Fréttir
Einn ók niður ljósastaura Ölvaður ökumaður ók niður tvo ljósastaura á Reykjanesbraut við bensínstöð Orku um klukkan hálf ellefu í gærmorgun. Að sögn lögreglu í Kópavogi slapp maðurinn ómeiddur en bíllinn er talinn ónýtur. Innlent 14.10.2005 06:43
Annríki hjá lögreglu í Hafnarfirði Mikið var um að vera í Hafnarfirði í nótt og hafði lögregla í nógu að snúast. Fyrir utan venjulegt skemmtanahald voru tveir dansleikir. Annar þeirra var í Kaplakrika þar sem voru um 1500 manns. Eitthvað var um pústra í tengslum við ölvun í bænum þótt engin hafi meiðst alvarlega. Tveir sitja inni eftir nóttina. Innlent 14.10.2005 06:43
Hermönnum fjölgað ef þurfa þykir Bresk yfirvöld greindu frá því í dag að þau myndu fjölga hermönnum í Írak ef þörf væri á, en ótti manna við borgarastyrjöld í landinu fer vaxandi. Í sjónvarpsviðtali í dag sagði John Reid, varnarmálaráðherra Bretlands, að ekki væri þörf á meiri mannskap þessa stundina en ef ástandið í Írak versnaði yrði hermönnum fjölgað. Erlent 14.10.2005 06:43
Erfitt verður að mynda stjórn Yfir 60 milljónir kjósenda höfðu kost á að greiða atkvæði til klukkan sex að staðartíma og metfjöldi nýtti sér það. Fyrstu útgönguspár benda til að niðurstaðan verði önnur en menn bjuggust við og það gæti reynst erfitt að mynda stjórn. Erlent 14.10.2005 06:43
Vantar 60 starfsmenn Sextíu manns vantar til starfa hjá álveri Norðuráls á Grundartanga. Áhersla verður lögð á að ráða konur. Innlent 14.10.2005 06:43
Einn með leiðindi á réttaballi Einn gisti fangageymslu lögreglu á Blönduósi aðfaranótt sunnudags, en sá hafði að sögn lögreglu verið með leiðindi á réttaballi einn manna. Maðurinn var með óspektir og drykkjulæti. Allir aðrir munu hafa skemmt sér vel. Innlent 14.10.2005 06:43
Sharon og Abbas funda 2. október Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, greindi frá því í ræðu í New York í dag að hann myndi hittast Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, 2. október næstkomandi. Þar sagðist Sharon ætla hvetja Abbas til að standa við þær skuldbindingar sem kveðið væri á um í hinum svokallaða vegvísi til friðar, ellegar myndi ekkert þokast í friðarátt og ekki hylla undir sjálfstætt ríki Palestínu. Erlent 14.10.2005 06:43
Júlíus Vífill sækist eftir 2. sæti Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann gældi lengi við að bjóða sig fram í fyrsta sætið gegn þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Gísla Marteini Baldurssyni, en niðurstaðan varð að sækja gegn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem einnig sækist eftir öðru sæti á listanum. Innlent 14.10.2005 06:43
Vinna að ályktun vegna Írans hafin Evrópusambandsríkin þrjú sem staðið hafa í samningaviðræðum við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra hafa þegar hafið vinnu að ályktun um að vísa málinu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir erindreka innan ESB sem vinnur að málinu. Erlent 14.10.2005 06:43
Naumur sigur stjórnarandstöðu Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel, fá flest atkvæði í þingkosningunum í Þýskalandi en ekki nóg til þess að mynda stjórn hægri- og miðflokka, ef marka má útgönguspár sem birtar voru í Þýskalandi fyrir stundu. Stjórn Gerhards Schröders virði því fallin en möguleikar á stjórnarmyndun eru ekki margir. Erlent 14.10.2005 06:43
