Bretland

Sögð hafa látið illa á Love Island settinu
Keppendur í núverandi seríu af Love Island eru sagðir hafa látið afar illa á setti seríunnar í ár og meðal annars stolið áfengi.

Youtube-stjarna eldaði örbylgjurétt á glóandi hrauninu
Breska YouTube-stjarnan Max Fosh kom til landsins á dögunum í þeim tilgangi að sjá eldgosið við Litla-Hrút. Á meðan flestir hefðu látið sjónarspilið við hraunið nægja sér gerði Fosh sér lítið fyrir og eldaði sér örbylgjurétt á hrauninu.

Aukin borun eftir eldsneyti samrýmist loftslagsmarkmiðum
Bresk stjórnvöld hafa samþykkt að veita um hundrað ný leyfi fyrir borun eftir olíu og gasi á Norðursjó. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd af umhverfisverndarsamtökum sem segja hana atlögu að þeim loftslagsskuldbindingum sem Bretar hafi gengist undir.

Fann ástina í örmum barnastjörnunnar úr Love Actually
Talulah Riley, leikkona og fyrrverandi eiginkona Elon Musk, og Thomas Brodie-Sangster, barnastjarna sem er þekktastur fyrir leik sinn í Love Actually, eru trúlofuð.

Hættu saman í laumi örfáum dögum eftir þáttinn
Love Island stjörnur úr nýjustu þáttaröðinni af bresku veruleikaþáttunum vinsælu hættu saman einungis örfáum dögum eftir að hafa dottið úr leik.

Neyddust til að bjóða farþegum upp á KFC um borð
Farþegar í flugferð British Airways frá Turks- og Caicoseyjum til London á sunnudag brá svo sannarlega við þegar í ljós kom að boðið yrði upp á veitingar frá KFC um borð vegna „ófyrirséðra aðstæðna“.

Kom að líki hinnar 16 ára Amber Gibson: Snerti líkið á óviðeigandi hátt og faldi það svo
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið fundinn sekur um að hafa snert lík hinnar sextán ára Amber Gibson á óviðeigandi hátt, eftir að hann kom að því, og í kjölfarið falið það. Bróðir stúlkunnar var á dögunum fundinn sekur um kynferðisbrot og morð á henni.

Spacey grét er hann var sýknaður
Breskir kviðdómendur hafa sýknað bandaríska leikarann Kevin Spacey af tólf ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum breskum mönnum. Það var gert í dag eftir þriggja vikna réttarhöld í Lundúnum.

Kemur að lokuðum dyrum hjá Menntasjóði og útskriftin í hættu
Guðrún Helga Ástudóttir, sem stundar háskólanám við sviðstjórn í Bretlandi, fær ekki námslán hjá Menntasjóði námsmanna fyrir síðasta árinu í draumanáminu. Útskriftin er því í hættu en Guðrún segist ekki fá mikla hjálp frá stofnuninni.

Ríkissjóður Íslands ekki lengur með hæstu vaxtagreiðslurnar
Bretar hafa yfirtekið Íslendinga yfir þau vestrænu lönd sem greiða hæstu vexti af skuldum sínum. Heilt yfir er vaxtabyrði að lækka í Vestur Evrópu en hækka í Bandaríkjunum.

George Alagiah látinn
Breski fréttamaðurinn George Alagiah er látinn, 67 ára að aldri, eftir níu ára langa baráttu við krabbamein.

Love Island stjörnur trúlofaðar
Love Island stjörnuparið Molly-Mae Hague og Tommy Fury eru trúlofuð. Tommy fór á skeljarar á spænsku eyjunni Ibiza um helgina en fjögur ár eru síðan þau kynntust í raunveruleikaþáttunum.

Hyggjast rannsaka fangabúðir nasista á breskri grundu
Bresk stjórnvöld hyggjast í fyrsta sinn rannsaka til hlýtar einu fangabúðir nasista sem vitað er að voru reistar á breskri grundu, á eyjunni Alderney í Ermasundi. Er það gert eftir að ný sönnunargögn fundust sem varpað hafa ljósi á grimmdarverk nasista á eyjunni.

„Ef ekki væri fyrir þessa íslensku fjölskyldu þá væri ég ekki til“
„Með því að hjálpa þeim er ég í raun að endurgjalda þeim mitt eigið líf,“ segir hin breska Sue Frecklington í samtali við Vísi. Á hernámssárunum var faðir Sue heimtur úr helju af íslenskum bónda hér á landi. Mennirnir tveir þróuðu í kjölfarið með sér vináttu sem átti eftir að spanna marga áratugi og ná þvert yfir fjórar kynslóðir.

Peysa Díönu prinsessu á uppboði
Peysa sem Díana prinsessa klæddist í upphafi níunda áratugar síðustu aldar er nú til sölu á uppboði. Um er að ræða rauða peysu með mynstri af hvítum kindum. Ein kindin er þó svört og er talið að Díana hafi þess vegna verið hrifin af peysunni.

Hadid handtekin í fríinu
Fyrirsætan Gigi Hadid var handtekin ásamt vinkonu sinni þegar þær mættu til Cayman-eyja á dögunum. Vinkonurnar ferðuðust með einkaflugvél og voru með í fórum sínum kannabis og áhöld til að neyta þess.

