

Íris Dögg Harðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Tekur hún til starfa 15. ágúst næstkomandi.
Blý og fjöldi annarra skaðlegra þungmálma finnast í túrtöppum samkvæmt nýrri rannsókn. Kallað er eftir frekari rannsóknum á áhrifum eiturefna á líkamann og neytendur eru hvattir til að vanda valið á tíðavörum.
Læknir sem sætir enn rannsókn grunaður um að hafa orðið sjúklingum sínum að aldurstila hefur fengið ótakmarkað læknaleyfi á ný. Að sögn Embættis landlæknis er hvergi fjallað um að yfirstandandi lögreglurannsókn sé takmarkandi þáttur, þegar endurveiting starfsleyfis er annars vegar, í lögum um landlækni og lýðheilsu.
„Áður en ég veiktist þá tók ég heilsunni sem sjálfsögðum hlut. Það er ekki fyrr en heilsan er tekin frá þér að þú gerir þér almennilega grein fyrir því líkaminn er ótrúlegur og hvað líkaminn vinnur magnað starf fyrir þig á hverjum degi,“ segir hin 24 ára gamla Lilja Ingólfsdóttir sem búsett er í San Diego í Kaliforníu ásamt fjölskyldu sinni.
Barátta Íslendinga fyrir fólk með mænuskaða hefur skilað árangri á alþjóðavettvangi. En betur má ef duga skal að sögn formanns Mænuskaðastofnunar Íslands, sem vonast til þess að gervigreind nýtist í leit að lækningu við mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir, sem er bæði stofnandi og stjórnarformaður stofnunarinnar, hefur verið iðin við að senda bréf víða um heim, og hefur meðal annars fengið svar frá varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sem hvatti hana til dáða.
Af hverju er næring mikilvæg fyrir íþróttafólk? Þjálfarar og íþróttafólk er nú meðvitaðra en nokkru sinni fyrr, um það, hversu miklu máli ákveðnir þættir skipta þegar kemur að frammistöðu íþróttafólks.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, fagnar nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um ofbeldi gegn börnum, sem tók kynfæralimlestingar á börnum meðal annars til umfjöllunar. Silja lagði fram frumvarp árið 2018 þar sem banna átti umskurð á drengjum, sem náði ekki fram að ganga.
Það er mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé undirbúið fyrir fjölgun á limlestingum á kynfærum barna. Það er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis.
Ný Evrópureglugerð um sameiginlegt heilbrigðisgagnasvæði mun hafa það í för með sér að gert verður ráð fyrir ætluðu samþykki þátttakenda í rannsóknum um að fá mikilvægar upplýsingar um eigið heilsufar.
Árlegur meðalfjöldi nýrra krabbameinstilfella á Íslandi verður allt að 2.903 árið 2040 en um er að ræða 57 prósent fjölgun miðað við árslok 2022. Mannfjöldabreytingar munu knýja þróunina, ekki síst ört hækkandi meðalaldur þjóðarinnar.
Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna hefur viðurkennt Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem kennslustofnun til að annast sérnám lækna í bæklunarlækningum, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala.
Heimilislæknir sem varð fyrir árás sjúklings á heilsugæslu í Reykjavík en fær ekki bætur frá ríkinu vegna málsins hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis.
„Standa þarf vörð um íslenska forvarnarmódelið og gagnreynda áfengisstefnu sem m.a. felst í takmörkun á aðgengi með því að viðhalda einkasölufyrirkomulagi ríkisins,“ segir í nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára.
Stýrihópur Lyfjastofnunar Evrópu um lyfjaskort hefur gefið út tilmæli til að takast á við skort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfja í flokki GLP-1 viðtakaörva. Meðal slíkra lyfja er lyfið Ozempic. Skorturinn leiði til ólöglegrar starfsemi.
Framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, Elías Guðmundsson, segir það afar ánægjulegt að geta fjölgað meðferðarrýmum hjá sér í 29 á meðferðarheimilinu Krýsuvík. Með því verði hægt að styrkja kvennastarf samtakanna og kynjaskipta meðferðinni.
