Fréttir

Útgerðir íhuga málssókn
Á næstu vikum skýrist hvort útgerðir fara í mál við olíufélögin til greiðslu skaðabóta vegna ólöglegs samráðs þeirra. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), segir mögulega málshöfðun hafa verið til skoðunar innan sambandsins, en ákvörðun um hana sé á hendi félaganna sjálfra.
Verðbólgan hækkar afborganir lána
Verðtrygging húsnæðislána tíðkast hvergi nema á Íslandi ef miðað er við lönd innan OECD. Verðbólgan nú hefur þau áhrif að afborganir á húsnæðislánum hækka jafnvel um tugi þúsunda á ári. </font /></b />

Írak: 130 látnir eftir morguninn
Eitthundrað og þrjátíu manns létu lífið og yfir eitthundrað og fimmtíu særðust í hryðjuverkaárásum í Írak í dag. Al-Qaida samtökin segjast hafa byrjað herferð sjálfsmorðsárása.

Milljón börn munaðarlaus
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, ítrekaði í dag að leggja yrði allt kapp á að enda borgarastyrjöldina í Úganda hið fyrsta. Hátt í milljón börn hafa orðið munaðarlaus í kjölfar styrjaldarinnar og 25 þúsund drengir og stúlkur hafa verið hneppt í þrælahald.
Aðildarumsókn ekkert einkamál
"Eðlilega þrýsta Norðurlandaráðherrarnir á okkur. Það var samkomulag um að Ísland færi í þetta ekki aðeins fyrir okkar hönd heldur einnig fyrir hönd allra Norðurlandanna. Þetta eru því líka hagsmunir annarra en okkar," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um aðildarumsókn Íslendinga að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Reiðubúinn að aflétta öllum tollum
George Bush Bandaríkjaforseti sagði í ræðu sinni á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna síðdegis að stjórnvöld í Wahsington væru reiðubúin að aflétta öllum tollum og viðskiptahömlum ef aðrar þjóðir gerðu það sama.
Gröfuþjófurinn ófundinn
Þjófurinn sem braust inn í tölvuverslun í Kópavogi í fyrrinótt með því að beita traktorsgröfu er ófundinn og liggur enginn sérstakur undir grun eftir því sem fréttastofan best veit. Unnið var í allan gærdag að því að lagfæra framhlið verslunarinnar sem stórskemmdist og hleypur tjónið á mörg hundruð þúsundum króna.

Óbreytt áætlun Iceland Express
Pálmi Haraldsson, einn aðaleiganda Iceland Express og Sterling, segir að ákvörðun Iceland Express um að fljúga til sex nýrra ákvörðunarstaða í Evrópu standi óbreytt þótt Sterling verði selt til FL Group. FL Group ætlar að taka upp viðræður við eignarhaldsfélagið Fons um kaup á Sterling-lágjaldaflugfélaginu, því fjórða stærsta í heimi.

114 látnir eftir sjálfsmorðsárás
Minnst 114 manns létust og156 eru særðir eftir sjálfsmorðsárás í hverfi sjíta í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Þetta er næst mannskæðasta sjálfsmorðsárás í landinu frá stríðslokum.
Mannskæð aurskriða í Noregi
Einn maður fórst og níu slösuðust, þar af kona og lítil stúlka lífshættulega, þegar aurskriða féll á íbúðahverfi í Bergen í Noregi í nótt. Fjöldi íbúa var fluttur frá heimilum sínum af ótta við að fleiri skriður féllu en svo hefur þó ekki orðið enn.

Nýjar reglur um lóðaúthlutun
Bæjarstjórn Kópavogs náði í gær samkomulagi um nýjar reglur um lóðaúthlutun en síðasta úthlutun var harðlega gagnrýnd fyrir ógegnsæi og klíkuskap. Þá bárust 2300 umsóknir um lóðir við Elliðavatn en bæjarráð handvaldi þá tvö hundruð sem fengu lóðirnar.

Kaupmáttur launa hefur rýrnað
Kaupmáttur launa þorra launþega hefur rýrnað frá áramótum samkvæmt útreikningum hagfræðinga ASÍ. Verðbólgan hefur haft launahækkunina um síðustu áramót af þorra þeirra launþega sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningum fjölmennustu verkalýðshreyfinga.

Fær enga aðstoð frá kerfinu
Kristinn Rúnar Magnússon, sem er 26 ára, var sleginn í götuna í hópslagsmálum fyrir sjö árum með skelfilegum afleiðingum. Hann hefur verið 75 prósent öryrki síðan og býr enn í foreldrahúsum. Móðir hans segir að enginn vilji aðstoða þau og hjálpa honum að standa á eigin fótum. Hún segir kerfið hafa brugðist og að álagið á fjölskylduna sé hræðilegt.
Tímamót fyrir systurflokk VG
"Úrslitin í Norsku þingkosningunum vekja blendnar tilfinningar þar eð Sósíalíski vinstriflokkurinn, systurflokkur okkar, tapaði talsverðu fylgi," segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna.

Hugað verði að Vesturlandsvegi
Ekki verður farið í að tvöfalda um eins kílómetra langan kafla af Vesturlandsvegi frá Skarhólabraut að Langatanga í Mosfellsbæ fyrr en eftir þrjú til fjögur ár vegna fjárskorts. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er mjög ósátt við þetta og finnst með ólíkindum að þessi fjölfarni vegur skuli sitja á hakanum þegar verið er að útdeilda fjármagni vegna sölu Símans.

