar, netveitu, fastlínusamband og farsímaþjónustu. Viðskipti erlent 5.4.2006 15:52
Gengi bréfa hækkaði í Taílandi Hlutabréfavísitalan í Taílandi hækkaði um tæpt 3,1 prósent eftir að Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra landsins, tilkynnti í gær að hann ætli að segja af sér. Hann lét hann af embætti í morgun. Vísitalan hefur hækkað um 7 prósent á árinu og hefur ekki verið hærri síðan í janúar 2004. Viðskipti erlent 5.4.2006 11:51
Milosevic lést af náttúrulegum orsökum Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést af náttúrulegum orsökum. Þetta er niðurstaða þýsks saksóknara sem rannsakaði lát Milosevic sem segir ekkert benda til þess að dauða hans hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 5.4.2006 10:27
Gagnrýnd fyrir of háan reikning Lene Espersen, dómsmálaráðherra Danmerkur, sætir nú gagnrýni fyrir að hafa boðið nánustu samstarfsmönnum á jólahlaðborð á kostnað ríkisins stuttu eftir að hún var skipuð í embætti árið 2001. Politiken greinir frá því að danska ríkisendurskoðunin hafi gert athugasemdir við reikninginn en Espersen bauð samstarfsmönnum sínum á veitingastaðinn Ero Oro og hljóðaði reikningurinn upp á rúm 19.000 danskra króna eða sem samsvarar tæpum 230.000 íslenskra króna. Erlent 5.4.2006 09:56
Saddam aftur fyrir rétt Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, mætti aftur fyrir rétt í morgun. Hann sakaði innanríkisráðuneyti Íraks um að hafa myrt og pyntað þúsundir manna. Verið er að yfirheyra Saddam um morð á sjía-múslinum á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 5.4.2006 08:41
Hörð átök milli mótmælenda og lögreglu í Frakklandi Til harðra átaka kom milli óeirðarlögreglu og mótmælenda í Frakklandi í gær. Lögreglan telur að um ein milljón manna hafi tekið þátt í mótmælunum en verkalýðsforystan telur að sú tala sé nær þremur milljónum. Lögreglan handtók um fjögurhundruð manns. Erlent 5.4.2006 07:14
Ekkert lát er á flóðunum í Mið-Evrópu Ekkert lát er á flóðum í Mið-Evrópu. Íbúar í Austurríki og Tékklandi hafa unnið myrkranna á milli til að reyna að koma í veg fyrir að flóðin valdi meira tjóni. Flóðin hófust í síðustu viku eftir miklar rigningar undanfarið. Erlent 5.4.2006 07:04
Kemur Finnum í opna skjöldu Kaup Roberts Tchenguiz á yfir átta prósenta hlut í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo, fyrir 60 milljarða króna, hafa komið verulega á óvart í finnskum fjármálaheimi, enda Tchenguiz algjörlega óþekkt nafn þarlendis. Hollenska eignarhaldsfélagið Exafin, sem er í eigu Tchenguiz, er þar með orðið þriðji stærsti hluthafinn í Sampo á eftir finnska ríkinu og Varma lífeyrissjóði.. Viðskipti erlent 4.4.2006 20:23
Ákærður fyrir fjöldamorð á Kúrdum Saddam Hussein hefur verið ákærður fyrir þjóðarmorð á íröskum Kúrdum á níunda áratugnum. Allt að hundrað og áttatíu þúsund manns eru taldir hafa týnt lífi í fjöldamorðunum. Erlent 4.4.2006 16:56
Saddam ákærður fyrir fjöldmorð á Kúrdum Talsmaður dómstólsins í Írak sem réttar yfir Saddam Hussein hefur lýst því yfir að einræðisherrann fyrrverandi verði brátt ákærður fyrir fjöldamorð á Kúrdum á ofanverðum níunda áratugnum. Erlent 4.4.2006 13:32
118 ferðamenn handteknir í Brasilíu Hundrað og átján ferðamenn voru handteknir á næturklúbbi í strandbænum Natal í Norður-Brasilíu nýverið. Ferðamennirnir eru flestir frá Portúgal, Spáni, Frakklandi, Ítalíu og Noregi. Norski fréttavefurinn Aftenposten greinir svo frá en nokkrir Norðmenn voru handteknir. Erlent 4.4.2006 09:38
Taka þátt í kosningum ef Thaksin Shinawatra hættir í stjórnmálum Formenn stjórnarandstöðuflokkanna í Taílandi hafa lýst því yfir að þeir taki þátt í þingkosningum ef boðað verður aftur til þeirra í landinu, þetta er þó gegn því að Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra, landsins hætti afskiptum af stjórnmálum. Erlent 4.4.2006 09:43
Víðtækar mótmælaaðgerðir fyrirhugaðar í Frakklandi Frakkar búa sig nú undir alsherjarverkföll og víðtækar mótmælaaðgerðir um allt landið í dag. Tilgangur aðgerðanna er að mótmæla nýjum lögum um vinnulöggjöf í landinu. Lögin hafa vakið miklar deilur en það auðveldar atvinnurekendum að reka ungt fólk úr vinnu. Erlent 4.4.2006 08:43
27 hafa farist í skýstrókum í miðvesturríkjum Bandaríkjanna Tuttugu og sjö hafa farist í miklum skýstrókum sem gengið hafa yfir miðvesturríki Bandaríkjanna undanfarna daga. Haglkorn á stærð við appelsínur hafa fallið af himnum og tré rifnað upp með rótum í veðurofsanum. Erlent 4.4.2006 07:38
Prodi með forskot á Berlusconi Snörp orðaskipti einkenndur kappræður Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, og Romano Prodi, forystumanns stjórnarandstöðunnar, sem fram fóru í gær. Aðeins er um ein vika í þingkosningarnar á Ítalíu og hefur fylgi Prodi mælst um fimm prósent meira í könnunum. Erlent 4.4.2006 07:29
Moussaoui úrskurðaður sakhæfur Kviðdómur í máli al-Qaeda liðans Zacaris Moussaoui úrskurðaði í gær að hann væri sakhæfur, en hann á nú dauðarefsingu yfir höfði sér. Þetta var einróma niðurstaða kviðdómsins í Virginíu í Bandaríkjunum. Erlent 4.4.2006 07:23
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent