Fréttir
Hætt við að Kárahnjúkavirkjun standist ekki tímaáætlun Mjög tæpt er orðið að Kárahnjúkavirkjun standist tímaáætlun og má ekkert út af bera í jarðgangagreftri. Landsvirkjunarmenn halda þó enn í vonina um að virkjunin skili orku á tilsettum tíma. Innlent 10.11.2005 19:26
Al-Qaida liðar vilja breiða út óöldina Al-Qaida í Írak vill breiða óöldina þar út til nágrannaríkjanna, samkvæmt leyniskjölum sem fundust á föllnum aðstoðarmanni Zarqawis, leiðtoga samtakanna. Al-Qaida ber ábyrgð á þremur árásum í Amman í Jórdaníu í gær, þar sem nærri áttatíu manns af fjölmörgum þjóðernum féllu. Erlent 10.11.2005 19:26
Hlutverk sveitarfélaga að bæta kjör leikskólakennara Fjögur hundruð lærðir leikskólakennarar hafa valið sér annan starfsvettvang vegna lágra launa í faginu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að það sé alfarið hlutverk sveitarfélaganna að bæta úr því. Innlent 10.11.2005 19:15
Eru dagar Alain Perrin taldir? Milan Mandaric, stjórnarformaður Portsmouth virðist loksins vera að missa þolinmæðina í garð knattspyrnustjórans Alain Perrin, sem hefur aðeins stýrt liðinu til sigurs í fjórum af tuttugu leikjum síðan hann tók við á síðasta tímabili. Það er versti árangur nokkurs stjóra í sögu félagsins. Sport 10.11.2005 16:28
Æsileg barátta um annað sætið Petter Solberg og Marcus Grönholm há nú mikið einvígi um annað sætið í stigakeppni ökumanna á heimsmeistaramótinu í ralli. Nú stendur Ástralíurallið sem hæst og þar hefur Solberg nauma forystu eftir fyrstu tvær sérleiðirnar. Þeir félagar eru hnífjafnir í öðru sæti stigakeppninnar með 71 stig, en eru þó 56 stigum á eftir heimsmeistranum Sebastien Loeb sem þegar hefur tryggt sér titilinn. Sport 10.11.2005 16:02
Skuldabréf gefin út fyrir þrjá milljarða í dag Þýskur banki gaf í dag út skuldabréf upp á þrjá milljaðra íslenskra króna. Bréfin eru gefin út til tæplega tveggja ára eða fram í september árið 2007. Innlent 10.11.2005 17:58
Þrír handteknir vegna sprengjuárásanna Að minnsta kosti þrír menn hafa verið handteknir vegna hryðjuverkaárásanna í Amman í Jórdaníu í gærkvöldi. Frekari upplýsingar um mennina hafa ekki fengist en Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsækir borgina á morgun. Erlent 10.11.2005 17:55
Afsláttakortakerfi vegna læknishjálpar óréttlátt Afsláttarkortakerfi vegna læknishjálpar er mjög óréttlátt eins og það er í dag að mati Margrétar Frímannsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, og bitnar það verst á þeim sem eru með langvarandi sjúkdóma. Innlent 10.11.2005 17:28
Fékk 18 mánuði fyrir þjófnaði og tilraun til fjársvika Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir ýmis brot, þar á meðal þjófnaði og tilraun til fjársvika. Maðurinn var meðal annars dæmdur fyrir að hafa stolið skjávarpa af skrifstofu Sjóvá-Almennra og tilraun til að svíkja út vörur í verslun 10-11 í Kópavogi með stolnu debetkorti. Innlent 10.11.2005 17:06
Ánægður hjá Liverpool Franski sóknarmaðurinn Djibril Cissé hjá Liverpool segist nú vera ánægður í herbúðum liðsins og segist vilja klára samning sinn hjá félaginu. Cissé var mjög ósáttur með að vera ekki í byrjunarliði Liverpool í upphafi leiktíðar, en er nú orðinn markahæstur í liðinu og virðist hafa skipt um skoðun. Sport 10.11.2005 15:45
Aðkoma íslenskra lyfjafyrirtækja að baráttunni gegn alnæmi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ræddi við bandaríska þingmenn í gær og í fyrradag um hvernig efla megi baráttuna gegn alnæmi í veröldinni, einkum í Afríku, og hvernig Íslendingar, og þá fyrst og fremst íslensk lyfjafyrirtæki, gætu orðið þar að liði. Innlent 10.11.2005 16:39
Látið Crouch í friði Michael Owen hefur biðlað til stuðningsmanna enska landsliðsins að baula ekki á Peter Crouch þegar hann spilar fyrir liðið, því það geti grafið undan sjálfstrausti hans. Áhorfendur bauluðu á Crouch þegar hann spilaði fyrir England gegn Austurríki í síðasta mánuði, en framherjinn leggjalangi hefur ekki skorað mark fyrir Liverpool eða enska landsliðið í 16 leikjum á tímabilinu. Sport 10.11.2005 15:32
Enn talsverð mannekla á leikskólum og tómstundaheimilum Enn vantar starfsfólk í tæp 135 stöðugildi hjá Leikskólum Reykjavíkur og frístundaheimilum borgarinnar, en erfitt hefur reynst að manna þær í sumar og haust vegna þenslu á vinnumarkaði. Ástandið virðist þó vera að skána og umsóknum um störfin fer fjölgandi. Innlent 10.11.2005 15:30
Lék á tveimur yfir pari í dag Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lauk fyrsta keppnisdegi sínum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í dag á tveimur höggum yfir pari, eða 74 höggum. Skor er almennt frekar hátt á mótinu og innan við þriðjungur kylfinganna á mótinu á San Rouque vellinum eru á pari eða þar undir. Sport 10.11.2005 15:53
Forréttindi opinberra starfsmanna verði felld niður Stefna á að því að fella niður lögbundin forréttindi opinberra starfsmanna. Þetta sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag. Innlent 10.11.2005 15:22
Konan laus Árásarkona sem gerði tilraun til að ræna leigubílstjóra í gær með loftbyssu var látin laus eftir yfirheyrslur. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort hún verður ákærð. Innlent 10.11.2005 15:05
Alcan á Íslandi hf. hlýtur íslensku gæðaverðlaunin Alcan á Íslandi hf. hlýtur íslensku gæðaverðlaunin í ár . Halldór Ásgrímsson afhenti Rannveigu Rist, forstjóra Alcan, verðlaunin við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í dag. Alcan á Íslandi hf. rekur álverið í Straumsvík. Innlent 10.11.2005 14:59
Aukna þjónustu til sveitarfélaga Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra lýsti yfir vonbrigðum sínum með nýafstaðnar sameiningarkosningar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í morgun. Hann sagði ríkisvaldið hafa staðið við sitt með því að leggja fram tvo og hálfan milljarð en sú hvatning hafi greinilega ekki skilað sér. Innlent 10.11.2005 14:43
Ívar samdi við Reading til 2008 Ívar Ingimarsson hefur skrifað undir nýjan samning við fyrstu deildar liðið Reading, sem þýðir að hann verður hjá félaginu í þrjú ár til viðbótar. Ívar hefur verið í herbúðum liðsins síðan 2003, en samningur hans hefði runnið út í sumar. Sport 10.11.2005 14:06
Hef ekkert rætt við fulltrúa Arsenal Útsendari frá Arsenal fylgdist með Fernando Torres hjá Atletico Madrid spila um síðustu helgi og það gaf orðrómi um kaup Arsenal á framherjanum byr undir báða vængi í gær. Umboðsmaður Torres segist hinsvegar ekki hafa heyrt í neinum frá Arsenal í meira en eitt og hálft ár. Sport 10.11.2005 14:12