Fyrstu Íslendingarnir í virtu söngleikjanámi slógu í gegn
Þeir Ari Ólafsson og Pétur Ernir Svavarsson, sem báðir hafa gert það gott sem söngvarar hér á landi, útskrifuðust á dögunum úr virtu söngleikjanámi Royal Academy of Music í London. Báðir voru þeir í aðalhlutverki í sinni lokasýningu. Ari, sem eignaðist sitt fyrsta barn í apríl, segir námið hafa verið gríðarlega þroskandi og lítur björtum augum til framtíðar.

Jane Birkin fannst látin á heimili sínu
Söng- og leikkonan Jane Birkin er látin, 76 ára að aldri. Hún var best þekkt fyrir að hafa sungið dúetta með tónlistarmanninum Serge Gainsbourg og leikið í kvikmyndum á borð við Evil Under The Sun og Blow-up.

Hugljúf ástarsaga Arnars og Kamillu
Röð tilviljana leiddi til þess að Örn S. Kaldalóns, kerfisfræðingur og fálkaorðuhafi, kynntist eiginkonu sinni, Kamillu Suzanne Kaldalóns, í Englandi á fyrri hluta áttunda áratugarins. Hann var þá 29 ára og hún rétt rúmlega tvítug. Kamilla fluttist búferlum til Íslands til að vera með Erni sem á þeim tíma þótti nokkuð óvenjuleg og djörf ákvörðun.

„Ég er mikill daðrari“
Kevin Spacey, hinn þekkti bandaríski leikari, segist miður sín yfir því að maður hafi sakað sig um nauðgun. Spacey segist hafa liðið eins og hann hafi verið stunginn í bakið þegar hann heyrði fyrst af ásökunum.

Love Island stjarna rýfur þögnina um hvíta duftið
Davide Sanclimenti, samfélagsmiðlastjarna sem gerði garðinn frægan í Love Island, hefur rofið þögnina eftir að myndband birtist af honum á samfélagsmiðlum þar sem hann virtist neyta eiturlyfja á skemmtistað á Ibiza.

Nafngreina fréttaþulinn sem borgaði táningi fyrir nektarmyndir
Breski sjónvarpsfréttamaðurinn Huw Edwards er sá sem stendur frammi fyrir ásökunum um að hafa borgað táningi fyrir kynferðislegt myndefni.

„Við erum ekki Amazon“
Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, hefur hvatt ráðamenn í Úkraínu til að sýna meira þakklæti á opinberum vettvangi fyrir vopnasendingar. Þegar honum barst beiðni frá Úkraínu um vopn í fyrra, svaraði hann með því að segja: „Við erum ekki Amazon“.

Fá grænt ljós á stærsta samruna leikjaiðnaðarins
Microsoft fékk í gær grænt ljós á að ganga frá 69 milljarða dala kaupum fyrirtækisins á leikjarisanum Activision Blizzard. Samruninn verður sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins og með kaupunum mun Microsoft koma höndum yfir vinsæla tölvuleiki eins og Call of Duty seríuna, Diablo, Overwatch, World of Warcraft og Candy Crush.

Kóngurinn nennti ekki að bíða eftir Biden
Karl Bretakonungur var ekkert sérstaklega þolinmóður þegar hann tók á móti Joe Biden, Bandaríkjaforseta, í Windsor kastala í dag. Biden tók sér góðan tíma í samræður við lífvörð konungsins, sem var ekkert sérstaklega skemmt.

Biden og Sunak funda um mögulega aðild Úkraínu að Nató
Joe Biden Bandaríkjaforseti og Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, munu funda í Lundúnum í dag þar sem efsta mál á dagskrá verður ósk Úkraínumanna um aðild að Atlantshafsbandalaginu.

Þekktur sjónvarpsmaður sendi táningi fé fyrir nektarmyndir
Ónafngreindur en vel þekktur sjónvarpsmaður hjá Breska ríkisútvarpinu (BBC) stendur frammi fyrir ásökunum um að hafa borgað táningi fyrir kynferðislegt myndefni. Hann er sagður hafa lagt þúsundir punda inn á reikning stúlkunnar.

Kærastinn sleit sambandinu í komusalnum á Keflavíkurflugvelli og Íslandsferðin tók óvænta stefnu
„Þegar fimmtugsafmælið mitt nálgaðist árið 2020 hélt ég af stað í rómantíska ferð til Íslands ásamt kærastanum mínum. Við lentum, og síðan sagði mér hann mér upp í komusalnum á flugvellinum.“

Eitt barn látið í London eftir að bíll keyrði inn í barnaskóla
Eitt barn er látið og sex önnur slösuð auk tveggja fullorðinna eftir að Land Rover jeppa var keyrt inn í grunnskóla í Wimbledon hverfi í suðvesturhluta London í morgun. Um er að ræða skóla fyrir stúlkur á aldrinum 4 til 11 ára.

Karl III krýndur konungur Skotlands
Karl III var í dag krýndur konungur Skotlands samkvæmt hefð sem nær allt aftur til sautjándu aldar þegar Karl I Englandskonungur var krýndur konungur Skotlands.