Erlent
Ráðherrar sviptir bílahlunnindum Ráðherrar í norsku ríkisstjórninni hafa verið sviptir þeim hlunnindum að mega velja sér einkabíla til afnota, fyrir utan ráðherrabílana með bílstjórum allan sólarhringinn. Erlent 4.5.2006 08:36
Sektir fyrir að hífa upp verð Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær frumvarp sem kveður á um háar sektir olíufélaga sem reyna að halda bensínverði háu. Frumvarpið verður þó ekki að lögum nema öldungadeild þingsins samþykki það líka. Erlent 4.5.2006 08:07
Varnarkerfið virkaði ekki Varnarkerfi vegna flóðbylgja virkuðu ekki sem skildi í gær þegar jarðskjálfti upp á tæpa átta varð í sunnanverðu Kyrrahafinu í gær. Flóðbylgjuviðvörun barst ekki til Toga sem er næst upptöku skjálftans. Erlent 4.5.2006 08:01
Níu fórust við dómshús Í það minnsta níu manns létu lífið þegar bílsprengja sprakk við dómshús í Bagdad í morgun. Að sögn lögreglu særðust í það minnsta 46 manns í árásinni. Þá fundust í morgun lík tuttugu manna nærri Tikrit. Þeir höfðu verið ráðnir af dögum. Erlent 4.5.2006 07:44
Flóðbylgjuviðvörun dregin til baka Flóðbylgjumiðstöð Kyrrahafs hefur dregið til baka flóðbylgjuviðvörun vegna jarðskjálftans sem varð nærri eyjunni Tonga í Kyrrahafi í dag. Skjálftinn mældist 8,1 á Richter og var í fyrstu óttast að flóbylgja gengi yfir nærliggjandi eyjar, Fídji og Nýja-Sjáland. Erlent 3.5.2006 18:20
Jarðskjálfti upp á 8,1 á Richter Jarðskjálfti upp á 8,1 á richter varð á Tongasvæðinu austur af Ástralíu um klukkan hálf fimm. Ekki er enn ljóst hvort manntjón varð eða hverjar skemmdir vegna skjálftans séu. Gefin hefur verið út flóðbylgjuviðvörun fyrir Fijieyjar, Nýja Sjáland og Kyrrahafið. Erlent 3.5.2006 17:05
Lokað fyrir viðskipti í Eurotunnel Breska fjármálaeftirlitið hefur lokað fyrir viðskipti með hlutabréf í félaginu Eurotunnel í kauphöll Lundúna í Bretlandi (LSE). Eurotunnel rekur umferðargöng undir Ermarsund á milli Bretlands og Frakklands. Ástæða lokunarinnar er sú að stjórn Eurotunnel skilaði ekki uppgjöri fyrir síðasta ár áður en lokafrestur rann út. Viðskipti erlent 3.5.2006 12:35
Easyjet tapaði 5,5 milljörðum króna Breska lággjaldaflugfélagið Easyjet tapaði 40,3 milljón pundum, jafnvirði rúmlega 5,5 milljarða íslenskra króna, fyrir skatta í mars á sex mánaða tímabili. Á sama tímabili í fyrra tapaði fyrirtækið 21,6 milljón pundum. Helsta ástæða tapsins er 49 prósenta hækkun á eldsneytisverði og páskahátíðin, sem var í apríl. Þrátt fyrir þetta er búist við að afkoma fyrirtækisins verði allt að 15 prósent meiri en á síðasta ári. Viðskipti erlent 3.5.2006 12:02
Aðildarviðræðum ESB við Serbíu frestað Evrópusambandið hefur slegið aðildarviðræðum við Serbíu á frest. Ástæðan er sú að Serbar hafa enn ekki handtekið og framselt Radko Mladic, sem er ákærður fyrir stríðsglæpi í Bosníustríðinu. Erlent 3.5.2006 10:32
Verðbólga innan OECD 2,6 prósent í mars Verðbólga mældist að meðaltali 2,6 prósent í mars á 12 mánaða tímabili í löndum innan Efnhags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD). Í febrúar mældist verðbólgan 2,8 prósent á 12 mánaða tímabili. Verðbólga innan OECD hækkaði um 0,4 prósent frá febrúar til mars. Á milli janúar og febrúar hækkaði hún hins vegar um 0,2 prósent. Viðskipti erlent 3.5.2006 10:02
