Bítið

Er tilbúinn fyrir Eurovision sviðið en leynd hvílir yfir laginu
„Ég er mjög spenntur. Ég er náttúrlega búinn að vita af þessu núna í smá stund og búinn að undirbúa dálítið og þetta er að verða tilbúið,“ segir tónlistarmaðurinn Daði Freyr sem fær loksins stíga á Eurovision sviðið þann 13. maí næstkomandi.

Fyrsta kjaftasagan hafi farið á flug skömmu eftir tilkynningu lögreglu
Bróðir Stefáns Arnars Gunnarssonar segist vona að færsla sem hann skrifaði á Facebook-síðu sína um helgina muni koma í veg fyrir að hlutir endurtaki sig í starfsumhverfi þjálfara á Íslandi. Hann segir fyrstu kjaftasöguna um bróður sinn hafa farið á flug sex tímum eftir að lögreglan lýsti eftir honum.

„Stimplaður óþekkur“ sökum vanþekkingar skólastjórnenda
Móðir drengs með ódæmigerða einhverfu segir son sinn ekki njóta skilnings í skólanum sökum vanþekkingar skólastjórnenda. Hún furðar sig á því að hann hafi ekki fengið pláss á sérdeild, þar fengi hann meiri skilning.

Óttast frekar jarðakaup útlendinga því þeir vilji „vera í friði“
Formaður Samút, samtaka útivistarfélaga á Íslandi, segir að fréttir af kaupum kanadísks auðjöfurs á jörðinni Horni sé ekkert einsdæmi. Það sé enn eitt dæmið sem falli undir ferðafrelsisbaráttu samtakanna. Hann segist frekar óttast kaup erlendra aðila á íslenskum jörðum því þeir loki frekar fyrir aðgengi fólks að jörðum sínum því þeir vilji vera í friði.

Margir hafi efni á að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir
Löggiltur fasteignasali segir að markaðurinn fyrir lúxus íbúðir sé tiltölulega nýr af nálinni hér á landi. Ofsalega margir hafi efni á því að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir.

Fær símtöl með „hálfgerðum hótunum“ vegna meintra svika við Eflingu
Formaður Starfsgreinasambandsins segir að sér hafi borist símtöl með hálfgerðum hótunum eftir að sambandið skrifaði undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Hann hafi aldrei upplifað aðra eins hatursorðræðu og nú og biðlar til stillingar.

Streptókokkafaraldur geisar: „Þegar þessi baktería kemst á flug þá gerist það mjög hratt“
Streptókokkasýking getur orðið alvarleg hratt þegar bakterían kemst á flug. Barnasmitsjúkdómalæknir segir sýkinguna ekki verri í sjálfu sér fyrir börn en fullorðna þó að mest hafi verið fjallað um alvarleg veikindi barna í faraldri sem nú geisar.

Þungbært skref að boða verkbann
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segir stöðuna sem upp er komin vera ömurlega. Hann segir það hafa verið þungbært skref að boða atkvæðagreiðslu um beitingu verkbanns. Svona gerist þó þegar forysta Eflingar neiti að starfa eftir leikreglum vinnulöggjafarinnar.

Eldræða um forstjóralaun: „Ekki grundvöllur til að tala um sammannleg gildi eða siðferði“
„Þetta eru orðin svo ofboðslega bjöguð viðmið í samfélaginu í dag. Ef við erum að normalísera þessar tölur, að þetta sé möguleiki, þá erum við ekki með grundvöll til að tala um sammannleg gildi eða siðferði. Að mínu mati.“

Ráðist í 300 milljóna verk eftir ólöglegan fund
Mikil óánægja er meðal íbúa í Asparfelli 2 til 12 í Breiðholti vegna 300 milljóna króna framkvæmda sem var ráðist í eftir húsfund sem kærunefnd húsamála hefur dæmt ólöglegan. Íbúar eru margir hverjir með lágar tekjur en vegna framkvæmdanna þarf hver og ein íbúð að greiða 60 þúsund krónur aukalega á mánuði næstu tvö árin.

Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður
Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum.

Mesta kjarabót heimilanna að losna við krónuna
Hagfræðingur segir það yrði mesta kjarabót heimilanna ef evra yrði tekin upp á Íslandi. Enginn íslenskur iðnaður vilji halda krónunni, stjórnmálamenn séu þeir einu sem vilji halda henni.

Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun
Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun.

„Allt í þessum drykk er bara drasl“
Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur er harðorð þegar kemur að innihaldinu í íþróttadrykknum Prime. Drykkurinn hefur verið afar vinsæll hér á landi á meðal barna og ungmenna.

Vilja kanna samstarf vegna uppbyggingar bílastæðahúss við Keflavíkurflugvöll
Forsvarsmenn Isavia vilja kanna samstarf við einkaaðila – verktaka eða fasteignafélög – í tengslum við uppbyggingu á bílastæðahúsi við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gert er ráð fyrir að bílastæðahús muni rísa þar sem skammtímabílastæðin er nú að finna.

SA stefna Eflingu fyrir Félagsdóm
Samtök atvinnulífsins ætla að höfða mál fyrir Félagsdómi gegn Eflingu eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar á Íslandshótelum urðu ljós í gærkvöldi.

Ekki boðlegt fyrir landsliðsþjálfara Íslands
Guðjón Guðmundsson gerði upp frammistöðu Íslands á HM karla í handbolta í Bítinu á Bylgjunni í morgun og sagði niðurstöðuna mikil vonbrigði, þó að hann hefði alltaf talið það ofmat að ætla liðinu verðlaun. Hann sagði viðbrögð landsliðsþjálfarans í viðtali eftir mótið ekki boðleg.

„Það var logið upp í opið geðið á okkur“
Aðstandandi konu sem lést í umsjá læknis sem grunaður er um röð mistaka í störfum sínum segir að það sé vanvirðing við fjölskylduna, starfsfólk á Landspítalanum og þau sem leita sér aðstoðar á spítalanum að umræddur læknir, Skúli Tómas Gunnlaugsson, skuli enn á ný vera kominn til starfa á Landspítalanum.

Rafmagnsleysið sýni alvarleika þess að vera háð einni línu
Framkvæmdastjóri hjá Landsnet segir að rafmagnsleysið sem varð á Reykjanesi í gær sýni alvarleika þess að svæðið sé háð einni raforkulínu. Lagning annarrar línu á svæðið hefur strandað á sveitarfélaginu Vogum.

Staða Eflingar „afskaplega erfið“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að sú staða sem Efling standi frammi fyrir núna sé afskaplega erfið. „Ég bara óska þeim velfarnaðar í sinni baráttu en ég held að þetta verði mjög erfið staða við að eiga. Sérstaklega í ljósi þess að það er búið að samþykkja þessa samninga með yfirgnæfandi meirihluta.“

Óttast að eiga ekki lengur vini út af sönnu sögunum í Villibráð
Tyrfingur Tyrfingsson einn handritahöfunda kvikmyndarinnar Villibráð segir að margt sannsögulegt komi fram í myndinni.

Vinkonurnar óttast að nýi kærastinn spilli hlaupunum
Hlaupakonan Mari Järsk segir vinkonur sínar hafa miklar áhyggjur af því að nýlegt ástarævintýri hennar spilli hlaupaferli hennar.

Kröftunum betur borgið með því að bæta vegina en byggja lest
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, telur að kröftunum sé betur varið í það að bæta íslenskt vegakerfi í stað þess að að byggja upp lestarkerfi. Hann segir lestir vera frábæran samgöngumáta en mjög dýran að koma upp og reka.

Siðmennt fær 68 milljónir í sóknargjöld á næsta ári
Siðmennt fær samkvæmt lauslegum útreikningum formannsins um 68 milljónir króna í sóknargjöld á næsta ári. Inga Auðbjörg K. Straumland formaður Siðmenntar segir þetta alltof mikið og til komið vegna grjótharðrar hagsmunabaráttu Þjóðkirkjunnar. Hún ætlar samt að þiggja fjármunina.

Leiðindaveður á Tenerife yfir jólin
Íslendingar hafa aldrei verið fleiri á Tenerife yfir jól og áramót. Áætlað er að þeir séu milli átta og níu þúsund talsins eða rétt tæplega helmingi fleiri en voru í fyrra.

Segir eina vinsælustu jólamynd í heimi vera „barn síns tíma“
Þær eru ófáar jólamyndirnar sem fjalla um ástina á einn eða annan hátt. Ástarsérfræðingurinn Brynhildur Björnsdóttir mætti í Bítið í morgun og ræddi um ástina, jólin og kvikmyndirnar sem tengja þessi tvö fyrirbæri saman.

Skoða að setja upp loftbrú milli Keflavíkur og Reykjavíkur
Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að verið sé að skoða að setja upp loftbrú milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Þannig yrðu farþegar sem sitja fastir á Keflavíkurflugvelli fluttir til Reykjavíkur og starfsfólk flugfélagsins flutt til Keflavíkur. Um fimm hundruð manns lentu á Keflavíkurflugvelli í morgun með fjórum flugvélum.

Skoði hvort borgin kaupi eigin snjóruðningstæki
Formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar segist vilja láta skoða hvort skynsamlegt sé fyrir borgina að festa kaup á eigin snjóruðningstæki til að hægt verði að ryðja húsagötur fyrr. Til stendur að fara í húsagöturnar í dag áður en bætir í snjó eða hann verður að klaka.

„Sviðsettur blaðamannafundur“ hafi verið gróf atlaga að æru Áslaugar Thelmu
Áslaug Thelma Einarsdóttir og Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður hennar, segja blaðamannafund sem Orkuveita Reykjavíkur (OR) hélt um vinnustaðamenningu og mannauðsmál sín hafa verið sviðsettan. Markmiðið með fundinum hafi verið að vega gróflega gegn æru Áslaugar Thelmu og til að upphefja OR, dótturfélög fyrirtækisins og stjórnendur þeirra.

Hafði ekki geð í sér til að láta mynda sig með fulltrúum SA
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki hafa haft geð í sér til þess að láta mynda sig með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins eftir að skrifað var undir kjarasamning í gær vegna framgöngu þeirra. Hann telur að rétt hafi verið að skrifa undir samninginn.