Íþróttir

Fréttamynd

Ljubicic í undanúrslit

Króatinn Ivan Ljubicic komst í kvöld í undanúrslit á opnu tennismóti í Dubai í Sameinuðu arabísku Furstadæmunum. Ljubicic sigraði Tim Henman 7-5 og 6-4 en þetta var í fjórða skiptið í röð sem Ljubicic ber sigorð af Bretanum. Spánverjinn Tommy Robredo komst einnig í undanúrslit í dag en hann sigraði Þjóðverjann Nicolas Keifer, 6-4 og 6-4.

Sport
Fréttamynd

Sauber ekki búið að semja við BMW

Forráðamenn BMW hafa vísað því á bug að Sauber-liðið í Formúlu 1 hafi gert samning um að nota vélar frá sér í keppni á næsta tímabili.

Sport
Fréttamynd

Hopkins í einstakan hóp

Bernard Hopkins komst í einstakan hóp manna um helgina þegar hann varði titil sinn í millivigt í boxi í 20. sinn.

Sport
Fréttamynd

Red Bull gæti komið á óvart

Forráðamenn Williams-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum hafa spáð því að nýliðar Red Bull, með fyrrum Williams-ökumanninn David Coulthard í fararbroddi, muni koma öllum á óvart á komandi tímabili og ná að stríða stóru liðunum umtalsvert.

Sport
Fréttamynd

Benfica og Porto jöfn

Benfica sigraði Vitoria Gimares, 1-0, í portúgölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær og náði með sigrinum Porto að stigum í deildinni. Porto og Benfica eru efst og jöfn í deildinni með 41 stig.

Sport
Fréttamynd

Eitt stysta golfmót sögunnar

Ástralinn Adam Scott vann sigur í bráðabana á einu stysta golfmóti atvinnumanna sem farið hefur fram á PGA-mótaröðinni. Aðeins tókst að ljúka tveimur hringjum vegna mikilla rigninga í Los Angeles en Scott sigraði Bandaríkjamanninn Chad Campbell á fyrstu holu í bráðabana.

Sport
Fréttamynd

Campbell og Scott með forystu

Bandaríkjamaðurinn Chad Campbell og Adam Scott frá Ástralíu hafa eins höggs forystu eftir annan hringinn á PGA-mótinu í golfi í Los Angeles en þeir eru báðir á níu höggum undir pari. Mótið, sem hófst á fimmtudag, hefur tafist mjög vegna mikilla rigninga.

Sport
Fréttamynd

Silfur á júdómóti í Danmörku

Þormóður Árni Jónsson vann silfur í +100 kílógrama flokki í Matsumae-bikarkeppninni í júdó í Vejen í Danmörku í gær. Snævar Már Jónsson og Jósep Birgir Þórhallsson urðu í níunda sæti í sinum þyngdarflokkum en aðrir íslenskir keppendur komust ekki upp úr sínum riðlum.

Sport
Fréttamynd

Leik enn frestað vegna rigningar

Vegna ausandi rigningar var ekkert hægt að spila á Opna Nissan-mótinu í golfi. Keppni átti að ljúka í kvöld en Brian Davis sem hafði forystu eftir fyrsta keppnisdag hefur enn þá aðeins spilað 18 holur.

Sport
Fréttamynd

Narfi sýknaður af kæru Bjarnarins

Dómstóll ÍSÍ hefur sýknað Íshokkídeild Ungmennafélagsins Narfa, en Skautafélagið Björninn kærði Narfa og krafðist þess að lið félagsins yrði dæmt úr keppni á Íslandsmóti karla í íshokkíi á þessari leiktíð. Skautafélagið Björninn byggði kæru sína á því að Narfi hefði ekki sent þrjá dómara til þess að dæma fyrir hönd félagsins eins og reglugerð Íshokkísambandsins kveður á um.

Sport
Fréttamynd

Silja þriðja á háskólamótinu

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona í FH, varð í 3. sæti í 400 metra hlaupi á bandaríska háskólamótinu í gærkvöldi. Silja hljóp á 54,10 sekúndum en sigurvegarinn, Charlette Greggs, á 53,48 sekúndum. Tími Silju í 200 metra hlaupi var 24,32 sekúndur en Dominique Darden sigraði á 24,07 sekúndum.

Sport
Fréttamynd

Box: Hopkins í sögubækurnar

Bandaríski hnefaleikarinn fertugi, Bernard Hopkins, skráði nafn sitt í sögubækurnar í nótt þegar hann varði sinn 20. titil í millivigt með því að vinna sigur Evrópumeistaranum Howard Eastman á stigum. Bardaginn sem fór fram í Staples Center í Los Angeles var í beinni útsendingu á Sýn og verður endursýndur kl. 19:35 í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Fjölmennt mót í Laugardalslaug

720 keppendur frá 28 sundfélögum taka þátt í Gullmóti KR sem fram fer í Laugardalslaug um helgina. Í gærkvöldi fór fram keppni í 50 metra flugsundi og var keppt með útsláttarfyrirkomulagi. Örn Arnarsson sigraði Hjört Má Reynisson í úrslitum í karlaflokki, en Örn synti á 52,02 sekúndum eða einum hundraðasta frá Íslandsmeti Hjartar.

Sport
Fréttamynd

Reynt að bjarga NHL-tímabilinu

Samtök NHL-leikmanna og samtök liðseigenda reyna nú hvað þau geta til að bjarga tímabilinu en Gary Bettman, forseti deildarinnar, aflýsti tímabilinu formlega á miðvikudaginn var.

Sport
Fréttamynd

McLaren sagði nei við Schumacher

Ron Dennis, yfirmaður McLaren-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum, viðurkenndi á dögunum að liðið hefði neitað Michael Schumacher um samning áður en hann gekk til liðs við Ferrari og hóf hina mikla sigurgöngu sem hefur einkennt Formúluna undanfarin ár.

Sport
Fréttamynd

Byrja vel á Norðurlandamóti í skák

Í gær hófst Norðurlandamótið í skólaskák í Osló í Noregi. Íslensku keppendurnir byrjuðu mjög vel og eftir tvær umferðir hafa þrír keppendur fullt hús vinninga. Það eru Dagur Arngrímsson, Guðmundur Kjartansson og Einar Ólafsson, hver í sínum flokki.

Sport
Fréttamynd

Walchhofer vann brunið

Austurríkismaðurinn Michael Walchhofer vann sína aðra brunkeppni á jafnmörgum dögum er hann kom fyrstur í mark á heimsbikarmótinu í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi í dag. Walchhofer var á tímanum 1:56.50 mínútur en félagar hans í austuríska landsliðinu, Mario Scheiber og Fritz Strobl, voru í öðru og þriðja sæti.

Sport
Fréttamynd

Jaidee efstur í Malasíu

Taílendingurinn Tongchai Jaidee hefur sex högga forystu fyrir síðasta hringinn á Opna Malasíumótinu í golfi. Jaidee á titil að verja. Indverjinn Joyti Randhawa lék best allra í gær og er í öðru sæti. Írinn Padraig Harrington er í þriðja sæti, sjö höggum á eftir Jaidee.

Sport
Fréttamynd

Auður Sif náði Evrópulágmarki

Auður Sif Jónsdóttir Ægi setti í gær stúlknamet í 800 metra skriðsundi á gullmóti KR sem hófst í Laugardalnum í gær. Auður Sif synti á 9 mínútum, 26,59 sekúndum og náði lágmarki fyrir Evrópumeistaramót unglinga sem verður í Búdapest í sumar.

Sport
Fréttamynd

Martin í úrslit á opna brasilíska

Alberto Martin frá Spáni, sem ekki kemst inn á heimslistann í tennis, gerði sér lítið fyrir í gær og komst í úrslit á opna brasilíska meistaramótinu. Martin sigraði Ástralann Peter Luczak, 6-2 og 6-3 og mun mæta Rafael Nadal, sem er í 6. sæti á heimslistanum í úrslitum, en sá síðarnefndi bar sigurorð af Ricardo Mello.

