Kynferðisbrot Larry Nassar

Biles á meðal fimleikakvenna sem krefja FBI um milljarð dollara
Hópur fyrrverandi ólympíufimleikakvenna í Bandaríkjunum, þar á meðal gullverðlaunahafinn Simone Biles, ætla að krefja alríkislögreglunar FBI um meira en milljarð dollara í skaðabætur vegna mistaka hennar í máli Larrys Nassar sem misnotaði hundruð fimleikakvenna.

Ákæra ekki lögreglumenn sem klúðruðu máli Nassar
Bandaríska dómsmálaráðuneytið ætlar ekki að ákæra alríkislögreglumenn sem eru sakaðir um að hafa klúðrað rannsókn á stórfelldum kynferðisbrotum fyrrverandi læknis bandaríska fimleikalandsliðsins.

380 milljónir dala í bætur til fórnarlamba Larrys Nassar
Bandaríska fimleikasambandið hefur komist að samkomulagi við nokkur hundruð kvenna sem misnotaðar voru af Larry Nassar, lækni sambandsins, um greiðslu alls 380 milljóna dala, um 50 milljarða króna, í skaðabætur.

FBI-fulltrúar sem aðhöfðust ekkert vegna Nassar gætu verið ákærðir
Bandaríska dómsmálaráðuneytið fer nú yfir ákvörðun sína um að ákæra ekki fulltrúa alríkislögreglunnar FBI sem létu hjá liggja að rannsaka ásakanir á hendur Larry Nassar, lækni bandaríska fimleikalandsliðsins. FBI hefur sætt harðri gagnrýni fyrir meðferð sína á málinu.

Simone Biles: Ég átti að hætta fyrir Ólympíuleikana
Fimleikakonan Simone Biles hefur viðurkennt að það hafi verið mistök hjá sér að mæta til leiks á Ólympíuleikana í Tókýó.

Simone Biles fyrir þingnefnd: Átelur níðinginn og kerfið í heild
Fimleikagoðsögnin Simone Biles var ómyrk í máli þegar hún bar vitni fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag. Þar sakaði hún Alríkislögregluna (FBI) og forsvarsmenn bandaríska leikfimisambandsins um að hafa litið framhjá glæpum Larrys Nassar sem misnotaði á fjórða hundrað stúlkna og ungra kvenna kynferðislega, sem liðslæknir bandaríska fimleikalandsliðsins.

Biles ber vitni vegna rannsóknar FBI á kynferðisbrotum Nassars
Fjórar bandarískar fimleikastjörnur munu bera vitni fyrir nefnd á vegum bandaríska þingsins á morgun vegna rannsóknar FBI á kynferðisbrotum Larrys Nassar, fyrrverandi læknis bandaríska fimleikalandsliðsins.

Fannst látinn sama dag og hann var ákærður fyrir mansal og kynferðisofbeldi
John Geddert, fyrrverandi þjálfari bandaríska fimleikalandsliðsins, fannst látinn í Grand Ledge í Michigan í Bandaríkjunum. Hann er talinn hafa stytt sér aldur, en hann var fyrr í dag ákærður fyrir mansal, kynferðisofbeldi og fleira, eftir því New York Times greinir frá.

Simone Biles myndi ekki leyfa dóttur sinni að æfa hjá USA Gymnastics
Fimleikakonan Simone Biles er ein sigursælasta fimleikakona sögunnar en hún sparaði ekki stóru orðin þegar hún ræddi fimleikalandslið Bandaríkjanna í nýju viðtali.

Fimleikaþjálfari dæmdur í fangelsi í tengslum við mál Nassar
Fyrrverandi yfirþjálfari fimleikadeildar Ríkisháskólans í Michigan í Bandaríkjunum var dæmdur í níutíu daga fangelsi fyrir að ljúga að lögreglu við rannsóknina á stórfelldum kynferðisbrotum Larrys Nassar, fyrrverandi læknis bandaríska ólympíuliðsins í fimleikum.

Biles vill að fimleikasamband Bandaríkjanna geri hið rétta í stöðunni
Simone Biles, ein merkasta fimleikastjarna allra tíma, sendi bandaríska fimleikasambandinu kaldar kveðjur. Hún vill að sambandið rannsaki kynferðisbrot Larry Nassars, fyrrum læknis hjá sambandinu.

Fórnarlömbum Nassar boðið meira en 26 milljarðar í bætur
Bandaríska fimleikasambandið ætlar að bjóða fórnarlömbum læknisins Larry Nassar samtals 215 milljónir Bandaríkjadala í miskabætur vegna áratuga kynferðisbrot hans þegar hann starfaði sem læknir bandaríska fimleikalandsliðsins.

Háskóli fær metsekt vegna kynferðisbrota fimleikalæknisins
Ríkisháskólinn í Michigan er talinn hafa brugðist nemendum sínum þegar hann aðhafðist ekkert þrátt fyrir áralangar kvartanir undan Larry Nassar og deildarforseta skólans.

Sagði fórnarlömb Larry Nassar njóta þess að vera í sviðsljósinu
John Engler, sem fyrir ári síðan var skipaður rektor Ríkisháskólans í Michigan til bráðabirgða, sagði af sér sem rektor í síðustu viku vegna umdeildra ummæla sem hann lét falla um fórnarlömb læknisins Larry Nassar.

Hunsuðu viðvaranir og leyfðu Nassar að misnota fimleikastúlkurnar
Skýrsla leiðir í ljós að Larry Nassar fékk fína hjálp frá einstaklingum og stofnunum.

Bandaríska fimleikasambandið lýsir sig gjaldþrota
Bandaríska fimleikasambandið hefur óskað eftir því að vera tekið til gjaldþrotaskipta en sambandið siglir ennþá mikinn ólgusjó eftir Larry Nassar málið.

Fyrrum forseti fimleikasambandsins handtekinn
Vandræðaganginum í kringum bandaríska fimleikasambandið er ekki lokið og nú síðast var fyrrum forseti sambandsins handtekinn fyrir að leyna sönnunargögnum í málinu gegn Larry Nassar.

Bono hættir eftir gagnrýni frá Ólympíumeisturunum
Mary Bono hefur hætt sem forseti bandaríska fimleikasambandsins eftir aðeins fjóra daga í starfi.

Sneri aftur með stæl í búningi tileinkuðum fórnarlömbum Larry Nassar
Ólympíumeistarinn í fjölþraut, Simone Biles, vann bandaríska meistaramótið eftir tveggja ára hlé.

Fórnarlömb fimleikalæknisins fá 500 milljónir dollara
Sátt sem háskólinn sem Larry Nassar starfaði við gerði við fórnarlömbin felur í sér að 75 milljónir dollarar verði settir í sjóð til að greiða fórnarlömbum sem stíga fram í framtíðinni.