Sjóránum fjölgar Sjóránum fjölgaði lítillega fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. Höfin nærri Sómalíu, Nígeríu og Indónesíu eru sérstaklega viðsjárverð fyrir haffarendur. Nú ber hins vegar svo við að engin sjórán voru reynd á Malakkasundi en þar hefur löngum verið mikið um sjórán. Erlent 3.5.2006 08:02
Talið að allir farþegar hafi farist Björgunarmenn hafa gefið upp alla von um að finna nokkurn á lífi eftir að armensk farþegaflugvél hrapaði í Svartahafið sex sjómílur undan strönd Rússlands. 113 manns voru í borðinu og fullvíst þykir að þeir séu allir látnir. Kafarar leita nú að líkamsleifum þeirra sem voru um borð. 26 lík hafa þegar fundist. Erlent 3.5.2006 08:47
Herinn settur í viðbragðsstöðu Lögreglumenn tóku sér stöðu við 56 gasfyrirtæki og starfsstöðvar þeirra í Bólivíu í gær, degi eftir ríkisstjórn Evos Moralesar forseta tilkynnti að gasiðnaður landsins yrði þjóðnýttur. Morales tilkynnti svo í gær að stjórnvöld myndu auka ítök sín í námurekstri, skógarhöggi og á fleiri sviðum atvinnulífsins. Erlent 3.5.2006 07:19
Bora göng til fastra námumanna Björgunarmenn í Tasmaníu freista þess nú að bjarga tveimur mönnum sem hafa verið fastir niðri í gullnámu í átta daga. Stórum bor hefur verið komið fyrir ofan námunnar og er ætlunin að bora göng niður til mannanna sem eru fastir á kílómetra dýpi. Erlent 3.5.2006 07:23
113 fórust í flugslysi 113 manns létust þegar armensk farþegaflugvél brotlenti í Svartahafinu í nótt. Flugvélin var frá armenska flugfélaginu Armavia Airlines og var á leið frá Yerevan til Schoci í Rússlandi. Erlent 3.5.2006 07:01
Hungur er hlutskipti 146 milljóna barna Heimsbyggðin hefur brugðist börnum jarðar með því að tryggja þeim ekki nægan mat, segir í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 146 milljónir barna um víða veröld búa við sult og seyru. Erlent 2.5.2006 19:14
Bandaríkjamenn heimta refsiaðgerðir Bandaríkjamenn segjast fullvissir um að sátt náist í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um að beita Írana refsiaðgerðum. Fulltrúar sex af voldugustu ríkjum heims ræddu stöðuna í kjarnorkudeilunni í París í dag. Erlent 2.5.2006 19:09
Skatan í útrýmingarhættu Íslenska skatan er í mikilli hættu á að deyja út, samkvæmt nýjum válista umhverfisverndarsamtakanna, World Conservation Union. Sextán þúsund dýra- og plöntutegundir er að finna á listanum, þar á meðal hvítabirni og flóðhesta í fyrsta sinn. Erlent 2.5.2006 19:07
Berlusconi segir formlega af sér Silvio Berlusconi lét af embætti sem forsætisráðherra Ítalíu í dag. Hann gekk á fund Carlo Ciampi, forseta landsins, í dag og tilkynnti honum formlega afsögn sína. Erlent 2.5.2006 19:05
Jörð skalf í Japan Jarðskjálfti sem mældist fimm komma sex á Richter skók landsvæði sunnan Tokyo í Japan í morgun. Engar fregnir hafa borist af slysum á fólki eða skemmdum og engin flóðbylgjuviðvörun var gefin út. Jarðskjálftar eru tíðir í Japan og einn slíkur varð fjörutíu að bana í Norður-Japan í október 2004. Sá mældist sex komma átta á Richter. Erlent 2.5.2006 10:21
Tveir féllu í sjálfsvígssprengjuárás í Afganistan Tveir féllu í sjálfsvígssprengjuárás á bílalest bandalagshersins norður af Kabúl, höfuðborg Afganistan, í morgun. Enginn hermaður féll í árásinni, aðeins árásarmaðurinn sjálfur og vegfarandi. Fjórar sjálfsvígssprengjurárásir hafa verið gerðar í Afganistan í gær og í fyrradag og hefur ofbeldisverkum Talíbana þar í landi fjölgað síðustu vikur. Erlent 2.5.2006 10:09
