
Skagaströnd

Fékk net í aðalskrúfuna og dreginn í land
Húnabjörg, björgunarskip Landsbjargar á Skagaströnd, var kölluð út upp úr klukkan níu í morgun vegna fiskibáts sem staddur var utarlega í Húnaflóa. Net höfðu farið bæði í aðalskrúfu bátsins sem og hliðarskrúfu og ekki var hægt að sigla bátnum fyrir eigin vélarafli.

Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd
Heilbrigðisstofnun Norðurlands tekur við rekstri hjúkrunarheimilisins Sæborgar á Skagaströnd frá og með 1. maí 2025.

Netsamband komið á Skagaströnd á undan áætlun
Viðgerð er lokið á ljósleiðarastrengnum sem tengir Skagaströnd við netið. Viðgerð lauk nokkrum klukkustundum á undan áætlun. Gert var ráð fyrir að henni myndi ljúka um klukkan þrjú en henni lauk rétt fyrir klukkan eitt. Strengurinn fór í sundur vegna vatnavaxta í Hrafná.

Netlaust á Skagaströnd eftir slit
Slit hefur orðið á stofnljósleiðarastreng á Skagaströnd og verður því netlaust þar næstu klukkutímana.

Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis
Alvarlegt vinnuslys varð á bæ í nágrenni Skagastrandar fyrir hádegi í dag. Einn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur vegna efnabruna.

Sjómannadagsfjör á Skagaströnd
Það iðar allt af lífi og fjöri á Skagaströnd um helgina en þar byrjuðu íbúar á fimmtudaginn að fagna sjómannadagshelginni og hápunktur hátíðarhaldanna verður svo á morgun, sjómannadaginn.

Vinkonur með jólamarkað á Skagaströnd
Það stendur mikið til á Skagaströnd í dag því þrjár vinkonur á staðnum hafa sett upp jólamarkað í félagsheimilinu Fellsborg. Á markaðnum verður fjölbreytt úrval af gjafavöru, snyrtivöru, matvöru og handverki eftir heimamenn til sölu.

Kemur í stað vegakafla sem talinn hefur verið einn sá hættulegasti
Nýr Þverárfjallsvegur, nýr kafli á Skagastrandarvegi og ný tvíbreið brú yfir Laxá í Refasveit voru vígð á mánudaginn. Heildarvegalengd vegakaflanna og brúarinnar er tæpir tólf kílómetrar, en vegakaflinn hefur lengi verið talinn einn sá hættulegasti á landinu.

Viðbúnaður vegna leka í vélarúmi fiskiskips
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á hæsta forgangi síðdegis í gær vegna leka í vélarrúmi fiskiskips í Húnaflóa. Áhöfn skipsins tókst þó að stöðva lekann og sigla því til hafnar.

Silver Cross barnavagnar til sýnis á Skagaströnd
Þrettán Silver Cross barnavagnar eru nú til sýnis á Skagaströnd en kona á staðnum hefur safnað vögnunum saman og skrifað sögu hvers og eins. Hún segir glæsileikann verða merkilegast við Silver Cross vagna.

Opna hótel í gamalli síldarverksmiðju
Stefnt er að því að hefja deiliskipulagsvinnu í sumar við uppbyggingu hótels í húsnæði gömlu síldarverksmiðjunnar á hafnarsvæðinu á Skagaströnd. Stefnt er að því að sjóböð verði einnig opnuð þar á næstunni.

Hallbjörn Hjartarson látinn og félagið sem reisti Kántrýbæ gjaldþrota
Einkahlutafélagið Villta Vestrið / Skagaströnd ehf. er gjaldþrota. Starfsemi félagsins snerist um fjármögnun á húsinu sem hýsti veitingastaðinn Kántrýbæ og var samnefnd útvarpsstöð staðsett þar einnig. Hallbjörn Hjartarson, eigandi félagsins, lést í september síðastliðnum.

Menningin blómstrar á Skagaströnd
Eitt elsta hús Skagastrandar, Bjarmanesi hefur nú verið breytt í menningar- og samveruhús, en í húsinu hefur meðal annars verið barnaskóli, verslun og lögreglustöð.

Heppni að rjúpnaskytta slasaðist ekki degi fyrr
Ekkert símasamband var á Skagaströnd í þrjá klukkutíma í byrjun mánaðar. Íbúar á svæðinu hefðu ekki getað haft samband við Neyðarlínuna á meðan. Þingmaður Vinstri grænna segir að tryggja þurfi tvítengingu fjarskipta svo slíkt atvik komi ekki aftur fyrir. Rjúpnaskytta slasaðist alvarlega á svæðinu daginn eftir sambandsleysið

Alvarlegir öryggisbrestir í fjarskiptum
Sú hættulega staða sem kom upp fyrir nokkrum dögum þegar net og símasambandslaust varð á Skagaströnd og í Skagabyggð afhjúpar alvarlega veikleika í fjarskiptaöryggi byggðarlaga á landsbyggðinni. Þá lá netsamband niðri í 6 stundir og var með öllu símasambandslaust í 3 tíma og ótraust þess fyrir utan eftir að grafinn var í sundur ljósleiðari vegna framkvæmda í Refasveit.