FL Group og Fons ræða sameiningu
Stjórnir FL GROUP hf. og eignarhaldsfélagsins Fons, sem á flugfélögin Sterling og Maersk Air hafa ákveðið að hefja viðræður um fjárfestingu og/eða kaup FL Group á Sterling og Maersk. Tilkynning þessa efnis var send Kauphöllinni í kvöld. Í tilkynningu frá FL Group segir að viðræður hafi ekki enn hafist og því sé óvíst á þessu stigi hver niðurstaðan verður.

Íslandsmiðill og Tengir fá boltann
Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Íslenska sjónvarpsfélagsins, segir að engin beiðni liggi fyrir frá Digital Ísland um dreifingu á Enska boltanum. "Komi sú beiðni getum við óskað þess að okkar myndlykill verði notaður."

Launahækkanir óæskilegar
Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir að það versta sem verkalýðshreyfingin geti gert fyrir launafólk er að krefjast hækkunar launa við endurskoðun kjarasamninga. Það jyki verðbólgu og kæmi á víxlverkun launa og verðlags og kaupmáttaraukningin varði skammt. </font /></b />

Fylgjast með hundruðum í Bretlandi
Bresk yfirvöld fylgjast með hundruðum manna til þess að reyna að koma í veg fyrir að hryðjuverkaárásir verði gerðar aftur í landinu. Frá þessu greindi Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, í dag þegar hann kom fyrir þingnefnd sem fjallar um eftirmál hryðjuverkaárásanna á Lundúnir í júlí.

Osman framseldur til Bretlands
Hussain Osman, einn fjórmenninganna sem grunaðir eru um að hafa staðið fyrir misheppnuðum hryðjuverkaárásum í Lundúnum 21. júlí síðastliðinn, verður framseldur frá Ítalíu til Bretlands. Að þessari niðurstöðu komst Hæstiréttur Ítalíu í dag og staðfesti þar með úrskurð á neðra dómsstigi.

Vilja sektarúrskurð ómerktan
Þingfest voru í gærmorgun mál olíufélaganna Skeljungs og Olís á hendur samkeppnisyfirvöldum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í júní var þingfest sambærilegt mál Kers. Stefnur félaganna eru keimlíkar, en þau vilja freista þess að fá felldan úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnisyfirvalda um samráð þeirra.
Chirac mættur til vinnu
Jacques Chirac Frakklandsforseti stýrði í gær fyrsta ríkisstjórnarfundinum frá því hann þurfti að leggjast inn á sjúkrahús þann 2. september síðastliðinn, vegna kvilla sem læknar kölluðu "minni háttar æðatruflun" sem hamlaði honum sjón. Ráðherrar í stjórninni sögðu forsetann hafa virst hinn hressasti.

Þriðji ferðamaðurinn út í geim
Það er að fá alveg nýja merkingu að segjast ætla að "skreppa í sólina". Þriðji geimferðamaðurinn leggur af stað í ferð til alþjóðlegu geimstöðvarinnar 1. október. Bandaríski vísindamaðurinn Gregory Olsen greiðir jafnvirði þrettán hundruð milljóna króna fyrir farmiðann - báðar leiðir auðvitað.

Knattspyrnumaður skotinn á leik
Argentínskur knattspyrnumaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að lögregla skaut hann með gúmmíkúlu þegar til óeirða kom í leik Mendoza og Godoy Cruz. Leikmaðurinn reyndi ásamt félögum sínum að stöðva grjótkast áhorfenda þegar lögreglumenn komu aðvífandi og skutu hann. Fjarlægja þurfti hluta af lunga leikmannsins en hann er ekki lengur í lífshættu. Sex lögreglumönnum hefur verið sagt upp störfum í kjölfar atviksins.
Morðmáli frestað á ný
Mál parsins sem grunað er um að hafa myrt Gísla Þorkelsson, 54 ára gamlan athafnamann, í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í sumar, var tekið fyrir í dómi í Boksburg í gær og frestað fram í næsta mánuð.

Með nauðgunarlyf í plasthylkjum
Tveir 25 ára gamlir menn voru dæmdir í mánaðarfangelsi og til að sæta upptöku á rúmum fimmtán grömmum af amfetamíni, tæpu grammi af kókaíni og 38 millilítrum af smjörsýru. Dómurinn, sem var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands, var skilorðsbundinn í þrjú ár.
Tjón talið nema hundruðum þúsunda
Óvenju bíræfinn þjófur ók stolinni traktorsgröfu að tölvuverslun við Bæjarlind í Kópavogi undir morgun og braut svo dyraumbúnað og stóran sýningarglugga með rimlum fyrir með afturskóflunni. Tjón er talið nema hundruðum þúsunda.

Stjórnlausar gripdeildir á Gaza
Palestínska lögreglan mátti sín lítils er múgur Palestínumanna stundaði gripdeildir í yfirgefnum landtökubyggðum gyðinga á Gaza-svæðinu í gær. Meðal annars var öllu verðmætu stolið úr fjölda gróðurhúsa sem bandarískir gyðingar höfðu keypt og fært í umsjá palestínsku heimastjórnarinnar, með það fyrir augum að Palestínumenn gætu nýtt þau áfram.

Ódýrari netsími
Hive býður nú viðskiptavinum sínum upp á símaþjónustu til útlanda með nettækni. "Hive netsími er fyrsta skref okkar inn á símamarkaðinn með því að bjóða útlandasímtöl til viðskiptavina á um það bil fjórðung af því verði sem hefur verið við lýði," segir Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri Hive.
GR vill stækka völl á Korpu
Golfklúbbur Reykjavíkur vill stækka golfvöllinn á Korpu úr 18 holum í 27. Til greina kemur að borgin byggi á fyrstu braut.