Öll orkuvinnsla þjóðnýtt í Bólivíu Evo Morales, forseti Bólivíu, hefur þjóðnýtt alla orkuvinnslu í landinu. Forsetinn tilkynnti þetta í fyrsta maí ræðu sinni í gær. Hann sagði öll erlend orkufyrirtæki, sem starfa í Bólivíu, verði að samþykkja að að beina allri sölu sinni í gegnum bólivíska ríkið ellegar fara með starfsemi sín úr landi. Erlent 2.5.2006 10:14
Rússar og Kínverjar styðja ekki aðgerðir gegn Írönum Utanríkisráðherra Írana sagði í morgun að bæði Rússar og Kínverjar hefðu tilkynnt Írönum að þeir myndu hvorki styðja þvinganir né hernaðaraðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Erlent 2.5.2006 09:06
Nýr forstjóri Faroe Ship Jóhanna á Bergi hefur verið ráðin forstjóri Faroe Ship frá og með 22. maí nk. Jóhanna tekur við af Árna Joensen sem fer á eftirlaun eftir tæplega 30 ára starf sem forstjóri fyrirtækisins. Árni verður stjórnarformaður Faroe Ship. Viðskipti erlent 2.5.2006 09:58
Sér ekki ástæðu til að segja af sér Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakka, lýsti því yfir nú í morgun að hann ætlaði ekki að segja af sér og að hann teldi sig ekki hafa neina ástæðu til þess. Og sakaði hann Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra landsins, um að standa fyrir áróðurherferð gegn sér. Forsætisráðherrann hefur verið sakaður um að hafa komið á stað sögusögnum um að Sarkozy hafi átt leynireykninga í Lúsemborg en í ljós hefur komið að ekkert var hæft í þessum ásökunum. Erlent 2.5.2006 09:26
Krafist aðgerða gegn Írönum Utanríkisráðherra Írana sagði í morgun að bæði Rússar og Kínverjar hefðu tilkynnt Írönum að þeir myndu hvorki styðja þvinganir né hernaðaraðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Búist er við því að Bandaríkjamenn, Frakkar og Bretar krefjist þess í vikunni að gripið verði til aðgerða gegn Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Erlent 2.5.2006 09:09
Óeirðir í Þýskalandi Óeirðir brutust út í Þýskalandi í gær eftir 1. maí hátíðarhöld í landinu. Í Kreuzberg í nágrenni Berlínar þar sem fjöldi innflytjenda er hópaðist fjöldi ungmenna út á götur og var með ólæti. Lögreglan reyndi að hafa stjórn á fólkinu en við það æstist leikurinn og var ýmsu lauslegu kastað í lögreglumennina. Erlent 2.5.2006 09:03
Vikudvöl töframanns í gullfiskabúri Bandaríski töframaðurinn David Blaine hóf í gær vikulanga dvöl í tveggja og hálfsmetersháu gullfiskabúri. Blaine fær súrefni og næringu í gegnum tvær slöngur og heldur þannig lífi. Þessu nýjasta uppátæki Blaine hefur verið gefið nafnið drekkt lifandi en búrið er í byggingunni Lincoln Center í New York. Erlent 2.5.2006 08:59
Ein milljón manna mótmælti Yfir ein milljón manna tók þátt í mótmælum gegn nýjum innflytjendalögum í Bandaríkjunum í gær. Innflytjendur ákváðu að nota 1. maí, baráttudag verkalýðsins, til að sýna fram á mikilvægi innflytjenda í bandarísku samfélagi og var yfirskrift mótmælanna dagur án innflytjenda. Erlent 2.5.2006 08:31
Ólga í indverska Kasmír Íslamskir öfgamenn hafa undanfarinn sólarhring banað 35 hindúum í indverska hluta Kasmír. Erlent 1.5.2006 19:03
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport