Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar 14. október 2026 13:00 Hefur þú velt því fyrir þér hvað verður um eignir þínar eftir þinn dag – hver fær hvað og hvort niðurstaðan verði í samræmi við vilja þinn? Erfðamál snerta okkur flest, fyrr eða síðar. Þrátt fyrir það frestum við því að huga að þeim. Mögulega vegna þess að þau virðast fjarlæg, óþægileg eða einfaldlega eitthvað sem við viljum ekki hugsa um eða bara hugsa um síðar. Erfðamál snúast meðal annars um að tryggja fólkinu okkar skýra stöðu, fyrirbyggja óvissu og ákveða hvernig fara skuli með allar eignirnar okkar. Ef við viljum tryggja maka okkar, börnum eða jafnvel barnabörnum ákveðna stöðu er skynsamlegt að huga að því tímanlega. Með því getum við dregið úr óvissu, komið í veg fyrir ágreining og auðveldað þeim sem eftir sitja að takast á við erfiðar aðstæður. Þetta á við um allar fjölskyldur, stórar og smáar, einfaldar og flóknar, þar á meðal samsettar fjölskyldur þar sem börn eru úr fleiri en einu sambandi. Það er alltaf gott að staldra við og spyrja sig: Hvernig vil ég haga mínum málum? Hver á að fá hvað, og með hvaða hætti? Erfðaskrá getur skipt máli Fyrsta skrefið er að útbúa erfðaskrá. Með erfðaskrá getum við komið vilja okkar skýrt á framfæri og haft áhrif á það að mörgu leyti hvernig eignum okkar verður ráðstafað eftir okkar dag. Við gerð erfðaskrár þarf meðal annars að taka afstöðu til þess hversu stórum hluta eigna má ráðstafa, hvort heimilt sé að láta eitt barn fá meira en annað og hvernig tryggja megi stöðu maka án þess að skerða lögbundinn rétt barna. Sérstök álitaefni geta einnig komið upp þegar það eru börn úr fleiri en einu sambandi, þegar engir niðjar eru til staðar eða þegar tryggja þarf áframhaldandi rekstur fyrirtækis eftir fráfall eiganda sem hefur alla tíð staðið vaktina og rekið viðkomandi fyrirtæki einn. Hvað segja lögin? Íslensk erfðalög setja ákveðin mörk um hvernig við getum ráðstafað eignum okkar með erfðaskrá. Ef arfleifandi lætur eftir sig bæði maka og börn er meginreglan sú að makinn erfi þriðjung eigna og börnin tvo þriðju hluta til samans. Ef maki er ekki til staðar erfa börn og aðrir niðjar allan arf. Ef engin börn eru til staðar erfir maki hins vegar allan arf. Ef hvorki maki né börn eru til staðar koma foreldrar og eftir atvikum aðrir ættingjar til álita samkvæmt lögunum. Lögin vernda jafnframt rétt maka og barna til skylduarfs. Þegar maki eða börn taka arf má arfleifandi almennt ekki ráðstafa meira en þriðjungi eigna sinna með erfðaskrá. Tveir þriðju hlutar eru þannig varðir sem skylduarfur, en innan þeirra marka er svigrúm til að hafa áhrif á skiptingu eigna. Þetta þýðir að við getum ekki alltaf ákveðið nákvæmlega það sem við viljum, en við höfum engu að síður svigrúm til að haga málum okkar með ákveðnum hætti sem getur skipt okkur máli, til dæmis ef við viljum tryggja ákveðnum erfingja tilteknar eignir. Ef einstaklingur á hvorki maka né börn getur hann almennt ráðstafað öllum eignum sínum með erfðaskrá, þótt foreldrar eða aðrir ættingjar séu lögerfingjar lögum samkvæmt. Samsettar fjölskyldur og fyrirtæki Hugsum okkur foreldri sem á börn úr fyrra sambandi og giftist aftur. Nýtt heimili verður til, ný tengsl myndast og ný fjölskylda tekur á sig mynd. Viðkomandi vill eðlilega tryggja núverandi maka sínum fjárhagslegt öryggi og einnig tryggja að börnin úr fyrra sambandi fái einnig sitt. Sama á við um fólk sem hefur byggt upp fyrirtæki eða á eignir sem það vill ráðstafa áfram með ákveðnum hætti. Þá er ekki nóg að hafa einungis gert erfðaskrá heldur þarf einnig að hafa hugað að því hvernig tryggja megi áframhaldi samfellu í rekstri þannig að aðrir geti tekið við nauðsynlegum verkefnum ef viðkomandi fellur frá. Fyrsta skrefið getur verið að fara yfir eignir, fjölskylduaðstæður og þau markmið sem ráðstöfunum er ætlað að ná. Hvernig er þá best að haga málum þannig að tekið sé mið af hagsmunum allra? Það er ekki til ein lausn sem hentar öllum. En með því að gera ráðstafanir tímanlega, útbúa erfðaskrá og leita ráðgjafar þegar þörf krefur þá er hægt að draga úr óvissu og koma vilja okkar skýrt á framfæri. Að taka ákvörðun í tæka tíð Það er ekki hægt að sjá allar aðstæður fyrir, en meðan tækifæri gefst þá eigum við að grípa það og skrá niður hvernig við viljum að eignum okkar verði ráðstafað. Erfðaskrá leysir ekki öll álitaefni og með henni verður ekki vikið frá lögbundnum réttindum. Hún getur hins vegar skýrt vilja arfleifanda og dregið úr óvissu og ágreiningi við uppgjör dánarbús. Að huga að erfðamálum er leið til að tryggja skýrari umgjörð um hagsmuni þeirra sem okkur þykir vænt um og eftir sitja þegar þar að kemur. Besta leiðin til að koma í veg fyrir óvissu í framtíðinni er að taka ákvörðun í dag. Höfundur er lögmaður hjá Atlas lögmönnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölskyldumál Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun