

Starfsemi áfangaheimilisins Brúar verður hætt í janúar á næsta ári. Áfangaheimilið er rekið af Samhjálp og er staðsett við Höfðabakka. Greint er frá lokuninni í Morgunblaðinu í dag og rætt við framkvæmdastjóra Samhjálpar, Eddu Jónsdóttur. Félagsþjónusta Reykjavíkur ætlar að tryggja heimilisfólki húsaskjól.
Konum sem ferðast milli ríkja í Bandaríkjunum til að gangast undir þungunarrof hefur fjölgað verulega frá því að Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade.
Tveir yfirmenn ljósmæðra á mæðravernd annars vegar og í ungbarnavernd hins vegar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands eru að hætta störfum. Enginn sótti um sameinaða stöðu. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir ljósmæður mjög ósáttar við framgöngu stjórnenda stofnunarinnar.
Forstjóri HSS var borinn þungum sökum í dómssal í máli sem hann höfðaði sjálfur gegn heilbrigðisráðherra. Forstjórinn er sagður hafa slitið öllu sambandi við framkvæmdastjórnina, afboðað alla fundi og ætli sér að stjórna stofnuninni einn. Margt hafi gengið á í stjórnartíð hans en nú þegar styttist í starfslok virðist hann í stríðshug.
Tveir heimilislæknar hafa sagt upp störfum á heilsugæslunni á Akureyri og nýverið var tveimur yfirlæknum sagt upp. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir ástandið þungt högg fyrir bæinn.
Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna sykursýkislyfja sem einnig eru notuð til þyngdarstjórnunar hefur tólffaldast á síðustu fimm árum. Það segir í tilkynningu frá stofnuninni en kostnaður á þessu ári er nær tveir milljarðar. Sviðsstjóri segir stofnunina ekki sjá fram á að breyta reglum um niðurgreiðslu.
Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.
„Það er óhugnanlegt að gera þetta,“ segir hjartaskurðlæknirinn V. Eric Thompson, um nýja aðferð við líffæraflutninga sem sérfræðingar vestanhafs deila nú hart um.
Ein af 19 tillögum Flokks fólksins lagðar fram við seinni umræðu Fjárhagsáætlunar á fundi borgarstjórnar 5. desember er að stofnað verði stöðugildi fagaðila til að bjóða eldra fólki sálfélagslega þjónustu. Margir sem komnir eru á þennan aldur eru einmana.
Þrír aðstandendur fólks með fíknisjúkdóma hafa fengið nóg af úrræðaleysi stjórnvalda og biðlistum og boða til mótmæla næsta laugardag á Austurvelli frá klukkan 13 til 15. Auk þess hafa þau stofnað ný samtök fyrir aðstandendur sem kallast Samtök aðstandenda og fíknisjúkra, SAF.
Valgerður Þórunn Ásgeirsdóttir var nýbyrjuð að vinna sem iðjuþjálfi í grunnskóla þegar hún varð fyrir árás af hálfu nemanda og slasaðist illa. Afleiðingarnar voru þær að hún varð óvinnufær og datt út af vinnumarkaði.
Það eru rúm níu ár frá því ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur. Ég hef misst af jólum, áramótum, íþróttamótum og allskyns viðburðum sem flesta langar til að upplifa með sínum nánustu. Ég elska vinnuna mína en ein lítil mistök í starfi geta auðveldlega rústað lífum annarra og mínu eigin.
Tugir starfsmanna Reykjalundar þurftu að rýma húsnæði sitt í dag vegna myglu og lélegra loftgæða. Talið er að hluti þess sé ónýtt. Starfsfólk og sjúklingar hafa þurft frá að hverfa til skemmri og lengri tíma vegna veikinda.
Landsréttur hefur dæmt Sjúkratryggingar Íslands til þess að greiða konu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna stórkostlegs gáleysis læknis. Sá fjarlægði vinstri eggjastokk konunnar án þess að hún veitti samþykki fyrir.
Sú neikvæða upplifun af opinberri heilbrigðisþjónustu sem kristallast í niðurstöðum könnunar sem Prósent framkvæmdi og fréttastofa fjallaði um í morgun, koma Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar, ekki mikið á óvart þó svörin séu ansi afgerandi.