King og Lampard heilir Þrátt fyrir fréttir um hið andstæða í gær, virðist nú sem þeir Ledley King og Frank Lampard verði klárir í slaginn með enska landsliðinu gegn Argentínu á laugardaginn. Talið var að King gæti ekki spilað vegna hnémeiðsla, en bæði hann og Lampard komust í gegn um æfingu með enska liðinu í morgun. Sport 10.11.2005 13:57
Búist við sviptingum í íbúaþróun á þessu ári Búist er við að íbúum á Íslandi fjölgi tölvert á þessu ári umfram það sem verið hefur allmörg undanfarin ár. Þá flytja fleiri frá höfuðborgarsvæðinu en til þess í fyrsta sinn nærri 20 ár. Innlent 10.11.2005 13:57
Vitali Klitschko hættur Þungavigtarhnefaleikarinn Vitali Klitschko hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna 34 ára gamall vegna þrálátra meiðsla sem hann hefur átt við að stríða á undanförnum mánuðum. Fyrirhuguðum andstæðingi hans Hasim Rahman hefur því verið afhent WBC meistarabeltið, en þeir áttu að berjast núna 12. nóvember. Sport 10.11.2005 13:52
Búist við 67 milljóna rekstarafgangi á næsta ári Búist er við að rekstarafgangur Mosfellsbæjar verði jákvæður um 67 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem lögð var fram í bæjarráði í dag. Í tilkynningu frá Mosfellsbæ segir að gert sé ráð fyrir að heildartekjur verði 2,9 milljarðar en launakostnaður 1,5 milljarður, þar af renna 1,2 milljarður til fræðslu-, íþrótta- og tómstundamála. Innlent 10.11.2005 13:27
Fuglaflensa greinist í Kúveit Fuglaflensa hefur greinst í Kúveit, en þetta er í fyrsta sinn sem veikin finnst í ríki við Persaflóa. Flensan greindist Í tveimur fuglum í landinu og hefur þegar verið gripið til ráðstafana og þeim slátrað. Ekki liggur fyrir hvort fuglarnir voru sýktir af hinum banvæna H5N1-stofni sem borist getur í menn eða hvernig þeir sýktust. Erlent 10.11.2005 12:57
Stofna lúxusdagheimili í Danmörku Lúxusdagheimili fyrir börn hinna frægu og ríku munu að líkindum taka til starfa í Danmörku innan tíðar eftir að lögum um dagheimili þar í landi var breytt þannig að slíkur aðskilnaður verður mögulegur. Erlent 10.11.2005 12:15
Kona sem ógnaði leigubílstjóra enn í haldi Rúmlega þrítug kona er enn í haldi lögreglu, eftir að hún var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi þegar hún ógnaði leigubílstjóra með eftirlíkingu af skambyssu. Hún hafði boðið bílstjóranum blíðu sína en þegar hann þáði ekki boðið dró hún upp byssuna. Innlent 10.11.2005 12:13
Neyðarðagerðir virðast skila árangri Þriðju nóttina í röð dró úr óeirðum í Frakklandi. Neyðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar virðast ætla að skila tilætluðum árangri og þær falla vel í kramið hjá almenningi. Erlent 10.11.2005 12:08
Krónan lækkaði áfram í morgun Gengisvísitala krónunnar veiktist um eitt prósent í gær og fór í 102,8 stig. Hún hélt áfram að lækka í morgun, en aðeins lítils háttar. Eiríkur Guðnason, bankastjóri Seðlabanka Íslands, segir að lækkunin eigi ekki að koma neinum á óvart. Um litla breytingu sé að ræða en krónan hafi verið mjög sterk undanfarið. Innlent 10.11.2005 12:06
Vill slíta samstarfi við Sharon Amir Peretz, nýkjörinn formaður Verkamannaflokksins í Ísrael, vill slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Likud-flokk Ariels Sharons, forsætisráðherra landins. Hann mun hitta Sharon á sunnudag þar sem þeir ræða hvort kosningum í landinu verði flýtt vegna þessa. Erlent 10.11.2005 12:02