Boðar niðurskurð vegna hamfara George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld í Bandaríkjunum verði að grípa til niðurskurðar á einhverjum sviðum til að geta greitt kostnaðinn sem hlýst af uppbyggingunni á hamfarasvæðunum í suðurhluta Bandaríkjanna. Forsetinn segir ljóst að uppbyggingin komi til með að kosta gríðarlega mikla peninga, en hann gefur að svo stöddu ekki upp hvar verði skorið niður í efnahagslífinu til að mæta þeim kostnaði. Erlent 14.10.2005 06:43
Fluguveiði gegn námsleiða Námsleiði hrjáir ekki lengur nemendur í grunnskólanum í bænum Wem í Shrop-skíri á Englandi. Eftir að fluguveiði var gerð að skyldugrein, hlakka þeir til hvers skóladags. Erlent 14.10.2005 06:43
Vill fjölga valkostum eldra fólks Ríkisstjórnin mun í þessum mánuði hitta fulltrúa samráðsnefndar eldri borgara til að ræða málefni eins og stöðu þeirra á vinnumarkaðnum. Heilbrigðisráðherra vill fjölga valkostum gamals fólks. Innlent 14.10.2005 06:43
Stofna kvennahreyfingu í flokki „Pæjur og pólitískt plott“ er yfirskrift stofnfundar kvennahreyfingar Samfylkingarinnar sem stendur yfir í Hveragerði. Saman eru komnar um 120 konur af öllu landinu til að taka þátt í þessum viðburði. Innlent 14.10.2005 06:43
Yfirgripsmikil leit að Friðriki Stórtæk leit að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er síðan bátur fórst á Viðeyjarsundi fyrir viku síðan, er hafin. Búist er við að á annað hundrað manns taki þátt í leitinni í dag. Innlent 14.10.2005 06:43
Varaði við útbreiðslu kjarnavopna Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði í dag við útbreiðslu kjarnavopna og hryðjuverka í ávarpi sínu á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York. Annan sagði að hættan á því að kjarnorkuvopn kæmust í hendur hryðjuverkamanna ykist með degi hverjum og því mætti ekki tefla á tæpasta vað með það að leita diplómatískra lausna. Erlent 14.10.2005 06:43
Íbúum brátt leyft að snúa aftur Yfirvöld í New Orleans munu leyfa fyrstu íbúunum að snúa til síns heima á mánudag, þremur vikum eftir yfirreið fellibylsins Katrínar þar um slóðir. Algjör eyðilegging blasir víða við og þá ganga hermenn um götur borgarinnar til þess að koma í veg fyrir rán og gripdeildir. Erlent 14.10.2005 06:43
Bjó með látinni móður í fimm ár Það blasti heldur ófögur sjón við lögreglumönnum í Marseille í Frakklandi á dögunum þegar þeir bönkuðu upp á hjá manni þar í borg vegna uppsafnaðra ógreiddra reikninga. Innan um hauga að drasli fundu þeir lík sem reyndist vera af látinni móður mannsins, en hún hafði verið látin í fimm ár. Erlent 14.10.2005 06:43
Reyndi að fljúga á turn í Auckland Flugmaður, sem stal lítilli flugvél í Auckland í Nýja-Sjálandi í dag, endaði ferðina í sjónum fyrir utan borgina eftir að hafa hótað að fljúga vélinni á Sky Tower, eitt helsta kennileiti borgarinnar. Maðurinn stal vélinni á flugvelli suður af borginni og þegar flugmálayfirvöld náðu sambandi við hann hótaði hann að fljúga á hinn 328 metra háa turn þar sem m.a. er að finna spilavíti og hótel. Erlent 14.10.2005 06:43
Spenna í Þýskalandi vegna kosninga Mikil spenna ríkir í Þýskalandi vegna kosninganna til sambandsþingsins sem haldnar verða á morgun. Á lokasprettinum fyrir kosningarnar hefur dregið töluvert saman með stjórn og stjórnarandstöðu og samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er ljóst að á brattan verður að sækja, bæði fyrir Gerhard Schröder, kanslara og leiðtoga Jafnaðarmanna, og Angelu Merkel, leiðtoga Kristilegra demókrata, þar sem gríðarlega margir kjósendur hafa ekki enn gert upp hug sinn. Erlent 14.10.2005 06:43
