Reykjavík

Vetrarsólstöðuganga Píeta fer fram í kvöld
Í kvöld fer fram árleg Vetrarsólstöðuganga Píeta samtakanna. Þetta er árviss viðburður þar sem syrgjendur leggja leið sína út að vitanum við Skarfagarð til að minnast ástvina sem féllu fyrir eigin hendi.

„Hjartað réð för“
Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík segir að hann hafi látið hjarta sitt ráð því að hann gefur ekki kost á sér á lista flokksins í vor. Hann er þakklátur fyrir síðustu ár en telur að pólitíkin í borginni geti verið málefnalegri.

Leggur til byggð sérstaklega sniðna að eldri íbúum Reykjavíkur
Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að svæði innan borgarinnar verði skipulögð þannig að sérstök áhersla verði lögð á þarfir eldra fólks. Svæðin verði skilgreind fyrir sextíu ára og eldri og önnur fyrir 75 ára og eldri. Leggur til 2-3 þúsund sérbýli, minigolf, aðstöðu til heimahjúkrunar og skemmtilega garða. Tillagan er á dagskrá borgarstjórnar á morgun.

Fastur á elliheimili og fær ekki að flytja heim
Fjölfatlaður 45 ára karlmaður er fastur á elliheimili því borgin neitar honum um heimaþjónustu sem hann fékk áður. Hann missir plássið eftir nokkrar vikur og veit ekki hvar hann endar. Baráttan hefur tekið sinn toll og telur hann sig hafa elst um tuttugu ár.

Hjálpræðisherinn fellir niður jólaboð sitt á aðfangadag
Hjálpræðisherinn hefur ákveðið að fella niður fyrirhugað jólaboð sitt á aðfangadag í ljósi stöðu kórónufaraldursins. Rúmlega 300 gestir og sjálfboðaliðar höfðu boðað komu sína, þar af um 150 börn.

Gaeta farið að selja ekta alvöru ítalskt cannoli
Egill Helgason sjónvarpsmaður telur um stórtíðindi að ræða; að nú megi fá cannoli í Reykjavík.

Göngugötusvæðið stækkað að beiðni ríkislögreglustjóra
Göngugötusvæðið í miðborg Reykjavíkur verður stækkað á Þorláksmessu í öryggisskyni.

„Það er ekki bannað að hafa gaman“
Baggalútur harmar mjög ef að sóttvarnabrot voru framin á tónleikum þeirra í gær eins og lögreglan greindi frá í dag. Hljómsveitin hafi látið almannavarnir taka út fyrirkomulag viðburðarins í síðustu viku til að passa að allt væri í samræmi við gildandi reglur og eina brotið sem meðlimir hljómsveitarinnar hafi tekið eftir í gær hafi verið grímuleysi margra gesta, sem er eflaust vandamál við flesta viðburði í dag.

Vindlarnir snúa aftur í Björkina: „Gömul hefð sem fólk vill geta gengið að“
Tóbaksverslunin Björkin er aftur farin að selja vindla eftir rúmlega hálfs árs hlé. Margir hafa velt fyrir sér hvort verslunin sé að loka dyrum sínum endanlega eftir 94 ára rekstur en eigandinn segir að svo sé ekki þó breytingar á rekstrinum séu væntanlegar á næsta ári.

Slökkviliðið kannar brunalykt á Grandanum
Slökkviliðið sendi tvo slökkvibíla út á Granda í Vesturbæ Reykjavíkur rétt í þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fengu þeir tilkynningu um að brunalykt væri að finna á Grandanum.

Sóttvarnarreglur brotnar á Baggalútstónleikum: „Talsverð ölvun á mannskapnum“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að sóttvarnarreglur hafi verið brotnar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þar megi meðal annars nefna tónleika Baggalúts í Háskólabíói í gærkvöldi.

Grunur um brot á sóttvarnalögum í miðbænum
Lögreglan stóð í ströngu í gærkvöldi og í nótt en 116 mál voru skráð á málaskrá. Þar af voru rúmlega tuttugu tilkynningar um hávaða.

Fagna sigri gyðinga fyrir meira en tvö þúsund árum á ljósahátíðinni
Á sama tíma og margir Íslendingar búa sig undir jólin er íslenska gyðingasamfélagið búið að halda upp á sína hátíð. Nokkur hundruð manns tilheyra samfélaginu en rabbíni segist þakklátur fyrir stuðningin sem yfirvöld og Íslendingar hafa veitt þeim.

Með húmorinn að vopni við mótmæli gegn bólusetningum barna
Andstæðingar bólusetninga og aðgerða stjórnvalda gegn heimsfaraldrinum virðast hafa þróað með sér örlítinn húmor og smekk fyrir orðaleikjum. Á annað hundrað manns tóku þátt í mótmælum gegn bólusetningum barna í dag og voru slagorð mótmælenda mörg í frumlegri kantinum.