Fjórir ættliðir sungu á Skagaströnd í morgun
Sá merkilegi atburður átti sér stað í kirkjunni á Skagaströnd í morgun að fjórir ættliðir sungu saman í guðsþjónustu í Hólaneskirkju með kirkjukórnum. Þetta voru þær Guðrún 86 ára, Hallbjörg eldri, sem er 59 ára, Jenný Lind 37 ára og Hallbjörg yngri, sem er 21 árs. Stjórnandi og organisti kórsins er Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.

Loka pósthúsunum í Grindavík, á Skagaströnd og Kópaskeri
Pósturinn hyggst loka pósthúsum sínum í Grindavík, á Skagaströnd og á Kópaskeri um miðjan janúar á næsta ári. Í svörum frá Póstinum segir að engar uppsagnir séu þó fyrirhugaðar í tengslum við lokanirnar.

Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn
Húnvetningar sjá fram á miklar samgöngubætur með fimmtán kílómetra vegagerð í Refasveit. Þetta er stærsta verk sem unnið er að á Norðurlandi vestra um þessar mundir, upp á einn og hálfan milljarð króna. Það eru hins vegar Skagfirðingar sem annast vegagerðina.

Tekur við starfi framkvæmdastjóra SSNV
Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Enginn biðlisti í leikskólann á Skagaströnd
Íbúum á Skagaströnd er að fjölga en það gerist hægt. Kona, sem flutti á staðinn fyrir þremur árum segir að staðurinn sé friðsæll og náttúran allt í kringum þorpið sé yndisleg. Börn eru tekin níu mánaða inn í leikskólann og þar er engin biðlisti.

Lokun Olís á Skagaströnd: Fólk að missa spil úr stokknum
„Þetta er auðvitað sorglegt og hundleiðinlegt. Fólki hérna á Skagaströnd líður svolítið eins og það sé að missa spil úr stokknum.“

Olís hyggst loka þremur þjónustustöðvum
Þjónustustöðvum Olís á Skagaströnd, Ólafsfirði og í Fellabæ verður breytt í ÓB sjálfsafgreiðslustöðvar. Bæjarráð Fjallabyggðar hefur lýst yfir vonbrigðum með lokun þjónustustöðvar í Ólafsfirði og hefur óskað eftir fundi með Olís. Fyrirtækið ætlar á næstu árum að fækka þjónustustöðvum sínum og stækka þær sem verða eftirstandandi.

Skagastrandarlistinn sjálfkjörinn og engar kosningar
Íbúar í sveitarfélaginu Skagaströnd gengu ekki til kosninga um helgina þar sem aðeins einn framboðslisti barst. Hann var því sjálfkjörinn í apríl.

Allt að gerast á Skagaströnd - Tveggja daga ljósalistahátíð
Það stendur mikið til á Skagaströnd á morgun og á mánudaginn því þá stendur Nes listamiðstöð fyrir ljósalistahátíðinni “Light up” í samvinnu við níu erlenda listamenn. Alls konar listaverk verða lýst upp með LED ljósum til að varpa birtu, búa til skugga, endurskin og fleira víða um Skagaströnd þessa tvo daga.

Bíll valt á Þverárfjallsvegi en allir sluppu með skrekkinn
Bíll valt af Þverárfjallsvegi á Skaga rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Tveir voru í bílnum þegar hann valt, kona og karl frá Þýskalandi. Bæði komust þau sjálf úr bílnum og reyndust heil á húfi.

Bátur strandaði við Harrastaðavík
Húnabjörgin, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var kölluð út um 17:30 í dag vegna strandaðs báts við Harrastaðavík skammt frá Skagaströnd.

Möguleg hræðsla við að lenda á jaðrinum í stærri byggð
Ekkert verður af sameiningu Skagabyggðar, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og sveitarfélagsins Skagastrandar eftir að íbúar Skagabyggðar höfnuðu henni í atkvæðagreiðslu í gær. Sjötíu voru á kjörskrá og greiddu 29 atkvæði gegn sameiningu en 24 með.

Skagabyggð hafnar sameiningartillögu
Ekkert verður úr sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu eftir að íbúar Skagabyggðar felldu sameiningartillögu í íbúakosningu í dag. Þar mátti ekki muna mörgum atkvæðum en 29 kusu gegn tillögunni en 24 með henni.

Skiptar skoðanir á sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýsla
Skiptar skoðanir eru á sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Oddviti Húnavatnshrepps segist bjartsýnn á að af sameiningu verði.

Kántríbærinn á sölu
Hólanesvegur 11 á Skagaströnd er á sölu en húsnæðið er betur þekkt sem Kantríbærinn.