Leit hefur ekki borið árangur Víðtæk leit af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er eftir að bátur fórst á Viðeyarsundi, hefur staðið yfir í allan dag en hefur enn ekki borið árangur. Gengnar hafa verið fjörur frá Gróttu fram yfir Hofsvík á Kjalarnesi. Kafarar frá Björgunarsveitunum, slökkviliði höfuðborgarsvæðisinns og Landhelgisgæsluni hafa kafað á Viðeyjarsundi en einnig hefur verið notast við sónarleitartæki og neðansjávarmyndavél. Innlent 14.10.2005 06:43
Fagnar niðurstöðu könnunar Reykvíkingar treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni betur en Gísla Marteini Baldurssyni til að gegna starfi borgarstjóra ef marka má nýlega skoðanakönnun Gallups. Gísli Marteinn fagnar niðurstöðunni og segir hana m.a. sýna að vinstrimenn vilji alls ekki fá hann sem andstæðing sinn. Innlent 14.10.2005 06:43
Fjör í Skeiðaréttum í dag Menn og fé undu sér vel í Skeiðaréttum í dag. Landbúnaðarráðherrann lét ekki sitt eftir liggja. Innlent 14.10.2005 06:43
Vilja virkja konur í stjórnmálum Konur eru ekki eins virkar og karlar í stjórnmálum og þessu þarf að breyta, segja Samfylkingarkonur, sem hafa stofnað kvennahreyfingu innan flokksins. Innlent 14.10.2005 06:43
Reyndu að sprengja upp stíflu Tuttugu uppreisnarmenn voru handteknir í Suður-Afganistan í morgun þegar þeir reyndu að sprengja stíflu í loft upp. Stíflan er sú strærsta í landinu og við hana er virkjun sem sér einni stærstu borg Afganistans, Kandahar, fyrir raforku. Að sögn lögreglu voru vopn og sprengiefni gerð upptæk við handtökurnar. Erlent 14.10.2005 06:43
Líkið af Friðriki Ásgeiri fundið Líkið af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni fannst seinni partinn í dag. Rétt fyrir klukkan sex náðu kafarar líkinu upp og var komið með hann að landi nú rétt fyrir fréttir. Innlent 14.10.2005 06:43
Framboð til öryggisráðs í uppnámi Framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er í uppnámi að mati varaformanns Framsóknarflokksins sem segir að Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sé kominn í stjórnarandstöðu. Stjórnarandstaðan skilur ekkert í hringlandahætti ríkisstjórnarinnar. Innlent 14.10.2005 06:43
Stjórnarandstaðan saklaus "Það opinberast fyrir framan alþjóð að stjórnarliðar tala í austur og vestur. Ríkisstjórnin hefur haldið á þessu eins og hún ætli sér í framboð til öryggisráðsins og hefur varið til þess miklum fjármunum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Innlent 14.10.2005 06:43
Októberfest hafin í Þýskalandi Þúsundir bjórþyrstra Þjóðverja streyma nú til München þar sem hin árlega Októberfest hófst í dag. Áhyggjur af atvinnuleysi og efnahagsstöðnun í aðdraganda í þingkosninga sem fram fara á morgun voru látnar víkja fyrir miðinum í dag en gestir á hátíðinni segjast engu að síður ætla að neyta atkvæðisréttar síns á morgun. Erlent 14.10.2005 06:43
3-4% ungra kvenna með átröskun Á milli þrjú og fjögur prósent kvenna undir þrítugu þjást af átröskun af einhverju tagi. Á málþingi í dag mátti heyra átröskunarsjúklinga segja sína sögu. Innlent 14.10.2005 06:43