Borðtennis

Atvinnuleysi í Covid og velvild prests grunnurinn að nýju félagi
„Við byggðum þetta upp úr engu,“ segir stofnandi Borðtennisfélags Reykjanesbæjar. Félagið sé mikilvægt fyrir innflytjendasamfélagið á Reykjanesskaga og var stofnað vegna aukins atvinnuleysis þegar Covid-faraldurinn geisaði.

Bundu enda á rúmlega þrjátíu ára sigurgöngu Víkings og KR
Konum fjölgar sífellt í borðtennis hér á landi og flóra félaga sem keppa þar á hæsta stigi stækkar. Gríðarleg spenna var þegar úrslitin réðust í deildakeppninni í Hafnarfirði í dag.

Þrjár Stephensen-kynslóðir áberandi á verðlaunapallinum
Guðmundur Stephensen er langþekktasti borðtennisspilari Íslands fyrr og síðar. Hann er samt ekki sá eini í fjölskyldunni sem er liðtækur í íþróttinni. Það kom í ljós um helgina.

Keyptu sér erlenda atvinnumenn sem mæta Íslandi á Smáþjóðaleikunum
Maltverskur borðtennismaður segir Möltu tefla fram aðkeyptum atvinnumönnum, með engin tengsl við þjóðina, í keppninni við Ísland og aðrar þjóðir á Smáþjóðaleikunum sem hafnir eru á Möltu.

Gaf sitt samþykki eftir einn eða tvo bjóra
Hugmyndin að endurkomu Guðmundar Eggerts Stephensen kom þegar hann fór út að borða með manni sem ætlaði að gera heimildaþætti um magnaðan feril hans.

Stundin þegar Guðmundur Stephensen varð Íslandsmeistari einum áratug síðar
Guðmundur Stephensen hefur verið duglegur að skrifa sögu borðtennisíþróttarinnar á Íslandi og hann er ekki hættur.

Guðmundur Stephensen Íslandsmeistari í borðtennis eftir tíu ára fjarveru
Guðmundur Eggert Stephensen snéri aftur á Íslandsmótið í borðtennis í dag eftir tíu ára fjarveru og gerði sér lítið fyrir og tryggði sér sinn 21. Íslandsmeistaratitil í einliðaleik á ferlinum.

Tuttugufaldi Íslandsmeistarinn Guðmundur snýr aftur eftir áratugs pásu
Guðmundur Eggert Stephensen mun taka þátt á Íslandsmótinu í borðtennis árið 2023 en hann hefur ekki spilað í áratug. Frá þessu var greint í nýjasta þætti FM95BLÖ á FM957.

Katar fær að halda enn eitt heimsmeistaramótið árið 2025
Katarbúar hafa verið duglegir að halda heimsmeistaramót síðustu ár og þeir eru ekki hættir því alþjóðasambönd halda áfram að hunsa mannréttindabrot Katarbúa.

Einvalalið borðtennisleikara náði mögnuðu skoti í bjórtennis
Einvalalið borðtennisleikara náði ótrúlegu skoti í bjórtennis í gærkvöldi í kveðjupartýi ríkjandi Íslandsmeistara. „Ég var að lenda í ótrúlegasta beerpong mómenti sögunnar,“ skrifar Pétur Marteinn Urbancic sem birti myndbandið.

Missti ömmu sína í apríl en fékk ekki að vita það fyrr en hún hafði unnið gull á ÓL
Gleðileg heimkoma gullverðlaunahafans Sun Yingsha af Ólympíuleikunum í Tókýó breyttist snögglega í mikla sorg. Sun fékk nefnilega ekki góðar fréttir þegar hún kom heim til sín í Kína.

Tólf ára borðtennisspilari sú yngsta á Ólympíuleikunum
Hin 12 ára gamla Hend Zaza er yngst keppenda á Ólympíuleikunum sem hefjast í Tókýó í Japan í dag. Hún er fimmti yngsti Ólympíufari sögunnar.

Víkingur bikarmeistari í borðtennis
Um helgina varð Víkingur Reykjavík bikarmeistari í borðtennis. Keppt var í liðakeppni og alls voru fjögur lið sem tóku þátt.

Hjálmar Aðalsteinsson látinn
Hjálmar Aðalsteinsson, íþróttakennari lést á krabbameinsdeild Landspítalans þann 25. janúar eftir stutta en snarpa baráttu við krabbamein. Hjálmar, sem var 65 ára gamall, starfaði sem íþróttakennari við Hagaskóla í um þrjátíu ár og var auk þess mikil borðtennis- og tenniskempa.

Sigraði í kvennaflokki og karlaflokki
Pepsi mót Víkings í borðtennis fór fram í TBR húsinu í Laugardal í gær og má með sanni segja að Nevena Tasic úr Víkingi hafi stolið senunni.

Dúx Borgarholtsskóla fór beint frá Silfurbergi á Smáþjóðaleikana í Svartfjallalandi
Ferilsskrá Magnúsar Gauta Úlfarssonar er stútfull af afrekum þrátt fyrir ungan aldur. Um síðustu helgi bættist titill dúx Borgarholtsskóla við fjölda Íslandsmeistaratitla.

BH batt endi á einokun KR og Víkings: "Jákvætt fyrir borðtennis á Íslandi“
Úrslitin í Raflandsdeildinni í borðtennis réðust um helgina.

12 ára Íslandsmeistari í borðtennis
Hin 12 ára Agnes Brynjarsdóttir varð um helgina yngsti Íslandsmeistari í meistaraflokki kvenna í borðtennis.

Rufu 43 ára einokun KR og Víkings
BH varð um helgina deildarmeistari karla í borðtennis. Hafnarfjarðarliðið rauf þar með 43 ára einokun KR og Víkings í efstu deild.

Víkingur bikarmeistari í borðtennis
Víkingur er bikarmeistari í borðtennis eftir sigur á BH í úrslitaleiknum í gær.