Keyrt á gangandi vegfaranda í miðbænum
Keyrt var á gangandi vegfaranda á Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur rétt eftir klukkan fimm síðdegis í dag.

Ákvörðun Persónuverndar hafi áhrif á skólastarf um land allt
Reykjavíkurborg telur að ákvörðun Persónuverndar, sem varðar innleiðingu á upplýsingakerfinu Seesaw, muni hafa áhrif á skólastarf víða um land. Reykjavíkurborg leggur nú mat á réttarstöðu sína.

„Þetta hefði getað farið mjög illa ef þetta hefði fengið að krauma lengur“
Eldur kom upp í bakhúsi á Frakkastíg í miðbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan níu í morgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var að störfum fram eftir morgni en vel gekk að slökkva eldinn. Enginn var inni í húsinu þegar slökkviliðið kom á vettvang.

Búið að slökkva í eldi í bakhúsi á Frakkastíg
Eldur kom upp í viðbyggingu við hús á Frakkastíg 13 í miðbæ Reykjavíkur. Slökkvilið hefur nú lokið störfum og er að fara af vettvangi.

Slagorð úr vopnabúri hernaðarandstæðinga nýtt gegn bólusetningum barna
Hernaðarandstæðingar eru afar ósáttir við að andstæðingar bólusetninga skuli nota þekkt slagorð úr þeirra vopnabúri. Boðað hefur verið til mótmæla þeirra sem gjalda varhug við bólusetningum undir yfirskriftinni Friðarganga.

Ef þú brýtur af þér í kvöld endarðu á Twitter hjá löggunni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að veita fólki innsýn í sín störf í nótt með beinni lýsingu á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar birtast nú færslur með lýsingu á öllum útköllum og tilkynningum sem henni berast.

Þriggja bíla árekstur við Sprengisand
Þriggja bíla árekstur varð í mikilli umferð við Sprengisand undir kvöld. Lögreglan segir að tveir bílar hafi verið dregnir af vettvangi.

Engar áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu
Á fundi framkvæmdaráðs almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins í dag var tekin ákvörðun um að fella niður áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu um komandi áramót.

Vagnstjórinn hyggst kæra árásina
Vagnstjórinn sem varð fyrir árás hóps ungmenna í Spönginni seint í gærkvöldi hyggst kæra árásina. Stjórnendur Strætó ræddu við vagnstjórann í morgun.

Lýsa ófremdarástandi við Suðurlandsbraut
Enn einn föstudaginn er runninn upp mikill álagstími í sýnatöku nú þegar faraldurinn virðist í uppsveiflu og fólk flykkist á hina ýmsu jólaviðburði.

Enginn eigi að þurfa að vera einn um jólin eða aðra daga
Hjálpræðisherinn í Reykjavík stendur fyrir sínu árlega jólaboði á aðfangadag en um 300 manns eru skráðir í boðið að þessu sinni. Flokksleiðtogi Hjálpræðishersins segir að allt sé að verða tilbúið og stefna þau á að halda gleðileg jól þrátt fyrir faraldurinn.

Ungmenni réðust á og brutu nef á nýjum vagnstjóra Strætó
Hópur ungmenna réðist á bílstjóra Strætó í Spönginni seint í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að vagnstjórinn þurfti að leita aðstoðar á neyðarmóttöku Landspítala.

Þaulskipulagðir merkjavöruþjófar dæmdir
Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið dæmdir í nokkurra mánaða fangelsi fyrir að hafa látið greipar sópa í ýmsum verslunum víðs vegar um landið á skipulagðan hátt. Þeir virðast hafa verið sólgnir í úlpur og aðra merkjavöru.

Sölvi Geir tjáir sig um Fazmo: „Fight Club“ í Fossvoginum en engin glæpasamtök
Sölvi Geir Ottesen var í engum glæpasamtökum þegar hann var yngri þótt að margir hafi komið upp að honum og haldið það. Hann fór yfir sögu Fazmo klíkunnar í þáttunum um fullkomin endi hans og Kára Árnasonar með Víkingum.

Mikil tækifæri í Norðurslóðahúsi Ólafs Ragnars
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um ráðstöfun lóðarinnar að Sturlugötu 9 í háskólaþorpinu til norðurslóðaseturs sem kennt verður við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands.

Hverfið við stokkinn verði gjörbreytt eftir fimm ár
Deildarstjóri hverfisskipulags Reykjavíkur telur að ásýnd Hlíðahverfis við fyrsta áfanga Miklubrautarstokks verði gjörbreytt eftir fimm ár. Þá hefur hann ekki áhyggjur af hljóðvist í nýbyggingum þétt upp við gatnamót Háaleitisbrautar, þangað sem stokkurinn nær ekki.