
Samfélagsmiðlar

Göngugarpur uppljóstrar að hæsti foss Kína er buna úr röri
Milljónir hafa horft á myndskeið á samfélagsmiðlum í Kína þar sem göngumaður sem sýnir hvernig hæsti foss landsins er í raun og veru rörbuna. Hann klifraði upp fyrir fossinn og blasti rörið þá við honum.

Notkun á TikTok og Snapchat dregst saman hjá níu til tólf ára börnum
Hlutfall barna á aldrinum 9 til 12 ára sem nota samfélagsmiðlana TikTok og Snapchat lækkar töluvert frá árinu 2021. Youtube er algengasti samfélagsmiðillinn sem nemendur í 4. til 7. bekk nota en Google og Roblox koma þar á eftir. 99 prósent framhaldsskólanema eiga sinn eigin farsíma.

Búa sig undir holskeflu upplýsingafals í kringum Evrópukosningar
Líklegt er talið að upplýsingafals á netinu varpi skugga á Evrópuþingskosningar sem hefjast á morgun. Sérfræðingar óttast að gervigreind geri áróðursmeisturum auðveldara fyrir en áður en dreifa misvísandi upplýsingum.

Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar
Samfélagsmiðillinn Instagram prufukeyrir nú nýtt viðmót á miðlinum sem neyðir notendur til að horfa á auglýsingar til að halda áfram að nota forritið. Áður fyrr gátu notendur skrunað fram hjá auglýsingum sem birtust þeim en það gæti heyrt sögunni til með nýrri uppfærslu.

Hvað er að frétta í lífi án frétta?
Í nýlegri skýrslu Fjölmiðlanefndar um traust í íslensku samfélagi kemur fram að helmingur þátttakenda var mjög eða frekar sammála því að þau héldu sér upplýstum án þess að fylgjast með fréttum.

Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“
Myndband úr smiðju kosningateymis Höllu Tómasdóttur sem sýnir tvo unga menn kasta bíllyklum í unga konu og hrinda annarri hefur vakið athygli. Annar þeirra segir einungis um létt grín hafa verið að ræða og því hafi ekki verið beint að einum eða neinum.

TikTok myndbönd Höllu T sem náðu til unga fólksins
Afgerandi sigur Höllu Tómasdóttur í forsetakosningunum má meðal annars þakka því hve vel hún náði til yngri hóps kjósenda. Kosningateymi Höllu nýtti samfélagsmiðilinn TikTok mjög vel til að ná til unga fólksins.

„Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“
Þeir eru hálf dasaðir áhugamenn um þjóðmálin sem tjá sig á Facebook í dag en hvergi nærri af baki dottnir. Þar er sigur Höllu Tómasdóttur skoðaður frá ýmsum vinklum. Þar keppast menn við að benda á að ekkert sé að taktískum sigri.

Sameinumst um forvarnir gegn átröskun
Á undanförnum árum hefur alvarleg átröskun færst í aukana. Fleiri þurfa að leggjast inn á spítala en áður og átröskun meðal barna hefur vaxið. Barna- og unglingageðdeild Landspítala sinnir börnum sem glíma við alvarlega átröskun og nú á alþjóðlegum baráttudegi um átröskun er rétt að staldra við og velta upp ástæðum þessarar fjölgunar barna sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna átröskunar.

Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar
Íslendingar voru duglegir að tjá sig á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, á meðan forsetakappræður Stöðvar 2 fóru fram.

„Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“
Bubbi Morthens kveðst hafa lokað á, eða „blokkað“, 237 manns á samfélagsmiðlum eftir að hann lýsti yfir stuðningi með Katrínu Jakobsdóttir forsetaframbjóðanda. Hann segir kosningabaráttuna, sem eigi að vera gleðileg uppákoma, hafa breyst í skotgrafahernað.

Ástþór eyðir langmestu
Ástþór Magnússon hefur eytt langmestu allra forsetaframbjóðenda í auglýsingar á samfélagsmiðlum síðustur níutíu daga, 7,8 milljónum króna. Næst á eftir honum er Halla Hrund Logadóttir með aðeins 520 þúsund krónur. Ásdís Rán Gunnarsdóttir, er með flesta fylgjendur á Instagram, ríflega 36 þúsund, en Katrín Jakobsdóttir fylgir henni fast á hæla með ríflega 34 þúsund. Jón Gnarr er með flesta fylgjendur á Facebook.

Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára
Breskir þingmenn kalla nú eftir því að farsímar verði alfarið bannaðir fyrir börn sem eru 16 ára og yngri og bannaðir alveg í skólum. Þá er einnig kallað eftir því að aðgangur að samfélagsmiðlum verði bundinn við sama aldur.

Binni Glee hrundi til jarðar í Köben
Brynjar Steinn Gylfason, Binni Glee, lenti í því óheppilega atviki í gær að falla í yfirlið þegar hann gekk út úr neðanjarðarlest í Kaupmannahöfn. Hann segist vera í áfalli eftir atvikið þó allt hafi farið vel að lokum.

Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin
Ástarsaga Jóhönnu Helgu Jensdóttur, áhrifavalds og útvarpskonu á FM957, og Geirs Ulrich Skaftasonar viðskiptastjóra hjá Isavia á sér langan aðdraganda þar sem þau voru vinir um nokkurra ára skeið áður en þau felldu hugi saman.

Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina
Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segja sögusagnir um meint sambandsslit þeirra stórlega ýktar. Sögusagnirnar fóru á kreik eftir að Hafdís óskaði eftir færum húðflúrara á Facebook til að breyta húðflúri.

Dagar Workplace eru taldir
Meta, móðurfélag Facebook og fjölda annarra samfélagsmiðla, hefur tilkynnt að Workplace verði lokað. Félagið ætli að einbeita sér að þróun gervigreindar og svokallaðs Metaverse í staðinn.

„Hvers konar „motherfucking“ óþverri væri þessi guð ef hann er til“
Kári Stefánsson segist ekkert botna í því að íslensk stjórnvöld hafi tekið þátt í vopnakaupum fyrir Úkraínu.

Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls
Knattspyrnuþjálfari hefur lent í því að fá skilaboð þar sem hann var inntur eftir upplýsingum um stöðu leikmanna fyrir fótboltaleik barna og ungmenna í öðrum flokki en fólkið vildi upplýsingar fyrir veðmál. Hann óttast að börn verði fyrir óþægilegum þrýstingi í æskulýðsstarfi.

Facebook bannar Ástþóri að auglýsa
Auglýsingareikningi Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda á Facebook hefur verið lokað. Síða hans er enn uppi, en auglýsingar hans eru ekki lengur í birtingu og hann getur ekki keypt fleiri auglýsingar. Einnig hefur Instagram-reikningi hans verið lokað.

Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu
„Íslenska er orða frjósöm móðir/ekki þarf að sníkja, bræður góðir,“ orti Hjálmar Jónsson frá Bólu. Bræður góðir? Hvar eru systurnar? Góðu? Frjó umræða um tungumálið ætti að vera hið besta mál. En frjó umræða er eitt, ofsafengnar deilur um „hið kynlausa“ tungumál er annað. Þar er meira undir.

Á að banna TikTok?
Í síðasta mánuði samþykkti öldungadeild Bandaríkjaþings frumvarp sem gæti leitt til þess að hinn geysivinsæli samfélagsmiðill TikTok yrði bannaður í Bandaríkjunum. Ástæðan fyrir banninu er meðal annars sögð vera áhyggjur um möguleg áhrif sem miðillinn gæti haft á öryggi Bandaríkjanna þar sem miðillinn er í eigu ByteDance sem ríkisstjórn Kína hefur ítök í.

Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista
Frosti Logason hlaðvarpsstjóri segir baráttuna gegn ofbeldi hafa snúist upp í ranghverfu sína. Hópar sem hafa látið sig þessi mál varða, netakvívistar á borð við þá sem ráða á för í hópum á borð við „Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu“ stundi það að veitast að viðmælendum hans.

Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var í Spjallinu hjá Frosta Logasyni og viðraði þar þá hugmynd sína að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta til árs fyrir unga fólkið.

Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum
Lögregla hefur ekkert eftirlit með ólöglegum veðmálasíðum hér á landi þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri meti sem svo að hætta á peningaþvætti og skattsvikum í gegnum síðurnar sé mikil. Dæmi eru um að íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum.

Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina
Litlar líkur eru á því að innbrot á Facebook-síðu Quangs Le, sem gengur einnig undir nafninu Davíð Viðarsson, hafi áhrif á sakamálarannsókn lögreglu á hendur honum.

Quang Le hakkaður á Facebook
Óþekktur aðili hefur komist yfir Facebook-aðgang veitingamannsins Quang Le, sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson í fyrra. Viðkomandi hefur tekið sig til og birt skjáskot af ýmsum upplýsingum um veitingamanninn á Facebook-síðu hans.

Kennslustund í „selfies“
Nú er vorið að koma og sumarið handan við hornið með tilheyrandi selfies í fallegu ljósi á göngu á björtu vorkvöldi eða í fallegri sumarnóttinni í ullarpeysu úti á landi. Nú eða vinkonurnar skella sér saman á tónleika eða happy á bar í miðri viku og smella þá af sér „selfie“ til að gera augnablikið ódauðlegt.

Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“
Lítið sem ekkert eftirlit er með ólöglegum veðmálasíðum sem auglýsa grimmt hér á landi í trássi við lög. Þetta segir formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn sem sakar stjórnvöld um sinnuleysi.

Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“
Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, trítaði sig á dögunum og gaf sjálfum sér Teslu í sumargjöf. Um er að ræða hans fyrsta bíl en kaupin hafa vakið töluverða athygli ef marka má samfélagsmiðla.