Tilfellum þar sem heilbrigðisstarfsfólki er hótað og það jafnvel beitt ofbeldi fjölgar að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna og forstjóra lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Starfsfólk heilsugæslu þar sem ráðist var á lækni á vinnutíma upplifir óöryggi í vinnunni.
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskólans í Reykjavík segir áríðandi að gera smokka sexí aftur. Auk þess þurfi að tryggja betra aðgengi að þeim. Í gær var greint frá því að fjölgun hefði orðið í greiningum kynsjúkdóma. Sóttvarnalæknir segir það mögulega tengjast minni notkun smokksins og breyttri kynhegðun ungs fólks.
Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamýdíu. Sóttvarnalæknir segir áríðandi að fólk fari í skoðun og noti viðunandi varnir. Afleiðingar ógreindra sjúkdóma geti verið alvarlegar.
Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfum heimilislæknis sem varð fyrir árás sjúklings á meðan hann var í vinnunni.
Alls greindust 190 manns með nóróveiru í kjölfar smits sem kom upp á Hamborgarafabrikkunni síðasta sumar. Uppruni smitsins var ekki rakinn til ákveðinna matvæla. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu sóttvarnarlæknis fyrir árið 2023. Alls voru þrjár nóróveiruhópsýkingar skráðar á síðasta ári. Sú stærsta á Hamborgarafabrikkunni.
Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamydíu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ársskýrslu sóttvarnalæknis fyrir árið 2023. Þar segir að ráðast þurfi í frekari greiningu á hugsanlegum orsökum aukningar lekanda og sárasóttar til að efla forvarnir á markvissan hátt. Sýkingarnar geti haft alvarlegar langtíma afleiðingar.
Nú er ég á leið út á land og þurfti því að birgja okkur upp af glútenlausu fæði þar sem það er víst af skornum skammti á landsbyggðinni, úrvalið takmarkað og hillurnar oft orðnar tómar á föstudögum.
Réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári.
Skort á heimilislæknum má meðal annars rekja til þess hversu margir þeirra eru að láta af störfum vegna aldurs og örar fjölgunar landsmanna, að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna. Af þessum sökum hafi ekki tekist að fullmanna heilsugæslustöðvar sem eigi að vera fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu.
Smiður og frændsystkini voru á meðal þeirra 75 sem tryggðu sér sæti á námsbekk í læknadeild Háskóla Íslands í vetur. Einn af hverjum fjórum próftökum fær pláss. Deildarforseti Læknadeildar vonast til að geta fjölgað læknanemum enn frekar á næstu árum.
Íbúí í Vatnsholti í Reykjavík smitaðist af hermannaveiki og hefur heilbrigðiseftirlit borgarinnar gripið til aðgerða til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu.
Formaður Læknafélags Íslands telur ekki að boðaðar breytingar á heilsugæslustöðvum muni draga úr álagi heldur þvert á móti. Hún hefur þungar áhyggjur af þróuninni og óttast að fólk veigri sér við að leita tímanlega til læknis.
Ritað var undir samning um uppsteypu og frágang á nýju húsi heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, sem rísa mun á Landspítalalóðinni. Áætlað er að nýtt hús og endurbættur Læknagarður muni hýsa stóran hluta af starfsemi sviðsins og að framkvæmdir taki alls um fimm ár.
Ekki er ætlast til að fólk í hefðbundnu eftirliti vegna sjúkdóma leiti á heilsugæsluna í sumar. Þar verður lögð áhersla á bráðaerindi þar til haustar.
Frá árinu 2005 hafa kennitölur 220 einstaklinga verið flaggaðar á Landspítalanum vegna ógnandi hegðunar við komu á bráðamóttöku í Fossvogi, bráðamóttöku geðsviðs og Hjartagátt. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir fyrirkomulagið nauðsynlegt til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga.