Fréttir
Souness bjartsýnn Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að liðið sé að komast á beinu brautina eftir sigurinn á WBA í gær og setur stefnuna á eitt af efstu sætunum í úrvalsdeildinni í vetur. Sport 31.10.2005 03:18
8000 manns flúðu Betu Yfir átta þúsund manns flúðu heimili sín í Hondúras í gær vegna fellibylsins Betu sem reið þar yfir með mikilli úrkomu og roki. Fellibylurinn mælist nú sem fellibylur af annarri gráðu á kvarða Saffír-Simpson um stærð fellibylja. Erlent 31.10.2005 08:33
Skólar lokaðir vegna ófærðar Grunnskólarnir á Hvammstanga og Laugabakka og leikskólinn á Hvammstanga verða lokaðir í dag vegna veðurs og ófærðar. Innlent 31.10.2005 08:22
Konan komin í leitirnar Kona sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í fjölmiðlum í gærkvöldi kom í leitirnar skömmu síðar, heil á húfi. Innlent 31.10.2005 08:12
Varð vélarvana undan ströndum Grindavíkur Vélarbilun varð í 180 tonna togbáti þegar hann var staddur u.þ.b. sex sjómílur út af Grindavík í gærkvöld með nokkurra manna áhöfn. Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og var björgunarskipið Oddur V. Gíslason sent til móts við bátinn. Innlent 31.10.2005 08:01
Berlusconi styður yfirmann leyniþjónustunnar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur gefið út stuðningsyfirlýsingu til handa Nicolo Pollari, yfirmanni ítölsku leyniþjónustunnar, sem er sagður hafa komið fölsuðum skjölum til bandarískra stjórnvalda. Erlent 31.10.2005 07:55
Eiturlyfjabarón handtekinn í Kólumbíu Kólumbíska lögreglan hefur handtekið John Eildelber Cano sem talinn er vera einn af æðstu mönnum stærsta eiturlyfjasmyglshrings landsins. Hringurinn, sem kallast Norte del Valle, er talinn standa að baki helmings þess magns eiturlyfja sem flutt hafa verið frá Kólumbíu til Bandaríkjanna síðastliðin tíu ár. Erlent 31.10.2005 07:49
Þrír Svíar létu lífið á Kanaríeyjum Þrír létu lífið og 22 slösuðust, þar af fimm alvarlega, þegar rúta á vegum sænsku ferðaskrifstofunnar Apollo fór út af vegi og valt á Tenerife, einni af Kanaríeyjunum, í gær. Apollo-ferðaskrifstofan hefur nýhafið sölu hér á landi á ferðum til Kanaríeyja. Innlent 31.10.2005 07:32
Rúmlega 100 manns í hrakningum Rúmlega hundrað manns í u.þ.b. þrjátíu bílum lentu í hrakningum á þjóðveginum í Vestur-Húnavatnssýslu í gærkvöldi þegar óveður skall þar á eins og hendi væri veifað. Mikil snjókoma fylgdi hvassviðrinu þannig að ekkert skyggni var og fljótlega fór að hlaða í skafla. Innlent 31.10.2005 07:21
Getum engan unnið Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United sýndi leikmönnum liðsins enga miskunn í viðbrögðum sínum við niðurlægjandi 4-1 tapi fyrir Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Hann segir að Man Utd geti ekki unnið nokkurt einasta lið í því formi sem liðið er í þessa dagana. Sport 30.10.2005 17:33
Owen með tvö í sigri Newcastle Newcastle lyfti sér upp í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 3-0 sigri á W.B.A. en þetta var eini leikurinn á dagskrá deildarinnar í dag. Michael Owen skoraði tvívegis fyrir Newcastle. Sport 30.10.2005 17:58
Bjarni ekki með Plymouth Bjarni Guðjónsson var ekki í leikmannhópi Plymouth sem gerði markalaust jafntefli við Millwall í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Plymouth er nú í fjórða neðsta sæti af 24 liðum deildarinnar með 16 stig, fjórum stigum á undan botnliði Millwall. Sport 30.10.2005 17:04
McGinley fagnaði sigri Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie varð efstur á peningalistanum í evrópsku mótaröðinni í golfi sem lauk með Volvo Masters mótinu á Spáni í dag. Írinn Paul McGinley fagnaði besta árangri sínum á 14 ára ferli á evrópsku mótaröðinni og fór með sigur á mótinu en hann lauk keppni á 10 undir pari. Sport 30.10.2005 16:38
Aftur í efstu deild eftir 40 ár Sandefjord tryggði sér í dag sæti í efstu deild í norska fótboltanum í fyrsta skipti í 40 ár. Sandefjord náði með sigrinum 2. sæti í 1. deild með 4-3 sigri á Moss í dag en Sandefjord hefur ekki leikið í efstu deild síðan 1965. Andreas Tegström skoraði þrennu fyrir Sandefjord sem lenti 1-0 undir í leiknum en komst í 2-4 með mörkum Tegström á 73. mínútu og gífurleg fagnaðarlæti brutust út. Sport 30.10.2005 15:46
Hrakandi siðferðisþrek í stjórnartíð Bush Meirihluti aðspurðra Bandaríkjamann segja ákærurnar á Lewis Libby gefa til kynna mun víðtækari siðferðisbrest og spillingu innan stjórnar Bush en þá óraði fyrir. Kemur þetta fram í nýrri könnun sem gerð var á dögunum og þá sagði meira en helmingur aðspurðra að siðferðisþreki og heiðarleika meðal ráðamanna hafi hrakað verulega í stjórnartíð Bush. Niðurstöður könnunarinnar eru skellur fyrir stjórn Bush sem enn sætir hörðum ásökunum vegna slælegra viðbragða við fellibylnum Katrínu. Innlent 30.10.2005 15:21
Ákærður fyrir ritstuld Dan Brown, höfundi metsölubókarinnar Da Vinci lykillinn, sem selst hefur í tuttugu og fimm milljónum eintaka um allan heim, stendur nú frammi fyrir ákæru um ritstuld. Er það í annað sinn sem hann er borinn slíkum sökum. Innlent 30.10.2005 15:14
Veigar skoraði tvö fyrir Stabæk Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn og skoraði tvö af mörkum Stabæk sem valtaði yfir Pors Grenland, 8-1 í lokaumferð 1. deildar í norska fótboltanum í dag. Veigar skoraði samtals 13 mörk í deildinni þetta tímabilið og varð þriðji markahæsti leikmaðurinn. Sport 30.10.2005 15:28
Snjóflóð á Flateyrarvegi Snjóflóð féll á Flateyrarvegi rétt fyrir utan kauptúnið, milli Sólbakka og Hvilftar, um eittleytið í dag . Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði sakaði engan og vegurinn var lokaður fólksbílaumferð í klukkutíma. En þó var snjóflóðið það grunnt að vegurinn var fær jeppum. Innlent 30.10.2005 15:09
Lampard er bestur í heimi Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að Frank Lampard sé besti leikmaður í heimi í dag. Lampard átti enn einn stórleikinn fyrir Chelsea í 4-2 sigrinum á Blackburn í gær og skoraði tvö mörk og hefur nú alls skorað 100 mörk. Mourinho segir að Lampard geti einfaldlega ekki orðið betri. Sport 30.10.2005 15:06
Fagna opnun landamæra Sameinuðu þjóðirnar fagna þeirri ákvöðrun Indlands og Pakistan að opna samliggjandi landamæri þeirra í Kasmír fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans sem og birgðaflutningum. Á sama tíma segja Sameinuðu þjóðirnar að hjálparstarf til þeirra milljóna sem enn eru í nauðum sé gríðarlegum vandkvæðum bundið og þarfnist mikillar skipulagningar sem seint sjáist fyrir endann á. Erlent 30.10.2005 15:04
Bruni í Keflavík í gær Nokkurt tjón hlaust af bruna í iðnaðarhúsnæði í Grófinni í Keflavík síðdegis í gær. Þaðan lagði svartan reyk og þegar slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom á vettvang lék talsverður eldur um rýmið á jarðhæð hússins; þar var rekinn Jóga-salur þar til fyrir nokkrum vikum. Inni voru húsgögn og virðist eldurinn hafa komið upp í sófa. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins á nokkrum mínútum. Lögreglan í Keflavík rannsakar málið. Innlent 30.10.2005 12:18