Um 54 prósent þjóðarinnar þykir illa staðið að opinberri heilbrigðisþjónustu og aðeins um 28 prósent þykir vel að henni staðið. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar Prósents, sem framkvæmd var dagana 9. til 22. nóvember.
Forstjóri Reykjalundar segir stjórnvöld verða að stíga inn í og greiða fyrir viðhald á húsnæði stofnunarinnar, en stórum hluta af húsnæðinu verður lokað á morgun. Allt verði reynt til að staðan hafi ekki áhrif á þjónustu við sjúklinga.
Tónlistarmaðurinn og leiklistarneminn Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli, hefur glímt við ýmsar geðraskarnir frá unga aldri sem hafa hamlað honum í gegnum lífið en eru einnig aflgjafi í listsköpuninni.
Endurhæfingarmiðstöðin Reykjalundur í Mosfellsbæ hyggst loka hluta af húsnæði sínu en komið hefur í ljós að nokkrar af byggingum heilbrigðisstofnunarinnar eru í bágu ásigkomulagi. Úttekt verkfræðistofu sýnir að óheilnæmt sé fyrir sjúklinga og starfsfólk að dvelja í húsnæðinu.
Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna, lætur af störfum í dag. Hann hefur stýrt stofnuninni í 38 ár. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kvaddi Sigurð með blómvendi og kökuboði við þessi tímamót þar sem Sigurður rifjaði upp farinn veg í viðburðaríku starfi á sviði geislavarna sem spannar meira en fjóra áratugi.
Breski lífssýnabankinn, UK Biobank, birtir í dag niðurstöður úr stærsta raðgreiningarverkefni í heimi en vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og Wellcome Trust Sanger Institute raðgreindu 500 þúsund erfðamengi á þremur árum fyrir Breska lífsýnabankann.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mætti í strætóskýlið við Lækjartorg til að taka á móti Jólaálfi SÁÁ, sem að þessu sinni kom til byggða með strætó.
Tónlistarmaðurinn Elton John mun ávarpa þingmenn í Bretlandi í dag og hvetja þá til að gera meira til að ná markmiði stjórnvalda um að útrýma nýjum tilfellum HIV fyrir árið 2030.
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir hjá læknahúsinu Dea Medica segist finna fyrir talsverðri aukningu lýtaaðgerða sem ganga út á að fjarlægja brjóstapúða og setja eigin fitu í staðinn. Þá furðar hún sig á aukinni eftirspurn eftir aðgerðum sem ganga út á að fjarlægja fitu úr kinnum.
Formaður Sálfræðingafélags Íslands segir langa biðlista eftir ADHD-greiningum hjá fullorðnum skýrast að hluta af því að margir fullorðnir, sem þjást af kvíða, streitu eða öðrum kvillum, telji sig vera með röskunina. Tryggja þurfi fjölbreyttari meðferðarúrræði við ADHD en lyfjagjöf.
Enn er mikið álag á bráðamótttökunni á Landspítalanum í Fossvogi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef spítalans þar sem fólk er beðið um að hringja fyrst í 1700 sé það ekki í bráðri hættu.
Hversu margir Íslendingar eru með ADHD? Er verið að ofgreina röskunina? Hvað með lyfjagjöf; er verið að fara offörum í henni? Hvað gerist þegar lyfin fást ekki?
Nærri einu af hverjum fimm börnum yngri en 14 ára í Bandaríkjunum er gefið melatónín til að bæta svefninn. Ný rannsókn bendir til þess að 18 prósentum barna á aldrinum fimm til níu ára sé gefið efnið.
Í dag er Evrópudagur sjúkraliða. Þetta er dagur sem er helgaður okkar góðu stétt og því starfi sem við sinnum. Það eru Evrópusamtök sjúkraliða (The European Council of Practical Nurses-EPN) sem standa að þessum árlega degi en Sjúkraliðafélag Íslands er eitt af aðildarfélögum þess.
Álag hefur aukist á geðsviði Landspítalans í samanburði við síðasta ár. Álagið er í takt við fólksfjölgun en fleiri erlendir ríkisborgarar leita þangað en áður. Yfirlæknir segir starfsmenn ráða við álagið.