Fjölskyldumál

Fréttamynd

Vilja borga fyrir eftir­lit með au pair

Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023.

Innlent
Fréttamynd

Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum

Peningar sem fólk fær við sölu á eigin íbúð gætu notið mun meiri tryggingarverndar ef bankinn sem geymir þá verður ófær um að endurgreiða þá. Lagt er til að allt að ein milljón evra, eða um 137 milljónir króna, verði varin með þessum hætti í sex mánuði frá innborgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir sáttina kosta ríkis­sjóð 1,6 milljarða til við­bótar

Viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðanna sem kynntar voru í gær til að tryggja sátt á vinnumarkaði nemur 1,6 milljörðum króna, að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hún segir fyrri aðgerðapakka hafa numið tugum milljarða en áherslan nú hafi verið á breytingar á úrræðum og nýtingu fjár sem þegar hafði verið tekið frá.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum

Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sextán ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf, sem hún hlaut fyrir að ráða föður sínum bana á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl í fyrra og að ráðast á móður sína. Kröfu hálfbróður hennar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi.

Innlent
Fréttamynd

Ó­þekkti sonurinn leitaði Her­bert uppi

Popparinn Herbert Guðmundsson fékk í byrjun árs óvæntan tölvupóst frá Arnari Jóhanni Ragnarssyni sem taldi Herbert vera föður sinn. DNA-próf staðfesti faðernið og hafa feðgarnir síðan þá verið að kynnast. Arnar er áttunda barn Herberts, þar af það sjöunda sem er blóðtengt honum.

Lífið
Fréttamynd

Ís­lenskir karl­menn flytji inn konur og haldi þeim sem kyn­lífs­þrælum

Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir nauðsynlegt að verklag í skilnaðarmálum sé endurskoðað og þá sérstaklega í sáttameðferð hjá sýslumanni. Þegar þolendur greini frá ofbeldi í lögskilnaðarferli eigi að setja málin í sérstakt ferli og alls ekki í sáttameðferð. Það þurfi að gera áhættumat á gerendum og afleiðingum þess að þeir fái að halda áfram umgengni, fyrir bæði þolendur og börn sem koma að málinu. 

Innlent
Fréttamynd

Nálgunarbann á hendur Berry eftir á­sakanir um að taka soninn háls­taki

Dómari hefur samþykkt tímabundið nálgunarbann sem franski leikarinn Olivier Martinez fór fram á gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Halle Berry. Martinez óskaði eftir nálgunarbanninu í kjölfar þess að hafa sakað Berry um að kyrkja tólf ára son þeirra og beita þá feðga áralöngu ofbeldi. 

Lífið
Fréttamynd

Náum verð­bólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér

Bæjarráð Kópavogs skorar á ríki og sveitarfélög að takmarka gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Bæjarstjórinn segir það vonbrigði að ríkið hækki allar gjaldskrár um 5,2 prósent. Við náum ekki tökum á verðbólgunni ef ríkið keyrir upp sínar gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. 

Innlent
Fréttamynd

Sagan frá hinni hliðinni

Um ást, fíkn, mörk og augnablikið þegar maður áttar sig á því að maður getur ekki bjargað annarri manneskju – en getur enn bjargað sjálfum sér. Lengi vel velti ég því fyrir mér hvort ég hefði rétt á að tala opinberlega um þetta. Í dag veit ég að mig langar að tala.

Skoðun
Fréttamynd

Sökuð um að siga fylgj­endum á móður fyrr­verandi

Rapparanum Sexyy Red hefur verið stefnt af móður barnsföður síns eftir að hún sigaði fylgjendum sínum á konuna, bað þá um að sparka niður hurð hennar og hvatti þá til ofbeldis. Sexyy Red, sem heitir réttu nafni Janae Nierah Wherry, mætti ekki í þingfestingu málsins og hefur stefnandi því krafist útivistardóms í málinu og fimm milljónum dala í miskabætur.

Lífið
Fréttamynd

„Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabba­mein“

Mæðgurnar Una Torfadóttir og Svandís Svavarsdóttir rifjuðu upp saman þegar Una greindist með heilaæxli árið 2020, í miðjum kórónuveirufaraldri og Svandís þurfti að greina frá því opinberlega vegna stöðu sinnar sem heilbrigðisráðherra. Atburðarásin hafi verið galin og Una þurft að slíta sig frá krabbameininu þegar hún hóf tónlistarferil sinn.

Lífið
Fréttamynd

Segir af­nám vaxta­bóta bitna á tekjulágum heimilum

Vaxtabætur verða felldar niður, viðmið barnabóta látin standa óbreytt og minna lagt til húsnæðisbóta en áætlað er að greiða í ár. Hagfræðingur BSRB segir aðhaldið bitna á heimilum, einkum þeim tekjulægstu og fólki með mikla húsnæðisbyrði.

Innlent
Fréttamynd

„Það færist skuggi yfir mann­eskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“

Tinna Hrund Birgisdóttir greindist óvænt með fjórða stigs krabbamein haustið 2023, aðeins fjörutíu ára gömul. Hún lifði í átján mánuði frá greiningunni og nýtti fjölskyldan þá til fulls. Þegar hún féll frá tók við erfitt ferli þar sem aðstandendur hennar þurftu að eiga við kerfið og ganga á eftir öllum lausum endum. Ekkill hennar segir núverandi kerfi óboðlegt og að létta þurfi undir aðstandendum.

Lífið
Fréttamynd

Frægustu mágar landsins

Foreldrar, systkini og makar eru ágæt til síns brúks en fátt er hins vegar betra en góður mágur. Þegar maður er staddur í leiðinlegu fjölskylduboði eða krefjandi barnaafmæli getur reynst ómetanlegt að eiga góðan mág. Vísir hefur því tekið saman nokkra af frægustu mágum landsins.

Lífið
Fréttamynd

„Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“

Móðir einhverfs drengs fékk sig fullsadda af því að glíma við úrræðaleysi í kerfinu og stofnaði því Þorláksskóla, grunnskóla fyrir börn með einhverfu, sem opnar dyr sínar í haust. Hún muni aldrei treysta kerfinu fyrir syni sínum og ætlar að sjá til þess að hann fái alla þá hjálp sem hann þurfi og verði sigurvegari í lífinu.

Lífið
Fréttamynd

For­eldrar sofa meira en margir halda

Að sofa vel eða jafnvel að sofa út er draumur margra foreldra með ung börn. Sumir foreldrar hafa meira að segja ákveðið kerfi þannig að fólk skiptist á; annað vaknar á ókristilega tímanum til að sjá um krílið svo hitt geti sofið lengur og svo framvegis.

Áskorun