Litli leikklúbburinn á götunni Þrymskviða, sem Litli leikklúbburinn ætlar að frumsýna á Ísafirði 12. nóvember, verður að öllum líkindum sýnt undir berum himni, samkvæmt héraðsfréttavefnum Bæjarins besta á Ísafirði. Innlent 30.10.2005 12:49
Guðjón ósáttur þrátt fyrir sigur Guðjón Þórðarson er langt frá því að vera sáttur við leik sinna manna þrátt fyrir 3-2 sigur Notts County á Bury í ensku D-deildinni í fótbolta í gær. Notts County komst í 3-0 með þrennu frá Glyyn Hurst og var þetta fyrsti sigur liðsins í rúma tvo mánuði. Sport 30.10.2005 14:37
Heil umferð í kvöld Heil umferð er á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld og hefjast allir leikirnir klukkan 19.15. Þrjú lið eru taplaus fyrir leiki kvöldsins, topplið Grindavíkur sem heimsækir ÍR, Njarðvík í 2. sæti sem heimsækir Þór á Akureyri og Keflavík í 3. sæti sem tekur á móti KR. Sport 30.10.2005 14:03
Álfar og tröll atvinnuskapandi Álfar, tröll og norðurljósin gætu orðið Stokkseyringum féþúfa ef áform um þjóðfræðisafn verða að veruleika. Sunnlenska fréttablaðið greinir frá kaupum 1200 fermetra húsnæðis í þessu skyni þar sem Hólmaröst er með fiskvinnslu, en hún flytur í Þorlákshöfn í byrjun næsta árs. Haft er eftir Benedikti G. Guðmundssyni, forsvarsmanni félagsins um þetta safn, að það gæti gefið Sunnlendingum forskot í málefnum tengdum þjóðfræði og menningartengdri ferðaþjónustu, ef vel tekst til. Innlent 30.10.2005 12:02
Auknar líkur á lækningu þunglyndis Þunglyndissjúklingar eiga nú betri möguleika á lækningu í framtíðinni. Danskir vísindamenn eru bjartsýnir á að rannsóknir undanfarinna ára og nú tækni verði til þess að hægt sé að greina þunglyndi fyrr og meðhöndla. Erlent 30.10.2005 12:54
Montgomerie og Garcia efstir Skotinn Colin Montgomerie og Spánverjinn Sergio Garcia eru efstir og jafnir að loknum 54 holum á lokamóti Evrópsku mótaraðarinnar í golfi. Colin Montgomerie lék á 70 höggum í gær og er samtals á tíu höggum undir pari. Sport 30.10.2005 13:56
Móðgaði lestarstjóra Hinn litríki fyrrverandi landsliðsþjálfari Ítala, Giovanni Trapattoni er ekki að afla sér vinsælda í Þýskalandi þar sem hann stýrir Bundesliguliði Stuttgart við slæman orðstír. Hann er ekki bara í ónáðinni hjá stuðningsmönnum liðsins sem hefur byrjað tímabilið skelfilega heldur hefur honum nú tekist að reita til reiði lestarstjóra í landinu. Sport 30.10.2005 13:11
Nýtt skip bætist við flota Eyjamanna Nýtt skip, Bergur VE 44, kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Vestmannaeyjum um miðjan dag í gær. Bergur kemur frá Póllandi en var keyptur í Noregi. Bergur er ísfisktogari, smíðaður í Danmörku 1998, er 10,50 metra breiður og 36 metrar á lengd. Skipið er samnefnt útgerðinni sem er fjölskyldufyrirtæki, eftir því sem fram kemur í Eyjafréttum. Þar segir einnig að Bergur sé hrein viðbót við flota Eyjamanna. Innlent 30.10.2005 12:07
Ný framsetning á leiðarkerfi Leiðarlykill höfuðborgarsvæðisins, þar sem leiðarkerfi strætisvagna tekur á sig mynd neðanjarðarlestakerfis, kemur út í næstu viku. Höfundur kortsins hefur gengið með hugmyndina í maganum í meira en tuttugu ár og telur að það muni hvetja fleiri til að nota strætisvagna. Innlent 30.10.2005 11:53