Sport
Fréttamynd

Bailly vann 10 km eltigönguna

Sandrine Bailly frá Frakklandi vann í dag 10 km eltigöngu í skíðaskotfimi á heimsbikarmóti sem fram í Pokljuka, Slóveníu. Bailly, sem þar með vann sitt annað heimsbikarmót í röð, var 35.9 sekúndum á undan Yingchao Kong frá Kína. Hin rússneska Olga Zaitseva varð þriðja, 56.4 sekúndum á eftir sigurvegaranum.

Sport
Fréttamynd

Rigning tefur Nissan-mótið í golfi

72 kylfingum tókst ekki að ljúka öðrum keppnisdegi á Opna Nissan-mótinu í golfi í Kaliforníu. Ausandi rigning varð til þess að fresta varð keppni um fjórar klukkustundir. Bandaríkjamaðurinn Chad Campbell hefur forystu og er á sex undir pari, þremur höggum á undan Robert Allenby. Tiger Woods náði aðeins að ljúka fjórum holum í gær og er samtals á fimm höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

KA tekur við deildarmeistaratitli

KA fær í dag afhentar deildarmeistaratitilinn í blaki kvenna en KA-konur mæta Þrótti Reykjavík í íþróttahúsi Hagaskóla klukkan 14. Þetta verður annar leikur liðanna á jafnmörgum dögum en Þróttur sigraði í gærkvöldi í þremur hrinum gegn einni. Þróttur Neskaupstað sigraði HK í fimm hrina leik í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Isinbajeva bætir enn heimsmetið

Ólympíumeistarinn í stangarstökki kvenna, Jelena Isinbajeva, bætti enn heimsmetið í greininni í gærkvöldi þegar hún stökk yfir 4 metra og 88 sentímetra á móti í Birmingham á Englandi. Þessi 22 ára rússneska stúlka bætti tæplega vikugamalt met sitt um einn sentímetra.

Sport
Fréttamynd

Ljubicic í úrslit á ABN Amro

Króatinn Ivan Ljubicic komst í dag í úrslit á ABN Amro innanhússmótiniu í tennis sem fram fer í Rotterdam í Hollandi. Ljubicic bar sigurorð af Svíanum 7-6 og 7-5 í spennandi viðureign þar sem sigurinn hefði getað lent báðum megin. Ljubicic mætir annaðhvort Roger Federer frá Sviss eða Marco Ancic í úrslitum, en þeir mætast síðar í dag.

Sport
Fréttamynd

Nýtt heimsmet í stangastökki

Jelena Isinbayeva frá Rússlandi bætti í kvöld eigið heimsmet í stangastökki kvenna innanhús er hún stökk 4,88 metra á móti á Englandi, en aðeins er vika síðan hún setti fyrra metið. Isinbayeva á einnig heimsmetið utanhús síðan á Ólympíuleikunum í Aþenu síðasta sumar, en þá stökk hún 4.91 metra.

Sport
Fréttamynd

Davis með forystu á Nissan-mótinu

Brian Davis hefur forystu á Nissan-mótinu í golfi eftir fyrsta hring en mótið fer fram á Riviera-vellinum í Los Angeles. Davis lék á 6 höggum undir pari. Norður-Írinn Darren Clarke er annar, höggi á eftir, en hann fór holu í höggi á sjöttu braut. Clarke lék völlinn á 66 höggum eins og Englendingurinn Luke Donald og Bandaríkjamaðurinn Brett Quigley.

Sport
Fréttamynd

Hræðileg tilfinning, segir Gretzky

Kanadíska íshokkígoðið Wayne Gretzky, sem situr í framkvæmdastjórn Phoenix Coyotes í NHL-deildinni, telur að íþróttin hafi beðið mikinn hnekki með verkfallinu sem varð til þess að leiktíðin féll niður í vetur.

Sport
Fréttamynd

Manchester Utd tekjuhæst

Enska stórliðið Manchester United er tekjuhæsta knattspyrnulið í heimi. Tekjur félagsins námu 20 miljörðum króna tímabilið 2003 til 2004. Real Madrid kemur þar á eftir með 18,3 milljarða í tekjur og ítölsku risarnir í AC Milan eru í þriðja sæti með 17, 2 milljarða í tekjur.

Sport